Morgunblaðið - 27.10.1967, Page 28
Alþýðubrauðgerðinni
lokað í fyrradag
vegna skorts á Rireinlæti
Alþýðubrauðgerðinni að Lauga
vegi 61 var lokað í fyrradag,
að tilstuðlan heilbrigðisyfir-
valda Reykjavikurborgar, vegna
þess, að ekki hafði verið gerð
endurbót á húsnæði og farið að
reglum um þrifnað. Hafði brauð
gerðarhúsið fengið frest til 15.
október til þess að koma því,
sem ábótavant var í lag.
Þórhallur Halidórsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftir-
litsins tjáði Mbl. að þrifnaði
hefði verið ábótavant á áhöldum (
tækjum og húsnæði. Einnig i
hefði Heilbrigðiseftirlitið ekki |
verið ánægt með umbúðir þær,
sem brauðgerðin hefði selt
framleiðslu sína í og gert kröfu
um að þær yröu bættar. Hann
gat þess að brauðgerðin yrði
ekki opnuð fyrr en umbeðnar
endurbætur hefðu farið fram.
Árekstur á síldar-
Við borholuna talið frá vinstri: Júlíus Guðmundsson, formaður skólanefndar, Jón Jónsson,
skólastjóri, Jens Xómasson, jarðfræðingur, ólafur Sigurjónsson, verkstjóri og Stefán Sigur-
mundsson, mælingamaður starfsmenn Jarðborana ríkisins. Ljósm.: vig.
miðunum
— Kraftblökk vs. Gullbergs talin ónýt
Loks kom gos úr borhol-
unni við Hlíðardalsskóla
1,7 sekúndulítrar renna þar nú af 100 stiga heitu vatni
ÁREKSTUR varð milli vélskips
ins Gullbergs NS 11 frá Nes-
kaupstað og færeyska skipsins
Beinir TN 330 frá Þórshöfn, að-
faranótt 25. október kl. 02.50.
Mun Gulibergið hafa skemmzt
nokkuð, m.a. kraftblökkin ó-
nýtzt, en ekki er vitað um
skemmdir á færeyska skipinu,
sem sigldu til Færeyja strax
eftir áreksturinn.
Áreksturinn varð með þeim
hætti, að Gullberg var að kasta
á síld, er skipverjar á því tóku
eftir, að 'bátur sigldi mjög
nærri skipinu. Stöðvaðist bát-
urinn skömmu síðar og tók að
reka. Skipti engum togum, að
skipin rákust á S!eng(iust stjórn
borðshliðar skipar.na saman.
Brátt kom í ijós, að færeyski
báturinn hafði festzt í nót Gull-
bergs. Kom nokkru síðar vél-
skipið Súlan frá Akureyri og
gat það dregið færeyska skipið
út úr nótinni. Etnnig kom Goð-
inn á vettvang með froskmann
Háskólohótíðin
og losaði færeyska skipið frá
nótinni.
Er færeyska skipið var laust
var það beðið um að koma inn
til Seyðisfjarðar og mæta við
sjópróf, en það sagðist þá hafa
fengið fyrirmæíi frá útgerð
sinni um að halda þegar til Fær
eyja. Sjópróf vegna þessa fóru
fram á Seyðisfirði í gærmorg-
un og voru yfirheyrðir menn af
Gullberginu. Þá hefur verið beð
ið um að sjópróí færu einnig
fram yfir skipshöfn Beinis í
Færeyjum og hafa þau annað
hvort farið fram í gær eða eiga
að.fara fram í dag. Höfðu frétt
ir ekki borizt af þeim.
Komið hefur í ljós, að kraft-
Framh. á bls. 27
ÞAÐ er ekki oft að frétta-
menn blaða verða vitni að
óvæntu gosi, í rauninni ekki
stóru, en eigi að síður gosi,
sem ekki var búizt við a.m.k.
ekki svo fljótt, sem raun
varð á.
Þetta henti hins vegar blaða-
mann Mbl. austur við Hlíðardals
skóla í gærdag, rétt um kl. 17.00.
Forystumenn Hliðardalsskóla
sem rekinn er algerlega af að-
ventistum, hafa um langt skeið
haft trú á því að skammt frá
skólanum væri jarðhiti, sem ef
til vill væri hægt að beizla. Hin-
ir hafa aftur á móti verið all-
margir, sem ekki hafa haft trú
á málinu og talið líkurnar hverf
andi, en kostnað við athugun svo
mikinn að ekki borgaði sig að
gera tilraunina. Trú Hlíðardals-
manna bar hins vegar sigur úr
býtum og með góðum stuðningi
jarðborana ríkisins og hins opin-
bera m.a. Ingólfs Jónssonar, ráð-
herra sem úrslitavald hafði í
málinu. í gær kom svo heitt
vatn í borholu sem þar hefir
verið gerð 1230 m. djúp, en því
miður „þurr“ að lokinni borun.
