Morgunblaðið - 27.10.1967, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.10.1967, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. OKT. 1967 Bjargaði 4ra ára telpu f rá köf nun — Bjargvœtturin hafði lœrt blástursa ðferðina í Kennaraskólanum UNG stúlka, 19 ára kennari í Hafnarfirði, Guðrún Leifsdótt ir bjargaði í fyrradag 4ra ára gamalli stúlku, Jónu Jónsdótt- ur, dóttur hjónanna Valgerð- ar Jónsdóttur og Jóns Arnórs Þorvaldssonar, frá köfnun. Hafði litla telpan festst í spýtu í mæni lítils kofa, er stendur á lóð við Háukinn 3 í Hafnarfirði. Fann móðir Guðrúnar telpuna þar, en Guðrún hóf þegar lífgrunartil raunir með blástursaðferð og bjargaði Iífi telpunnar. Guðrún Leifsdóttir Mbl. náði í gær tali af Guð rúnu og sagðist henni svo frá: — Móðir mín fann barnið úti í smákofa, sem hér stend- ur á lóðinni við húsið. Tveir gluggar eru við mæninn og höfðu krakkar sett spýtu á milli þeirra. Þegar móðir mín kom í kofann sá hún hvar barnið hékk á spýtunni, hafði blánað upp og var hætt að draga andann. — Mamma kom þegar með bamið inn í húsið og hóf ég þá þegar blástur inn um munn þess. Býst ég við að liðið hafi um 5 til 10 mínút- ur, unz barnið fór að anda. Fyrst anadaði það frá sér og var það fyrsta lífsmark er ég fann með baminu. — Þegar var hringt á hjálp, sem kom strax. Var þá litarháttur telpunnar orð- inn eðlilegur, en hann byrj- aði að breytast strax og telp an tók að anda frá sér. — Ég lærði blástursaðferð- ina í Kennaraskólanum í fyrra hjá Jóni Oddgeir Jóns- syni. Tel ég þá kennslu hafa orðið mér að mjög miklu gagni, sagði Guðrún að lok- um. Er sjúkrabifreiðin kom tóku sjúkraflutningsmenn við telpunni. Sá er var aftur í bifreiðinni hjá telpunni var Sveinn Borgþórsson. Honum sagðist svo frá í viðtali við Mbl.: — Þegar við komum á staðinn var barnið komið inn í húsið að Háukinn 3. Var það farið að anda og fluttum við það út í bílinn. Dálítinn tíma tekur að setja í samband við súrefnishylk- in sérstakt dælutæki, sem nefnt er Ambo, en þar sem mér fannst ekki óhætt að hætta blæstrinum inn um munn telpunnar vildi ég ekki eyða tímanum í að tengja það. Tók ég því það ráð að blása með munnaðferðinni og gerði það allt til þess, er við komum í Slysavarðstof- una í Reykjavík. Þegar þang að var komið fékk litla telp an súrefni, en að svo búnu var ráðlagt að hún skyldi flutt í Landsspítalann. Á með an telpan var í Slysavarð- stofunni tengdum við Ambo tækið við súrefnishylkin og á leiðinni til Landsspítalans fékk telpan stöðuga súrefnis- gjöf í bifreiðinni. Telpan mun nú hafa náð sér, en er enn í Landsspítal- anum. 7 Myndirnar sýna handtökin um höfuðið. Sveigja verður höf- uðið eins langt aftur og unnt er með eðlilegu móti. Við það opnast öndunarvegurinn. Haldið þessari stöðu höfuðsins á meðan lífgunartilraunirnar fara fram. Dragið djúpt að yður andann, opnið vel eigin munn, leggið varir þétt að munni sjúklingsins og blásið ofan í hann. Til þess að Ioftið leiti ekki út um nasirnar, getur björgunar- maðurinn lagt vanga sinn þétt að mösum sjúklingsins, um leið og hann blæs í munn hans, u.