Morgunblaðið - 24.08.1967, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. AGUST 1967
15
Jónas Magnússon, fyrrv. skóla-
og sparisjóðsstjóri — Minning
MÁNUDAGINN 7. ágúst s.l.
andaðist í Heilsuverndarstöðinni
í Reykjavík Jónas Magnússon,
fyrrv. skóla- og sparisjóðsstjóri
á Patreksfirði.
Jónas Magnússon var fæddur
að Geitagili í Örlygshöfn við
Patreksfjörð 4. sept. 1891 og var
því tæplega 76 ára, er hann lézt.
Foreldrar Jónasar voru Magn-
ús Árnason, bóndi á Hnjóti í
Örlygshöfn og Svanhildur Jó-
hannsdóttir, síðar húsfreyja í
Tungu í Örlygshöfn.
Jónas Magnússon var alinn
upp hjá vandalausu fólki og
átti fremur erfiða æsku. Hann
brauzt áfram til mennta af mikl-
um dugnaði, og lauk prófi við
Kennaraskóla íslands vorið 1914,
með ágætum vitnisburði, enda
maðurinn skarpgáfaður og
vinnuhestur mikill.
Strax að skólanámi loknu hóf
Jónas kennslustörf á Patreks-
firði. Ti] þess að búa sig sem
bezt undir kennslustarfið, fór
hann í námsferð til Danmerkur
og Noregs árið 1920. Skólastjóri
barnaskólans á Patreksfirði var
Jónas 1919—1949 við mikinn
orðstír.
Jafnhliða skólastjórninni stund
aði Jónas lengi vel sjóróðra á
sumrin auk þess sem hann alla
tíð vann að margháttuðum fé-
lags- og menningarmálum. Hann
var í stjórn íþróttafélagsins
Harðar um skeið og m. a. leik-
fimiskennari félagsins. Skátafé-
lagið Samherjar stofnaði hann
1942 og var félagsforingi þess
frá upphafi. Söngstjóri karia-
kórsiris Fram var hann í nokk-
ur ár. Hann tók þátt í leik-
starfsemi og hafði oft leikstjórn
á hendi. Jónas var einn af aðal-
stofnendum Lionsklúbbs Pat-
reksfjarðar 1962 og mjög áhuga-
samur félagsmaður þess félags.
Fljótlega hlóðust á Jónas
Magnússon ýmis opinber störf.
Hann átti um árabil sæti í
hreppsnefnd og var oddviti Pat-
rekshrepps í 9 ár. Sýslunefnd-
armaður Patrekshrepps var
hann í röskan aldarfjórðung og
jafnan ritari sýslunefndar. í
yfirskattanefnd var Jónas um
langt skeið og formaður og for-
stöðumaður Sjúkrasamlags Pat-
reksfjarðar frá stofnun þess
1942 til dauðadags.
Jónas Magnússon var eindreg-
inn Sjálfstæðismaður og starf-
aði mikið fyrir flokkinn á yngri
árum. Var hann m. a. stofnandi
og formaður Sjálfstæðisfélags-
ins Skjaldar á Patreksfirði um
langt skeið og frambjóðandi
flokksins í Barðastrandarsýslu
árið 1934.
Er Jónas Magnússon lét af
skólastjórastarfinu helgaði hann
starfskrafta sína Eyrarsparisjóði
á Patreksfirði, sem sparisjóðs-
stjóri. Var hann einn af aðal-
hvatamönnum að stofnun spari-
sjóðsins árið 1929 og formaður
stjórnarinnar og sparisjóðsstjóri
frá stofnun hans. Eyrarspari-
sjóður óx og dafnaði undir ötulli
og farsælli stjórn hans og varð
Patreksfirði og hreppum Vestur-
Barðastrandarsýslu mikil lyfti-
stöng. Hygg ég, að næst
kennslu- og uppeldisstarfinu
hafi Jónasi þótt einna vænst um
störf sín við Eyrarsparisjóð og
talið þau einna þýðingarmest
fyrir samsýslunga sína.
Jónas Magniússon kvæntist
1924, eftirlifandi konu sinni Ruth
Jónsdóttur, símstöðvarstjóra á
Patreksfirði, Snæbjörnssonar,
hinni ágætustu konu, sem bjó
manni sínum myndar menning-
arheimili, sem gott var að gista.
Þau eignuðust tvö börn, Sigurð,
sparisjóðsstjóra Eyrarsparisjóðs
og Álfheiði, sem gift er Jakobi
Ágústssyni, rafveitustjóra á
Ólafsfirði.
Jónas Magnússon var mikill
persónuleiki. Hann var afburða-
kennari og æskulýðsleiðtogi,
sem naut ástar og virðingar
nemenda sinna. Hvar sem hann
fór vakti hæglát og virðuleg
fr&mkoma hans athygli og traust.
í hugum gamalla nemenda hans
er hann alltaf skólastjórinn, sem
þeir oáru virðingu fyrir.
Jónas var mikill starfsmaður
og sívinnandi meðan kraftar
entust. Sérhverju starfi var vel
borgið í hans höndum. Allar
stofnanir, sem hann starfaði við
efidust og blómguðust undir
hagsýnni og farsælli stjórn hans.
Að stjórna var Jónasi í blóð
i borið.
En þó hann gætti vel hags-
muna þeirra stofnana, sem hann
veitti forstöðu gleymdi hann
aldrei þjónustuhlutverki þeirra
við hinn almenna borgara.
Maðurinn sjálfur og hið mann-
lega var jafnan efst í huga hans.
Hann f.vlgdist með gömlum nem-
endum sínum og vann að og
gladdist yfir velgengni þeirra.
Fjöldi manna leitaði til hans
alla tíð með vandamál sín, stór
og smá, enda var hann manna
hollráðastur og úrræðabeztur.