Það, að tókst að ná upp vatn-
inu, var að þakka tilraun, sem
hér var gerð í fyrsta sinn, en
það er að dæla mörg hundruð
tonnum af vatni ofan í holuna
gegnum þétti, sem í hana er sett
ur á allmiklu dýpi og skola
hana þannig út, svo og jarðlög-
in í kringum hana. Þá tók heitt
vatn að renna úr henni án allrar
dælingar og svo heitt að gos-
myndanir urðu af og til. Hag-
Framh. á bls. 17
ÚTIHÚS BRENNA Á
TVEIMUR BÆJUM
— Mikið tjón á Dagverðará í Breiðavikurh reppi og í Bakkakoti
í Rangárvallahreppi — Abúendur hey- og
HLÓÐU- og fjósabrunar urðu á tveimur stöðum í gær. Laust
eftir klukkan tvö í gær kviknaði í hlöðunni á Dagverðará í
Breiðuvíkurhreppi á Snæfellsnesi og brann þar hlaða og fjós til
kaldra kola. Þá kviknaði í hlöðu og fjpsi á Bakkakoti í Rangár-
vallahreppi í gær um kl. f jögur. Brann þar allt einnig til kaldra
kola. Standa nú ábúendur þessara tveggja jarða húslausir og
heylausir í byrjun vetrar og er það að vonum óglæsilegt.
o morgun
HASKÓLAHATÍÐ verður hald-
in fyrsta vetrardag, laugardag
28. okt., kl. 2 e.h. í Háskólabíói.
Háskólarektor, prófessor Ár-
mann Snævarr flytur ræðu.
Stúdentakórinn syngur undir
stjórn Jóns Þórarinssonar tón-
skálds. Prófessor Magnús Már
Lárusson flytur erindi um siða-
skiptin í tilefni af 450 ára af-
mæli þeirra. Háskólarektor
ávarpar nýstúdenta, og veita
þeir viðtöku háskólabréfum.
Einn úr hópi nýstúdenta flytur
stutt ávarp.
SAMKVÆMT upplýsingum Veð
urstofunnar var talsvert mikil
snjókoma á Norðurlandi í gær,
allt frá Vestfjörðum og austur
að Grímstöðum á Fjöllum, en
þar fyrir austan var rigning. Veð
ur þetta var afleiðing mjög
djúprar lægðar, sem kom sunn
an úr höfum og var í gær
skammt norðaustur af Færeyj-
um. Olli hún ýmist hvassri norð-
anátt eða stormi bæði á landi
Bruninn að Dagverðará.
Bruninn að DagverðaTÓ hófst
um tvöleytið eins og áður er
sagt. Eldurirm mun hafa kom-
ið upp í hlöðunni, en hún er
áföst íbúðarhúsinu. Bóndinn,
og þó sérstaklega á miðunum
fyrir austan ísiand. Samkvæmt
fregnum frá Árna Friðrikssyni
voru á miðunum í gær 8 til 9
vindstig.
Ekki sáust nein merki þess í
gær, að veður myndi hlýna í
bráð né breyta um átt. Gengi
áttin niður myndj frysta um allt
land, en í gærdag var úrkomu-
laust og léttskýjað um allt Suð
urland.
Jónas Hallgrímsson var að heim
an er eldsins varð vart, en kona
hans, Kristjana ísleifsdóttir var
ein heima með þrjú börn. Kall-
aði hún þegar á hjálp, en
hleypti kúnum að því búnu út
úr fjósinu. Hringt var í slökkvi-
liðið í Óiafsvík og hélt það þeg-
ar af stað.
FORMAÐUR Dýraverndunarfé-
lags íslands, Þorbjörn Jóhann-
esson, og ritari félagsins, Þor-
steinn Einarsson, hafa kært til
bæjarfógetans í Vestmannaeyj-
um heimildarkvikmynd, sem
sýnd var í íslenzka sjónvarpinu
húsalausir
Norðanstormur var á og um
tíma leit heizt út fyrir — að
sögn Kristins Kristjánssonar,
fréttaritara Mbl. — að ekki
yrði við neitt ráðið. Þrátt fyrir
það tókst fólki úr nágrenni Dag
verðarár að mestu að slökkva
eldinn áður en slökkviliðið kom
á staðinn. Tókst að verja íbúð-
arhúsið, en hlaðan og fjós
brunnu til kaldra kola. Eitt-
hvað mun hafa kafnað af hænsn
um.
Við slökkvistarfið var þegar
byrjað að rjúfa þekjuna til þess
Framh. á bls. 27
fyrir nokkru. Kvikmyndin fjall
ar um súlna- og fýlatekju í
Súlnaskeri, áður Almennings-
skeri við Vestmannaeyjar.
Forsendur kæru Dýrnavernd-
unarfélagsins eru ómannúðleg
Framh. á bls. 27
Réttarhöld
hef jast I dag
RÉTTARHÖLD vegna töku tog-
arans Lord Tedder H 154, munu
hafa hafizt í morgun. Fulltrúi
saksóknara, Bragi Steinarsson,
verjandinn Benedikt Blöndal og
dómtúlkurinn Hilmar Foss, urðu
veðurtepptir á Akureyri og kom
ust ekki til Seyðisfjarðar fyrr
en í nótt. Ætluðu þeir til Egils-
staða í gær með flugvél og síð-
an frá Eskifirði sjóleið með varð
skipinu Óðni til Seyðisfjarðar.
Verður því mál skjpstjórans tek
ið fyrir í dag.
*
Oðinn bjargar
Pétri
Thorsteinsson
VÉLSKIPIÐ Pétur Thorsteins-
son sigldi upp í fjöru á Seyðis-
firði i fyrrakvöld. Komst hann
ekki af strandstað af sjálfsdáð-
um, svo að varðskipið Óðinn
dró hann á flot á flóðinu í fyrri
nótt. Engar skemmdir munu
hafa orðið á skipinu og sigldi
það sinn sjó eftir þetta óhapp.
Ekki horfur á
veðrabreytingu
Kæra vegna sjón-
varpskvikmyndar