Morgunblaðið - 27.10.1967, Qupperneq 5
ALLT MÉÐ
EIMSKIF
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. OKT. 1967
er mjög góð.
Ég tel fulla ástæðu til að
hrópa húrra fyrir þeim öllum
og hvetja fólk til að sjá sýning-
una hjá Grímu.
KONUR í Styrktarfélagi van-
gefinna efna n.k. sunnudag
til tveggja fjölbreyttra
skemmtana í Súlnasal Hótel
Sögu. Skemmtanirnar hefjast
kl. 3 og kl. 8.30 s.d. Megin-
þáttur beggja skemmtanna
er sýning á barnafatnaði frá
verzlununum Ýr og Teddy-
búðinni svo og kvenskóm og
öðrum skófatnaði frá Steinari
Waage og Skóverzluninni Sól-
veigu í Hafnarstræti. Börn
úr dansskóla Hermanns Ragn-
ars sýna fatnaðinn og nokkra
nýæfða dansa, ennfremur
sýna unglingar úr sama skóla
nýjustu táningadansana. Þá
verður og danssýning frá
balletskóla Eddu Scheving,
„kisudans“ og fleira. 11 ára
telpa, Guðrún S. Birgisdóttir,
syngur lög úr kvikmyndun-
um „Sound of Music“ og
„Mary Poppins" með undir-
leik Magnúsar Péturssonar,
sem einnig annast undirleik á
fatasýningunni O'g dönsunum.
Á kvöldskemmtuninni leika
þær Kolbrún Sæmundsdóttir
og Eygló Haraldsdóttir enn-
fremur fjórhent á píanó. Á
síðdegisskemmtuninni, sem
einkum er ætluð „allri fjöl-
skyldunni" verður farið í
leiki og bömum úr áhorfenda
hópnum gefinn kostur á að
taika þátt í þeim og vinna til
smá verðlauna. Kynnir á báð-
um skemmtununum er Her-
mann Ragnar Stefánsson,
danskennari.
Kaffi og gosdrykkir verða
til sölu á síðdegisskemmtun-
inni og matur er framreiddur
frá kl. 7 fyrir þá, sem þess
óska, en öll veitingasala er á
vegum Hótel Sögu.
Skyndihappdrætti verður
á báðum skemmtununum og
margt girnilegt á boðstólum.
Ágóðinn af skemmtununum
og happdrættina rennur í
sérsjóð kvenna í Styrktar-
félagi vangefinna, en fé úr
honum er eingöngu varið til
kaupa á innbúi, leik- og
kennslutækjum fyrir vist-
heimili vangefins fólks. Hafa
konurnar á undanförnum 9
árum aflað fjár í sjóðinn af
miklum dugnaði og veitt ár-
lega riflegar fúlgur úr honum
til kaupa á húsbúnaði,. m.a. á
dagheimilið Lyngás hér í
borg, Skálatúnsheimilið og
sundlaugina þar, til Sólheima
í Grímsnesi o. fi. Nóg verk-
efni eru enn fyrir hendi.
Nægir t.d. að benda á hús-
búnaðarkaup til gamla húss-
ins í Skálatúni, sem verið er
að innrétta á ný fyrir 15
vistmenn, á hælisbyggingu á
Akureyri, sem nýlega er haf-
in og á þá staðreynd, að dag-
heimilið Lyngás, sem Styrkt-
arfélagið rekur er þegar orð-
ið of lítið, þ.e. aðsóknin orð-
in meiri, en svo, að hægt sé
að fullnægja henni.
Konurnar í Styrktarfélagi
vangefinna hafa undanfarin
ár haft bazar og kaffisölu
rétt fyrir jólin, en reyna nú
fjáröflunarleið tii viðbótar.
Þær heita nú á velunnara
sína og þess málefnis, er þær
vinna fyrir, að sækja skemmt
anirnar á Hótel Sögu á sunnu-
dag, sjálfum sér til ánægju
og sjóðnum til tekjuauka.
Þess má geta að aðgöngumið-
ar að báðum skemmtununum
verða seldir kl. 2-5 á laugar-
dag og frá kl. 2 á sunnudag.
