Morgunblaðið - 27.10.1967, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. OKT. 1907
Nauðimgariippboð
Eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs fer fram
nauðungaruppboð við Bílaverkstæði Hafnarfjarðar,
föstudaginn 3. nóvember n.k. kl. 14. Seldar verða
eftirta’dar bifre:ðar: G-2598, G-4028, G-1115,
G-3786, G-2075, G-3374 og G-2287.
Greiðsla fari fram við hamarsliögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Bolvíkinvar
u
Skemmtifundur verður haldinn sunnudaginn 29.
október 1967, í Lindarbæ, kl. 3 eftir hádegi. Spil-
uð verður félagsvist og fleira. Kaffiveitingar. Fjöl-
mennið og takið með ykkur gesti.
Bolvíkingafélagið.
Veitingahús - stúlka
Stúlka 20—45 ára óskast í eldhús og önnur í af-
greiðslu.
Veitingahúsið ASKUR,
Sími 81985, í dag milli kl. 17—19.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 50., 51. og 52 tölublaði Lögbirt-
ingablaðs 1967 á hraðfrystihúsi fiskmjölsverk-
smiðju og fiskmtótöku norðan hafnargarðs á
Sauðárkróki, þinglýstum eignum Guðmundar
Þórðarsonar, fer fram að kröfu Jóns Hjaltasonar
hrl., Brunabótafélags íslands og Halldórs Þ. Jóns-
sonar hdl., á eignunum sjálfum þriðjudaginn 31.
október 1967, kl. 10.30 fyrir hádegi.
Bæjarfógetinn á Sauðárkróki.
BÚÐIN
í vikulokin
Á föstudagskvöld Eyjapeyjar og Rímtríó.
Á laugardagskvöld Pops og ?
Á sunnudag Pops.
Á sunnudagkvöld Pops.
TJARNARBIJÐ
Pónik og Einar
skemmta í kvöld.
- MINNING
Framh. af bls. 18
staður sem var þér kærastur
allra á jarðríki.
Þá minnist ég þess, er Sigríður
systir þín kom fárveik heim frá
námi í Noregi. Þið mæðgurnar
tókuð hana heim í litla húsið
ykkar og gerðuð allt sem mann-
leg hjálp gat í té látið, til að
bægja frá hvíta dauðanum. Og
það féll í þinn hlut að fylgja
systur þinni aftur til Noregs og
sjá hana hljóta snöggan bata
fyrir sérstakan trúarstyrk og
viljafestu. Þú sást líka þann bata
verða að engu að nokkrum mán-
uðum liðnum og berklana sækja
á að nýju með óstöðvandi sýk-
ingu.
Sá vetur, er það stríð gekk
yfir, mun hafa verið þér ærið
erfiður, og þess minnist ég enn
vel, að snemma á þeim vetri var
ég drengur um fermingu, sendur
til Sauðárkróks að sækja eitt-
hvað sem heimili foreldra
minna vanhagaði um, og ég átti
að bera út yfir Laxárdalsheiði.
Þá kom ég í hús Reykjamæðgna
og þáði bæði bita og sopa, sem
mér var veitt af venjulegri ástúð
og hlýju, en því tók ég eftir að
þá var þreytu- og áhyggjusvip-
ur á fallega andlitinu þínu.
Enda var þá komið að lífslokum
þinnar kæru systur, Sigríðar.
Nokkrum árum áður hafðir þú
tekið til fósturs systurdóttur
þína, Jóhönnu, eftir að systir
þín, Tryggvina, hafði misst
mann sinn frá ungum börnum
þeirra hjóna.
Næst lá leiðin til Siglufjarð-
ar. Ung kona hafði veikzt og
lézt frá ungum börnum. Til þín
var leitað til að sjá um heimilið,
og þangað fluttuð þið mæðgum-
ar með fósturdótturina og þú
veittir heimili Péturs Bóassonar
forstöðu um árabil og annaðist
uppeldi barna hans, og hygg ég
að þú hafir borið til þeirra álíka
kærleikshug sem það væru þín
börn. Þau hafa líka margoft sýnt
að þau hafa kunnað að meta
ástúð þína og fórnfýsi. Sérstak-
lega vil ég þar minnast Maríu og
manns hennar, Benedikts. Þú
varst ávallt velkomin á heimili
þeirra og þau sýndu þér hugul-
semi á ýmsa lund, er árin fóru
að færast yfir og þyngjast tók
róðurinn.
Á Siglufirði lézt móðir þín
hjá þér háöldruð og þar bættist
í hópinn til upeldis og önnunar
dóttir Jóhönnu, Sigríður Whitt;
alltaf miðlaðir þú fæðu og
fræðslu. Næst lá leiðin til Akur-
eyrar, því þangað giftist fóstur-
dóttirin Jóhanna, og settist þar
að. En þú hélzt enn fullri reisn
og skörungsskap og hélzt heimili
fyrir þig og annaðist uppeldi Sig-
ríðar litlu.
Nú hófust kynni okkar að
nýju því við urðum nágrannar
og rifjuðum upp gömul kynni.
