Morgunblaðið - 04.07.1967, Síða 4

Morgunblaðið - 04.07.1967, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1967. BÍLALEIGAN - FERÐ- Dsiggjald kr 356,- og pr km kr. 3,20. SIMI 34406 SENDUM BILA LEIGA wmmm. ÍVtAGMÚSAR SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190 eftirlokuníimi 40381 Sl“ 1-44-44 VmfíÐ/fí Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN tngólfsstræti 1L Hagstætt teigugjalð. Bensín innifaiið < ieigugjaidi Simi 14970 BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundiaugaveg 12. Sími 35135. Eftir lokun .54936 og 36217. RAUOARARSTlG 31 SfMI 22022 Flest til raflagna: Rafmagnsvörur Heimilstæki tJtvarps- og sjónvarpstæki Kafmagnsvömbúðin sf Suðurlandsbraut 12. Simi 81670 (næg bílastæði) Ferðafélag Islands Ferðafélag íslands ráðgerir eftirtaldar sumarleyfisferðir í júlí: 6. júlí er 4 daga ferð um Síðu að Lómagnúp. 7. júli er 10 daga ferð um Vopnafjörð og Melrakkasléttu. 8. júlí er 9 daga ferð um Vest- firði og Vesturland. 10. júlí er 9 daga ferð um Horn- standir. 11. júlí er 14 daga ferð um Norður- og Austurland. 12. júlí er 12 daga ferð um öskju- Ódáðahraun og Sprengi- sand. 15. júlí er 6 daga ferð um Kjal- vegssvæðið. 15. er 10 daga ferð um Land- mannaleið og Fjallabaksveg. 22. júli er 5 daga ferð um Skagafjörð og suður Kjalveg. Nánari upplýsingar veittar f skrifstofu félagsins öldugðtu 3, simar 1953 — 11798. lAr Sumarblíða Sennilega er ekki rétt að minnast á sumarbliðuna um síðustu helgi, því kannski verð- ur komin ausandi rigning, þeg ar þið fáið blaðið ykkar. En um helgina streymdu þúsundir manna á þúsundum bíla út úr borginni í lengri eða skemmri ferðir. Á öllum stöðum, sem aðdráttarafl hafa hér í nágrenn inu, var krökt af fólki. Umferð in var gífurlega mikil á vegun um og gekk yfirleitt vel þótt rykið gerði mörguim gramt í geði. Og avo er það umferðar- hnúturinn við Elliðaárnar. Segja má, að litlu máli skipti hvort menn komast heim til sín 5—15 mínútum fyrr en ella en það léttir ekki skapið að síðasta spölinn að bæjardyrun- um. ■jAr Zetan og íslenzk tunga Hér er svo enn eitt bréf um zetuna: „Okkur Velvakanda kemur ekki saman um zetuna. Ég er nú ekkert hissa á því. Zeta hefði ekki verið lögboðin í skólum, ef ekki hefðu verið æðimargir með henni, að minnsta kosti af menntamönn- unum. Þó er zetan alveg óþörf, sem hefur sýnt sig, því að í mörg ár var hún felld niður, og skildist þó allt ritað mál. Að zeta sé falleg, það finnst mér fjarstæða, hún er ljót og vont að skrifa hana og hún fellur illa að öðrum stöfum. mjög auðvelt sé að vita hvar eigi að skrifa zetu. Það hef- ur jafnan verið talið erfitt að finna hvar eigi að skrifa zetu og „ypsilon". Það er nú sjálfsagt vegna vanans að ég kaim mjög illa við að sleppa „ypsiloni", og finnst prentað mál án þess mjög óiviðfeldið, en aftur á móti sakna ég aldrei zetu, og ég er viss um að eftir nokkar ár færi eins með zetuna eins og æ af ó og æ af á, það sakn- aði hennar enginn. Hér áður var iðulega skrifað c í orðum þar sem við nú skrif um kk, t.d. var skrifað ecki, nú þættí það afkáralegt. Þetta ar eins og með ýmislegt annað, að sínum augum lítur hver á silfr- ið. Það er rétt hjá Velvakanda, að íslenzkan er erfitt mál, og það er óþarfi að gjöra það erf- iðara en þarf, með óþarfa stöf- um. Ég er sammála Velvak- anda um það, að ljótt er að slengja saman í eitt fleiri orð- um eins og Halldór Laxness gjörir iðulega. Ennþá meira