Morgunblaðið - 19.09.1967, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPT. 1987
MAYSIE GREIG: J J
Læknirinn
og
dansmærin
41?«
Ég skrifaði langt bréf til hennar frænku minnar gömlu.
vera í, en þið eruð uppábúin,
eins og þið ætlið á einhvern fín-
an dansleik. Carl á engin smók-
ingföt og ég á heldur ekkert al-
mennilegt að vera i, á fínum
stöðum.
Marcel hreyfði einhverjum
andmælum, en Louise varð ekki
þokað. — En þið verðið að
koma hingað aftur, sagði hún.
Við eigum alltaf rauðvínsflösku
til að taka tappann úr. En meiru
höfum við heldur ekki efni á.
— Já, það skulum við gera,
sagði Marcel. — En þið verðið
einihverntíma að koma niður
eftir með okkur. Við lofum að
verða ekki neitt uppábúin. En í
kvöld stendur dálítið sérstaklega
á, vegna þess, að ég er að fara út
með Yvonne í fyrsta sinn eftir
siysið hennar.
Hann brosti til Yvonne, rétt
eins og þau væri sérstakir vinir
— og heldur meira þó. Hún fann
titring fara um sig. Hin litu
hvort á annað og Carl glotti.
— Því síður ættum við að
trufla fyrir ykkur skemmtunina
í kvöld, sagði hann. Eitthvert
annað kvöld — hvaða kvöld sem
er — yrði okkur ánægja að þiggja
þitt góða boð, Marcel, en fyrst
verðið þið að borða hjá okkur.
Þau kvöddu síðan og gengu
svo yfir torgið, þangað, sem bíll-
inn þeirra stóð.
— Þetta var skemmtilegur
milliþáttur, sagði hún 1-ágt. —
Ég kunni sérstaklega vel við
þessa kunningja þína.
— Já, víst var hann skemmti-
legur, samþykkti hann. — En
það sem eftir er kvöldsins, skal
verða það engu síður. Við end-
um með því að fara að dansa í
einhverjum næturklúbb.
— Ætti ég að dansa meðan
fóturinn á mér er ekki betri en
þetta spurði hún.
Hann setti upp undrunarsvip.
— Því var ég búinn að gleyma.
En ég var í svo góðu skapi og
þessvegna stakk ég upp á því.
Við skulum borða hjá Reynaud,
sem er áðætis veitingastaður.
Hefurðu nokkurhtíma freistað
gæfunnar við spilaborð?
Hún hristi höfuðið. — Mér hef
ur aldrei fundizt ég hafa efni á
því.
— Ég skal setja undir þig þús-
und franka, sagði hann. — Hver
veit nema þú vinnir og getir
borgað mér það aftur. Viðvan-
ingarnir eru alltaf heppnastir,
eins og þú veizt, bætti hann við
og glotti.
— Ég hef nóg til að kaupa fá-
eina spilapeninga, sagði hún. —
Frú Hennesy greiddi mér kaup-
ið mitt í dag. Og kaupið er ríf-
legt. Það var fallega gert af yð-
ur að koma mér á framfæri.
Hann glotti aftur og sagði: —
Ég vona, að ég sé góður við alia
sjúklinga mína. Svo bætti hann
við og brosið hvarf af andlitinu:
- Ég vona, að ég sé góður við
þig, Yvonne.
— Þú hefur verið mér meira
en góður, sagði hún.
Hann greip hönd hennar áður
en hann hjálpaði henni út úr
bílnum. Þau voru nú komin að
veitingahúsi Reynauds, sem vissi
út að Miðjarðarhafinu. Tunglið
var að koma upp. Það yrði fullt
tungl í kvöld.
— Við skulum gera þetta að
eftirminnilegu kvöldi, sagði
hann. — Má ég kyssa þig? ,
Hún rétti honum varirnar og
langa stund gleymdi hún algjör-
lega Tim, gleymdi öllu öðru en
snertingunni af vörum Marcels,
og titringnum, sem fór um hana:
nú fann hún, að hún elskaði og
var elskuð.
Hann klappaði henni mjúklega
á kinnina. — Þakka þér fyrir,
sagði hann lágt. Þetta var yndis-
legt. Það er langt síðan ég hef
kysst nokkra stúlku svona — og
gert það af alhug. Nú skulum
við koma inn og fá okkur eitt-
hvað að borða.
7. kafli.
Borðsalurinn var yndislegur^
með heilum glervegg, sem vissi
út að sjónum. Þau völdu sér lít-
ið borð með daufu Ijósi á.
Maturinn var ágætur. Henni
fannst eins og þau væru ein í
öllum heiminum.
— Hvernig fellur þér hjá
Hennesyhjónunum? spurði hann.