Og ekki var mér lítið kært að
þið kona mín urðuð góðir kunn-
ingjar. Þá er mér einnig ljúft að
minnast þegar móðir mín á gam
alsaldri heimsótti okkur hjónin
hingað til Akureyrar. Þá urðu
fagnaðarfundir með ykkur. Ég
minnist æ hversu innilega þú
kysstir mömmu á kinnina og
þakkaðir henni fyrir allt gamalt.
Það var engin hræsni heldur
sönn vinahót. Svo hlóguð þið
báðar ykkar létta hlátri.
Árin liðu við önn og starf, og
börn Jóhönnu urðu sannir ljós-
geislar í lífi þínu, og fósturdótt-
irin Sigríður gekk í mennta-
skóla og giftist, og hjá henni og
manni hennar, Valgeiri, var
dvalizt síðustu árin. Það var þín
innilegasta gleði að geta annazt
litlu dótturina þeirra, Kolbrúnu,
er móðir hennar þurfti að vinna
úti, og með ykkur var einkar
kært.
Á síðastliðnu sumri dvínaði
þrekið snögglega og nú var far-
ið að styttast að leiðarlokum,
en þá hélzt að fullu reisn þinni
og sálarró þar til klippt var á
lífsþráðinn 29. f. m.
Lífi merkrar konu var lokið.
Að henni stóðu eyfirzkir ætt-
stofnar, en Skagafjörður var
hennar ástfólgnasta byggð.
Til sölu
5 herbergja íbúð vestan til í Hraunbæ. íbúðin
selst tilbúin undir tréverk og milliliðalaust. Upp-
lýsingar í síma 11049 frá kl. 6—8 e.h.
Til leigu
5 herb. íbúð í Vesturbænum. Sérhiti og sérinn-
gangur. Gólfteppi og gluggatjöld fylgja í stofu.
Tilboð merkt: „Laus strax 5936“ sendist Mbl. fyrir
sunnudag.
Matvöruverzlun til sölu
á góðum stað. Tilboð sendist Mbl. fyrir 1. nóv.
merkt: „Góð kjör 297.“
Til sölu
Land-Rover árg. ’65 vandlega klæddur, toppgrind
og fleira.
VÖKULL H.F.,
Hringbraut 121 — Sími 10600.
Bifreiðaeftirlit ríkisins
Borgartúni 7, verður lokað á morgun, laugardag-
inn 28. október.
Bifreiðaeftirlitið.
Aðalbjörg mín frá Reykjum!
Við hjónin þökkum þér innilega
samfylgdina, og drottinn guð
blessi þig á eilífðarleiðum, þar
mun þér enn falið að hjúkra og
líkna.
Gunnar S. Sigurjónsson.
— Almannavarnir
Framh. af bls. 19
Til viðbótar þessum upphæð-
um kemur í öllum tilfellum veru
legt framlag frá bæjar- og sveit
arfélögum. Samkvæmt skýrslum
fjárhagsárið 1962/1963 eru fram
lög á íbúa á Norðurlöndunum
umreiknað í íslenzkar kr. þessi:
Danmörk pr. íbúa kr. 86.00
Noregur pr. íbúa kr. 58.00
Svíþjóð pr. ibúa kr. 120.00
Fjárframlög nokkurra landa
á sama tíma eru þessi:
Bandaríkin þr. íbúa kr. 30.50
Bretland pr. íbúa kr. 47.50
Holland pr. íbúa kr. 46.50
Sviss pr. íbúa kr. 98.00
Ráðstj.r. pr. íbúa kr. 100.00 *)
J) Þessi tala er talin lágmark
(áætlað). Skýrslan gefur upp
töluna $2,33—7,00 pr. íbúa.
n* •• ■ >»
Bjorn Jons-
son, for-
maður ASN
Siglufirði, 23. okt.:
10. ÞING Alþýðusamabnds Norð
urlands var haldið á Siglufirði
Laugardag og sunnudag 21 og
22. þ.m.
Aðalmál þingsins voru kjara-
og atvinnumál og voru ályktanir
gerðar í þeim málum.
Efnahagsráðstafanir rí'kisstjórn
airinnar tóku einnig mikinn tíma
þingsins.
Forseti sambandsins frá stofn-
un, eða 20 ár, Tryggvi Helga-
son lét af störfum, en við tók
Björn Jónsson, Akureyri.
Gestur þingsins var Hannibal
Valdimarsson forseti ASÍ.
Aðkomufulltrúar héldu heim-
leiðis aðfaranótt mánudags, og
farið var fótgangandi í gegn um
Strákafjall. — SK.
Seljum
í dag
Rambler American árg. 65,
66.
Zephyr árg. 66.
Bronco árg. 66.
Vauxhall árg. 65.
Rambler Classic árg. 63,
64, 65.
Taunus 17 M árg. 64.
Simca 1300, árg. 64.
Opel Record árg. 64.
Greiðsluskilmálar við allra
hæfi.
ÖVÖKULLH.E
Chrysler- Hringbraut 121
umboðið sími 106 00
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA-SKRIFSTOFA
SÍMI 1D*100