Morgunblaðið - 24.08.1967, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1967
Vatnsveitan í
Höfn endurnýiuð
Miklar byggingaframkvœmdir standa yfir
og eru áformaðar á nœstunni
Bifreiðin, sem myndin er af, valt nýlega skammt frá Hauks-
stöðum á Jökuldal. Þetta er útleigubíll frá bílaleigu Þorbjöms
Arnodssonar á Seyðisfirði. Þrír menn voru í bílnum og meidd-
ust þeir nokkuð og voru fluttir í sjúkrahúsið á Eigilsstöðum,
þar sem gert var að sárum þei rra. Grunur leikur á, að þeir hafi
allir verið undir áhrifum áfengis er slysið vildi til. Bifreiðin
er gjörónýt. (Ljósm. Mbl. M.A.)
Minnzt 100 ára afmæl-
is Grímseyjarkirkju
(HÖFN, Hornafirði, 23. ágúst: —
í smíðum eru nú 18 íbúðarhús
hér í kauptúninu, misjafnlega
langt á veg komin, en 5 þeirra
verða tilbúin í haust.
Þá er og ráðgert að hefja
byggingu lögreglu- og slökkvi-
stöðvar áisamt skrifstofuhúsnæði
fyrir hreppinn og aðstöðu fyrir
héraðsbókasafn. Óvíst er hvort
framkvaemdir hefjast í haust. —
Þá hefur verið lögð ný viðbótar
vatnslögn, sem er í 6 tommu víð-
um plastpipum frá Reykjalundi.
Lengd vatnslagnairinnar er 614
km. Fyrri vatnslögnin var í 5
tommu víðum asbestpípum. Var
hún lögð árin 19’56 til 1957, en
er nú, vegna vaxandi fólks-
Innritun
í Iðnskólunn
— Leiðrétting
í GREININNI: „Innritun í Iðn-
skólann", eftir Árna Hjörleifs-
son, sem birtist í blaðinu I gær,
féll niður kafli, sem gerir það að
verkum ásamt prentvillum, að
veigamikil atriði hafa skolazt til
oig koma ekki nógu skýrt fram.
Vill blaðið því birta kaflann aft
ur í heild, en hann hljóðar svo:
„Eflaust munu margir spyrja:
Er svona takmarkað sem kemst
i skólann? Þá tel ég það ekki
vera ástæðuna, heldur að þetta
sé skipulag sem verði að breyta.
Það er nú í flestum tilfellum
að það eru sömu nemendurnir
og árið áður sem koma og til-
kynna að þeir ætli að halda
áfram í 2., 3. og 4. bekk. Væri
ekki hægt að láta þessa nemend-
ur koma þannig, að það yrði
einn dagur fyrir hvern bekk?,
og mætti þá sjá 'hve margir kom
ast í skólann til viðbótar og hafa
þá fjórða daginn til að láta þá
mæta sem koma í fyrsta bekk
eða þá sem hellst hafa úr lest-
inni en ætla nú að halda áfram.
Ég ætla svo að segja frá pilti
einum sem kom upp í skóla á
miiðvikudag klukkan 7.45 ár-
degis. Hann fék'k ekki númer.
Hann fór heim en mætti klukk-
an 7 árd. á fimmtudagsmorgun-
inn og var biðröðin þá orðin
um 50 m löng. Hann fékk þó
númer og var sagt að mæta u:n
klukkan . 11, samkvæmt númer-
inu. Hann gerði það. Samt varð
hann að bíða fram yfir hádegi til
að komast að. Eins fór fyrir öðr
um pilti sem ég talaði við, hann
mætti fyrsta morguninn, en fékk
ekki númer. Hann kom heldur
fyrr næsta morgun en fékk þá
ekki heldur númer. Hann verður
því að fara þriðja morguninn og
skulum við vona að hann fái
þá númer“.
fjölcla, orðin alltof lítil. Teng-
ingu á nýju lögninni verður
væntanlega lokið eftir hálfan
mánuð. Áætlaður koetnaður við
hana er 2.600.000.00. — Gunnar.
- LANDSLEIKUR
Fnaimhald af bls. 22.
skapar sér gott færi og á fa'llegt
skot í stöng, og í netið.
Á 30. mínútu leikur Hermann
fallega í gegnum dönsku vörn-
ina, en skot hans er lélegt og
fer framhjá markinu.
Fimm mín. fyrir hlé skorar
John Steen Olsen sjötta mark
Dana af stuttu færi úr þvögu
fyrir miðju marki.
Á síðustu mínútu hálfleiksins
bjargar Anton á línu með skalla,
eftir að Ulrik le Fevre hafði 'leik
ið fram hjá Guðmundi mark-
verði og knötturinn stefndi í
roarkið.
Síðari hálfleikur
Síðari hálfleikur varð miiklu
skemmtilegri og jafnari fram-
an af. Danir voru þó miklu meira
í sókn og stanzlaus hætta var
við íslenzka markið. íslending-
ar skoruðu tvö mörk á stuttu
tímabili í þessum hálfleik.
