Morgunblaðið - 29.09.1967, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. SEPT. 1967
Útgefandi: Hf. Arvakur, R’eykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar; Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthias Jphannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Rifstjórn og afgreiðsla: Aðaistræti 6. Simi 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Símf 22-4-80.
í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands.
KAUPUM ÍSLENZKT
T^uttugasta og níunda Iðn-
þing íslendinga kemur
saman á erfiðum tímum fyr-
ir iðnaðinn sem aðrar atvinnu
greinar landsmanna. Breyttir
viðskiptahættir, frjáls inn-
flutningur og aukið vöruúr-
val hafa valdið ákveðnum
iðngreinum töluverðum erfið-
leikum á undanförnum ár-
um og við það bætist nú hinn
. almenni samdráttur í atvinnu
lífinu vegna verðfalls og afla-
brests.
Af þessum sökum er þeim
mun athyglisverðara og jafn-
framt ánægjulegt að sjá hve
heilbrigða og raunsæja af-
stöðu iðnaðurinn hefur tek-
ið til breyttra aðstæðna. I
setningarræðu sinni sagði Vig
fús Sigurðsson, forseti Lands-
sambands iðnaðarmanna:
„Iðnaðarmenn óska ekki eft
ir innflutningsbanni á iðnað
arvörur, en þeir telja eðlilegt,
að metinn sé aðstöðumunur
innlendra og erlendra fram-
leiðenda og þjóðhagslegt gildi
þess innlenda verði metið, þó
nokkru sé dýrara, án þess að
óhagstætt geti talizt fyrir
þjóðarheildina.“
Margir aðrir hagsmuna-
hópar í þjóðfélaginu mættu
taka sér þessa afstöðu iðnað-
arins til fyrirmyndar. Þótt
frjáls innflutningur og aukið
vöruúrval hafi skapað iðnað-
inum verulega erfiðleika,
hafa forustumenn hans þá
víðsýni til að bera að krefj-
ast ekki innflutningstak-
markana. Það sjónarmið er
hins vegar sanngjarnt og eðli
legt, sem forseti Landssam-
bands iðnaðarmanna setur
fram, að landsmönnum ber
að meta gildi þess fyrir þjóð-
arheildina, að iðnaðarfram-
.leiðsla og margvísleg þjón-
ustustarfsemi fari fram inn-
anlands en ekki utan.
Innlendur iðnaður hefur á
undanförnum árum búið við
breytingatíma. Slík tímabil
eru jafnan erfið, meðan þau
standa yfir, en það mun koma
í Ijós, að íslenzkur iðnaður er
nægilega traustur til þess að
standast þessa errfiðleika og
koma út úr þeim sterkari og
öflugri atvinnugrein, sem
framleiðir betri vöru og veit-
ir betri þjónustu en áður.
Hinir breyttu tímar hafa held
ur ekki einungis valdið iðn-
aðinum erfiðleikum heldur
skapað honum mörg ný tæki-
færi. Ný verksmiðjuhús og
heil iðnaðarhverfi hafa risið
af grunni á undanförnum ár-
um, nýjar og betri vélar ver-
ið teknar í notkun og lána-
málum iðnaðarins hefur ver-
ið komið á nýjan grundvöll,
þannig að lánaaðstaða iðnað-
arins er nú gjörbreytt frá því
sem var. Kaupum það sem ís-
lenzkt er á að vera kjörorð
landsmanna, og með þeim
hætti geta allir landsmenn átt
þátt í því að efla íslenzkan
iðnað.
NÝ VERK-
EFNI FYRIR
SKIPASMÍÐA-
STÖÐVARNAR
k síðustu árum hefur nýr
stóriðnaður risið upp hér
á landi, þar sem eru stálskipa-
smíðarnar. Þessi iðngrein
hefur verið byggð upp fyrir
dugnað og djörfung fámenns
hóps manna og með öflugum
stuðningi iðnaðarmálaráð-
hera, Jóhanns Hafsteins. Að
undanförnu hefur gætt verk-
efnaskorts hjá stálskipasmíða
stöðvunum og hefur það að
sjálfsögðu valdíð áhyggjum.
