Morgunblaðið - 11.11.1967, Blaðsíða 2
0
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. NÓV. 1967
Mikil uppfylling verði gerð við
fyrirhugaða hafnargerð á ísafirði
Athyglisverð tillaga í bœjarstj. ísafjarðar
fsafirði, 10. nóvember.
Á fundi bæjarstjómar ísafjarð-
ar sl. miðvikudag var rætt um
fyrirhugaða Sundahöfn, en það
er hafnargerð að sunnanverðu
frá Norðurtanga niður að Suð-
urtanga.
Vitamálaskrifstofan hefur ver-
ið að undibúa skipulag Sunda-
hafnar, en á fundinum lýsti
Marselíus Bernharðsson, baejar-
fulltrúi (S), mjög athyglisverðri
tillögu, sem hann hefur gert í
hafnarnefnd um fyrirhugaða
Sundahöfn.
í tillöguuppdrætti Marselíus-
ar er gert ráð fyrir að Sunda-
höfn verði gerð við Norður-
Með 13 spaða
á hendi
SÁ fátfði atburður kom fyrir
á Blönducsi í fyrrakvöld, þar
sem fjórir menn sátu og spiluðu
bridge, að einn þeirra, Sigurjón
Gíslason, fékk alla spaðana á
hendina. Hinir spilamennirnir
voru Stefár. Sigur'ðsson, Jón
Ólafsson, og Þórarinn Sigurjóns
son.
tanga. Frá því hafnarsvæði yrði
síðan gerð mikil uppfylling allt
niður að Rifi í Suðurtanga og
myndu þar fást mjög verðmæt-
ar byggingalóðir, eða rösklega
Á sunnudaginn kl. 2 fer fram á
Golfvellinum gamla — eða við
enda Kringlumýrarbrautar,
sýnikennsla í meðferð vinnu-
véla. Það er sérfræðingur frá
Caterpillar verksmiðjunum sem
sýnir meðferð innuvéla sem nú
eru orðnar mjög algengar hér og
fjöldi manna hefur starf við að
stjórna.
Hinn sami sérfræðingur
verður aðalkennari á öðru nám-
skeiði sem fram fer í meðferð
slíkra véla, en nú eru komin
lög og reglugerð frá öryggis-
málastjóra um að allir þeir, sem
unnið hafa að stjórn slíkra
tækja skuli sækja námskeið
varðandi meðferð þeirra og
námskeið sem hefst á sunnu-
285 þús. fermetra svæði, miðað
við að uppfylling sé fjögurra
metra breið.
Talsverðar umræður urðu um
þetta mál, og var samþykkt að
vísa tillögunni til nánari athug-
unar hjá vitamálastjóra. — H.T.
daginn verður hið síðara sem
hinir eldri áttu tækifæri til að
sækja í þessu skyni. Eftirleiðis
verður þess krafist að menn taki
próf áður en þeir fái leyfi tii að
stjórna slíkum tækjum.
Það er öryggismálaeftirlit
ríkisins og Dagsbrún sem hafa
samvinnu um þessi námskeið.
Námskeiðið í vor sóttu á 3.
hundrað manns. Námskeiðið sem
hefst á sunnudaginn er fullskip-
að og margir komust ekki að.
Þeir sem sótt hafa námskeiðin
fá réttindi á ýtur og ámoksturs-
vélar en eftirleiðis verður prófs
krafizt. Námskeiðin hafa staðið
í þrjá daga hvort og aðalkenn-
arinn nú verður áðurnefndur
sénfræðingur frá Caterpillar-
verksmiðjunum, en vélar frá
þeim eru útbreiddastar hér.
Allir vinnu.vélaeigendur og
stjórnendur vinnuvéla eru vel-
komnir á sýnikennsluna á
sunnudaginn.
Gæði síldarinnor
ler bntnnndi
Millisvœðamótið í skák:
Larsen langefstur
Portisch og Geller í öðru
Námskeið í með-
ferð vinnuvéla
,,GÁRI“’ eftir Sigurgeir Jónsson.
„SVART og HVITT“ í EYJUM
í GÆRKVOLDI var opnuð
mjög sérkennileg ljósmynda-
sýning í Vestmannaeyjum.
Á sýningunni eru 60 myndir
eftir fimm Vestmannaeyinga,
en þeir eru: Sigurgeir Jónas-
son, Páll Guðjónsson, Ólafur
ólfur Guðjónsson, Ólafur
Gunnarsson og Torfi Haralds-
son. Allar myndirnar eru
s'vart hvítar og spanna þær
yfir ýmsa þætt jarðlífsins.
