Morgunblaðið - 24.06.1967, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JUNI 1967.
7
hýsi — cins og á myndinni sést. Miðar eru seldir úr hjólhýsinu, sem er í Bankastræti og kostar hver
þeirra kr. 50,00. Dregið verður um Verzlunarmann ahelgiua.
FRÉTTIR
Konur í Styrktarfélagi van-
gefinna. Farið verður að Sólhekn
«m í Grímsnesi sunnudaginn 2.
júlí kl. 13. frá bílastæðinu við
Kalkofisveg. Faxið kostar kr.
250,00 báðar leiðir. Þátt/taka til-
kynnist skrifstofu félagsins fyrir
föstud.aginn 30. júní. Farin er
einungis fyrir félagskonur.
Listsýning kvenna að Hallveig
arstöðum er opin daglega frá kl.
2 — 10 til mánaðamóta.
Fíladelfía, Reykjavík. Almenn
eamikoma sunnudaginn 25. júní
kl. 8. Einar J. Gíslason, Vest-
mannaeyjum, er verið hefur í
útlönidum undanfarinn tíma, tal-
ar sennilega á samkomunni.
Vegna sumarmótsins, sem hefst
í Styfckishólmi þriðjudaginn 27.
júní eru þeir, sem ætla að sækja
mótið beðnir að mæta á sam-
komu á sunnudagskvöld kl. 8.
Bænastaðurinn, Fálkagötu 10.
Kristileg samkoma sunnudaginn
25. júní kl. 4. Bænastund alla
virka daga kl. 7 síðdegis. Allir
velkomnir
Hjálpræðisherinn. Helgunar-
eanikoma á sunnudag kl. 11. Kaf
teinn Bognöy talar. Útisamkoma
á Lækjartorgi kl. 16. Kveðjusam
koma fyrir Brigader Imma og
Óskar Jónsson kl. 20:30. Brigader
Henny Driveklepp stjórnar. For-
ingjar og hermenn taka þátt. All.
ir velkomnir.
Kvenfélag Hafnarfjarðarkirkju
fer í skemmtiferð í Borgarfjörð
sunnudaginn 2. júlí. Lagt verður
af stað frá kirkjunni kl. 8:30 um
morguninn. Nánari upplýsingar
gefa Guðfinna Sigurðardóttir,
sími 50181, Sigríður Bergsdóttir,
sími 51045 rg Sveinbjörg Helga-
dóttir, sími 50295.
Heimatrúboðið. Almenn sam-
koma sunnudaginn 25. júní kl.
20:30. Allir vel'komnir.
Háteigskirkja. Almenn fjár-
eöfnun til kirkjubyggingarinnar
stendur enn yfir. Það eru vin-
samleg tilmæli til þeirra, sem
hafa hugsað sér að leggja kirkj-
unni fjárhagsilegt lið. að þeir geri
aðvart í síma 11834, 11813 eða
15818. Kirkjan verður opin og
almenningi til sýnis alla virka
daga á næstunni kl. 5 — 7 síð-
degis og verður gjöfum veitt
mótaka þar. Sími kirkjunnar er
12407. Sóknarnefnd Háteigs-
kirkju.
Kvennadeild Skagfirðingafélags-
ins í Reykjavík gengst fyrir
skemmtiferð í Þjórsárdal sunnu
daginn 2. júlí kl. 8:30. Þátttaka
tilikynnist fyrir 28. júní til Lovísu
Hannesdóttur, Lyngbrekku 14,
sími 41279 og Sólveigar Krist-
jánsdóttur, Nökkvavogi 42, sími
32853. Allir Skagfirðingar vel-
komnir. ’Nefndin.
Sumarferð Nessafnaðar verð-
■ur farin sunnudaginn 25. júní.
Lagt verður af stað kl. 10 frá
Neskirkju. Farið verður um suð-
urhluta Árnessýslu og messað í
Gaulverjabæ kl. 2. Þátttaka til-
kynnist Hjálmari Gíslasyni,
kirkjuverði, milli kl. 5 og 7, sími
16783. Ferðanefndin.
Frá Guðspekifélaginu. Sumar-
skólinn verður í Guðspekifélags-
húsinu í Reykjavík dagana 25.
júní til 1. júlí. Þátttaka tilkynn-
ist í síma 17520 eða 15569.
Kristileg samkoma verður í
samkomusalnum að Mjóuhlíð 16
sunnudagskvöl'dið 25. júní kl. 8.
AHt fólk hjartanlega velkomið.
Sjóstangaveiðimót verður hald
ið í Keflavík sunnudaginn 25.
júni á vegum félaganna í Kefla-
vík, Reykjavík og á Keflavíkur-
flugvelli. Farið verður á sjó á
6-8 bátum. Lagt verður af stað
kl. 8 og komið að landi kl. 4.