í ræðu sinni við setningu Iðn-
þingsins benti Vgifús Sigurðs
son, forseti Landssambands
iðnaðarmanna á, að íslenzku
stálskipasmíðastöðvarnar
framleiða skip, sem eru sam-
bærileg að verði og jafnvel
fremri að gæðum en þau skip,
sem eru smíðuð erlendis. —
Hann vakti einnig athygli á
því, að hagstæðari lán fást út
á skip smíðuð hérlendis en er-
Iendis. Af þessum sökum er
það vissulega undarlegt, að
menn skuli fremur leita til
erlendra skipsmíðastöðva
með nýbyggingar skipa. Jó-
hann Hafstein, iðnaðarmála-
ráðherra, upplýsti í ræðu
sinni á Iðnþinginu, að unnið
hefði verið að því að kanna
hverjar væru hentugustu gerð
ir fiskiskipa, og þegar því
starfi væri lokið, væri ætlun-
in að hjálpa skipasmíðastöðv-
unum að byggja skip af þeirri
gerð, án þess að kaupandi
væri fyrir hendi í upphafi.
Iðnaðarmálaráðherra upp-
lýsti ennfremur að líkur væru
á, að fá mætti stórt verkefni
fyrir skipasmíðastöðina á Ak-
ureyri, ef hið opinbera gæti
stuðlað að nokkru meiri fjár-
öflun en verið hefði, eða
85% í stað 75%. Einnig sagði
Jóhann Hafstein, að í athug-
un væri að láta smíða nýju
strandferðaskipin hér innan-
lands, ef til vill skuttogara
og loks minist hann á ráð-
stafanir til þess að láta fram-
kvæma stórviðgerðir hér á
landi en ekki erlendis.
Þessi ummæli iðnaðarmála-
ráðherra sýna glögglega að
ríkisstjórnin gerir sér glögga
grein fyrir nauðsyn þess að
skipasmíðastöðvunum verði
útveguð nauðsynleg verkefni
Godtháb á Grænlandi
Áfengisneyzla er mikið
vandamál í Grænlandi -
ÞAÐ voru fluttir inn 205.300
lítrar af áfengi og 8.6 millj.
flöskur af bjór í Grænlandi
á því síðasta ári, sem tölur
eru enn fyrir hendi um, 1965,
handa 40.000 íbúum, en af
þeim er helmingur yngri en
15 ára. Hvers vegna drekkur
fólk svona mikið á Græn-
landi? í stuttu máli er svarið
þetta: Hvað ætti það annars
að gera í frístundum sínum?
Möguleikar þarna á skemmt-
unum i frístundum, eru svo
lítilvægir, að varla er unnt að
greina þá.
Þannig er komizt að orði í
danska blaðiniu B.T. um
áfengismál og félagslíf í
Grænlandi fyrir skömmu og
verður vart annað sagt, en
þar sé kveðið fast að orði. En
frásögn blaðsins heldur áfram
og segir svo: Einu sinni var
þessu á annan veg farið. Þá
varð fólk að strita nótt sem
nýtan dag til þess að eiga of-
an í/ sig að éta næsta dag.
Nú er hægt að sækja matinn
í búð Konunglegu Grænlands
verzLunarinnar. Þar er einn-
ig unnt að fá föt — og stíg-
vél og skó. Frístundunum
skal ekki eytt í að búa þessa
hluti til. Þjóðleg list er í þann
veginn að deyja út. Sjónvarp
er ekki fyrir hendi og það
heyrist varla neitt til út-
varpsins. Kvikmyndahús eru
fá og kumbaldaieg og mynd-
irnar, sem sýndar eru, þeim
mun lélegri.
