Morgunblaðið - 29.09.1967, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. SEPT. 1967
5
Reyni aö vera ég sjálf
Rætt við Karólínu Lárusdóttur,
Bistmálara, sem sýnir í Casa Nova
SÝNINGARALDA hefur
gengið yfir Reykjavik í sum-
ar. Hvers kyns listaverk hafa
verið til sýnis og vinnubrögð
misjöfn eins og gengur.
Sumir freistast til að hressa
upp á aðsókn með ýmsum
skringilegheitum og afkára-
legri framleiðslu.
Nú hefur ný sýning verið
opnuð í nýbyggingu Mennta-
skólans. Þar sýnir ung lista-
kona Karólína Lárusdóttir 41
málverka sinna. Þó hér sé
ekki um málverkagagnrýni
að ræða virðist augljóst af
þessari athyglisverðu sýningu
að dæma, að hér er á ferð-
inni listakona, sem tekur
sjálfa sig og list sína alvar-
lega.
Um leið og blaðamaður
Mbl. heimsótti Karólínu uppi
í Menntaskóla var gamall
lærifaðir hennar Einar
Magnússon, rektor á útleið
af sýningunni.
— Hvernig leizt þér á?
spurði hún.
— Alveg ágætlega, en þú
hefur breyzt.
— Hefur henni kannski
farið aftur? 3purðum við.
— Það voru alls ekki mín
orð, sagði rektor og kvaddi.
— Hvenær fékkstu áhuga
á að mála, spyrjum við Karó
línu.
— Ég gæti víst sagt allt
frá barnaskóla. Þetta mótað-
ist með árunum en í gagn-
fræðaskóla var ég viss um að
málaralist var það, sem ég
vildi leggja fyrir mig.
— Þú ert stúdent héðan úr
skólanum, fékkstu kannski
eitthvað við að mála meðan
á skólaárunum stóð?
— Það má kalla það svo,
ég tók þátt í málverkasýn-
ingum innan skólans og mál-
aði mér til óbóta hvað eink-
unnir snerti í skólafögunum.
— Hvenær fórstu utan til
náms?
— Ég varð stúdent 1964 og
fór þá til Englands fast-
ákveðin í því að ganga í
myndlistaskóla. Það varð svo
úr, að ég fór í skóla í Lon-
don og var í honum árlangt.
Aðaláherzlan var lögð á
teikningu. Er það ólíkt flest-
um myndlistaskólum í Eng-
landi, sem eru orðnir svo nú-
tímalegir að leggja strax
mest upp úr að mála. Frá
London hélt ég svo til Ox-
ford í Ruskind myndlista-
skólann, sem er í tengslum
við háskólann á staðnum.
Námið þarna tekur 3 ár, en
með því að leggja hart að
mér, mála í frístundum og
í sumarleyfum hér heima
tókst mér að ijúka skólan-
um ári skemur.
— Aðhyllistu einhvern
„ismann".
— Nei það geri ég ekki.
Ég er að burðast við að
reyna að vera ég sjálf. Sumir
segjast sjá mikinn mun á stíl
málverkanna, þó meir en
helmingur þeirra sé málaður
á þessu ári og hinn á fyrra
ári.
Ég býst við að þetta sé
alveg rétt, að það sé nokkurs
konar stökkbreyting í nýj-
ustu verkunum. En auðvitað
er maður alltaf að breytast,
— Ég held áreiðanlega að
hann sé heimatilbúinn. Það
finna sjálfa sig og vonandi
miðar þetta ailt nokkuð á
leið.
— Hefur skó'.inn kannski
mótað þennan nýja stíl þinn
eða er hann frá einhverjum
öðrum kominn?
haft og helzt Bronco jeppa
sem ég hef ekki komizt yfír
enn!
Mér þykir mikið til okkar
gömlu landslagsmeistara
koma og Kjarval er mitt uppá
hald.
— Hvaða stíl ber mest á
í Englandi núna?
— Ég reyndi að sækja eins
margar málverkasýningar og
mögulegt var í London enda
er staðurinn stórkostlegur
hvað þetta snertir. Það virð-
ist bera geysimikið á alls
kyns pop iist og ný skrítinn
ALLT MEÐ
Hvíld
Karólína við eitt verka sinna í nýbyggingu Menntaskólans.
BLAOBUROARFOLK
vona ég í það minnsta. Nýj-
ustu myndirnar, sem eru mál
aðar í honum eru reiptogs-
myndirnar og fljúgandi fólk,
sem þið birluð í blaðinu um
daginn, á hlið. Ég er með
þass.u að leitast við að ná nýj
um krarfti í myndirmar. Hvern
ig til tekst er ekfci mitt að
dæma. Ekki get ég heldur
sagt skólann hafa beinlínis
mótað stíl minn. Ég bel mig
hafa haft ómetanlegt gagn af
vistinni í Öxnafurðu hvað
snertir tækni, listaval og
svo frv. en í skólum verður
auðvitað aldrei allt lært.
