Morgunblaðið - 11.11.1967, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.11.1967, Blaðsíða 17
MORG-UNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. NÓV. 1967 17 Fjölsóttur Varðarfundur um sjávarútvegsmál MIKLAR og fjörugar umræður urðu á fundi Landsmálafélagsins Varðar, er lialdinn var í Sjálf- stæðishúsinu í fyrrakvöld. Fund- areínið var sjávarútvegsmál og voru framsögumenn þeir Eyjólf- ur ísfeld Eyjólfsson framkvæmda stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna og Guðmundur Jöruns- son útgerðarmaður. Fundarstjóri var Svavar Pálsson formaður Varðar. Fjölmenni var á fund- inum og stóðu umræður yfir fram á nótt. Auk framsögumanna tóku til máls Sveinn Benedikts- son, Sigurjón Bjarnason, Guð- mundur H. Guðmundsson, Vern- harður Bjarnason, Ingólfur Möll- er og Svavar Pálsson. Fram kom í ræðum fundar- manna að þrátt fyrir erfiðlegar horfur í íslenzkum sjávarútvegs- málum, væri engin ástæða til að örvænta, þar sem á undanförn- um árum hefði orðið mjög mik- il uppbygging bátaflotans og reistar hefðu verið margar síld- arverksmiðjur og fiskvinnslu- stöðvar. Möguleikar væru því miklir, ef aliir legðu hönd á plóg inn til að allt mætti sem bezt fara. Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson ræddi afkomu hraðfrystihúsanna og markaðsmál þeirra. Árin 1960—1963 voru frystihúsunum í heild fremur óhagstæð, en sú þróun snýst við á árinu 1964, en þá verður nokkur tekjuafgang- ur og enn meiri 1965 enda verð- ur verðhækkun afurða á því ári um 14%. Á þessum t'veimu síð- arnefndu árum hafa frystihúsin í hagnað þ.e. vexti af eigin fé milli 2—3% af veltu. Þessi tiltölulega góða afkoma hefur orðið tilefni nokkurrar eftirsjár vegna hagræðingarfjár, sem greitt var á þessum árum, en ég tel ekki ástæðu til að harma það, því að einmitt á þess um árum verða mestar framfarir í framleiðni og hagræðingarmál- um. Ég tel hins vegar að afkom- an hafi orðið nokkru betri en þessar tölur gefa til kynna. Það er sjálfsagt að mynda nokkurn Eyjólfur isfell Eyjólfsson. varasjóð þegar vel gengur. Frystihúsin hafa nökkra sér- stöðu í þessum efnum, þar er ekki eingöngu um birgðamat að ræða, heldur einnig óþekkt end- anlegt söluverðmæti framleiðsl- unnar þar sem með hækkandi verðlagi fást hærri iokagreiðslur fyrir framleiðsluna og kemur þetta fram á næsta ári eftir fram leiðsluár. Yfirlit SH um afkomu 8 húsa þar sem fjögur hafa 40—60 millj. kr. veltu og fjögur 15—20 millj. sýnir tekjuafgang þessara húsa 1964 3% af veltu og 1965 rúm- lega 6% af veltu, áður en skatt- ar eru greiddir. Munurinn á okk ar yfirliti og Efnahagsstofnunar- innar er sá, að við reiknum með endanlegum tekjum ársins en Efnahagsstofnunin með tekjum ársreikninga. Um áramótin 1965—1966 er fiskverð hækkað um 15—16% og svarar það til þess að útflutn- ingsverðmæti þurfi að hækka um 8%. 1966 fá frystibúsin á sig 22% kauphækkanir ásamt öðr- um kostnaðarhækkunum, sem af því leiddi og þurfti útflutnings- verð að hækka um 7% af þess- um sökum. Hækkun útflutnings- verðs á þessu ári nam 7% og gat því annað hvort staðið undir fiskverðshækkuninni eða kaup- hækkunum og öðrum hækkun- um. Til þess að jafna roismun- inn voru útflutningsgjöld lækk- uð í árs'byrjun 1966 og hagræð- ingarfé hækkað í 50 milljónir. Nemur þetta um 2%% af veltu. Menn spyrja, hvort frystihúsin geti ekki staðið undir kostnaðar hækkunum vegna aukinnar hag- ræðingar. Það hafa þau raun- verulega gert með því að taka á sig minnkun framleiðslumagns um tæp 15% frá 1965—1966 úr um, sem eru miklu óhagstæð- ari en vertíðarafli, þ.e. karfa og ufsa, en útgangsverð á fiski- mjöli hefur fallið mikið og bitn- ar það sérstaklega á karfavinnsl unnl Humarframleiðslan, sem verið hefur hagstæð, hefur auk þess minnkað um helming. Eng- um þarf að koma á óvart mið- að við þetta að 8—10 frystihús hafa