Það eru sagðar feikilegar
hendi á því, hve oft fóilk hef-
ur eirð í sér til þess að sækja
kvöldskóla, það er of kalt til
þess að hanga á götuhornun-
um og hver nennir að fara í
gönguferðir upp í fjöllin eða
fara á veiðar, þegar það er
ekki nauðsynlegt til framfæris
lífinu?
Skömmtun.
f nokkrum bæjum ríkir
bann á sölu áfengis í viku-
lokin, svo að á fimmtudögum
er bara eitt ráð til: að kaupa
svo marga kassa af bjór, að
menn geti verið vissir um,
að þeir eigi nóg, af eitthvað
yrði um að vera um helgina.
Og hvers vegna að láta bjór-
inn liggja og staðna í flösk-
unum, þegar einu sinni er bú-
ið að ná í ihann. Reyndar er
einniig til skömmtun á bjór,
og þegar skömmtun er á
einhverju, þá er það einfald-
lega skylda manns að kaupa
allan skammtinn — og sjá svo
um, að það verið nóg pláss
fyrir hendi í húsinu, þegar
næsti skammtur er keyptur.
Það eru sagðar feykilegar
sögur um, að 60.000 flöskur
af bjór hafi verið seldar á
nolkkrum klukkustundum í
bæ einum, þar sem ekki hafði
verið til bjór í nokkrar vik-
ur. En er þetta óeðiilegt?
Hefði þetta ekki gerzt í hvaða
öðrum dönskum bæ sem væri,
er hefði verið settur í „þurr-
kví?“
Síðasti umgangur.
Það er viðburður út af fyr-
ir sig að fara á þær fáu græn-
lenzku veitingastofur, sem 'il
eru. Það er verra en í Sví-
þjóð. f Godtháb má t.d. ekki
selja bjór á veitingahúsi fyrr
en eftir kl. 17 og fram til kl.
22.30. Fáeinum mínútum t
fyrir 22.30 blinka ljósin. Það
er merki um, að nú sé verið
að byrja á síðasta umgangi.
Og hvílíkur umgangur verð-
ur það efcki. Það er rogazt
með bjórinn fram á borðin —
öll glös eru dregin fram. í
einum hvelli eru þau fyllt —
og síðan er drukkið. Kl. 22.45
kemur þjónustustúlkan aftur
og fjarlægir allar flöskurnar,
en áður er komið í veg fyrir
hættuna á því, að nokkuð
verði eftir í þeim. Það er
drukkið svo stíft, að dansgólf-
ið er næstum tómt, því að kl.
23 enu öll glös tekin af borð-
unum og enginn lætur hálf-
fullt glas renna sér úr greip-
um.
Er nokkuð við því að segja
að margir verði drukknir und
ir svona kringumstæðum?
Enginn veit, hvaða ákortur á
Framh. bls. 12
og er þess því að vænta að
úr rætist innan skamms.
SIGLUFJÖRÐUR
í ÖÐRU SÆTI
CJiglufjörður var um áratuga-
^ skeið síldarhöfuðborg ís-
lands, en eftir að síldin færði
sig út fyrir Austfirði hefur
þessi frægi síldarbær búið
við síldarleysi. En þetta er nú
að breytast.
Líklega gerir fólk sér ekki
almennt grein fyrir því, að
Siglufjörður er nú önnur
hæsta löndunarhöfn landsins,
aðeins Seyðisfjörður er hærri
og munar þó ekki miklu.
Þessi breyting er á orðin
vegna síldarflutninganna. —
Síldarflutningsskipið Haförn-
inn hefur í sumar flutt síld
til Siglufjarðar með þeim
glæsilega árangri, sem að of-
an getur.
Þessi staðreynd sýnir, að
síldarflutningarnir hafa raun
verulega valdið byltingu í
atvinnumálum einstakra
landshluta og hefur framsýni
og dugnaður feðganna í Bol-
ungarvík, sem fyrstir hófu til
raunir með síldarflutninga,
nú borið ríkulegri ávöxt en
menn grunaði þegar þessar
tilraunir hófust á sínum tíma.