Morgunblaðið - 24.08.1967, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.08.1967, Blaðsíða 24
FEBIA-OG FAOANGOOS FOVGCNG ALMENNAR TRYGGINGAR P PðSTHÚSSTRÆTI • SÍMI17700 FIMMTUDAGUR 24. AGUST 1967 RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA • SKRIFSTOFA SÍIVII 10.100 Árbæjarkirkja verður ekki endurvígð „Um vangá að rœða, en ekki syndsamlegt athœti" — segir biskup íslands, Sigurbjörn Einarsson I BRÉFI, sem Mbl. barst í gær frá biskupi íslands, Sig- urbirni Einarssyni, um Ár- bæjarkirkju, segir, að hann telji, að sú slysni, sem þar kom fyrir 16. þ. m. sé ekki þess eðlis, að það komi til mála að endurvígja kirkjuna. Um vangá hafi verið að ræða, en ekki syndsamlegt athæfi. Jafnframt kveðst hann von- ast til þess, að frekari skrif og umræður um þetta mál séu óþarfar og að þessi at- burður verði til þess, að ekki sé hætta á að hliðstæðir at- burðir gerist síðar. — Bréf biskups fer hér á eftir í heild: Vegna umtals um Árbæjar- kirkju vil ég taka þetta fram: Þegar kirkja er vígð, er hún helguð me'ð orði Guðs og bæn og þar með aðgreind frá öðrum húsum að því leyti, að þar má ekkert fram fara nema það, sem lýtur að kristinni guðsdýrkun og miðar, beint og óbeint, að upp- byggingu kristins trúarlífs. Sam- kvæmt Helgisiðabók vorri er vígð kirkja „heilagt Guðs hús og allt óhreint og vanheilagt sé fjarri henni“. Að vígslu lokinni afhendir biskup presti og söfn- uði húsið „til allrar kristilegrar notkunar“. Notkun hússins er því endanlega á ábyrgð biskups, þótt aðrir fari með þá ábyrgð í umboði hans. Endurvígsla þyrfti að fara fram, ef eitthvað það gerðist í kirkju, sem væri þess eðlis, að vígslan yrði að teljast úr gildi fallin. Um slíkt eru engar regl- ur til, það er matsatriði í hverju tilviki. En vígslan er í augum kirkju vorrar það mikilvæg at- höfn, að gildi hennar verður ekki hnekkt með mannlegri gleymsku eða vangæzlu. Vígsl- an byggist á Guðs orði, Guðs fyrirheitum og trúfesti, og þetta stendur óhaggað, þótt vér menn bregðumst á margan hátt. Sú slysni, sem fyrir kom í Ár- bæjarkirkju, er að mínu áliti Framhald á blis. 23 Einkum erl. efni á við- bótardögum sjónvarps Engar fréttir þá daga að byrja með EINS og kunnugt er af frétt- um hefst sex daga útsend- ingar Sjónvarpsins frá og með 1. september. Efni þess- ara viðbótardaga, laugardags og þriðjudags, verður eink- um erlendar myndir, en auk þess eitthvert fræðsluefni á þriðjudögum. Fréttir verða ekki á þeim dögum fyrr en lokið hefur verið þjálfun nýs starfsfólks. Auglýst hafa ver- ið allmörg störf hjá Sjón- varpi, eins og skýrt hefur verið frá, en þess má geta, að umsóknarfrestur um þessar stöður rennur út annað kvöld. í fréttatilkynningu frá Sjón- varpinu, sem Mbl. barst í gær segir á þessa leið: Ríkisútvarpið — Sjónvarp hefur nú sent frá sér til birting- ar í blöðum dagskrá Sjónvarps- ins til 2. september, sem er laugardagur og er það í fyrsta sinn sem sjónvarpað er á laug- ardegi. Eins og tilkynnt hefur verið opinberlega verður sjónvarpað sex daga í viku frá og með 1. Framhald á bls. 23 Fálkaungar drepast í hreiðrum sínum Myndatökumenn gerast hœttulegir fuglum, segir dr. Finnur Cuðmundsson FKÉTZT hefur af því, að fálka- ungar hafi drepizt fyrir nokkru í Mývatnssveitinni. Morgunblað- ið sneri sér til dr. Finns Guð- mundssonar og spurði hann nán ar um þetta mál. Dr. Finnur kvað