(Frá Styrktarfélagi van-
vangefinna).
Þóra Friðriksdóttir og Róbert Arnfinnsson í hlutverkum sín-
um.
Horn akórctllinn
Trio of London
ÞAÐ var óneitanlega ferskur
blær yfir nýafstöðnum, níundu
tónleikum Tónlistarfélagsins í
Austurbæjarbíói. Þar lék Lun-
dúnatríóið, en í því leikur Car-
mel Kaine á fiðluna, Peter Willi
son á cellóið og Philip Jenkins
á píanóið.
Ferskleikinn var alls ekki í
efnisvalinu: d-moll tríói Haý-
dns, c-moll tríói Beethovens eða
B-dúr tríói Schuberts, hann var
hins vegar allur flutningnum að
þakka.
Haydn tríó af árgangi d-moll
tríósins eru lítið annað en píanó
sónötur með cellórödd, sem á
dögum Haydns styrkti vei’kluleg-
an píanóibassann. í samleik með
nútímaflyglum, eru slíkar celló-
raddir skiljanlega úreltar. Hlut-
verk fiðlunnar er líka aukahlut-
verk á þessum árum.
í tríói Beethovens (op. 1 nr
3) er eilítið meira jafnræði hljóð
færanna, eða réttara sagt, þau
eru sjálfstæðari. En þá er þeirri
hættu líka boðið heim, að
EINS og menn rekur kannski
minni til, var ,,Hornakórallinn“
eftir þá Odd Björnsson, Leif
Þórarinsson og Kristján Árna-
son frumsýndur í Þjóðleikhús-
inu í lok maí, þannig að sýn-
ingar urðu fáar á liðnu vori.
Nú hefur hann verið tekinn
til sýninga að nýju, og var
fyrsía sýning vetrarins ó
fimmtudagskvöidið í síðustu
viku. Áhorfendur voru mest-
megnis æskufólk og tók það sýn
ingunni mjóg vei.
Breytingar á hlutverkaskipan
frá í vor hafa eKki orðið aðrar
en þær, að Guðmundur Jóns-
son söngvari hefur tekið við
hlutverki blaðarnanns af Jóni
Sigurbjörnssyni, og skilar hann
því kankvíslega. Ennfremur hef
ur söngatriði verið aukið við
sýninguna.
Það sem einkum vakti ánægju
mína á fimmtudagskvöldið var,
hve mjög fiutnmgur verksins
hefur batnað frá í vor. Sýningin
er orðin mikiu þéttari í sér,
hraðari og á alian hátt fjörlegri,
þannig að varia fyrirfinnst þar
snöggur blettur. Er af þeirri
ástæðu full ástæða til að hvetja
áhugafólk um leiklist til að sjó
,,Honakórallinn“, sem er án efa
metnaðarfyllsta íslenzka leik-
sýning sem sett hefur verið á
svið til þessa.
Sigurður A. Magnússon.
strengjabljóðfæraleikararnir geri
of mikið úr sínum' fylgiröddum,
ef þeir á annað borð hafa mik-
inn róm í hljóðfæri sínu eins
og Carmel Kaine.
Píanóleikarinn Jenkins mátti
ekki vera hlédrægari í sínum
leik. Þegar þess er gætt, að hann
átti leikinn í fyrstu tveimur trí-
óunum, er ótrúlegt. hvað hann
gat gert sig lítið áberandi.
Schubert tríóið var eina „full-
þroska" tríóið á efnisskránni. og
þar var fyrst hægt að heyra.
hvers Lundúnatríóið í heild var
megnugt. Þar kom fyrst veru- j
lega fram í dagsljósið cellóleik-
arinn Willison. Þar sýndi Lun-
dúnatríóið alúð við að túlka jafn
vel hinar smæstu hljómrænu
sveiflur Schuberts án þess að
missa nokkurn tímann sjónar af
heildarmyndinni. Þar kom áður-
nefndur fersklei'ki bezt í ljós Lun
dúnatríóinu tókst að færa áheyr-
andanum hverja nýja hendingu
sem nýja og ferska reynslu.