Þeir félagar kalla sig „KONT-
RAST“ flokkinn og er sýn-
ing þessi til hins mesta sóma
fyrir þá, listræn að uppsetn-
ingu, vönduð og fjölbreytileg.
Ráðherrafundi
lokið í Osló
Samvinua stjórnar og stjórnar-
*
andstöðu á Islandi
og þriðja sæti
Sousse, Túnis, 9. og 10. nóv.
(Einkaskeyti til Mbl. frá AP)
BENT LARSEN er nú tveimur
vinningum fyrir ofan næstu
keppendur í millisvæðamótinu í
Túnis. Larsen hefur nú holtið
13% vinning úr 17 skákum og
er nú talinn öruggur sigurveg-
ari mótsins. Geller og Portisch
hafa 11% vinning úi jafnmörg-
um skákum. Gligoric og Korch-
noi hafa 11 vinninga. Larsen hef-
ur nú unnið 6 skákir í röð, sem
er frábær árangur.
Úrslit í 18. umferð:
Stein vann Barczay, Byrne
vann Gligoric, Korchnoi vann
Bilek, Geller vann Matulovic,
Larsen vann Mecking, Sarapu
vann Miagmasuren, Hort vann
Bouaziz og Portisch vann Kava-
lek. Jafntefli gerðu Gipslis og
Matunovic og Reshevsky og Iv-
kov.
Úrsiit í 19. umferð:
Korchnoi vann Barczay, Stein
vann Portisch, Larsen vann
Bauaziz, Kavalek vann Miagma-
suren og Cuellar vann Sarapu.
Jafntefli gerðu Bilek og Geller,
Matanovic og Reshevsky, Ivkov
og Byrne, Suttles og Hort og
Matulovic og Gipslis,
Staðan í skákmótinu er nú
þessi eftir 19 umferðir:
+ -r
1. Larsen 13 %— 3%
2,— 3. Portisch 11%— 5%
2.— 3. Geller 11%— 5%
4,— 5. Korchnoi 11 — 6
4,— 5. Gligoric 11 — 6
6.— 7. Ivkov 11 — 7
6,— 7. Matanovic 11 — 7
8. Stein 10%— 6%
9. Matulovic 10%— 6%
10.—11. Hort 10 — 7
10,—11. Reshevsky 10 — ■ 7
12. Mecking 9 — 8
13. Kavalek 8 — 9
14. Bilek 8 — 10
15. Gipslis 7 — 10
16. Suttles 7 —11
17. Byrne 6%—10y2
18. Barczay 6 —10
19. Miagmasuren 6 —11
20. Cuellar 5 —12
21. Sarapu 3%—14%
22. Boaziz 3 —15
Nú eru aðeins fjórar umferð-
ir eftir í mótinu og væri ekki úr
vegi að líta á ótefldar skákir
efstu manna.
Larsen á eftir að tefla við þrjá
Júgóslava, þá Gligoric, Ivkov og
Matanovic og ennfremur Suttles
frá Kanada.
Portisch á eftir skákir gegn
Rússunum Korchnoi, Geller og
Gipslis, sem virðist tefla langt
undir styrkleika, ennfremur á
Portisch eftir að tefla við aldurs
forsetann Reshevsky í síðustu
umferð.
Geller á eftir skákir gegn
Barczay, Portisch, Miagmasuren
og Cuellar.
Kortchnoi teflir' gtgn Portisch
og hefur hvítt, þá teflir hann
gegn Miagmasuren, Cuellar og
Sarapu í þessari röð, i fjórum
síðustu umferðunum.
Gligoric á eftir að tefla við
Hort, Larsen — sem fyrr segir —
Bouaziz og Suttles.
Ivkov á ótefldar skákir gegn
Hort, Larsen og Mecking og hafa
því möguleikar hans á að ná í
eitt af sex efstu sætunum minnk
að til muna.
Matanovic á einnig þrjár skák
ir eftir, gegn þeim Byrne, Hort
og Larsen.
Aðrir keppendur mótsins hafa
varla möguleika á að krækja í
eitt af sex efstu sætunum, en
einungis sex efstu sæti gefa
möguleika til áframhaldandi
þátttöku í næsta kandídatamóti,
sem er næsta stig Alþjóðaskák-
sambandsins í leit að nýjum
áskoranda til að heyja einvígi
við Pertosjan um atilinn heims-
meistari í skák.
Eskifirði, 10. nóvember.
SÍLDARSÖLTUN byrjaði kl.
átta í morgun á Eskifirði. Eftir
hádegið byrjaði söltun á öllum
síldarstöðvum hér, og stendur
söltun yfir til kl. 12—1 í nótt.
