Morgunblaðið - 07.10.1967, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGAKDAGUR 7. OKT. 1907
11
Eitthvað bogið við Portúgal"
1
Einræðisstjórn, sem virðir
mannréttindi að vettugi
FULLTRÚAR Etena, íslend-
inga, Norðmanna og Svía af-
hentu 20. september, Peter
Smithers, aðalritara Evrópu-
ráðsins, kæru yfir aðförum
einræðisstjórnarinnar í Grikk
landi Þetta er harðorð kæra,
stíluð til mannréttindanefnd-
ar ráðsins, og er gríska hers-
höfðingjastjórnin sökuð um
að hafa þverbrotið mannrétt-
indasamþykktina og hefur
stjórnin játað, að 2400 manns
sitji enn í fangelsi vegna
stjórnmálaskoðana sinna eða
„vegna þess að öryggi ríkis-
ins stafaði hætta af starfsemi
þeirra", eins og stjórnin orð-
ar það. En dr. Gustav Comba,
sem UNO sendi tii Aþenu
nokkru áður til þess að rann-
saika þetta fangamál, segir að
fangarnir séu fleiri, eða ein-
hversstaðar milli 3:500 og
6.000.
En kvörn mannréttinda-
nefndarinnar malar hægt.
Það er talið liklegt, að hún
verði nokkuT ár að skila áliti
sínu í má'liniU, þó hún sé svo
til sammála um að sök
Grikkja sé svo þung að ekki
verði komist hjá að reka þá
úr Evrópuráðinu eða minnsta
kosti láta fuilltrúa þeirra víkja
sæti þar um stundiarsakir. —
Mannréttindanefndin á að
vísu að halda fund 2. okt. For
maður hennar er Daninn Max
Sörensen dr. jur. Hann verð-
ur að víkja sæti, þvi að Dan-
mörk er aðilí að kærunni.
Varaformaðurinn er Grikki
og verður þessvegna að víkja
líka. Það sem mannréttinda-
nefndin mun gera, er að skipa
sjö manr.a nefnd til að gera
álít um kæruna, og er líklegt
að einn Skandinavi og einn
Grikki verði í þeirri nefnd.
En þegar hún líkur störfum á
hún að sfcíia áiiti sin.u til ráð-
herranefndar Evrópuráðsins.
Þessi nefnd getur svo með %
meirihluta saimþykkt, að
Gríkfcir hafi brotið mannrétt-
imdasamþykktina, og um leið
er þeim gefinn frestur til að
færa það í lag, sem talið er
ábótavant. — En ef lagfær-
in.gin er ekki komin þegar sá
frestur er liðinn — þá fyr6t
ákveður ráðherranefndin
hvað gera skuli: hvort reka
skuli sakborninginn eða gefa
nýjan frest — eða taka hann
í sátt.
Þetta dæmi minnir óþægi-
lega á hve pappírsmylian er
hæggeng hjá ýmsum þeim
ráðum og nefndum, sem ann-
ast eiga friðsamieg skipti
þjóða í milli og vera á verði,
að rfki og þjóðir brjóti ekki
sameiginleg boðorð. Og í sam
bandi við gríska tilfellið dett-
ur manni í hug ýmislegt ann-
að, sem sýnir máttleysi þeirra
stofnana, sem kosnar eru tíl
að vaka yfir þjóðunum. Það
er víðar en í Grikklandi sem
mannréttindin eru virt að
vettugi — og hafa verið ó-
virt svo lengi, að almenning-
ur virðist alveg hafa gleymt
þeim. í því sambandi er vert
að rifja upp sögu sem gerzt
hefur í Portúgal síðastliðin 35
ár, og reyndar á Spáni líka.
Fyrir tæpum 60 árum
myrtu Portúgalar Carlas kon-
ung sinn og elzta son hans,
en þá tók við ríki Manoel,
sem hröklaðist úr landi eftir
tvö ár. Siðan hefur Portúgal
verið lýðveldi, en lýðfrelsi
hefur ekki verið þar nema
fyrstu árin, og þá var þar sí-
feld kreppa, óeirðir og verk-
föll, unz herinn gerði upp-
reisn og rak forsetann árið
1926. Hershöfðinginn Car-
mona varð forsætisráðberra
og síðan forseti og 1928 gerði
hann dr. Antonio Salazar að
fjármálairáðlherra. Síðan hef-
u* hann ráðið öllu í Portúgal.