— Þú málar hvorki í
pop-istíl né landsilatg.
— Nei, en það er ekki þar
með sagt að ég hafi ekki
smekk fyrir hvoru tveggja.
Mér finnst gaman af mörgum
pop myndum þó ég sé næst-
um viss um að koma aldrei
til með að mála slíkt sjálf.
Landslag hér heima vildi
ég gjarnan mála en til þess
þarf tíma, sem ég hef ekki
OSKAST
í eftirtalin hverfi
Kalplaskjólsveg — Fálkagata — Lambastaða-
hverfi -- Aðalstræti — Vesturgata I — Greni-
melur — Laufasvegur I — Barónsstígur — Höfða-
hverfi — Útiilíð — Háteigsvegur.
Talið við afgreiðsluna i sima 10100
Staða löglærðs fulltrúa
við embætti sýslumannsins í Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu er laust til umsóknar. Umsóknarfrest-
ur er til 1. nóvember næstkomandi.
Laun samkvæmt 21. flokki launalaga.
Skrifstofu Mýrar- og Borgarfjarðarsýslu.
Borgarnesi 28. september 1967.
Ásgeir Pétursson.
nöfn koma og fara jafn
óðum. Af yngri málurunum
er ég hrifnust af Fracis
Bacon.
— Hvað hyggstu fyrir eftir
sýninguna?
— Áður en ég hélt heim
frá Englandi heimsótti ég
gamla skólastjórann minn í
London. Bauð hann mér þá,
að nota húsakynni skólans
næsta vetur og sækja kennslu
í grafik og höggmyndagerð
endurgjaldslaust. Ég þáði
auðvitað þetta góða boð, því
mig hefur langað til að reyna
við hvoru tveggja.
— Hvað stendur sýningin
lengi yfir?
— Hún verður opin í eina
viku eða fram á sunnudag
milli kl. 2—10 e.h. Ekki gafst
mér neinn tími til formlegrar
opnunar.
Að svo mæltu kvöddum
við Karólínu. Tekið skal
fram að flestar myndanna
eru til sölu og hafa nokkrar
þegar selzt. — Þ. W.
Verzlunarskólastúdent
óskar eftir atvinnu eftir hádegi eða á kvöldin.
Hefur bíl til umráða. Margt kemur til greina.
Upplýsingar í síma 33851.
EIMSKIP
A næstunni ferma skip vor
til Islands, sem hér segir:
VNTWERPEN:
Seeadler 9. okt. **
Bakkafoss 17. okt.
Seeadler 27. okt. **
HAMBURG:
Reykjafoss 3. okt.
Skógafoss 10. okt.
Goðafoss 14. okt. **
Reykjafoss 24. okt.
Skógafoss 3. nóv.
ROTTERDAM:
Reykjafoss 29. sept.
Goðafoss 11. okt **
Skógafoss 13. okt.
Reykjafoss 20. okt.
Skógafoss 34. okt.
LEITH:
Gullfoss 13. okt.
Gullfoss 3. nóv.
LONDON:
Bakkafoss 29. sept.
Seeadler 10. okt. **
Bakkafoss 20. okt.
Seeadler 31. okt. **
HULL:
Bakkafoss 2. okt.
Seeadler 13. okt. **
Bakkafoss 23. pkt.
Seeadler 2. nóv. **
NEW YORK:
Selfoss 13. okt.
Brúarfoss 27. okt.
Fjallfoss 10. nóv. *
GAUTABORG:
Dettifoss 5. okt.
Tungufoss 13. okt. **
Lagarfoss um 20. okt.
K AUPM ANNAHÖFN:
Skógaifoss 5. okt.
Gullfoss 11. okt.
Tungufoss 17. okt. **
Gullfoss 1. nóv.
KRISTIANSAND:
Reykjafoss 5. okt.
Tungufoss 18. okt. **
BERGEN:
Tungufoss 20. okt. **
VENTSPILS:
Lagairfoss 16. okt.
KOTKA:
Dettifosis 2. okt.
Rannö 14. okt.
GDYNIA:
Lagarfoss um 18. okt.
* Skipið losar á öllum að-
alhöfnum Reykjavík
ísafirði, Akureyri og
Reyðarfirði.
** Skipið losar á öllum að-
alhöfnum, auk þess i
Vestmannaeyjum, Siglu
firði, Húsavík, Seyðis-
firði og Norðfirði.
Skip sem ekki eru
merkt með stjörnu losa
í Reykjavík.
ALLT MEÐ
EIMSKIP