Sex skip komu hingað með 535
tonn af góðri söltunarsíld. Síld-
arsaltendur segja, að síldin sé
mun betri núna heldur en fyrir
10 dögum, en þá virtist síldin
vera komin í greinilegan
megrunarkúr, enda þá búin að
taka stefnu suður á leið. Þessi
síld sem nú er verið að salta
veiddist 80—90 mílur frá Seley.
— Regína.
FÆRÐIN á þjóðvegum landsins
var með betra móti í gær, sam-
kvæmt upplýsingum Vegamála-
skrifstofunnar. Hér á Suður- og
Suðvesturlandi var ágætis færð,
nema nokkur hálka var á veg-
unum. Vegirnir yfir Fróðárheiði
og Bröttubrekku voru mokaðir í
gær, og er fært allt vestur í
Gilsfjörð.
Um Vestfjarðarkjálka er þung-
fært. Þingmannaheiði er ófær og
þungfært er yfir ýmsar aðrar
heiðar þar. Vegirnir yfir Breiða
dalsheiði og Botnsheiði voru mok
aðar í gær, og verður reynt að
aðstoða yfir þær heiðar n.k.
föstudag, ef aðstæður leyfa.
Leiðin til Akureyrar er fær
öllum bílum, og ennfremur er
fært til Siglufjarðar og fyrir
Ólafsfjarðarmúla. Þá er enn-
fremur fært austur á bóginn frá
Akureyri um Dalsmynni, en
Vaðlaheiði er ófær. Fyrir stóra
bíla er fært allt til Þórshafnar.
í fyrradag voru aðstoðaðir sex
bílar yfir Möðrudalsfjallgarð í
Osló, 10. nóv. (NTB).
f DAG laug í Osló fundi við-
skipamálaráðherra Norðurland-
síðasta sinn í bráð. Fóru þeir úr
Jökuldal um hádegisbilið, en
voru komnir til Grímsstaða á
Fjöllum um fjögur leytið í
fyrrinótt. í gærmorgun var svo
vegurinn yfir Námaskarð og
áfram austur Mývatnsöræfin
mokaður fyrir þessa bíla, og not
uðu þá Fjöllungar, eins og íbú-
arnir á Grímsstöðum kalla sig,
tækifærið til að birgja sig upp
af ýmsum varning fyrir vetur-
inn.
Fjallvegir allir á Austurlandi
eru færir stórum bílum og jepp-
um, en Breiðdalsheiði er þó ófær
með öllu.
Vegamálaskrifstofan ætlar nú
að gera tilraun með að skipu-
leggja aðstoð við bíla á ýmsum
leiðum í vetur. Mun verða reynt
að ákveða fasta daga fyrir hverja
leið, og hefur þegar verið ákveð
ið, að aðstoð á leiðinni Reykja-
vík—Akureyri verði á þriðjudög
um og föstudögum. Gefnar
verða út tilkynningar um aðstoð
á fleiri leiðum á næstunni.
anna og efnahagsmálanefndar
Norðurlandaráðs um efnahags-
mál og afstöðu Norðurlandanna
gagnvart Efnahagsbandalagi
Evrópu.
Meðal fundarmanna var Gylfi
Þ. Gíslason, viðskiptamálaráð-
herra íslands, og skýrði hann
frá þvi, að ekki væri álitið unnt
fyrir Island að standa utan
markaðsbandalaganna í Evrópu.
Þessvegna væri verið að athuga
möguleika á aðild að Fríverzl-
unarbandalaginu og viðskipta-
samning við Efnahagsbandalg-
ið. Sagði ráðherrann, að ríkis-
stiórnin hafi átt frumkvæðið að
því, að taka upp samvinnu við
stjórnarandstöðuna um lausn
þessara markaðsmála.
Á fundi þessum kom í ljós, að
afstaða Norðurlandanna til
Efnahagsbandalagsins er óbreytt.
Halda beri áfram samvinn-
unni í Fríverzlunarbandalaginu
(EFTA,) og vinna að samtíma
lausn varðandi umsóknir nokk-
urra Norðurlandanna um aðild
að Efnahagsbandalaginu, svo eki
skapist sundrung í efnahagsmál-
um meðal þjóðanna, sagði K&re
Willoch, viðskiptamálaráðherra
Noregs, að fundinum loknum.
Fundinn sátu ráðherrarnir
Ivar Nörgaard og Ove Hansen
frá Danmörku, Olavi Salonen
frá Finnlandi, Gylfi Þ. Gíslason
frá íslandi, Gunnar Lange frá
Svíþjóð og KSre Willoch frá
Noregi, og auk þeirra fjöldi
embættismanna fná Nörðurlönd-
un,um fimm.
Vegamálaskrifstofan
heldur uppi skipu-
lagðri aðstoð við bíla
— á þjóðvegunum I vetur