Morgunblaðið - 19.09.1967, Blaðsíða 1
32 8IÐIJR
Yfir 20 farast
í fellibyljum
— í Randðríkjunum
Mynd þessi var tekin við sovézka sendiráðið í London í gær
þegar ókunnir starfsmenn brezku lögreglunnar studdu dr.
Vladimir Tkaclienko að dyrum sendiráðsins.
Ungur sovézkur vísindamaður
veldur milliríkjadeilum
Bretar saka Rússa um mannrán, Rússar
saka Breta um ofbeldi
London, 18. sept.
(AP-NTB)
* BREZK yfirvöld af-
hentu sovézka sendiráðinu í
London í dag sovézka eðlis-
fræðinginn Vladimir Tkac-
henko, sem brezka lögreglan
tók í sína vörzlu á laugardag
þegar flytja átti hann — að
því er virtist nauðugan —
flugleiðis til Moskvu.
Mál Tkachenkos hefur
vakið mikla athygli, og höfðu
utanríkisráðherrar Sovétríkj-
anna og Bretlands, þeir
Andrei Gromyko og George
Brown, afskipti af því áður
en ákveðið var að skila eðlis-
fræðingnum til sendiráðsins.
Mál .þetta hófst á laugairda'g,
þegar Tk.aOhenko var á gangi
úti á götu skaimmt frá savézka
send'iráöi'nu. Kom þá ein af bitf-
reiðum s'endiráðisdns þar að, og
segáa sjóniar’vottar að sendir'áðs-
starfsimenn, siem í bifreiðinni
voru, hafi gripið Tkaohenko og
dregið han.n inn í bifreiðina.
Segja þeir að Tkaohenko hafi
kailað á hj'álp meðan verið var
að draga hann inn í bifreiðina.
Áhorfendur gerðiu brezku lög-
regiunni viðvart, og elti lögregl-
an sendiráðsbifreiðina úit á
Framhald á bls. 31
Interpid
sigraði
AÐ undanförnu hefur verið háð
siglingakeppni við austurströnd
Bandaríikjanna um sivonefndan
Ameráca Cup, eða Amler,íku-lbik-
arinn. Hafa þar átzt við banda-
ríska seglskútan Intrepid og
D'ame Pattie frá Ástradíu.. Sigla
átiti sjö uimiferðir og hlyti sá sig-
urinn, sem sigraði í fjórum
þeirra. Fjórða umfer'ðin fór fram
í gær, mánudag, eftir að hafa
verið tvisvar frestað vegna veð-
urs. Áður hafði Intrepid unnið
fyr.situ þrjár umtferðirnar, og þeg
ar Intrepid sigraði enn í gær vair
keppninni lokið. Dame Pattie
var úir leik.
Maraþonumræðum um
Loftleiðamáiið lauk í nótt
Loftleiðir ekki reiðubúnar til
að ganga að. Fulltrúi Loft-
leiða, sem þarna var við-
staddur, sagði að samninga-
viðræðumar væru strandað-
ar.
SAS-löndin bjóða upp á
annað hvort óbreytt ástand
þannig að Loftleiðir haldi á-
fram að fljúga til Skandinav-
íu með DC-6 vélum, eða mjög
takmarkaðar ferðir með RR-
400 vélum. Vilja þau að far-
gjaldamismunur, sem nú er
Framhald á bls. 31
New York, Miami, Houston og
víðar, 18. september — AP-NTB
ÞRÍR fellibyl.iir gengu yfir
Bandarikin um helgina, Beulah,
Doria oð Chloe, og höfðu er síð-
ast fréttist valdið bana 21
manns.
Beulah herjaði á Yucatán-
skaga á sunnudag á leið sinni
út á Mexikóflóa, þar sem veð-
urfræðingar spá að hún muni
öll færast í aukana. Á leiðinni
yfir Yucatán fór hún með „a.ð-
eins“ 120 km. hraða á klst., ó-
likt hægar en þegar hún var
yfir Karaíbahafinu, þar sem
hún banaði 18 manns.
Ekki endanlegt samkomulag Tilboð
um íl-10% fargjaldamismun ■ ath.
Doria er á leið út á Atlants-
haf frá Austurströnd Bandaríkj
anna og er nú mjög af henni
dregið, en veðurfræðingar spá
henni líka vexti er út á hafið
kemur. Doria varð þremur að
bana, móður og tveimur börn-
um hennar, sem drukknuðu er
bátur þeirra fórst í ólgusjó við
'strönd New Jersey.
Þriðji fellibylurinn, Chloe er
nú yfir Atlantshafinu á norð-
austurleið og fer hjá Nýfundna-
iandi í 100 sjómílna fjarlægð.
FUNDUR samgöngumálaráð-
herra Norðurlanda um Loft-
leiðamálið, sem haldinn var
í Kaupmannahöfn í gær, stóð
langt fram á nótt. Um hálf
tvö að staðartíma var um-
ræðum lokið, en eftir að
ganga frá orðalagi sameigin-
legrar yfirlýsingar.
Átti fréttaritari Mbl. í
Kaupmannahöfn, Gunnar
Rytgaard ristjóri, þá tal af
Emil Jónssyni utanríkisráð-
herra, sem sat fundinn ásamt
Ingólfi Jónssyni samgöngu-
málaráðherra fyrir íslands
hönd. Sagði Emil Jónsson að
skandinavísku þjóðirnar
hefðu boðið nýja samninga,
sem fela í sér fargjaldahækk-
un hjá Loftleiðum og tak-
mörkun á leyfilegum far-
þegafjölda, sem hann taldi
„Oktoberfest“ hafin í Miinchen
Múnchen, 18. sept. AP.
Borgarstjórinn í Múnchen,
Hans Joahen Vogel, setti á iaug-
ardag 133. „Oktoberfest"
Múnchenarbúa, sem standa mun
næsta hálfa mánuðinn.
Fra ráðherrafundinum í Kaupmannaliöfn í gær. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Emil Jóns-
son, utanríkisráðherra, og samgöngumálaráðherrarnir Hans Sölvhöj frá Danmörku, Hákon
Kyllingmark frá Noregi, Olof Palme frá Svíþjóð og Ingólfur Jónsson.
*— — "■ —- —' ■■ -
Allsherjnrþing
§Þ sett í dng
SÞ, New York, 18. sept.
(AP).
TUTTUGASTA og annað Alls-
herjarþing Sameinuðu þjóð-
anna verður sett á morgun,
þriðjudag.
Á aukafundi Allsherjar-
þingsins í dag var samþykkt
að vísa deilumáli Araba og
Gyðinga til Allsherjarþings
ins, sem hefst á morgun, og
verður það eitt fyrsta málið,
sem tekið verður fyrir. Auka-
fundir Allsherjarþingsins hafa
staðið yfir að undanförnu til
að reyna að finna lausn á
deilunni, en þær tilraunir ekki
borið árangur. Var samþykkt
með 93 samhljóða atkvæðum
að vísa málinu til Allsherjar-
þingsins, en fulltrúar Portú-
gals og Suður Afríku sátu