Árið 1930 stofnaði hann eins-
konar fasistaflokk og með að-
stoð hans varð hann einræðis-
herra árið 1932. Hann er orð-
in-n 78 ára, guðfræðingur og
hagfræðingur að mennt og
var prófessor í hagfræði í tólf
ár áður en hann va-rð ráð-
herra.
Salazar hefur verið kallað-
uir „hæglátasti kúgari í
heimi“ og ber það viðurnefni
með rentu. Hann hélt aldrei
glamurræður eins og Musso-
lini eða Hitler, en laumaði ein
ræðisfjötrunum á þjóðina án
þess hún vi&sí. Samkvæmt
stjórna'rskránni frá 1932 kýs
þjóðin sér forseta til 7 ára og
hefiur 120 manna þing, sem
kosið er með almennum kosn-
ingum, í orði kveðnu, en samt
kemsit aldrei stjórnarandsitæð-
ingur á það þing. Fliokkuirinn,
sem Salazar stofnaði 1930 ræð
ur öllu, „Þjóðlega samband-
ið“. Lengi vel var það aðeins
þessi flokkur sem bauð fram
til þings, en þá sjaldan and-
stöðuflokkar hafa boðið fram
fuliltrúaefni, hafa þau aldrei
náð kosningu.
Það er eitfchvað grunsam-
legt við þetta. Fyrstu veldisár
Salazars ha-fði hann mikið
fylgi, og skýringin á því var
sú, að þegar hann tók völdin
var þjóðin orðin langþreyfct á
sífelldri ósitjórn og verkföll-
um. En nú virðist það vera
bein kúgun og ofsóknir, sem
tilvera Salazarstjórnarinnar
byggist á. Portúgal er lög-
regluríki og ,,Pide“ — leyni-
lögregla stjórnarinnar — er
Mfakkeri hennar.
Mannréttindanefnd Kanada
hefur rannsakað þetta mál, og
vi'tnisburður hennar er ófag-
ur. Mark MacGuigan lagapró-
fessor segir, að 10.000 manns
hafi verið fangelsaðir fyrir
„stjórnmálaafbrot" í Portúgal
síðan 1956, svo sem að hafa
áformað að gera verkfall, en
þau eru bönnuð 1 stjórnar-
skránni.
Stjómanlögreglan — Pide
— hefur ótakmarkað vald og
dæmir dóma, sem ekki er
hægt að áfrýja. Hún getur
bannað fundarhöld, lokað
samkomuhúsum og skrifstof-
um, gert húsrannsóknir, hand
tekið menn og fangelsað án
Antonio Salazar.
þess að þeir feomi fyrir dóm.
Þetta er mjög svipað „inkvisi
tióninni“ gom-lu, enda beiitir
lögreglan líka pyntingum til
að fá menn til að meðganga.
Sumir fangar eru látnár
standa uppréttir tímunum
saman, öðrum er varnað
svefns. Brezkur lögmaður,
Ian Macdonald, var viðstadd-
ur réttarhöld yfir 31 stúdent í
hittifyrra. Hann segir að ein-n
stúdentinn hafi verið yfir-
heyrður fjóra daga og fimm
nætuir í striklotu og var-nað
svefns og síðan látinn sitja
svo mánuði einn í klefa. Öðr-
um var varnað svefns í fimm
sólarhrdnga fyrst, síðan í hálf-
a-n sjöunda og loks í hálfan
tíunda sólanhring. Sautján ára
unglingur var látinn standa
uppréttur í 54 tíma og síðan
dúsa einn í klefa í tíu daga.