orðið að hætta rekstri uim lengri eða skemmri tíma. Fimm þessara húsa framleiddu fýrir um 100 millj. sl. ár. Miklu fleiri frystihús væru nú stöðvuð, ef ekki hefðu komdð til þeir vara- sjóðir, sem ég áður minntist á, sérstök fyrirgreiðsla banka og annarra lánastofnana í ýmsum tilfeilum og loks bein framlög bæjar- eða sveitarfélaga. Er nú fyrirsjáanlegt, að ef ekki verður úr bætt um starfsgrundvöll, munu bæjar- og sveitarfélög á ýmsum stöðum þurfa að taka að sér reksturinn vegna atvinnu- ástands og jafna tapinu í útsvör um á íbúa sveitarfélaga, Frystihús á landinu munu vera um 90 alls, en fjöldi og punda pakkningu fyrir Rúss- land. Gagnrýni- er, eins og við vit- um, góð og nauðsynleg í sjálfu sér, en yfirleitt virðist mér hún hafa verið neikvæð í þessum efnum. Ef við lítum fyrst á sjálft sölu fyrirkomulagið, þá er annars vegar þeir, sem vilja fullt eða að minnsta kosti mjög víðtækt frelsi í útflutningi á frystum af- urðum, og hins vegar aðrir, sem telja að þetta ætti allt að vera á einni hendi. Sé litið á markaðina, eða kaup endahliðina, þá má í aðalatrið- um skiptá þeim í þrennt: 1) Austur-Evrópumarkaði. 2) Vestur-Evrópumarkaði. 3) Bandaríkjamarkað. f Austur-Evrópu er einn kaup andi í hverju landi og því til- gangslaust og raunar útilokað að koma þar fram nema sem einn seljandi enda hafa Sölumiðstöð- in og útflutningsdeild SÍS al- gjöra samvinnu og samstöðu í þeim málum. f Vestur-Evrópu er þetta með allt öðrum hætti, en þó má segja, að sá kaupendahópur, sem máli skiptir í hverju landi, sé mjög takmarkaður. Sem dæmi má nefna, að í Englandi eru það ekki nema þrír eða fjórir kaup- endur. Ef við ætlum að selja frysta síld í Vestur-Þýzkalandi, þá er sama upp á teningnum. f stórum dráttum má segja, að í 93 þús. tn. í tæpar 80 þús. tn. Það er mikið áfall fyrir rekst- ur með mikinn fastakostnað eins og frystihúsin, að taka á sig sl'ikan samdrátt í framleiðslu þegar einnig kernur til að síldar frysting lækkar um 20%. Bráðabirgðatölur Efnahags- stofnunarinnar fyrir 1966 sýna tap frystihúsanna um 1% af veltu það ár, en fyrrgreint yfir- lit 9H sýnir 4% tap af veltu. Við höfum aldrei sagt að okkar yfirlit sýni rétta mynd af af- komu frystihúsanna almennt en notað það til að fylgjast með breytingum frá ári til árs og Efnahagsstofnunin til hliðsjónar við sína útreikninga. Þess vegna er nú unnið að útreikningum áranna 1964 og 1965 á grundvelli endanlegra tekna áranna, en þegar því er lokið kemur raun- veruleg afkoma húsanna í ljós, en skv. framansögðu tel ég ekki óeðlilegt að áætla tapið 1966 3—4% af veltu eða sem svarar því að nær ekkert hafi verið upp í afskriftir. í ársbyrjun þessa árs voru fyr irsjáanlegir erfiðleikar fyrir frystihúsin. Við töldum þá að verðfallið gæti orðið allt að 20% og auk þess mátti gera ráð flyrir kostnaðarhækkunum umfrarn 1966 vegna hækkana fyrir verð- stöðvun allt að 2%% af veltu. Af þessum sökum lagði ríkis- sjóður fram 130 milljónir í verð- bótasjóðs og eru verðbætur greiddar skv. ákveðnum reglum allt að 75% við 15% verðlækk- un. Skv. síðustu áætlunum nem ur verðfallið 10—20% eftir fisk- tegundum, en að meðaltali 15%. Hlutur frystihúsanna er 4% en ríkissjóðs um 11%. Miðað við 1100 millj. framleiðslu greiðir ríkissjóður 120 milli., en frysti- húsin taka á sig 45 millj. Þetta segir þó ekki alla söguna. Vertíðarafli varð lélegur og þar af leiðandi mir.ni frysting. Óvenjumiklar togaralandanir hafa þó jafnað metin að því er heildarframleiðsluna varðar, en þessi aukning er í vinnslugrein Frá varðarfundinum. framleiðsla frystihúsa innan S'H hefur verið sem hér segir: 1962 55 frysti'hús 62 þús. tn. 1963 55 frystihús 68 þús. tn. 1964 55 frystihús 63 þús. tn. 1965 56 frystihús 72 þús. tn. 1966 53 frystihús 61 þúe. tn. Tala frystihúsa þessi ár er því nær óbreytt og framileiðslumagn svipáð nema 