Morgunblaðið - 19.07.1967, Síða 5
MGROUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 1967
5
Ný rétt, Vatnsrétt, tekin
í notkun í Mosfellssveit
Reykjum, mánudag.
VORSMALANIR hafa nú staðið
yfir fram á helgina, en í gær
var réttað í aVtnsrétt í Mosfells
sveit og rúið og markað.
var réttað í Vatnsrét-t í Mosfells
hreppur hefur iátið gera við
Leirvogsvatn á norðurhluta Mos
fellsheiðar.
Þessi rétt er fyrst um sinn
ætluð sem vorrétt, en líklegt er,
að þróunin verði sú, að hún
verði einnig notuð á haustin
vegna þess, hve Hafravatnsrétt
er orðin innilokuð af girðingum
og sumarhúsum.
Landbúnaður hefur nokkuð dreg
izt saman hér í sveit, en þó eink
um varðandi mjólkurframleiðslu.
Sauðfjárbúskapur er þó nokkur
einkum á fjallajörðunum, og
vill sveitarstjórn stuðla að því,
að aðstaða þessara manna, sem
þetta stunda sér til lífsframfær-
is sé sæmileg með tilliti til beit-
ar á afrétti og bætt sé aðstaða
við fjallaskil.
Þetta kemur þéttbýli einnig
til góða, þar eð stefnt er að því,
að sauðfé gangi ekki laust þar
til skaða eða skapraunar þeim,
sem þar búa.
Afréttarmál Mosfellinga er
gamalt mál og er stöðugt stefnt
að því að hreppsfélagið eigi
sjálft afréttinn. Á sínum tíma
keypti Mosfellshreppur heiða-
land það, er tilheyrði prestssetr-
inu að Mosfelli. Einnig var
keypt allt heiðaland af eiganda
Dallands, en áður hafði Mosfells
hreppur eignazt hluta af Þor-
móðsdal í makaskiptum við rík-
issjóð.
Næsta skerf hefur svo verið,
að Alþingi hefur samþykkt að
veita ráðherra heimild til að
selja Mosfellshreppi jarðirnar
Bringur og Þormóðsdal. Bringur
eru fjallajörð að mestu og er
ætlunin að hún leggist við að-
liggjandi afrétt.
Þormóðsdalur er hins vegar
fremur jörð, sem sveitarfélagið
þarf að eignast af skipulags-
ástæðum, þótt ungur og dugandi
maður reki nú búskap á jörð-
inni.
Þessi brýnu hagsmunamál Mos
fellinga verða því væntanlega
leyst fyrir haustið og er þá þrjá-
tíu ára barátta fyrir eigin af-
rétti ',il lykta leidd.
Hin nýja rétt ,sem ég hef
ieyft mér að nefna Vatnsrétt, er
úr timbri, en gerðið úr vírneti.
Hefur hún verið staðsett af
fjallskilanefnd hreppsins og
smíðuð undir stjórn Hauks Ní-
elssonar, hreppsnefndarfulltrúa,
og Hreins Þorvaldsonar, verk-
stjóra, og þykir vel hafa tekizt
til með þetta.
Sjálf réttin, almenningur og
sex dilkar, er um 425 ferm., en
gerðið um hektari að stærð. Laus
iega athugaður kostnaður nú
við mannvirkið er rúmlega eitt
hundrað þúsund krónur.
Hreppsnefnd hefur nokkur
undanfarin ár áætlað fé til rétt-
arbyggingar og hefur það nú
verið notað að mestu í þetta.
Oddviti skipaði Guðmund
Magnússon í Leirvogstungu sem
réttarstjóra og þar með var rétt
Bíl a viðgerðarmaður
Viljum ráða bifvélavirkja eða vélvirkja. Nánari
upplýsingar gefur verkstæðisformaðurinn.
O. Johnson og Kaaber h.f., Sætúni 8.
Sími 24000.
STÁLOFNAR
Enskir panelofnar úr stáli, vandaðir,
áferðarfallegir. Hagstætt verð.
hafa
Jdeal - ^tattdavd
Miðstöðvarofnar frá ____
áratuga, mjög góða reynslu hér á landi.
Allt til hita- og vatnslagna á einum stað
hjá oss.
J. ÞORLAKSSOIti &
mmmm hf.
Bankastræti 11
— Skúlagötu 30.
in formlega tekin í notkun
sunnudaginn 16. júlí 1967. Það
er von manna, að þessi rétt sé
skref í áttina til þess að bæta
úr þörfum sauðfjárbænda og
stuðli að betri meðferð á lamb-
fé að vorinu.
