Morgunblaðið - 19.09.1967, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPT. 19«7
Útgefandi: Hf. Áryakur, R'eykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar; Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Jphannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðaistræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Símf 22-4-80.
I lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands.
TÓNLISTARHÁ TÍÐ
NORÐURLANDA
Úr Póllandsheimsókn de Gaulles forseta. Börn í borginni Krakau færa forsetanum blómvönd.
Lítill árangur Frakka af heim-
sókn De Gaulles til Póllands
rT'ónlistarhátíð Norðurlanda
hófst í Reykjavík sl. sunnu
dag. Þetta er í annað skipti,
sem slík tónlistarhátíð er
haldin hér á landi. í fyrsta
skipti voru engin verk ís-
lenzkra tónskálda flutt, en
nú verða íslenzk tónverk flutt
á þessari hátíð, bæði eftir hin
eldri og þekktari tónskáld
okkar og hin yngri.
Það er íslendingum ánægju
efni, að tónlistarhátíðin skuli
haldin hér á landi. Það gefur
okkur tækifæri til þess að
kynnast tónlist hinna Norð-
urlandanna og ekki síður að
kynna þeim íslenzk tónverk.
Hlutskipti listamanna hér
á landi er að mörgu leyti erf-
itt. Þeir hafa yfirleitt tak-
mörkuð tækifæri til þess að
koma verkum sínum á fram-
færi í öðrum löndum, þótt
nokkrir okkar þekktustu rit-
höfunda, og jafnvel listmál-
ara líka, hafi unnið sér viður-
kenningu í öðrum löndum. En
það eru ekki sízt tónskáldin
okkar, sem eiga erfitt um vik
í þessum efnum. Tækifæri
þeirra til þess að kynna verk
sín öðrum þjóðum, jafnvel
Norðurlandaþjóðunum eru
ekki mörg. Á Tónlistarhátíð
Norðurlanda nú munu gagn-
rýpendur frá hinum Norður-
löndunum hlýða á verk ís-
lenzkra tónskálda, og þar með
skapast tækifæri fyrir íslenzk
tónskáld til þess að kynna
tónverk sín hinum Norður-
landaþjóðunum. Því tækifæri
ber að fagna.
Við eigum nú á að skipa
nokkrum hóp eldri tónskálda,
sem þegar hafa hlotið viður-
kenningu fyrir verk sín hér á
landi, en einnig eru að koma
fram ungir menn, sem fara
aðrar leiðir í listsköpun sinni.
Ýmsum kann að finnast verk
þeirra torráðin, en tímarnir
breytast og þessir ungu menn
eru vaxtarbroddurinn í tón-
listarlífi okkar. Þess vegna
er ekki síður ástæða til að
fagna því tækifæri, sem þeir
fá nú til þess að koma verk-
um sínum á framfæri við
gagnrýnendur frá hinum
Norðurlöndunum.
NÁTTÚRUVERND
lVráttúruvernd hefur orðið
-*■' mönnum töluvert um-
ræðuefni síðustu daga og
vikur, fyrst og fremst vegna
þeirrar deilu, sem reis um
vegalagningu við Mývatn en
einnig í tilefni þess, að Nátt-
úruverndarráð h°fur afhent
íslenzka ríkínu þjóðgarðinn
að Skaftafelli.
Hinar víðtæku umræður
um nóttúruvernd munu vafa-
laust verða til þess að menn
geri sér betur grein fyrir
nauðsyn þess í framtíðinni
að vernda ýmsa fegurstu staði
landsins en fram til þessa
Ekki er heldur ólíklegt að
deilurnar um veginn við Mý-
vatn verði til þess, að því
verði hreyft á næsta Alþingi,
að endurskoða lögin um Nátt-
úruverndarráð og veita því
aukin völd frá því sem nú er.
