Morgunblaðið - 11.11.1967, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.11.1967, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, L.AUGARDAGUR 11. NÓV. 1967 31 Bœjarstjórn Akureyrar biöur um aÖstoÖ ríkisstjórnar vegna rekstrarerfiÖleika SfS verksmiðja Akureyri, 10. nóvember. ATVINNUMÁL.ANEFND Akur- eyrarbæjar barst um miðjan októbermánuð bréf frá Harry S. Fredriksen, framkvstj., ásamt greinargerð frá iðnaðardeild SÍS .dagsett 11. október, en greinargerðin var samin að und angengnum viðræðum milli for- stöðumanna SÍS og atvinnu- málanefndar. f greinargerðinni er fjallað um þá erfiðleika ,sem nú steðja að verksmiðjurekstri SÍS á Ak- ureyri vegna vaxandi rekstrar- kostnaðar, og breytts verðlags á útflutningsframleiðslu verksmiðj anna. Bæjarstjórn Akureyrar sam- þykkti á fundi sínum á þriðju- dag sl. samhljóða eftirfarandi ályktunartillögu atvinnumála- nefndar: „Vegna þeirra erfiðleika, sem nú steðja að rekstri verksmiðja SÍS á Akureyri og með hliðsjón af hinni miklu þýðingu, sem verksmiðjurnar hafa fyrir at- viinnulíf bæjarins leggur at- vinnumálanefnd Akureyrar til við hæstvirta ríkisstjórn og lána stofnanir, að allt verði gert, sem nauðsynlegt og tiltækilegt er tíl þess að tryggja áframhaldandi rekstur verksmiðjanna. Kemur þar til greina ma..: 1) Uppbætur á útfluttar ullar- og skinna vörur á svipaðan hátt og er með ýmsar aðrar greinar útflutningsframleiðslunnar. 2) Sérstök fyrirgreiðsla lána- sjóða og annara lánastofnana vegna rekstrar eða hagræðing- ar. Verksmiðjur SÍS eru einn stærsti vinnuveitandi á Akur- eyri með 500—600 manna starfs- LEIÐRETTING Siglufirði, 10. nóv. VEGNA fréttar í Mbl. í dag, þar sem getið er, að aðeins þrjár til fjórar messur hafi verið hér haldnar frá í júní þetta ár, hefur só'knarpresturinn Séra Ragnar Fjalar Lárusson tjáð mér, að rangt sé farið með fjölda messa á tímabilinu. Samkvæmt upplýsingum, sem ég aflaði mér hjá meðhjálpara Guðbrandi Magnússyni þá miun messufjöldi umrætt tímabil hafa verið átta, þar af ein útimessa (17. júní), en ekki þrjár til fjór- ar, eins og segir í fyrri frétt. Að auki mun séra Ragnar hafa unn- ið störf við ferðalag með ferm- ingabörnum, sðtt mót Æ.S.K. á Hvammstanga o.fl. um helgar eða samtals má telja um 10 þjón- ustur fyrir utan jarðarfarir og giftingar. Eru allar þessar upp- lýsingar frá meðhjálpara. Einnig gat Séra Ragnar Fjalar þess í samtalinu við mig, að á þessu tímabili júní—október hafi hann haft fjögiurra vikna frí frá störf- um samkvæmt leyfi biskpus vegna lasleika. Er séra Ragnar Fjalar beðinn velvirðingar á þess um mistökium og leiðréttist þetta hér með. — Steingrímur. - SÍLDIN 1 Framhald af bls. 32. Reykjaborg RE. 40 __ Fífill GK. 110 _ Elliði GK. 50 — Hólmanes SU. 80 __ Bjarmi II. EA. 20 __ Lómur KE. 60 — Jón Garðar GK. 170 — Héðinn ÞH. 120 — Akurey RE. 30 — Jón Kj artanss. SU. 70 — Guðm. Péturs IS. 50 — Súlan EA. 75 — Arnar RE. 100 — Náttfari ÞH. 60 — Sv. Sveinbjörnss NK. 20 — lið. Væri það bæjarfélaginu ó- bærilegt áfall, ef dregið væri úr rekstri þeirra, eða þær lagðar niður. Mundi þá erfitt að fram- kvæma opinbera byggðastefnu, sem byggist á vaxandi þýðingu Akureyrar.