Morgunblaðið - 04.07.1967, Síða 5

Morgunblaðið - 04.07.1967, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚLÍ 1967. 5 Saltfisksframleiðslan dregst verulega saman Saltfiskur fluttur út fyrir samtals 547 milljónir kr. Frá aðalfundi Sölusambands islenzkra fiskframleiðenda AÐALFUNDUR Sölusambands ísl. fiskframleiðenda var haidinn í Sigtúni í dag 1. júlí. Formaður félagsstjórnar Tómas Þorvalds- son setti fundinn, en fundarstjóri var kjörinn Jón Árnason, al? þingismaður. í skýrslu félags- stjórnar fyrir árið 1966 kemur fram, að heildarsaltfiskfram- leiðsla ársins 1966 nam um 28 þúsund lestum blautsaltaðs fisks — eða um 2000 lestum minna en árið 1965. Helstu markaðslönd fyrir salt- fisk voru Portugal, þangað voru seld 9338 tonn, til Spánar 6548 tonn, Ítalíu 3778 tonn, Bretlands 2519 tonn, Grikklands 926 tonn og minna magn til ýmissa ann- arra lianda. Söltuð afsaiflök til Þýzkalands. voru 1412 tonn. Helzta markaðsland fyrir þurrk- aðan salfisk var eins og áður Brasilía, en þangað voru seld um 1200 tonn. Heildarverðmæti saltfisksút- flutningsins árið 1966 nam um 547 milljónum króna fob. Verð á stórfiski vertíðaraflans 1966 var að meðaltali 13—14% hærra en fyrir vertíðaraflann 1965. Smáfiskur átti erfiðara upp- dráttar sérstaklega er líða tók á árið, og lækkaði verð hans á mörkuðunum um ca. 13% frá miðju ári til ársloka. Verðlækk- un sú, sem varð á smáfiski staf- aði fyrst og fremst af of miklu framboði smáfisks á mörkuðun- um, aðailega frá Færeyjum og Mikið úrval af GOOD YEAR gólfflísum og NEODON og DLW gólfteppum. — Gott verð. LITAVER S.F., Símar 30280, 32262. Hluthafafundur í Samvinnubanka íslands h.f., verður haldinn í Sambandshúsinu, Reykjavík, mánudaginn 10. júlí, 1967 og hefst kl. 17.00. DAGSKRÁ: 1. Tillaga um hlutafjáraukningu. 2. Önnur mál. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað. Bankaráð Samvinnubanka íslands h.f. Til sölu er að Njálsgötu 49, Reykjavík: 1. Verzlunarhúsnæði á götuhæð, tvö herbergi, sam- tals um 75 fermetrar að stærð. 2. fbúð á 2. hæð, þrjú herbergi, eldhús og bað, samtals um 80 fermetrar að stærð. 3. fbúð á 3. hæð, þrjú herbergi, eldhús og bað, samtals um 80 fermetrar að stærð. 4. Tvískipt rishæð, með tíu einstaklingsherbergj- um, fimm herbergjum í hvorum enda, samtals að flatarmáli um 160 fermetrar, sem möguleiki er á að breyta í tvær íbúðir. Frekari upplýsingar gefur: ÖRN ÞÓR, hæstaréttarlögmaður. Bankastræti 7. — Sími 19516. Þýzkalandi. Þær hækkanir sem náðust á söluverði stórfisks á ár- inu 1966 runnu þó ekki beint og óskertar í vasa framleiðenda. Launahækkanir á árinu munu ekki hafa verið undir 19,7% og ferskfiskverðið hækkaði a.m.k. um 17% frá árinu áður. Það kemur íram í skýrslu stjórnar S.Í.F. fyrir árið 1966, að mikið vantar á að hægt hafi verið að fullnægja eftirspurn markað- anna fyrir blautverkaðan stór- fisk eða 15 til 20 þúsund tonn — og ekki var heldur hægt að full- nægja eftirspurn markaðanna fyrir þurrkaðan saltfisk. 