Við afhendingu þjóðgarðs-
ins að Skaftafelli lýsti Birgir
Kjaran, formaður Náttúru-
verndarráðs hlutverki þess
með þessum orðum: „Nátt-
úruverndarráð er valdalítil
stofnun, sem hefur þó veiga-
miklu hlutverki að gegna í
nútímaþjóðfélagi, sem er að
vera nokkurs konar sátta-
semjari milli manns og lands,
gæta þess, að fyrir tilverknað
mannsins verði náttúru
landsins ekki spillt og þá jafn
framt að greiða fyrir að lands
menn fái notið náttúrufeg-
urðar lands síns.“
AUKINN
UMFERÐARAGI
A ð undanförnu hafa orðið
■™ ítrekuð slys við gang-
brautir, sem gangandi
fólki eru ætlaðar en öku-
menn ekki virt réttindi veg-
farenda með hinum alvarleg-
ustu afleiðingum. Lögreglan
hefur tekið mál þetta föstum
tökum og í samvinnu við blöð
in hefur síðustu daga verið
rekinn mikill áróður fyrir
því, að ökumenn. stöðvi bif-
reiðar sínar við gangbrautir,
þegar gangandi fara yfir þær.
Skv. ummælum lögreglunn-
ar virðist þessi áróður og auk-
ið eftirlit þegar hafa borið
nokkurn árangur.
Þau slys, sem orðið hafa aí
þessu msökum hljóta að
vekja menn til umhugsunar
um það, að umferðaragi hér á
landi virðist hvergi nærri
nægilega strangur. Bæði öku-
menn og aðrir vegfarendur
hafa tilhneigingu til þess að
virða að vettugi settar um-
ferðareglur en af slíku fram-
ferði hljóta óhjákvæmilega
að skapast miklar hættur í
umferðinni og alvarleg slys
eins og dæmin sýna.
Það er þeim mun meiri
nauðsyn á strangari aga í um-
ferðinni, sem bifreiðum fjölg-
ar ört í landinu og umíerðar-
I vandamálin af þeim sökum
Á ÞRIÐJUDAGINN var lauk
sex daga opinberri heimsókn
de Gaulles Frakklandsforseta
til Póllands. Þetta er fyrsta
opinbera heimsókn þjóðhöfð-
ingja frá Vesturlöndum til
Póllands frá lokum heims-
styrjaldartinnar síðari. Mót-
tökur þær, sem forsetinn hlaut
voru afar vinsamlegar. Mikill
mannfjöldi fagnaði honum
hvarvetnan og pólskir ráða-
menn létu virðingu sína í
ljós við hann á allar lundir.
Vafalaust á þessi heimsókn
Frakklandsforseta eftir að
hafa mjög góð áhrif á sambúð
þessara landa, en hins vegar
verður ekki séð, að Frakk-
landsforseta hafi tekizt að ná
þeim pólitísku markmiðum,
sem hann ætlaði sér. Hann
reyndist miklu fremur gef-
andi en þiggjandi í þeim efn-
um, því að enda þótt hann
gengi mjög langt til móts við
stefnu pólsku stjórnarinnar í
mörgum mikilvægum stefnu-
málum hennar, kom fram lít-
ill áhugi af hennar hálfu á
sjónarmiðum forsetans, sem
hann taldi mjög mikilvæg og
vörðuðu fyrst og fremst fram-
tíð Evrópu og þá ekki hvað
sízt Þýzkalands, en einmitt
þar gekk hann mjög langt til
móts við Pólverja.
De Gaulle sagði á fyrsta
degi heimsóknar sinnar, að
skipting Þýzkalands væri
óeðlileg. Þýzkalandsmálið
ætti að leysa með „samning-
um milli landa Vestur- Mið-
og Austur-Evrópu“. í slíkum
eríiðari viðfangs. Til þess að
1 erða agann í umferðinn:
þarf til að koma strangt eftir
lit lögreglunnar, þyngri refs-
ingar við brotum á umferðat-
reglum og samstillt átak
blaða, útvarps og sjónvarps
um alhliða upplýsingastarf-
semi í sambandi við umferð-
arlög og reglur.
samningaviðræðum ætti ekki
að taka til endurskoðunar hina
svonefndu Oder Neisse línu,
þ.e.a.s landamæri sameinaðs
Þýzkalands ættu að vera, þar
sem landamæri Austur-Þýzka
lands og Póllands eru nú.
