Morgunblaðið - 23.06.1967, Síða 26

Morgunblaðið - 23.06.1967, Síða 26
• 26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ 1967. I Spánn batt endi á Olympíudrauminn Spánverjar unnu íslendinga ■ IHadrid 5-3 — 13 mínútur stóð 3-2 fyrir íslendinga OLYMPÍUDRAUMUR íslenzkra knattspyrnumanna er búinn. í síðari leiknum við Spánverja í gærkvöld, sem fram fór á Borrachero leikvanginum í Madrid sigruðu Spán- verjar með 5 mörkum gegn 3. Kom sú markatala mjög á óvart eftir fyrri leik liðanna í Reykjavík þar sem hvort lið- ið skoraði eitt mark á síðustu mínútum leiksins, sem frægt varð. Eyleifur fékk mest lof fyrir leik sinn í gær, svo og Guð- mundur Pétursson markvörður, sem bjargaði oft glæsilega. Hann varð að yfirgefa völlinn í síðari hálfleik vegna meiðsla og kom Kjartan Sigtryggsson í hans stað. * 2—1 í hálfleik Spánverjarnir skoruðu fyrsta mark leiksins á 31. mínútu í fyrri hálfleik. Það skoraði Maxi, vinstri útherji Spánverja. Fjórum mínútum síðar jafnaði Magnús Torfason framvörður fyrir ísl. liðið og nú tók að fær- ast líf í tuskurnar, hraði var mikill í leiknum og skemmtileg- ir leikkaflar, en ísl. liðið lék þó varnarleik í heild, en byggði á einstaklingsframtaki í sókn. Minútu fyrir leiikhlé náðu Spánverjar aftur forystu í leikn um og hafði vinstri útherjinn Maxi aftur komist í færi og not að sér það vel. Þannig stóð í hálfleik 2—1 fyrir Spán. íslenzka liðið kom baráttu- glatt til síðari hálfleiks og eftir fjórar mínútur tókst liðinu að jafna leikinn. Jöfnunarmarkið skoraði Eyleifur Hafsteinsson. if Island nær forystu Baráttan var mikil í leikn- um og sókn á báða bóga. Er ' 19 mín voru liðnar af síðari hálfleik náðu íslendingarnir forystu í leiknum. Kári Árna son, h. innherji, skoraði mark Ið sem faerði íslendingum for ystuna. En Adam var ekki lengi i Paradís. Forystan stóð aðeins i 3 mín, en þá jafnaði h. inn- herjinn Aparicio fyrir Spán- verja. Leit nú út fyrir að leikurinn ætlaði að enda i jafntefli, sem hinn fyrri í Reykjavík. Tæpar 8 mínútur voru eftir af leiktím- anum, en þá var tekið að liggja allmjög á ísl. liðinu — þreyta farin að segja til sín í hitanum. Guðmundur varkvörður varð að yfirgefa völlinn og kom Kjartan í markið. Hvenær það var í hálfleiknum er ekki vitað. Á 38. mín hálfleiksins skor- aði Aparicio aftur og náði þann- ig forystu fyrir Spánverja og tveimur mínútum fyrir leikslok urðu fslendingar aftur að sjá á eftir knettinum í mark sitt og þar með innsigluðu Spánverjar sigur sinn. Það var Aparicio, h. innherji, sem skoraði þriðja mark sitt — hið eftirsótta „hat trick“ var í höfn. Dómari í leikðum var Moham ed S. Boukili frá Marokkó að því er segir í frétt frá AP-fréttastof unni, sem þessi frétt er byggð á. — ,, Um gang leiksins var ekki meira vitað í gærkvöldi, því þrátt fvrir ítrekaðar tilraun- ir náðist ekki í fararstjóm liðsins. Lét þó Talsambandið hér og í London ekki sitt eft- ir liggja í þeim tilraunm. En séð frá markatölunni einni samao þurfa f«Iending- I ar ekki að bera höfuðið svo Magnús og Eyleifur skoruðu fyrstu tvö mörk íslands. Mynd af Kára var ekki tiltæk um mið- nættið. mjög lágt. Munurinn á liðun- um virðist ekki ýkja mikij! og þegar litið er á þá stað- reynd að spánskir áhugamenn hafa nýlega unnið 3. sæti 1 áhugamanmakeppni Evrópu eru úrslitim ekki svo slæm. Spánverjar mæta næst ítöl um og er ráðgert að leikir þeirra fari fram í október þó leikdagar séu ekki ákveðnir. Það liðið sem þá sigrar mæt- ið V-Þjóðverjum eða Eng- lendingum í baráttu um sæti í lokatökunum í Mexico. — A. St. Frá keppninni á móinu fyrsta daginn. Islandsmótið loksins í 50 m sundlaug í Reykjavík í FYRSTA sinn getur Reykja- vikurborg og sundmenn í Reykjavik boðið til íslandsmóts í sundi í glæsilegri 50 m sund- laug. Islandsmótið er þegar haf- ið, hófst sl. mánudag og var þá keppt i þremur greinum og sett met í tveim þeirra í