Margháttuð verðlaun verða veitt
eins og venjuilega á þessum mót-
urn fyrir mestan afla, þyngstan
fisk o.s.frv. Aðsetur veiðimanna
verður í Aðalveri hjá Friðrik
Jóhannssyni, formanni Sjóstanga
veiðifélags Keflavíkur.
Kvenféiag Laugarnessóknar.
Farið verður í Heiðmörk laugar-
daginn 24. júní. Farið verður frá
Laugarneskirkju kl. 2 eftir há-
degi.
Orðsending frá Félagi heim-
ilislækna. Þar eð fyrirsjáanlegur
er mikill skortur á heimilislækn-
um í borginni á meðan sumarfrí
lækna standa yfir, er fólk vin-
samlegast beðið um að taka til-
lit til þesis ástands. Jafnframt
skal það ítrekað, að gefnu ti'lefni,
að neyðarvakt að deginum og
kvöld. og næturvaktir eru aðeins
fyrir bráð sjúkdómstilfelli, sem
ekki geta beðið eftir heimilis-
lækni til næsta dags. Stjórn Fé-
lags heimilislækna.
Dýrfirðingafélagið fer til skóg
ræktar í Heiðmörk sunnudaginn
25. júní. Lagt verður af stað kl.
2 frá bifreiðastæðinu á móti Vest
urgötu 3. Fjölmennið. Skógrækt
arnefnd Dýrfirðingaféla'gsins.
Súgfirðingafélagið í Reykjavík:
Farið verður í gróðursetningar-
ferð í Heiðmörk laugardaginn 24.
þ.m., ef veður leyfir. Lagt verð-
ui af stað frá Gagnfræðaskóla
Vesturbæjar við Vonarstræti 1,
kl. 2 e.h. Félagar Fjölmennið.
Kvenfélagskonur, Keflavík.
Farið verður í okkar árlegu
skemmtiferð sunnudaginn 25.
júní. Þátttaka tilkynnist í síma
1590.
Kvenfélag Bústaðasóknar fer
hina árlegu sumarferð sína
næstkomandi sunnudag, 25. júní.
Farið verður frá Réttarholts-
skóla kl. 8:30. Nánari upplýsing-
ar fást hjá Borghildi í síma
32568, Elínu í síma 33912 og
Helgu í síma 33416.
Langholtsprestakall. Guðsþjón-
usta verður á Þingvöllum, fyrir
oían Vestfirðingabúð, milli Lög-
bergs og Valhallar, næstkomandi
sunnudag kl. 14:30. Lagt verður
af stað austur frá safnaðarheim-
ilinu kl. 13:30. Tekið verður á
móti sætapöntunum fyrir þá, er
þess æskja í síma 35750 fimmtu-
dag og föstudag milli kl. 18 og
19. Samstasfsnefnd.
Sunnukonur, Hafnarfirði. Farið
verður í ferðalag upp á Akra-
nes sunnudaginn 25. júní. Stanz-
að við Saurbæjarkirkju og í
Vatnaskógi. Lagt af stað frá
Þórsplani kl. 9 árdegis, stund-
víslega. Ferðanefndin.
Kópavogur. Húsmæðraorlofið
verður að Laugum í Dalasýslu
frá 31. júlí til 10. ágúst. Skrif-
stofa verður opin í júlímánuði í
Félagsheimili Kópavogs, annarri
hæð, á þriðjudögum og fimmtu-
dögum frá kl. 4 til 6. Þar verð-
ur tekið á móti umsóknum og
veittar upplýsingar. Sími verður
41571. Orlofsnefnd.
Kvenfélag Langholtssóknar.
Sumarferðir félagsins verða
farnar í Þórsmörk 28. júní k.l
7:30. Upplýsingar í síma 38342
og 33115 og 34095. Vinsamlegast
látið vita i síðasta lagi fyriir
mánudagskvöld.
Kvenfélag Grensássóknar fer
í ferðalag um Borgarfjörð 27.
þessa mánaðar. Nánari upplýs-
ingar gefa Sigríður Skarphéðins
dóttir, sírni 36683, Margrét Guð-
varðsdóttir, simi 32774 og Hlíf
Kristensen. sími 37083.
Frá Mæðrastyrksnefnd. Konur
sem óska eftir að fá sumardvöl
fyrir sig og börn sín í sumar á
heimili Mæðrastyrksnefndar að
Hlaðgerðarkoti í Mosfellssveit
tali við skrifstofuna sem fyrst.
Skrifstofan verður opin alla
virka daga nema laugardaga frá
kl. 2 til 4, sími 14349.
SÖFN
Ásgrímssafn, Bergstaða-
stræti 74 er opið sunnudaga,
þriðjudaga og fimmtudaga
frá kl. 1.30 — 4.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið daglega frá kl. 1:30
til 4.
Náttúrugripasafnið er opið
alla daga frá kl. 1:30 til 4.
Árbæjarsafn er opið alla
daga kl. 14:30 — 18:30 nema
mánudaga.