þ.b. 12 sinnum á mín. Úr bókinni „Hjálp í viðlögum“ eftir Jón Oddgeir Jónsson. Útvarpað að meðaltali 19 klst. á dag í vetur - Nokkrar veigamiklar breyt- ingar á vetrardagskránni VETRARDAGSKRA útvarps- ins hefst vetrardaginn fyrsta, og verða nokkrar veigamiklar breytingar á henni frá því sem verið hefur. Skýrðu forráða- menn útvarpsins á fundi með fréttamönnum í gær. Eru þær breytingar helztar, að síðari kvöldfréttir hefjast nú klukkan 10 í stað kl. 9, svo og fellur útvarp jarðarfara niður á dag- skránni. Verður á þeim tíma — milli kl. 10 og 12 — útvarpað tónlist. Útvarpið mun að me'ðaltali senda út 19 klukkustundir á dag. Engin veruleg röskun hefur orðið á hlutföllum milli mælts máls og tónlistar á dagskrá út- varpsins, en þó mun heldur verða aukning á því fyrmefnda í morgunútvarpinu. Fréttasend- ingar verða kl. 10 dag hvern, en veðurfregnum útvarpað 7 sinn- um á dag. Undirbúnir hafa verið til flutnings nokkrir stórir erinda- flokkar. Dr. Bjarni Guðnason mun flytja erindi um uppruna Islendingasagna, og ennfremur Sýning Þorvalds VALTÝR Pétursson skrifaði listdóminn um sýningu Þor- valds Skúlasonar, sem birtist í blaðinu í gær Nafn hans féll því miður niður, þegar gengið var frá greininni í blaðið. má nefna erindaflokka um sögu íslands á 20. öld. Þá verða er- indaflokkar um kynferðismál, sem Pétur Jakobsson yfirlæknir, og Dr. Gunnlaugur Snædal annast. Hefur hinn síðamefndi meðal annars kynnt sér í þessu skyni hvernig danska útvarpið annast kynferðisfræðslu. Nokk- ur erindi vefða flutt um siða- skiptin og ennfremur er erinda- flokkur um 50 ára afmæli Rúss- landsbyltingarinnar. Loks skal nefndur erindaflokkur í tilefni 50 ára afmælis finnska lýðveld- isins. Bókmenntir skipa veglegan sess á dagskrá útvarpsins. I vetur mun Andrés Bjömsson annast ljóðaþætti, og verða ein- göngu lesin upp þýdd ljóð í fyrstu þáttunum. Annan hvern sunnudag verður svo Sigurður A. Magnússon með bókmennta- þætti, og verða þeir í samtals- formi. Þátturinn á Bókamark- aði verður á ferðinni nú fyrir jólin, eins og jafnan áður, og er hann í umsjá Vilhjálms Þ. Gíslasonar, útvarpsstjóra. Þrjár íslenzkar framhalds- sögur verða fluttar í vetur. Brynjólfur Jóhannesson mun lesa Mann og Konu eftir Jón Thoroddsen, og ennfremur munu þeir Guðmundur Hagalín og nafni hans Daníelsson lesa skáldsögur eftir sig. Jchannes úr Kötlum mun annast fom- sögulesturinn og les hann úr Laxdælu. Af erlendum fram- haldssögum má nefna skáldsög- una Böðullinn og fórnarlamb hans eftir svissneska leikrita- skáldið Durenmatt. Stærsta viðfangsefnfð í laug- ardagsþáttunum er vafalítið Hjá mjólkurskógi eftir welska skáldið Dylan Thomas, en enn- fremur má nefna Regn eftir Samerset Maugham og eitt ís- lenzkt leikrit eftir Ragnar Jó- hannesson, sem höfundur nefn- ir Með krossins brandi. Af fram- haldsleikritunum skal hér nefnt Hver er Jónatan? eftir Dur- bidge, en leikstjóri þar er Jón- as Jónasson. Ýmsum föstum þáttum út- varpsins, svo sem Víðsjá. Efst á baugi, Daglegu máli, Tækni og vísindum, Dalegum vegi, hefur verið ætlaður tími milli kl. 19.30 og 20. Þess má geta að Árni Böðvarsson lætur nú af umsjón með þættinum Daglegt mál, en Svavar Sigmundsson tekur við fram að áramótum. Þá verður Magnús Torfi Ólafsson með nýjan þátt síðdegis annan hvern laugardag, og Jón Hnefill Aðal- steinsson mun ver’ða með sam- talsþótt árla á sunnudögum, þar sem hann ræðir við háskóla- kennara og vísindamenn, svo eitthvað sé nefnt. Þá má nefna að Svavar Gests mun stjórna nýjum skemmti- þætti, sem hefst eftir áramótin, en fram að því verður Jónas Jónasson með skemmtiþátt, þar sem hann ræðir við leikara og bregður upp svipmyndum af þeim í vinsælum hlutverkum. Spurningaþáttur verður í út- varpinu í vetur, og mætast þar framhaldsskólar landsins. Fyrsti þátturinn verður 5. nóvember og þá keppa Kennaraskólinn og Stýrimannaskólinn. Stjórnendur þáttarins eru Jón Magnússon, fréttastjóri, og Baldur Guð- laugsson. Loks verður