Það eru ekki sízt stúdentar
og menntamenn, sem verða
fyrir barðinu á lögreglunni
Stúdentaleiðtoginn José Bern
ardino var fangelsaður voirið
1962, en kom ekki fyrir dóm-
ara fyrr en í mai árið ef-tir og
hafði þá ekkert á sig játað við
yfirheyrslurnar, en „sekta-r-
gögnin", sem hjá honum fund
ust, voru ekki lögð fram í
réttinum, heldur var umsögn
ákærandans um þau látin
duga. Casco de Alheida lög-
maður, aðalvitni Bernardinos,
va-r fangelsaður sama morg-
uninn og réttarhöldin hófust.
Áður en dómurin-n var lesinn
u-pp spurði dómstjórinn, hvort
Bernardino hefði nokkuð við
yfirheyrsluna að a-thuga, en
hann tók tvívegis fram í fyrir
honum. Þegar Bernardino tók
til máls í þriðja sinn, réðuist
8—10 menn, óeinkeníii'sbúniir,
en vitanlega frá lögreglunni,
áð hornu-m, börðu hann niður
og misþyrmdju honum í nofckr
ar mínútur. Síðan var Bern-
ardino borinn út, „þegjandi og
að því er virtist meðvitundar-
laus“, segir viðstaddur amer-
ís'kur lögmaður, Patrick Halli
nan, og • ens'ki lögmað.urinn
Ronald Waterhouse staðfestir
þetta. Þegar Bernardino va-r
borin-n út hrópaði gömul
kona i salnum: „Niður með
fa-sistana!“ Hún var tekin sam
stundis og sat í Caxias-fang-
elsinu í 6 mánuðL
Stjórnmálafangar, sem af-
plánað hafa dóma, eiga alls
ekki víst að sleppa út affcur,
því að samkvæmt lögurri má
halda þeim inni áfram, þrjú
ár í senn, ef þeir eru taldir
„hætfculegir öryggi rikisdns“.
Það kemur nær aldrei fyrir,
að þeir sem hafa fen-gið meira
en tveggj a ára dóm komi-s-t
hjá þ-eissum „framJ-engingum“.
Árið 1945 voru sett svokölluð
„90 daga lög“ í Portúgal. Þau
leyfa að mönnum sé haldið í
va-rðhaldi 90 daga án dóms og
iaga, og innanríkisráðherrann
má framlengja þetta um aðra
90. Fangarnir sitja -oftas-t ein-
ir í klefa, eru yfirbeyrðir án
a-fláts og pyn-taðir. Þeir mega
ekki hafa tal af lögfræðingL
En samkvæmt Genéve-sam-
þykkti-nni má ekJki ha.lda
fanga lengur en 30 daga —
jafnvel á stríðstímum.
Russel lávarði af Liverpool
var leyft að koma icuv í nokk-
ur fangelsL þar á meðal Al-
j-utoe-tfangelsið, sem stendur í
miðrd Lissabon, beint á móti
dómkirkj-unni. „Það er drungi
og vonleysi yfir þessum
staðsegir hann. Sum-
ir k-lefarnir eru glugga-lauisir,
loftræsting engin, og svo litl-
ir eru þeir, að fulivaxta mað-
ur getur tæp’lega legið bein-n í
þeim. Fangarnir líta út ein-s
og dýr í bú-ri, segir Russel.
„Ég reyndi að tala við einn,
sem var í klefa n-r. 13, en
hann bara góndi á mig eins
og hann hefðd séð votf-u. í öðr-
um klefa var svartur pilfcur
frá Angola og ég áva-rpaði
hann. Þó hann vissi hver ég
var, varð ha-nn óttaslegkin
þegar túlkurinn þýddi það
sem ég sagði við hann. Hann
nötnaði ailur“.
Fyrir rétt-u ári voru sett lög
sem heLniluðu að senda póli-
tiska fanga í fan-gabúðir í ný-
len-dunum. Meða-1 þeirra er
Tarrafal á Kap Vende-eyjum
undir Afríkuströndum. Þær
voru gerðar 1935, eftir þýzkri
fyrir-mynd — samskon-ar og
fangabúðir Hitlers. Á-rið 1955
voru þær lagða-r niður en
tekna-r í notkun aftur 1961
fyrir „uppreisna-rmenm" (þ. e.