De Gaulle gaf það ennfrem-
ur í skyn við pólska stjórn-
málaleiðtoga, að Pólland og
önnur kommúnistaríki í
Austur-Evrópu utan Sovét-
ríkjanna ættu að taka upp
sjálfstæðari og óháðari stefnu
gagnvart Sovétríkjunum. Þau
ættu að taka þátt í því að
mynda þriðja belti álfunnar,
Mið-Evrópu, sem hann svo
nefndi í ræðum sínum.
Póllandi hefði að nýju öðlazt
fullkomin rétt til þess að ráða
málum sínum sjálft, sagði for
setinn.
Þetta gæfi því tækifæri til
að ráða fram úr hverju vanda
máli án hindrana eða for-
dóma.
„Raunverulegt öryggi sér-
hvers ríkis í heimsálfu okkar
getur greinilega ekki skapazt
fyrir tilstilli tveggja valda-
samsteypna, sem beina afli
sínu og siga bandamönnum
sínum hvor gegn annarri",
sgaði forsetinn. „Ef á hinn
bóginn yrði ríkjandi á meðal
vor frá Atlantshafi til Úral-
fjalla jafnt í hugsun sem í
framkvæmd stefna samkomu-
lags og samstarfs, þá myndu
verða til staðar allar líkur á
því, að í hinu nýja andrúms-
lofti og við þau skilyrði, sem
þá sköpuðust, yrði þjóðum
HEILDARAFLI landsmanna
var fyrstu fimm inánuði ársins
345,6 þúsund lestir, en var á
sama tíma í fyrra 427.6 þús.
Iestir. Hefur heildaraflinn því
minnkað um 82 þúsund lestir.
Bátafiskur hefur minnkað úr
403.2 þúsund lestum, sem hann
var í fyrra í 317 þúsund lestir
á meðan togarafiskur hefur
Evrópu kleift að ræða saman
og finna lausn sín á milli á
þeim vandamálum, sem vörð-
uðu þær, en mikilvægasta
vandamálið er framtíð Þýzka
lands“.
Hin ákveðna viðurkenning
de Gaullles á Oder Neisse
línunni hlaut að sjálfsögðu
mjög góðar undirtektir í
Póllandi, en þar með var
raunar öll sagan sögð. Undir-
tektir pólskra stjórnmálaleið-
toga undir aðrar tillögur for-
setans varðandi framtíð Ewr-
ópu, voru vægast sagt mjög
daufar og sumum þeirra vísað
á bug beinlínis. Þannig lýsti
Gomulka, leiðtogi pólska
kommúnistaflokksins, því yf-
ir opinberiega, að Frakkar
hefðu ekkert að bjóða Pól-
verjum, sem gæti komið í
staðinn fyrir núverandi banda
lag þeirra við Sovétríkin, sem
væri hornsteinn pólskrar ut-
anríkisstefnu. De Gaulle við-
urkenndi líka sjálfur í stuttu
sjónvarpsávarpi til pólsku
þjóðarinnar, að tilganginum
með för sinni til Póllands
hefði ekki verið náð, því að
hann ,hefði talaði þar stöð-
ugt um það, sem hann „hefði
viljað fá áorkað“ í Póllandi.
Sameiginleg fordæming á
aðgerðum Bandaríkjamanna í
Víetnam var næstum eina atr-
iðið í utanríkismálum, er hin-
ir frönsku og pólsku stjórn-
málaleiðtogar gátu komið sér
saman um í sameiginlegri
stjórnmálayfirlýsingu, sem
gefin var út í lok heimsóknar
forsetans.
hækkað úr 24.4 þúsund lestum
í 28.6 þúsund lestir.
Af heildaraflanum var síld nú
43.4 þúsund lestir á móti 68.8
þúsund lestum í fyrra. Loðna
er nú 97.1 þús. lestir á móti
124.9 þúsund lestum í fyrra.
í ár hafa veiðzt 104 lestir af
makríl, en af þeirri tegund
veiddist ekkert í fyrra.
Heildarafinn 345,6 lestir