Á 11. mín. sækja fslendingar
upp vinstri kant. Dönum tekst
vörnin illa og Helgi Númason
fær knottinn frá dönskum varn-
armanni og sendir hann í net-
ið af 12—14 metra færi.
Mínútu síðar nötrar þverslá
íslenzka marksins undan einu af
glæsilegustu skotum Dana í
leiknum. Knötturinn hrekkur út
og í þvögunni sem myndast get
ur le Fevre náð knettinum og
skorað með föstu skoti af stuttu
færi.
Á 15. mín. hálfLeiksins kemur
8. markið. Antoni verður á mik-
il skyssa í vörninni og Dyre-
borg miðvörður kemst óvaidað-
ur í gott markfæri og skorar.
Það er tilgangslaust að lýsa
markaregninu frekar. Á 16. mín.
kemur 9. markið, sem Dyreborg
skorar af 20 metra færi. Mínútu
síðar er síðara mark fslendinga
skorað. Hermann leikur mjög
fallega upp miðjan völlinn fram
hjá tveimur eða þremur varnar-
leikmönnum Dana og skorar fall
egt mark af 18 metra færi.
Á 20. mín. kemur 10. mark
Dana eftir sókn upp hægri
kant.
Á 24. mín. kemur 11. markið,
á 27. mín kemur 12. mankið, á
32. mín kemur 13. markið úr
víti og á 40. mín kemur 14. mark
ið.
Á síðustu mínútu leiksins eru
íslendmgar í sókn og Hermann
á laglegt skot af vítateig, sem
er naumlega varið í horn, en
homspyrnan var ekki meira en
svo framkvæmd, því að þá var
leiktímanum lokið
Mörfe Dananna skoruðu: Finn
Laudrup 3, Kresten Bjerre 3. þar
af tvö úr víti, Ulrik le Fevre 3,
John Steen Olsen 2, Erik Dyre-
borg 2 og Tom Söndergaard 1.
í upþhafi leiiksins voru allmik-
il hátíðahöld í tilefni af þessum
300. landsleik Dana. Blöðrurnar
voru seridar upp með mikilli við
höfn og þótti vel tiil taikast. Var
það mjög ánægjulegt atriði á að
horfa.
tslenzka liðið
Af íslenzka liðinu er það að
segja, að það átti ágætan Leik á
köflum. Hver einstakur leikmað
ur átti eins góðan Leik og við
höfum séð þá leika heima, en
megmmiunurinn var sá, að hrað-
inn var svo mikill, að íslendinig-
ar fengu ekki við neitt ráðið.
Jafnvel þótt einn Dani sækti
móti tveimur íslendingum, hafði
Daninn alLtaf betur vegna hrað-
ans. Þar liggur orsökin. Tengi-
liðir íslenzka liðsins og miðju-
spilið brást einnig alveg og má
segja að næstum látlaus sókn
hafi verið að íslenzka markinu.
Varnarmennirnir, sem við hötf-
um vonazt til að væri sterkasti
hluti liðsins, brugðust, einbum
vegna þess að þeim tókist ekki
að verjast hinum hraða leik fram
herjanna.
— A. St.
-----♦ ♦ ♦ i
i
Keene efstur á
heimsmeistara-
móti unglinga
Jerúsalem, 22. ágúst — AP —
RAYMOND Keene frá Englandi
er nú efstur í úrslitakeppninni
í heimsmeistaramóti unglinga í
skák, sem fram fer í Jerúsalem.
Hefur hann þrjá vinninga eft-
ir fjórar umferðir en í úrslita-
keppni mótsins taka þátt 9 kepp
endur og eru fimm umferðir
eftir.
Keene vann á þriðjudag Law-
rence Day frá Kanada og komst
þannig í efsta sæti, fram úr Jul-
io Kaplan frá Puerto Rico.
I B-riðli, þar sem 10 keppend-
ur eigast við, eru Andre Lom-
bard frá Sviss og Michael Wood
hams frá Ástralíu efstir og jafn
’ir, eftir að hinn fyrrnetfndi hafði
sigrað Walter Pils frá Austur-
ríki.
HÖFN, Hornafirði, 23. ágúst. —
Nýlega hefur verið lögð fram
skrá yfir útsvör og aðs'töðugjöld
hér í Hafnarnreppi. Alls var
jafnað niður á 233 einstaklinga,
útsvörum að upplhæð kr. 4.421.-
700.00 og aðstöðugjöldum að
upphæð kr. 153.600.00. Fimmtán
félög hlutu í útsvör kr. 352.-
980.00 og í aðstöðugjöld kr.
1.000.500.00. Voru útsvör sam-
tals 4.774.700.00 og aðstöðugjöld
1.154.100.00.
Hæstu útsvör einstaklinga
bera Kjartan Árnason héraðs-
í FRÉTTABRÉFI, sem Mbl. hef-
ur borizt frá Grímsey og dag-
sett er 21. ágúst, segir á þessa
leið:
— f gær, sunnudaginn 20.
ágúst, var 100 ára afmælis Mið-
garðakirkju í Grímsey minnzt
með guðsþjónustu. sem hófst kl.