Margir eiga nú á bak að sjá
trúnaðarvini og velgerðarmanni,
sem lagði nótt við dag til að
vinna að hag fjöldans, en spurði
aldrei um eigin laun. Nægju-
semi og ráðdeild, kurteisi og
hæverska var hans aðall.
Með Jóna'si Magnússyni er
merkur maður og minnisstæður
genginn. Fáir menn hafa haft
jafn víðtæk og heillavænleg
áhrif á menn og málefni í
byggðar'agi sínu og hann.
Hann var merkur af miklu
starfi er. merkastur vegna mann-
kosta sinna.
Barðstrendingar kvöddu hann
með þakklæti og virðingu.
Slíkra manna er gott að
minnast.
Ásberg Sigurðsson.
t
Andiátsfregn Jónasar Magn-
ússonar barzt 'mér á erlenda
grund. Síðustu fundir okkar
urðu á heímili hans vestur á
Fatreksíirði sl. vor. Hann hafði
þá um skeið kennt sjúkleika
þess, er leiddi hann til dauða.
Hafði raunar oftlega verið þungt
haldinn. Engu að síður var hann
glaður og reifur þennan vor-
morgun, talaði djarflega og
hressilega um menn og mál-
efni.
Þessi atorkumaður var karl-
menni í sjón og raun. Það var
í senn ánægjulegt og gagnlegt
að ræða við Jónas Magnússon.
Hann atti sérstaklega gott með
að ger? sér grein fyrir hverju
niáli, sá á því margar hliðar og
dró skynsamlegar ályktanir af
staðreyndum þess. Hugur þessa
fjölhæfa og listfenga manns
var sístarfandi, enda þótt lík-
amsþrek hans færi dvínandi.
En Jónas Magnússon er nú
allur. Mikið skarð er fyrir skildi
í héraði hans. Til hans verða
ekki lengur sótt holl ráð né held
ur notið skemmtilegra samvista
við þennan óvenjugreinda og
þróttmikla mann, sem stóð
beinn í baki og reifur í máli
meðan stætt var. Þá er það eitt
eftir að kveðja hann, og þakka
honum mikið og gott starf í
þágu héraða sinna og þjóðar.
Hinni ágætu konu hans, börn-
um þeirra og skylduliði votta
ég einlæga samúð í sorg þeirra
og sökr.uði.
S. Bj.
i ----------------
*
Hópur Islend-
inga í Bergen
MS. VÖLKERFREUNDSCAFT
í Bergen 19. ágúst 1967.
FJÖLMENNASTA hópferð, sem
farin hefur verið milli íslands
og annara landa, hefuir gensið
í öiikum atriðum samkv. áætlun.
Veðrið hefur verið mjög gott,
og varla hægt að segja að þessi
risavaxni farikostur hafi haggast
nema örlítið í gærkvöld.
Lífið um borð hefur einkennzt
af hógværri glaðværð, enda
margt til skemmtunar og veir-
ingar hinar fjölbreyttustu.
Kvikmyndasýningar, dans-
leikir, kamimermúsik, lúðrasveit,
skotjkeppni o.fl. hefur farið frain,
að ógleymdum ísl. skemmti-
kröftum, svo sem Gunnari og
Bessa, Karli Einarssyni og Alla
Rúts. Aulk þessa hafa farþegar
teikið þátt í ýmsurn leikjum.
Kl. 8. í gærmorgun var farið
uim Vestmannasund í Færeyjium
og siglt milli eyjanina. Frænd-
rækni ísiendinga í garð vina
vorra Færeyinga, kom greinilega
í ljós í því að ffliestir farþegar
risu snemma úr rekkju og virtu
fyrir sér eyjarnar. Sumir höfðu
aunar haft þá forsjálni að leigja
sér kilkja kvöldið áður og beindu
þeim óspart að bröttum en ið-
grænum fjallahiMðunum.
Kl. 8. i gærikvöld var siglt
norðan við Shetlandseyjar, en
þar gnæfðu við himin á hæsta
hnúk mannvirki ,sem báru þess
meriki að varinakerfi Breta hefði
numið þar land.
Þessa stundina er verið að
leggja í skoðunarferð um Berg-
en og nágrenni. Allir við góða
heilsu og biðja fyrir kveðjur
heim.
Ferðafólk í matsal skipsins
Kranamaður
Vanur -kranamaður óskast tii að stjórna
brautarkrana.
Straumsvík — Sími 52485.
V erzlunarhúsnæði
við Árnr^a 7.
Til leigu er 145 ferm. verzlunarhúsnæði á 1. hæð.
Tilvaiið fyrir sérverzlun, heildverzlun eða annan
slíkan rekstur. Upplýsingar gefur E. Morthens í
síma 30501 og 30500.
Karlmenn Konur
Stuttar buxur Stutterma peysur
25.- 295—
Bolir Langerma peysur
25.- 350—
Síðar buxur N ælonundirk jólar
55.- 160—
Hálferma bolir Nælonsokkar
1 t e ** 15—
Náttföt Buxur
150— 25-
Mislitar skyrtur frá Sportbuxur
1 e e 175.-
Hvítar nælonskyrtur Frottésloppar
140— 395.-
Crepesokkar Sokkabuxur
1 e n 1 t e e
Rykfrakkar Handklæði frá
600— 20.- stk.
Kjólaefni margar tegundir
mjög lágt verð.
Börn
Úlpur stærð 16 275.-
Drengjapeysur 140.-
Sokkar 25.-
Drengjaskyrtur 135.-
Barnagallar 45.-
Útisett 200.-
IHargt annað á ótrúlega
lágu verði.
Stærsta útsalan hjá okkur.
Komið meðan úrvalið
er mest.
AUSTURSTRÆTI 9.