“ Á sama fundi samþykkti bæj- arstjórnin einnig samhljóða þessa tíllögu atvinnumálanefndar: „Atvinnumálanefnd leggur til við bæjarstjórn, að skora á Síld- arútvegsnefnd að starfrækja í vetur tunnuverksmiðjuna á Ak- ureyri á líkan hátt og sl. vetur. Atvinnumálanefnd leggur mikla áherzlu á þessa áskorun, þar sem rekstur tunnuverksmiðj unnar hefur verið fastur liður í atvinnulífi bæjarins undanfarin ár, og þeir starfsmenn, sem þar hafa unnið munu flestir gera ráð fyrir vinnu í verksmiðjunni 3—4 mánuði nú eftir áramótin.“ í þriðja lagi samþykkti bæjar- stjórn að skora á Skipaútgerð ríkisins að fjölga skipaferðum að vetrarlagi frá Akureyri til Austfjarða og Vestfjarða, þar sem þaér eru mjög strjálar sam- kvæmt haustáætlun útgerðarinn ar og samgöngur á landi útilok- aðar á þessum árstíma, en fyrr- greindir landshlutar eru mjög mikilvæg markaðssvæði fyrir iðnað og verzlun á Akureyri. Sv .P. Eldur í kjörbúöarbíl RÉTT fyrir klukkan sjö síðast- liðið fimmtudagskvöld var slökkvili’ðið i Hafnarfirði beð- ið að koma upp að Vífilsstaða- hælinu, en þar hafði kviknað í kjörbúðarbíl frá Kaupfélagi Hafnfirðinga, sem þar var. Kom eldurinn upp í kosang- gastæki, sem er í sérstöku hólfi aftast í bílnum og notað til að lýsa hann upp og hita. Ekkert slökkvitæki var í bílnum, en svo vei vildi til, að hann var á hlað- inu við hælið og var komið með slókkvitæki þaðan og eldurinn slökktur. Eitthváð mun hafa Tvær þýddar ástarsögur KOMNAR eru út tvær þýddar skáldsögur, ástarsögur, hjá Skuggsjá. Bækur þessar eru „Skyttudalur“ (Jægergarden), eftir C. H. Paulsen og „Maður handa mér“ (The Man For Me), eftir Theresa Charles. Skuggsjá hefur áður gefið út bækur eftir báða þessa höfunda og hafa þær mikið verið keyptar. Skúli Jensson hefur ísilenzkað „Skyttudalinn", en Andrés Kristjánsson „Maðuir handa mér“. - ABBA EBAN Framhald af bls. 1, mótmælti varautanríkisráðherra Sovétríkjanna, Vasilij Kuznet- shov. Þá frestaði ráðið fundin- um í 10 klukkustundir til að finna hentuga lausn á deilunni. Er það kom saman aftur tók til máls forseti ráðsins Mamadou Kante frá Mali og skýrði frá því að engin lausn hefði fund- izt. Þá var gengið til atkvæða um tillögu Bandaríkjanna og hlaut hún átta atkvæði en sjö lönd sátu hjá. Til að ná fram að ganga þurfti tillagan at- kvæði níu landa. Mahmoud Riad tók þá til máls og báð ráðið að fordæma „innrás" ísraelsmanna og hefja þvingunaraðferðir gegn ísrael, ef stjórn landsins neitaði að kalla heim hersveitir sínar frá arabíska landsvæðinu. Sakaði hann tsrael um að fara með stríði á hendur sjálfum Sam- einuðu pjóðunum. Hann minnt- ist ekki beinlínis á tillögur ísra els um friðarviðræður við Ar- abaríkin, en sagði að SÞ gætu einar tryggt íbúum Palestínu sjálfsákvör’ðunarrétt. Gideon Rafael, sendiherra ísraels hjá SÞ, hélt fund með blaðamönnum í aðalstöðvum SÞ í dag til að ræða viðbrögð Eb- ans við ummæli Riadsó Sagði Rafael, að Óryggisráðið væri „kengúru“-dómstóll, en þetta orðatiltæki er notað vestan hafs um dómstóla, þar sem dómurinn sjálfur hefur verið ákveðinn fyr- ir fram. skemmzt af vörum af völdum reyksins. Hér hefði vissulega illa get- að farið, ef bíllinn hefði verið staðsettur þar, sem lengra var í slökkvitæki, en alltaf er tals- verð eldhætta þar sem gastæki eru notuð og því nauðsynlegt að hafa slökkvitæki, kolsýru- eða