1 ræðu formanns, þar sem skýrt. var frá sölu og framleiðslu yfirstandandi árs, kom meðal annars fram, að saltfiskfram- leiðslan í ár hefir enn dregizt saman. Má þar vafalaust að nokkru kenna um eindæma ógæft um á nýlokinni vetrarvertíð. Auk þess hefir saltfiskur orðið útundan við skiptingu hagræð- ingarfjár og því ekki notið sömu aðstöðu til framleiðniaukningar og aðrir þættir fiskvinnslunnar. Heildarbolfiskaflinn var frá 1/1 til 31/5 1966 232.400 tonn en á sama tímabili í ár 202.230 tonn. Ekki liggja endanlega fyrir tölur um skiptingu aflans eftir tegundum, en við apríllok í ár var þorskaaflinn um 46 þúsund tor.num minni en árið 1966. Salt- fiskframleiðslan í ár frá ára- mótum til 1/6 nemur aðeins um 17.600 tonnum eða um 72% af því sem saltað var á sama tíma árið áður. Það kom fram í ræðu for- manns, að sölur saltfisks í ár gengur mjög greiðlega og að all- ur saltfiskur verður útfluttur um miðjan þennan mánuð. Ennfremur kom það fram, að til þess að hægt hefði verið að fullnægja þörfum markaðanna fyrir stórfisk, hefði framleiðslan mátt vera 20 til 25 þúsund tonn- um meiri en hún varð. Örlítil hækkun náðist á verði blaut- saltaðs stórfisks mðiað við árið 1966. Framhald á bls. 24. Hallgrímskirkja á Skólavörðuholti gnæfir yfir Reykjavíkur- borg og sést víða að. Myndina tók ljósmyndari Mbl. Ól. K. Magnússon í gær. Turn Hallgrímskirkju er orðinn 45 m á hœð Stefnt að því að fullgera kirkjuna árið 1974 „AUÐVITAÐ er það ákaflega mikil bjartsýni af okkur að halda, að hægt verði að full- gera Hallgrímskirkju í Reykjavík fyrir árið 1974, en við vitum, að vinir hennar eru víða, og stefnum þess vegna ótrauðir að settu marki,“ sagði Hermann Þor- steinsson, gjaldkeri bygging- arnefndar Hailgrímskirkju, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær til þess að frétta, hvernig bygg- ingarframkvæmdir kirkjunn- ar stæðu í dag. „I þessari viku er verið að Ijúka við að ganga frá mót- um að efstu hæð turnsins, og þegar lokið verður við að steypa hana, sem væntanlega verður á næstunni, verður turninn kominn í 45 metra hæð. Þá er komið að turnspír- unni, sem einnig er úr stein-' steypu, en spíran er opin, stuðluð eins og turninn og í neðri hluta hennar er klukknaportið, og höfum við þegar gert kostnaðaráætl un og vinnuteikningar að þeim hlula og stefnum að því að ljúka þeim hluta í sumar. Einnig er meiningin að koma fyrir almenningslyftu j turninn fyrir haustið, og hef ur þegar verið tekið tilboði í hana frá Vestur-Þýzkalandt Myndast þá í 45 roetra hæð hinn ákjósanlegasti útsýnis- pallur fyrir almenning, og er hugmyndin að fá leyfi ti, þess að nota hann með haust- inu. Turnspíran verður öll 25 metrar á hæð, og með krossi, sem kemur efst, og verður 4—5 metrar á hæð, verður allur turninn 7414 meter á hæð. Eins og ég sagði áðan, stefn um við að því að kirkjan verði fullbúin árið 1974, en þá eru einmitt 300 ár liðin frá dauða séra Hallgríms, og Framhald á bls. 24. Gerið góðan mat betri með BÉLDUDALS niðursoónu grænmeti Húseignin Norðurbraut 19 « Hafnarfirði er til sölu Húsið er vandað og vel hirt, járnvarið timburhús með steyptu kjallaralofti. Á aðalhæð eru þrjú rúm- góð herb. og eldhús, á efri hæð tvö herb. eldhús og bað. í kjallara eitt herb. og eldhús, geymsla og þvottahús. Til mála kemur að selja kjallaraíbúð- ina sérstaklega. Sanngjarnt söluverð og hófleg út- borgun. Eignin er í mjög góðu ástandi. ÁRNI GUNNLAUGSSON HRL. Austurgötu 10. Hafnarfirði, sími 50764. Kl. 9.30 12 og 1—5. Húseigendur Hafið þið kynnt ykkur verð og hæfileika hinna heimsviður- kenndu M.A.C. mótorsláttuvéla 14, 18, 22ja tommu. Sendum í póst- kröfu hvert á land sem er. M.A.C. umboðið P.O. Box 618, Reykjavík. Sími 40403.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.