hneykslar mig þó að heyra og sjá þágufall notað í stað þol- falls, svo sem „þora því“ o.fl. Eins heyri ég marga tala um það nú sem ég aldrei heyrði i mínu ungdæmi: „að ganga við hjá einhverjum. Þá var jafnan sagt „að koma við“. Að koma við á þessum og þessum bæ. Líka var sag.t að ganga um hlaðið á bæjum. Nú heyri ég menn segja „að renna við hjá einhverjum“ ef þeir eru á bíl. Það getur vel verið að þetta sé rétt eða geti staðist, en ég kann illa við það. Okkur Velvakanda þýðir sjálfsagt ekki að deila um zetuna, við verðum víst ekki sammála. En spá mín er sú, að eftir nokkur ár verði hún felld niður, eins og aðrir óþarfa staf ir, svo sem c og danska þ-ið, og rnundi létta erfiðleika is- lenzkunnar. Vík ég ekki frá því að nær væri að verja þeim tíma, sem fer í það að kenna nemendum hvar eigi að skrifa zetu til þess að kenna fallegan framburð og að skrifa fallegt mál. __ J.J.L.“ ýbr Verðlag í mjólkurbúðum „Tvær fáfróðar“ skrifa eftirfarandi bréf: „Kæri Velvakandi. Þú, sem leitast við að leysa hvers manns vanda, getur ef til vill orðið okkur að liði. Við erum tvær konur, sem vinnum saman. Daglega kaupum við okkur skamomt í mjólkurbúð, það er 1 dl. að rjóma, 1 pela af mjólk og 100 gr. af skyri. Sumsstaðar er okkur sagt að þetta kosti kr. 13.45, en annars staðar kr. 13.50. Nú reiknum við með að Mjólkursamsalan hafi ákveðinn verðlista yfir sío ar vörur og óskum eftir að fá úr því skorið, hvað þessir hlut- ir eiga að kosta. Okkur þykir ótrúlegt að þetta sé selt ódýr- ara en textinn segir til um og reiknum því með að nokkrar krónur séu framyfir yfir árið, því vissulega erum við ekki einar um að verzla í búðum samsölunnar. Þess vegna spyrj- um við: Hefur verið stofnaður nokkur styrktar- eða minning- arsjóður á vegum samsölunn- ar, sem okkur er ekki kunnugt um? — Tvær fáfróðar". ★ Samkvæmt upplýsingum, sem Velvakandi fékk hjá Mjólkursamsölunni, ber frún- um að borga kl. 13.45 fyrir dag skammtinn sinn. "Ar Oft mikill verðmunur í þessu sambandi sakar ekki að minna á, að verð á sömu vöru er oft æði misjafnt í verzlunum. Kemur þetta m.a. fram í verðlista þeim, sem skrifstofa verðlagsstjóra send- ir frá sér við og við. Þar er tekið fram að eðlilegar orsak- ir geti legið til þessa. Þeir neyt endur, sem fylgjast vel með verðlaginu, vita þetta o.g haga innkaupum sínum eftir þvL Verður „dagskammtur“ þeirra því oft þó nokkuð ódýrari en hinna, sem gera öll sín kaup í næstu búð án þess að velta fyr ir sér verði vörunnar. Auðvit- að getur „næsta búð“ verið sú bezta, en það sakar ekki að fylgjast með því hvað sama vara kostar annars staðar. Sann leikurinn er sá að neytendur gera ekki nógu mikið af því að bera saman vöruverð og finna út, hvar bezt er að verzla. þurfa að rykkjast þetta áfram Það er heldur ekki rétt að Reglusamiir piltur með Verzlunarskólapróf óskast til starfa nú þegar. Tilboð sendist blaðinu fyrir miðvikudagskvöld mepkt: „792.“ Moskvitch til sölu árg. 1963 í góðu standi. Uppl. gefnar hjá Bifreið- um og landbúnaðarvélum, Suðurlandsbraut 14, sími 38600. International Hospitality. Foreldrar látið börn yðar læra ensku þar sem hún er töluð bezt. Getum útvegað sumarskóla á Suður- Englandi. Dvalarstaðir hjá völdum fjölskyldum. Nemendur eru undir stðugu eftirliti skólans. All- ar nánari upplýsingar í síma 41050. HRPPDRIETTI SIBS Dregið á morgun EnouRnviun ivkur n hAoeci

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.