dufttæki, á staðnum, t.d. í kj örbúðarbílum. Ein af fyrstu bifreiðunum, sem ekur í gegnum göngin. Mik ill mannfjöldi hafði safnast sam an til að fylgjast með opnun arathöfninni, eins og sjá má á myndinni. Frá kirkjunni KIRKJUNEFND kvenna Dóm- kirkjunnar hefir með höndum gott og mikið starf fyrir kirkju sína. Eins og önnur kvennasam- tök safnaðanna afla konurnar á ýmsan hátt nauðsynlegs fjár fyrir starfsemi sína. Sunnudaginn 12. nóv. efna þær til kaffisölu í Tjarnarbúð, og hefst hún kl. 2.30. Auk þess gefst þeim, sem drekka kaffi hjá konunum, kostur á að kaupa við vægu verði margvíslega vel unna hluti til jólagjafa eða ann- ars. Forstjóri Tjarnarbúðar, hr. Jón Ragnarsson, sýnir konunum það veglyndi nú sem fyrr, að lána þeim hinn glæsilega veit- ingastað. Verður þar með prýði frá öllu gengið og tónlist flutt, meðan kaffið er drukkið. Að kaffisölu Kirkjunefndarinn ar hefir jafnan verið mjög mik- il aðsókn, enda vel til veitinga og framreiðslu vandað. Öllum vinum Dómkirkjunnar, en þeir eru margir sem hins gamla, sögu fræga guðshúss hafa notið, gefst kostur á að gjalda kirkjunni skerf með því að drekka kaffið hjá fórnfúsum konum í Tjarnar- búð á morgun, sunnudag kl. 2.30. Jón Auðuns. - STRAKAGONG Framhald af bls. 32. syni, jarðfræðingi og ákveðið af honum og Snæbirni Jónassyni, yfirverkfræðingi, hvar göngin skyldu liggja gegnum fjallið Siglufjarðarmegin, enda hafði athugun þessi leitt í ljós, að jarðgöng yrðu að öllu leyti hent ugri en vegur utan í fjallinu. Gerðar voru umfangsmiklar jarðfræðilegar athuganir á fjall- inu á árunum 1963 og 1964. Seint á árinu 1964 kom til lands ins verkfræðingur frá norsku vegagerðinni, til þess að aðstoða og undirbúa útboð í jarðgangna gedð gegnum Stráka. í marz 1965 var auglýst eftir tilboðum í jarðgangnagerðina. Efrafall átti lægsta tilboðið 18,2 milljón- ir króna í 4,5 m breið göng. Sum arið 1965 hófst framkvæmd við jarðgöngin og var verkinu skil að til vegagerðarinnar í septem ber í haust. Sprenging gangnanna tók lengri tíma en í fyrstu var á- ætlað, þar sem bergið reyndist sprungið og laust í sér á köflum, Athugasemd í VIÐTALI vi'ð Gísla Sigur- björnsson, forstjóra Eillheimilis- ins Grundar í tilefni að sextugs- afmæli hans, kom fram að hann hefði sótt um 50 þús. fermetra lóð i Hveragerði (f.h. Elliheimil isins). Skal það tekið fram að slík umsókn hefur ekki borizt til hlutaðeigandi aðila. Einar Flygenring sveitarstjórir. - WILLY BRANDT Framh. af bls. 1 skýrði þær ástæður ekki nánar Hinsvegar benda fréttamenn á, að sennilega telji ráðlherrann nýjan kommúnistaflokk geta veg ið gegn ný-nazistaflokknum þar í landi, auk þess sem flokks stofnunin bindi enda á þær fulL yrðingar, sem heyrzt hafa, að ekki ríki lýðræði í Vestur-Þýzka landi. 