hinmi glæsi legu laug í Laugardal. Aðalhluti mótsins verður á laugardag og sunnudag og hefsd Norskt landslið valið í fslandsför NÆSTI stórviðburðurinn á sviði knattspyrnunnar hér heima verður heimsókn landsliða Noregs og Danmerkur — þ.e. liða skipuðum leikmönum 23 ára og yngri — en hér verður þriggja landa keppni í þessum aldursflokki 3., 4. og 5. júlí í til- efni af 20 ára afmæli KSf. Norðmenn hafa nú valið lið sitt. Á það að leika við Búlga- ríu, (jafnaldra), í Þrándheimi 28. júní og halda litlu síðar til fslands og leikur á móiti íslenzka liðinu 3. júlí. Lið Norðmanna er þannig skipað: Reidar Tessem, Lyn, Knut Jen sen, Rosenborg, Frank Olafsen, Skeid, Tor Alsaker, Nöstdahl, Strömgodset, Tore Börrehaug, Frigg, Per Pettersen, Frigg, Svein Kvia, Viking, Asbjörn Saltvedt, Djerv 1919, Knuitsen, Viking. Liðið heldur til fslands 30. júní og kemur heirn aftur 7. júlf. Norðurlunda- mót unglingo hér næstu úr Á RÁÐSTEFNU norrænna knattspyrnuleiðtoga sem hald- in var í Finlandi í sambandi við 60 ára afmæli finnska knatt spyrnusambandsins var ákveðið að unglingakeppni Norðurlanda — lið 18 ára og yngri — fari fram á íslandi næsta ár. Jafnframt var ákveðið að lækka aldurhámark leikmanna í þessari keppni um % ár svo það yrðí eins á Norðurlöndum og \ öðrum löndum. Næsta keppni unglingana fer fram í Finnlandi í júlíbyrjun og er röðin komin að íslandi að halda mótið eftir það og verður það hér 1968. keppnin báða dagana kl. 3 síð- degis. Á laugardaginn verður keppt í 100 m skriðsundi karla þar sem keppendur eru 21 í 3 riðl- um, 100 m bringusund karla, þar sem keppendur eru 15 í 2 riðl- um, 200 m bringusundi, 11 kepp endur, 400 m skriðsundi bvenna — 4 keppendur, 100 m skrið- sund telpna 4 keppendur, 100 m skriðsund sveina 14 keppend- ur, 200 m baksundi karla 6 keppendur, 100 m baksundi bvenna keppendur 12, 200 m fjór sundi karla 11 keppendur, 4x100 m skriðsundi kvenna 6 sveitir og 4x100 m fjórsundi karla 5 sveitir. Á sunudaginn er keppt i síð- ustu 12 greinunum. 50 m laugin veitir áhorfend- um miklu skemmtilegri keppni. Þar keppa allt að átta kepp- endur samtímis og gerir það keppnina að sjálfsögðu miklu skemmtilegri fyrir áhorfendur auk þess sem hver áhorfandi sit ur og nýtur keppninnar með góðri yfirsýn yfir alla laugina. Hver sem ann hinni fögru sund- íþrótt ætti þvi ekkj að lóta þetta fiyrsta íslandsmót i Laugar dalnum fxam hjá sér fara. í skó!a Sigurðar Greipssonar GAMLIR nemendur í fþrótta- skóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal hafa beðið Mbl. fyr- ir orðsendingu til eldri og yngri nemenda skólans, að þeir séu boðaðir til fundar að Hótel Sögu fimmtudaginn 29. júní n.k. kl. 8 síðdegis. Rætt verður um 40 ára afmæli íþróttaskólans og af- mæli skólastjóra Sigurðar GreÍDSsonar. M0LAR NORSKI sundmaðurinn Ulv Gustavssen bætti á sunnudag- inn — í annað sinn á nokkr- um dögum — norskt met sitt í 200 m fjórsundi. Synti hann á 2:28.4 mín. Á sama móti sigraði hann í 100 m skrið- sundi á 58.0. PORTÚGÖLSKU meistararn Benefica, voru á mánudaginn „slegnir út“ í portúgölsku bikarkeppninni. Töpuðu þeir fyrir Academica. Það lið varð nr. 2 í meistarakeppninni á eftir Benefica. ROSENBORG, norska liðið sem keppti við KR í keppn- inni um Evrópubikar bikar- meistara 1965, er nú efst í 1. deildinni norsku og hefur 4 stiga forskot fram yfir næsta lið. Rosenborg var 1965 ný- komið í 2. deild eftir veru í 3. deild, en hefur siglt hrað- byri beint á toppinn í norskri knattspyrnu. Liðinu er spáð sigri í 1. deildinni nú — og mætir þá í Evrópukeppni meistaraliða næsta ár. SVEIT hlaupara frá South California College hefur enn bætt heimsmetið í 4x110 yarda boðhlaupi. Hljóp sveit- in á 38.6 sek á háskólameist- aramótinu bandaríska. Á sama móti vann heimsmethaf inn Tommie Smith 220 yarda hlaup á 20.2 sek. L

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.