þjóðern-issinna) frá Angola,
en nú eru póli-tískir fangar
frá Portúgal sendir þan-gað
líka. Aðrar fangabúð-ir, í
Chao-Bom á Kap Verde, og
Bai-a dos Tigros í An-gola
sunna-nverðu-r, eru nefnilega
fullsettar. í þeim fyrrnefndu
eru 7.000 og í Baia 4.000 fang-
ar. Engínn þeir-ra fyrir rán
eða morð, heldur fyrir það
að dirfast að segja, að eitt-
hvað sé bogið við ma.nnrétt-
indin í Porfcúgal, og mælast
til þess a-ð lýðfrelsi verði í
landin-u.
Portúga-1-.stjórnin hefur
ekki aðeins á s amvizkunni
kúgun þes-sara 9 milljórua,
sem eiga heíma í landinu
sjálfu, heldur 12 mílljóna,
sem lifa í hinum göml-u ný-
lendum þeirra í Afríku: An-
gola að vestan og Mosambík
að au-stan. Aufc þess eiga þeir
no-kkrar smánýlendur, svo
sem Macao í Kína (fræga eit-
u-rlyfasmyglunarstöð) og Kap
Verde-eyja-r, sem hefur þótt
ákjósanlegur staður fyri-r
fangabúðÍT. — Það hefur vak-
ið athygli margra bl-aðales-
enda í heiminum undantfarin
ár, að þegar ráðstafanir voru
gerða-r og bönnum beitt gegn
Suður-Afríku út af stjórn hins
gatnla Búa-lýðveldis — og síð
ar gegn Ródesíustjóm Jan
Smith, fyrir afneitun allra
réttinda hvað Svertingj-a
snerfci — var lítið sem ekkert
minnzt á blökkuma-nnakúgun
Portúgala í Angola eða Mos-
ambík, og er hún þó engu
betni en hinna fyrrnefndu.
En sá er munurinn, að þa-u
er-u ríkL en hin fcvö eru „ný-
lendur" Por-túg-ala. í lok 15.
aldar áttu Portúgalar afreks-
m-ann í siglingum og landa-
fundum, Vasco da Gama, og
afleiðing þess varð sú, að þeir
eiga enn meira atf nýlendum
en Spánverjar, sem þó höfðu
eigi la-kari manni á að skipa
um þær mundir en Kristófer
Kolu-mbusL
Portúgalir eru meðlimir
UNO og NATO og fleiri al-
þjóðlegra samta-ka um að
gera veröldi-na betri. Samt
sem áður helzt þeim u-ppi, í
35 ár samfleytt, að beila kúg-
un, sem miðald akeimu-r er að,
gegn sínuim ei-gin borgur-um
— og þá vitanlega ekki síðu-r
gegn „svörtu þræl-unum“ í
nýlendum sínu-m. — Og þetta
er þolað.
Hversvegna? Vegna þess að
þær stofnanir, sem eiga að
gæta mannréfctindanna, „mala
of hægt“. Og vegna þess að
þær eiga alls ekki að „mala“,
beldur taka við kor-ninu ó-
möluðu og skilja „hveitið frá
höfrunum“. — Eða nánar
sagt: skipa þjóðunum í tvo
flok-ka — annan sem virðir
m-a-nnréttin-di og persónufrelisL
en hinn sem afn-eitar því.
Þetta er vitanlega óskhyggja,
sem margir trúa á, en tiltölu-
lega færri í Portúgal en á ís-
La-ndi. Enda er ekki nema
. annarhver Portúgali læs og
skrifandi ennþá. Kannski
skánar þetta, þegar þeir fara
að lesa?
Sk. Sk.
BLADBURÐARFOLK
ÓSKAST
í eftirtalin hverfi
jÞingholtsstræti — AðaLstræti — Höfðahverfí —
Njálgsata — Bergstaðastræti — Grenimelur —
Ægissíða — Vesturgata — Laugarásvegur.
lalib við afgreidsluna i sima 10100
Mótatimbur óskast
Upplýsingar í síma 19245.
Laugavegur
Lítið verzlunarpláss til leigu strax.
Upplýsingar í síma 21815.