Jökull Jakobs- son með þætti öðru hverju í vetur, og nefnist hinn fyrsti. Lít ég um öxl til Krítar. Þá er einnig fyrirhuga'ð, að hann verði með þætti um liðna at- burði úr sögu Reykjavfkur. Verð ur þar sagt skilmerkilega frá hverjum atburði, en persónur allar tilbúnar. Verðu hér um að ræða bæði frásagnir og samtöl. Svo vikið sé að tónlistinni, þá verður nú þátturinn Tón- skáld mánaðarins. Gera þar tón- skáldin grein fyrir verkum sín- um, en er þeim síðan helgaður viðkomandi mánuður með flutn- ingi á verkum þeirra. Þá verður baroquetónlistarþáttur í umsjón Framh. á bls. 27 Kronprins Olnf seldnr til Ítolíu t NTB-frétt frá Kaupmannahöfn segir, að Sameinaða Gufuskipa- félagið bafi selt Kronprins Olaf skipafélagi í Torreno á Ítalíu. Hyggst félagið setja skipið inn í áætlun milli hafna á italáu og Korsíku. Ilefur skipið þegar lát- ið úr höfn í Kaupmannahöfn und irstjórn hinna nýju eigenda. .Kronprins Olaf er íslendingum vel kunnur, en hann tók við af ms. Dronning Alexandrine, er hún var öll. Síðar var skipið leyst af hólmi af Kronprins Frederik. 2137 tunnur saltaðar á Vopnafirði Vopnafirði, 26. október. SALTAÐ var á Vopnafirði síð- astliðinn sólarhring 2137 tunn- ur., á þessum stöðvum: Hafblik 622, Haraldarstöð 519, Austur- borg 484, Auðbjörg 512. Þetta var saltað úr fimm skipum. Veður er á norðan, hvass- viðri og hefur verið krapaél og er cjrðið hvítt niður að sjó. — Ragnar. Erindr rússneska sendiherrans / Á MORGUN, laugardaginn 28. okt. kl. 16 flytur Vazhnov am- bassador Sovétríkjanna, erindi er hann nefnir „Fimmtíu ár sovézks þjóðfélags" á fundi, sem MÍR gengst fyrir í Lindarbæ, uppi. Erindið verður túlkað á íslenzku. Þá segir Vilborg Dag- bjartsdóttir frá ferð til Sovét- ríkjanna, sagt verður frá vænt- anlegum hátíðahöldum í tilefni fimmtíu ára afmælis Október- byltingar o.fl. MÍR-félagar eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti. (Frá MÍR) R-19115 stolið BÍLNUM R-19115, sem er Chev- rolet árgerð 1950, gulur með ljósum blæjutopp, var stolið þar sem hann stóð á Hofs- vallagötunni um klukkan sjö í gærkvöldi. Þeir, sem kynnu að vita um ferðir R-19115 eftir klukkan sjo í gærkvöldi, eru vinsamlegast beðnir að láta rannsóknarlögegluna vita. Ný fjöldaréttarhöld í Grikklandi — Hin fjórðu frá valdatöku hersins Aþenu, 26. október. AP. væri hafður í haldi af her- PAUL Totomis, sá ráðherra stjórninni. Væri þessari grísku herstjórnarinnar, sem hreyfingu gefið að sök að sem fer með þau mál, sem vinna að því að kollvarpa nú- varðar almenningsfrið, til- verandi stjórn landsins. kynnti, í dag, að 15. nóv nk. Theodorakis, sem hlotið munu 47 manns verða dregn- ir fyrir herdómstól ákærðir fyrir starfsemi fjandsamlega stjómarvöldunum. Verður þarna um ný fjöldaréttar- höld að ræða. Totomis, sem er borgara- legur ráðherra í grísku her- stjórninni skýhði frétta- hefur heimsfrægð fyrir tón- list sína í kvikmyndinni „Zorba", var handtekinn 21. ágúst sl. af leynilögreglu- mönnum, en hann hafði farið huldu höfði, frá því að her- inn sölsaði undir sig völdin 21. apríl. Totomis skýi*ði frá því enn mönnum frá því, að þessir fremur, að Theodorakis 47 menn væru meðlimir mundi ekki verða yfirheyrð- hreyfingar, sem nefndi ur um leið og hinir heldur sig „Föðurlandshreyfinguna". sér í lagL Þessi hreyfing væri talin Rettarhöld þessi munu lúta forystu Mikis Theo- verða fjórðu fjöldaréttar- dorakis, vinstrisinnaðs fyrr- höldin frá valdatöku hersins. verandi þingmanns, sem nú

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.