1. Kirkjusókn var það góð að
stóla þurfti að setja upp í for-
kirkju til þess að allir gætu
fengið sæti, enda fjöldi af að-
komufólki. Blómaskreyting var
í boga yfir kórdyrum, sem mynd
aði orðm: Miðgarðakirkja 100
ára.
læknir 94.240.00, Einar B. Ein-
arsson skipstjóri 67.300.00 og
Birgir Sigurðseon s-kipsitjóri kr.
62.780.00. Útsvör voru læfckuð
um 10% frá gildandi útsvars-
stiga.
Helztu útgjöld hreppsins eiru
tryggingar og löghoðin gjöld kr.
1.600.000.00, til félaigsmála kr.
1.200.000.00 og til vaitnsveitiu kr.
600.000.00, til hafnarigerðar kr.
500.000.00, til verklegra fram-
kvæmda kr. 720.000.00 og til
stjórnar sveitarfélagsins kr. 400.-
000.00 — Gunnair.
inn, séra Benjamín Kristjánsson,
en séra Pétur Sigurgeirsson og
Einar Einarsson djákni þjónuðu
fyrir altari. Kirkjukórinn söng,
en undirspil á orgelið annaðist
Guðmundur Matthíasson og dótt
ir hans, Guðný lék á fiðlu.
Prófastur rakti sögu Gríms-
eyjarkirkju í stórum dráttum
það sem heimildir ná til og þó
sérstaklega síðastliðin 100 ár.
Á því tímabili hafa þjónað hér
5 prestar og djákni til aðstoðar
síðastliðin 6 ár, sem nú lætur
af störfum. Lengst þjónaði séra
Matthías Eggertsson á þessu
tímabili, í 42 ár.
Margar veglegar gjafir voru
kirkjunni færðar bæði af pen-
ingum og munum. Má þar nefna
skuggarnyndasýningavél ásamt
sýningartjaldi, 2 fánastengur með
áletruðum silfurskjöldum, önn-
ur með íslenzka fánanum, en
hin með æskulýðsfána þjóðkirkj
unnar. Þessir munir voru gefnir
af Jórunni Magnúsdóttur í
minningu manns hennar, Símon
ar Jónssonar, sem látinn er fyr-
ir 4 árum og barna þeirra fjög-
urra, sem látin eru. Dýrleif Sig-
urbjörnsdóttir gaf 6 arma ljósa-
krónu til minningar um mann
sinn, sem látinn er fyrir nokkr-
um árum. Kristjana Þorkelsdótí
ir og börn hennar gáfu kr. 5000
til minningar um mann hennar
sem látinn er fyrir 30 árvan.
Guðmundur Jónsson op frú gáfu
kr. 5000, Eiríkur Björnsson kr.
3000, og fleiri peningagjafir voru
kirkjunni færðar.
Að lokinni guðsþjónusíu var
öllum boðið til kaffidrykkju í
félagsheimilinu. Þar voru
nokkrar ræður haldnar lesin
upp fjöldi af heillaóskaskeytum,
sem bárust víðsvegar að, m.a.
frá biskupi íslands og vígslu-
biskupi Hólastifts. Einnig voru
sungin ættjarðarljóð.
Veður var gott og fór minn-
ingarhátíð þessi hið bezca fram
í alla staði. M. S.
------------------ 1
Tel-aviv 23. ágúst AP-NTB.
TALSMAÐUR ísraelsstjórnar
skýrði frá því í dag, að ísraelsk-
ir og jórdanskir hermenn hefðu
sikiptzt á skotum nálægt Damiya-
brúnni í 30 mínútur í roorgun.
Talsmaður sagði að jórdanskir
herimenn hefðu skotið að ísraelsk
um herflotoki, sem var í etftirlits-
ferð, og hefðu ísraelsm'enn þá
svarað skot-hríðinni. Ekkert
manntjón varð. Þetta er í fyrsta
skipti í tvær vikur. sem slíkt
atvik á sér stað, en þá skiptust
þessir aðiiar á sfcotum 5 daga 1
röð.
JAMES BOND
James Bond
|Y |M FIEMM BtWND GOtDFm
!l.„u,. LAuti MRn wmcurv gst\
•RAWwi BY JOHH ■cUJSKt qf ms BiG, yfu
--K —
IAN FLEMING
Bond lenti á flugvellinum í Touquet
einni klukkustund á eftir Goldfinger.
Hann átti ekki í neinum erfiðleikum með
að þefa upp, hvert guli vagninn hefði
htaldið . . .
— Vissulega herra. Maður komst ekki
hjá því að taka eftir honum. Hann
Abbeville-veginn.
Á þjóðvegi númer 1 ákvað Bond að
velja leiðina tii París. Það reyndist
rangt . . .
— Hver fjárinn. Sónninn er að deyja
út. Ég verð að komast á veginn til Rou-
en . . .
Seinna á Evreux-Chartres-Orleans-
veginum fór sónninn aftur síhækkandi . . .
— Ég hef fundið hann aftur. Hann ætl-
ar greinilega að gista í Orleans í nótt.
Hvað tekur svo við á morgun?
Aða'.ræðuna flutti prófastur-
5.9 millj. jafnað niður
á Hornafirði