Leitarstjóri var að venju Ingi
mundur á Hrísbrú, en ómerk-
ingaverðir Kjartan og Bjarni
yngri á Hraðastöðum.
— J.
Vegamerki flutt á hægri brún
VEGAGERÐ ríkisins hefur haf-
ið fyrstu framkvæmdir í sam-
bandi við hægri umferð. Öll
umferðamerki, nema stefnu-
merki, stöðvunarmerki og bið-
skyldumerki, hafa veirið flutt af
vinstri á hægri vegarbrún á leið
inni frá Kollafirði í Hvalfjarðar
botn. Næst verða flutt merki á
Þingvallaleið, og síðar í sumar
á öllum vegum landsins.
Ákvörðunin um að flytja
merkin í sumar var tekin af
framkvæmdanefnd hægri um-
ferðar, lögreglu og vegayfir-
völdum sameiginlega, og var
ástæðan fyrir henni sú, að ekki
þótti treystandi á, að frost væri
úr jörðu fyrir þann tíma, sem
umferðarbreytingin fer fram.
Sérfræðingum bar saman um,
að merki á hægri vegarbrún
myndi ekki draga hættulega að
sér athygli þeirra. sem vanir
eru vinstri umferð. Hins vegar
mætti ékki skilja eftir merki á
vinstri brún eftir að hægri um-
ferð hefur verið tekin upp, þar
sem slíkt gæti auðveldlega villt
fyrir vegfarendum.
Japan - Evrópa um íshaffið
Osaka, Japan, (Associated
Press.
Eitt stærsta skipafélaigið í
Japan hefur tilkynnt rúss-
nesku stjórninni að það hafi í
hyggju að senda rannsóknar-
leiða.ngur til Sovétríkjanna
í þeim tilgangi að opna á
næsta ári nýja skipaleið milli
Japan og Evrópu meðfram
Norður—-ísháifsströind Rúss-
lands.
Mitsui — O.S.K. skipafélag-
ið kvaðst hafa tilkynnt sóv-
j étska siglingamálaráðuney t-
inu (Morflot) að leiðangurinn
verði sendur af stað í júlí.
Þessi undirbúningur væri að
tillögu Rússa við forstjóra
japanska fyrirtækisins, er
hann var á ferð í Sovétríkj-
unum fyrir skömmu.
Talsmenn Mitsui segja, að
fulltrúar Marflot hafi lofað að
stofna til samvinnu um þessa
könnun á skipaleiðinni og
senda með þeim bæði menn
og skip, með ístorjót í farar-
broddi alla leiðina frá Mur-
mansk við Hvítahaf til hafn-
arborgarinnar Vladivostok við
Kyrrahaf.
Shindo, forstjóri, Mitsui,
sagði á blaðamannafundi, að
hann búist við að siglingar
hefjist á hinni nýju leið næsta
ár, eí væn.tanlegur árangur
næst af athugunum þessum.
Hann sagði að Rússar hefðu
lofað að aðstoða þá með ís-
brjótum og leiðsögumönnum.
Hann bætti-því við, að hægt
mundi vera að sigla þessa leið
frá síðari hluta maá til fyrri
hluta nóvember ár hvert.
Shindo sagði, að með þessu
gæti ski.p, sem halda uppi Ev-
rópusiglingum frá Japam, stytt
sér verulega leið. Siglingaleið-
in frá Yokohama (nálægt
Tokyo) til London yrði um
7000 mílur eða 4000 mílum
stytitri en leiðin um Súez-
skurðimn og 5000 mílum
syttri em leiðin um Panama-
skurðinn. Þetita mundi því
spara um viku siglingartíma.
Opnun siglingaleiðar þess-
arar um íshafið mundi einnig
hjálpa við efnahagsþróun
Mið-Síberíu og öllum heim-
skautasvæðum Sovétríkjanna..
•t
Allt i ferðalagið
Franskir dúnsvefnpokar — Teppasvefn-
pokar — Unglingasvefnpokar — Mat-
aráhöld — Pottasett — Kælitöskur —
Gastæki — Tjaldstólar — Sólbekkir —
Vindsængur — íslenzk tjöld.
Skoðið okkar mikla úrval.
Allt i ferðalagið
LAUGAVEGI 116 Siml 14390
VE T=LZ IT
#_
m
1x2- ■
GRETTISGATA 32
TÆKIFÆRISKAUP
Seljum þessa viku
Sumarkápur
frá kr. 1.000.00 unglinga- og Htlar dömustærðir.
Sumarkjóla
frá kr. 200.00 barna- og unglingastærðir.
Ennfremur seljum við á kostnaðarverði mjög vandaða
IJndirkjóla
frá Lux Lux, stuttir og meðalsíðir.