380 tonna skip í stníðum á Mkranesi Á AKRANESI hjá Þorgeir & Ellert Dráttarbraut-Vélsmiðja er nú verið að vinna að smíði 380 smálesta stálbáts fyrir Vesturröst á Patreksfirði. Að sögn Þorgeirs .Tósefssonar, forstjóra, miðar verkinu eftir áætlun, og er gert ráð fyrir að smíði skipsins verði lokið í vor. Nýlega var kjölurinn lagður að skipinu, og er nú verið að byrða það. Skipið er smíðað innan húss, því að skipasmíðastöðin hefur yfir að ráða um 1600 fermetra byggingu, og er þar hægt að fullgera skipið að nær öllu leyti. Starfa 111 manns hjá skipasmíðastöð- inni, og sagði Þorgeir, að mikil eftirspurn væri á vinnu hjá stöðinni á veturna, sem stafaði eflaust að miklu leyti af því, að vinnan færi fram innanhúss. Auk skipasmíða er þarna einnig unnið að margvíslegum viðgerðum, og alltaf næg verkefni í því. Þorgeir & Ellert hf. er um 40 ára gamalt fyrirtæki, og hefur samtals smíðað um 20 skip á því tímabili, en fyrsta stálskipið var þó ekki smíðað þar fyrr en í haust. Var það Drífa RE-10, sem er 108 tonna skip og var hleypt af stokk- unum í september. að styrkja þurfti göngin me?ð stálbogum meðan unnið var að sprengingum. Kostnaður við styrkingarnar var ekki reiknaður með í tilboði verktakanna og hefur það á- samt fleiru leitt til þess, að verk ið er mun dýrara en tilboð verk- takans var. Loft gangnanna hef ur verið styrkt til þess að fyrir byggja hrun sem gæti orsakað slys eða truflun á umferð. 150 metrar af göngunum eru fóðr- aðir, þar sem bergið var léleg- ast. Vera má að nauðsyn beri til að setja net í mestan hluta lofts ins til þess að skapa fyllsta ör- yggi. Það mun kosta allmikið fé en um það dugar ekki að fást ef fyllsta öryggi fæst ekki með öðru móti. Að lokum sagði ráð- herrann: Ég vil áð lokum þakka vegamálastjóra, yfirverkfræð- ingi og öðrum verkfræðingum vegagerðarinnar verktökum, verkstjórum og verkamönnum, sem að jarðgöngunum og vega- gerðinni hafa unnið ágætt verk. íbúum Siglufjarðar og öðrum þeim sem verksins njóta óska ég til hamingju og vona að fram kvæmdin megi verða til farsæld ar og gengis fyrir bæjarfélagið, nærliggjandi byggðir og landið allt. Þess skal sérstaklega ósk- að, að máður sá sem varð fyr- ir slysi í sambandi við þetta verk fái fullan bata, og að ekki verði fleiri óhöpp eða slys vegna umferðar um þessi fyrstu jarðgöng, sem gerð hafa verið hér á landi. Heill fylgi þessari framkvæmd. Megi þjóðin halda áfram uppbyggingarstarfi og treysta undirstöður atvinnulifs- ins, til tryggingar fyrir batn- andi lífskjörum. Að svo mæltu lýsi ég jarðgöngin um Stráka op in til umferðar. Þegar ráðherra hafði formlega opnáð göngin tók til máls Stef- án Friðbjarnarson, bæjarstjóri á Siglufirði. í ræðu sinni fagn- aði hann þessari samgöngubót Siglfirðinga og þakkaði öllum þeim sem höfðu stuðlað að fram kvæmd hennar. Lúðrasveit Siglu fiarðar lék nokkur lög með því lauk athöfninni við Strákagöng. Bæiarstiórn Siglufiarðar bauð gestum til hádegisverðar áð Hótel Höfn. Ragnar Jóhannes- son, forseta bæiai-stjórnar, bauð gesti velkomna og stjórnaði hóf- inu. Undir borðum voru fluttar margar ræður og tók Sigurður Jóhannesson, vegamálastjóri, fvrstur til máls en einnig tal- aði Árni Snævarr, framkvæmda stióri Efrafalls, sem sá um fram- kvæmdirnar. Síðan töluðu þingmenn og fleiri gestir og Biörn Jónsson bóndi í Bæ, flutti Siglfirðingum árnaðaróskír Skag firðinga. Þá bárust Siglufjarðarbæ einnig mörg heillaóskaskeyti í tilefni þessara merku tímamóta í framfarasögu bæjarins. Árétting YFIRLÝSINGIN varðandi kvik- myndina „Eg er kona“, sem birt ist í blaðinu í gær, er frá Hafn- arfjarðarbíói, eins og hún ber raunar með sér, en nafn bíósins féll því miður niður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.