Þorkell Sigurbjörnsson.
Nína Björk Arnadóttir:
Úvæntur atburður?
HJÁ Leikfélaginu Grímu fær
fólk nú tæk færi til að sjó leik-
ritið „Jakob eða uppeldið" eft-
ir það ágæta skáld Ionesco.
Leikið af ungu fct.ki, sem stund
að hefur nám við leiklistar-
skóla þá sem starfa hér í borg-
inni. Stjórnað af ungri leikkonu
Bríeti Héðinsdóttur, sem nú í
fyrsta sinn er leikstjóri. Þessi
frumraun hennar er að mætra
manna dómi sannarlega at-
hyglisverð.
Leikritið er failega og skemmti
lega uppsett, textameðferð með
mik'um ágætum, svo miklum
að ekki muna menn í annað
sinn eftif að hafa heyrt leikara
leika sér að texta sem þeim er
fenginn í hendur. Þýðing leik-
ritsins eftir Karl Guðmundsson
A næstunni ferma skip vor
til Islands, sem hér segir:
ANTWERPEN:
Seeadler 3. nóv. **
Bakkafoss 10. nóv.
Seeadler 20. nóv. **
Bakkafoss 1. des.
Skógafoss 10 des.
HAMBURG:
Skógafoss 30. okt. **
Skógafoss 3. nóv.
Mánafoss 8. nóv.
Reykjafoss 14. nóv.
Goðafoss 17. nóv. **
Skógafoss 24. nóv.
Mánafoss 28. nóv.
Reykjafoss 5. des.
ROTTERDAM:
Skógafoss 31. okt.
Reykj-afoss 10. nóv.
Goðafoss 14. nóv. **
Skógafoss 21. nóv.
Reykjafoss 1. des.
LEITH:
Gullfoss 3. nóv.
Gullfoss 24. nóv.
Gullfoss 15. des.
LONDON:
Seeadler 5. nóv. **
Bakkafoss 13. nóv.
Seeadler 22. nóv. **
Bakkafoss 4. des.
HULiL:
Seeadler 8. nóv. **
Bakkafoss 15. nóv.
Seeadler 25. nóv. **
Bakkafoss 6. des.
NEW YORK:
Brúarfoss 27. okt.
Fjallfoss 10. nóv. *
Selfoss 24. nóv.
Brúarfoss 8. des.
GAUTABORG:
Mánafoss 3. nóv.
Tungufoss 14. nóv. **
Askja 20. nóv.
Tungufoss 9. des. **
KAUPMANNAHÖFN:
Gullfoss 1- nóv.
Tungufoss 16. nóv. **
Gullfoss 22. nóv.
Lagarfoss 1. des.
Gullfoss 13. des.
KRISTIANSAND:
Tungufoss 11. nóv. **
Gullfoss 23. nóv.
BERGEN:
Tungufoss 18. nóv.
Tungufoss 13. des.
VENTSPILS:
Dettifoss 10. nóv.
KOTKA:
Dettifoss 4. nóv.
Rannö 16. nóv.
ODYNIA:
Dettifoss um 13. nóv.
* Skipið losar á öllum að-
aihöfnum Reykjavík
ísafirði. Akureyri og
Reyðarfirði.
** Skipið losar á öllum að-
alhöfnum. auk þess í
Vestmannaeyjum, Siglu
firði, Húsavík, Seyðis-
firði og Norðfirði.
Skip sem ekki eru
merkt með stjörnu losa
í Reykjavík.
Sgurður Karlsson og Edda Þór-
arinsdóttir í hlutverkum sinum.
Tízkusýning á skóm
og barnafatnaði
Aðalbókari
Stórt fyrirtæki í Reykjavík óskar að ráða aðalbókara nú þegar. Umsóknir
er tilgreini aldur, menntun, og fyrri störf sendist undirrituðum fyrir 30.
þ.m.
Svavar Pálsson
löggiltur endurskoðandi, — Suðurland sbraut 10, Reykjavík.
EIMSKIP
ALLT MEÐ
nKMCrarcnzQSn