Bókasafn Sálarrannsóknafé-
lags íslands, Garðastræti 8,
sími 18130, er opið á miðviku-
dögum frá kl. 17:30 til 19.
Listasafn íslands er opið
daglega frá kl. 13:30 til 16.
Þjóðminjasafn íslands er
opið daglega frá kl. 13:30 til
16.
>f Gengið >f
Reykjavíjk 19 júní. 1967.
Kaup Sala
1 Sterlingspund 119,95 120,25
1 Bandar. dollar 42,95 43,06
1 Kanadadollar 39,67 39,78
100 Danskar krónur 620,50 622,10
100 Norskar krónur 600,45 602,00
100 Sænskar krónur 833,45 835,60
100 Finnsk mörk 1.335,30 1.338,72
100 Fr. frankar 875,80 878,04
100 Bglg. frankar 86,53 86.75
100 Svissn. frankar 990,70 993,25
100 Gyllini 1.193,04 1.196,10
100 Tékkn. kr. 596.40 598,00
100 Lírur 6.88 6,90
100 V.-þýzk mörk 1.079,10 1.081,86
100 Austurr. sch. 166,18 166,60
100 Pesetar 71,60 71,80
Túnþökur nýsfcornar til sölu. Uppl. í síma 22564 og 41896. Þvottapottur Notaður rafmagnsþvotta- pottur fimmtiu til hundr- að lítra óskast til kaups. Uppl. í sírna 23366.
Til sölu Simca Arianne árg. ’59 til niðurrifs. Selst ódýrt. Uppl. á Tjarnargötu 38 Keflavík. Varastykki í Chverolet 1958 til sölu. Uppl. í síma 15640 í há- degi og eftir kl. 8 á kvöld in.
Einhvers konar vinna óskast fyrir 14 ára telpu, helzt í sveit. Uppl. í sima 51119, Hafnarfirði. Herbergi óskast til leigu á góðum stað (. borginni. Góð leiga. Uppl. sendist Dagbók Mbl. merktar „Algjör reglu- semi“.
Framköllun á litfilmum 12 mynda filmur kosta að- eins kr. 170, — tekur 10 daga. Sendum gegn pwst- kröfu. Umboð UCL. Kefla vík. Bíll óskast helzt Mercedes Benz 1413 með krana. Skipti á 322 koma til greina. Uppl. í síma 92—8215.
Óska eftir góðuim sex manna bíl. Ekki eldri en árg ’57. Mán aðargreiðslur. Tilboð send ist afgr. blaðsins í Kefla- vík merkt „877“. F asteignatry ggð skuldabréf til sölu, seljast með góðum kjörum. Til- boð leggist inn á afgr. Mbl. merkt „Skuldaforéf 405 — 20“.
Hafnarfjörður Ung hjón með eitt barn ós'ka eftir 2ja herb. íbúð sem fyrst. Sími 51927 milli kL 8 og 9 á fcvöldin. Kona óskast eftir léttri vinnu í Rvík eða nágrenni þar sem hús næði fylgir. Til greina kæmi að hugsa um heim- ili fyrir 1—2 menn. Sími 30524.
Keflavík — Suðurnes Nýkomnar fallegar ódýrar nylonúipur O'g drengja- blússur stærðir 2—16. Til- valið í sumarfríið. Verzlun Kristínar Guðmundsdóttur
Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu
Skrifstofustúlka
óskast til starfa. Stúdentsmenntun eða hliðstæð
menntun æskileg. Þarf að hafa góða vélritunar-
kunnáttu og æfingu í erlendum bréfaskriftum. Um-
sóknir sendist fyrir 30. júní næstkomar.di.
Rafmagnsveitur ríkisins
starfsmannadeild, Laugavegi 116.
Tún til söln
Tilboo óskast í afgirt tún um 15 km frá Reýkjavík,
landsstærð 8—10 hektarar. Tilboð merkt: „Félags-
heimili — 14“ sendist blaðinu fyrir 30. júní. Gæti
hentað félögum eða ýmsum samtökum.
Frá Stýrimannaskólanum
í Reykjavík
f ráði er að starfrækja 1. bekk fiskimannadeildar á
Akureyri á vetri komanda, ef næg þátttaka fæst.
Námstími frá 1. október til 31. marz. Próf upp úr
1. bekk veitir minna fiskimannaprófsréttindi (120
tonna réttindi). Ekki verður haldin deild með færri
en 10 nemendum. Umsóknir sendist undirrituðum
fyrir 1. ágúst.
Inntökupróf í stærðfræði, ensku og dönsku upp
í 2. bekk fiskimannadeildar fyrir þá, sem hafa hið
minna fiskimannapróf, verður haldið 29. og 30.
september. Námskeið í stærðfræði fyrir það próf,
verður haldið 29. og 30. september. Námskeið í
stærðfræði fyrir það próf hefst 15. september.
SKÓLASTJÓRINN.