— Ég kann ágætlega við
Dickie, sagði hún. — Hann er
prýðiskrakki. En hjónunum hef
ég ekki kynnzt neitt nánar. Hún
snarþagnaði. Hún hafði einmitt
kynnzt Aron Hennesy talsvert
þarna kvöldið góða, kvöldið þeg-
ar hann hafði komið með þessa
fáránlegu uppástungu sína.
— Það mætti segja mér, að
það væri ekki svo auðvelt að
kynnast þeim náið, sagði hann.
— Þau virðast litla samleið eiga.
— Finnst þér það muni vera
heppilegt fyrir hjón?
Hún hristi höfuðið ofurlítið og
tvírætt bros lék um varir hans.
— Ég veit svei mér ekki, sagði
hann. En þannig er nú um fjöl-
mörg frönsk hjónabönd. For-
eldrar okkar skipuleggja þau
oftast, og svo þegar uppistand-
inu út af því er lokið, fer hvort
sina leið.
Hún laut fram og sagði, með
nokkrum ákafa: — En ekki geta
þessi hjónabönd verið hamingju-
söm?
— Þetta er nú komið upp í
vana hjá okkur, sagði hann, en
bætti svo við: — Nei ég held nú
ek-ki, að þau geti verið ham-
ingjusöm. Ekki í þeim skiln-
ini, sem Englendingar og Banda-
ríkjamenn leggja í það orð. En
ástardraumur getur kulnað út, og
það stundum fljótt. Og ef það
gerir það, hvað þá?
— Ekkert, býst ég við, sagði
hún lágt. — En þegar Englend-
ingar giftast, ætla þeir ekki
hjónabandinu að fara út um þúf
ur. Við giftumst í því skyni að
verða samingjusöm þangað til
yfir lýkur.
Hann brosti með nokkurri
beizkju. — Við Frakkar erum
raunsærri — við giftumst til
þess að báðir aðilar hafi hag af
því, en við búumst alls ekki við,
að það geti orðið nein eilífðar-
sæla. Við erum við því búin að
fara hvort sína leið.
— Það held ég hljóti að vera
auma lífið, sagði hún og gretti
sig. Hann yppti öxlum. — Þetta
er nú okkar siður, Yvonne. Sjálf
ur er ég trúlofaður stúlku, sem
ég hef ekki séð nema þrisvar á
ævinni. Hún á heima í París.
Foreldrar okkar beggja ákváðu
þetta meðan við vorum bæði
kornung.
Henni fannst hún hafa orðið
fyrir vonbrigðum.
— Hversvegna eruð þið þa
e.kki búin að gifta ykkur?
Hann yppti öxlum. — Kannski
er það vegna þess, að við séum
hvorugt okkar sérlega æst í það.
svona strax. Og hún gæti verið
skotin í einhverjum öðrum, án
þess að ég viti það. Hann leit
fast á hana og bætti við: — Og
svo gæti ég svo sem vel verið
skotin í einhverri annarri — eða
átt það aðeins eftir!
Hún fann, að hún kafroðnaði.
En hvað stoðaði það. úr því hann
var þegar trúlofaður stúlku í
París? Frakkar eru formfastir,
og sannast að segja eru formin
mikilvægur þáttur i lífi þeirra.
Það vissi hún þegar. Henni datt
ekki í hug, að hann færi að
segja upp unnustunni sinni, jafn
vel þó hann væri ástfanginn af
henni. Og svo var vitanlega hann
Tim. En Tim virtist bara svo
fjarlægur i kvöld, rétt eins og
einhver maður, sem hún hefði
einhverntíma í fyrr.dinni verið
skotin í, en væri nú í órafjar-
lægð.
— Heldurðu, að þú gætir lært
að elska mig? spurði hann og
þrýsti hönd hennar fast.
AUt frá LADY
LONDON
dömudeild.
HNOTAN auglýsir
Sófasett og svefnsófar tveggja manna,
dönsk módel.
HIMOTAIM
HÚSGAGNAVERZLUN, Þórsgötu 1
Sími 20820.
er kominn
AFTUR á
markaðinn
KAFFIBÆTISVERKSMIÐJA
O. JOHNSON & KAABER H.F.
Skrifstofustúlka
Skrifstofustúlka vön vélritun óskast sem
fyrst á skrifstofu í Miðbænum. Mjög góð
vinnuskilyrði. Umsóknir er greini aldur,
menntun og fyrri störf sendist Mbl. fyrir
22. sept. merkt: „2848“.
Iðnoðor- og skrifstofu-
húsnæði til leigu
Höfum verið beðnir að leigja út 250 ferm. iðnaðar-
húsnæði á 1. hæð auk 100 ferm. skrifstofuhúsnæðis
á 2. hæð. Húsnæði þetta sem er við innanverða
Suðurlandsbraut er mjög hentugt fyrir heildverzlun.
... [T ^ pr IKIQ3SS 0D(13 DWIWCLD
0 0 □ HARALDUR MAGNÚSSON 1 Viðskiptafræðingur Tjarnárgötu 16, simi 2 09 25 og 20025,|
■ I