unga hafa drepizt í tveimur hreiðrum og voru fjórir í hvoru. í öðru þeirra fundust allir ungarnir dauðir, en úr hinu voru þrrr horfnir og einn eftir, en hann drapst skömmu seinna. Þarna rétt hjá var tjald einhvers útlendings, þegar að var komið, en ekki var athugað, hver þar var á ferð. Hann hefur bersýnilega legið yfir hreiðrun- um til þess að taka myndir. Auk þess hefuT þarna verið mikil umferð ferðafóiks og allir hafa þurft að skoða þessi hreiður. Fullorðnu fuglarnir eru svo varir um sig, að þeir koma ekki Framhald á bks. 23 Smeeton-hjónin og Snow um borð í seglbátnum. Hafa siglt um öll heimsins höf á litlum seglbát HÉR í höfn liggur nú lítill kanadískur seglbátur og ber nafnið Su Hon. Er báturinn hingað kominn frá Labrador og tók siglingin 16 daga. Við brugðum okkur ym borð í seglbátinn í gær, og hittum að máli áhöfnina — Smeeton-hjónin frá Vancouv er í Kanada og Bandaríkja- manninn C. Snow. Tjáðu þau okkur að ferðin hefði yf- irleitt sótzt vel og þau hreppt prýðisveður mest alla leið- ina. Frúin sagði að vísu, að þau hefðu fengið hafstillur skömmu eft ir að seglbáturinn fór fram- hjá Grænlandi, og einnig höfðu þau fengið hvassviðri, en „aldrei ofsarok", eins og Snow orðaði það. Seglbáturinn er smíðaður í Hong Kong 1938 og er hann allur úr tekki. Honum hef- ur verið siglt um öll heims- ins höf, ef svo má segja, og að þessu sinni hófu hjónin ferð sína frá Vancouver í okt óbermánuði sl. Sigldu þau suð ur með austurströnd Banda- ríkjanna, fóru í gegnum Pan amaskurðinn, og síðan upp með vesturströndinni til Labrador, eins og fyrr grein- ir. Frúin tjáði okkur að þau skrifuðu um ferðir sínar í blöð og tímarit, auk þess sem eiginmaður hennar hefði skrifað fjórar bækur, „tvær um hafið og aðrar tvær um ferðalög“, eins og hún orðaði það. 3u Hon er 18 tonn, 45 fet að iengd og traustbyggður að sjá. Ferðalangarnir ætla að halda kyrru fyrir hér í Reykjavíkunhöfn nokkra daga, en síðan hafa þeir hug á að sigla norður fyrir land, því þau langar til að sjá lítið eitt meira af Grænlandi. Herra Smeeton sagði, að ferð in væri án sérstaks takmarks — þau væru ákveðin að fara til Færeyja og írlands, en hvað svo tæki við væri ó- ákveðið. „Gullfaxa" fagnað á Akureyri Lenti á helmingi flugbrautarinnar í fyrsta sinn í gœr AKUREYRI, 23. ágúst. — Gullfaxi kom í fyrsta sinn til Akureyrar í kvöld og lenti á hinni nýmalbikuðu flugbraut sem verður vara- flugvöllur þotunmar í fram- tíðinni. Múgur og marg- menni var samankomið á flugvellinum og gizkar lög- reglan á, að 3—4000 manns hafi verið þar staddir. Bíla- mergðin var slík, að margir lögregluþjónar þurftu að hafa sig alla við að afstýra fullkomnu umferðaröng- þveiti. Gullfaxi lenti á nákvæmlega fyrirfram ákveðnum tírna, kl. 19:45, etftir að hatfa sveimað nok'kra stund yfir bænum til að sýna sig. Lendingin tók'st ágæt- lega og þurtfti þotan eidki nemia um heiminig fl’U'ghrau'tairinn ar til að nema staðar. Draga varð vél- ina inn á flugvélarstæðið, sem en.n er ómallbikað, atf ótta við að möl kynni að sogast inn í ihreytfla hennar. Með Gullfaxa komu Ingólfur Jónsson, samgöngumálaráðherra, Magnús Jónsson, fjármálaráð- herra, Flugráðsmenn, stjóxn Flugfélags íslands og ýmsir aðr- ir forustumenn í tflugmálum auk blaðamanna. Flugstjóri var Jó- hannes Snorrason. Framlhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.