1965. Nú er talað um r.auðsyn þess að fækka frystihúsum. Þetta tel ég stafa af því, að menn geri ráð fyrir minna hráefni þar sem meg ináherzla hefur verið lögð á síldveiðar, og vegna aukinnar kröfugerðar á hendur frystihús- unum, ekki sízt þegar versnar £• ári og loks framleiðniaukningar í húsunum sjálfum, sem geta nú unnið meira hráefni með færri vinnandi höndum vegna hag- ræðingar. Óumdeilt er að hægt er að bæta heildaruppbyggingu iðnað- arins með sameiningu eða sam- vinnu frystihúsa á tilteknum stöðum og svæðum og það virð- ist t.d. í fljótu bragði ákjósan- legt að einungis eitt frystihús sé á hverjum stað. En það má einnig benda á rök fyrir því, að þau séu tvö eða fleiri eftir að- stæðum. í fyrsta lagi: Verulegt átak hefur t.d. verið gert í hag- ræðingarmálum frystihúsanna í Vestmannaeyjum. Það hefur verið gert af sameiginlegri skrif stofu, en ég er ekki í vafa um að samkeppni milli húsanna hefur leitt til enn betri árang- urs. í öðru lagi: Komi togara- farmur af karfa til Reykjavíkur, sem vinna á í neytendapakkn- ingar fyrir Bandaríkin, þurfa helzt öll frystihúsin að skipta þessu á milli sín. í þriðja lagi: Er útilokað að skipuleggja bol- fiskveiðar bétur í samræmi við þarfir frystihúsanna? í fjórða lagi: Er ekki hugsanlegt að mark aðsaðstaðan breytist þannig, að framleiða þurfi meira í neytenda pakkningar fyrir Bandaríkin eða Evrópu. Það er mikill munur á afkÖstum að framleiða 225 gr. pakkningu fyrir Holland eða 7 hverju landi séu það 2—4 kaup- endur í hverri vörutegund, sem skipta máli, enda var reyndin sú, þegar fleiri fóru að bagsa í þessu, þá rákust menn á hvern annan í dyrunum. Reynslan hefur því kennt okk ur að haga seglum eftir vindi til þess að ná sem beztum árangri og fer það því nokkuð eftir að- stæðum í hverju landi og eins af urðum, hvenær S.H. og útflutn- ingsdeild SÍS eru í beinni sam- keppni eða hafa samvinnu á þessum mörkuðum. Sem dæmi má nefna, að humar seljum við í samkeppni hvor við annan og það jafnvel til sama lands, en flatfisk, sem við áður seldum sitt í hvoru lagi í Englandi, selj- um við nú sameiginlega, eða frá þeim tíma, er þeir aðilar, sem kaupa þessa vöru, ákváðu að koma fram sem einn kaupandi. Á Bandaríkjamarkaðnum eig- um við í algerri samkeppni, bæði með okkar verksmiðjurekstur og sölu. Á velgegnisárunum 1964 og 1965 þegar við allt í einu lent- um á seljendamarkaði, þá voru uppi háværar raddir um að veita meira eða minna frelsi í þessum málum og þá ekki sízt á þenn- an markað, þar sem skilyrði fyr ir slíku voru helzt fyrir hendi. Það var jafnvel svo, að full- orðnir, reyndir og glöggir menn gleymdu því alveg að þau árin eru miklu fleiri, sem við erum á kaupendamarkaði en seljenda markaði. Þá eru það nýir markaðir, en það er stundum sett fram, sem eitthvert töfraorð, sem geti gjörbreytt afkomu frystihúsanna og virðist í þeim efnum litið langt yfir skammt, þegar jafnvel er talað um Afríku, sem sérlega eftirsóknarverðan markað. Fyrir nokkrum árum seldum við nokkurt magn ttt Englands, Hollands og Frakklands. Nú er þetta sáralítið og megin hluti framleiðslunnar er seldur á tvo markaði, þ.e. til Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Þetta er þó Guðmundur Jörundsson. ekki svo lítið þegar litið er á, að annars vegar eru tvö stór- veldi, en framleiðsla okkar tak- mörkuð. T.d. láta Kandamenn sér í aðalatriðum nægja Amer- íkumarkaðinn og eru þó með miklu meiri framleiðslu en við. Ástæðurnar til þessarar þróun- ar hjá okkur eru í meginatrið- um tvær: a) Stefna Evrópulandanna í tollamálum. b) að í þeirri hörðu sam- keppni, sem frystihúsin hafa staðið undanfarin ár við aðra atvinnuvegi hér á landi þá hafa þau bókstaf- lega ekki haft ráð á öðru en að fleyta rjómann af mörkuðunum, og þau lönd, sem hafa viljað borga okk- ur mest fyrir framleiðsl- una eru Bandaríkin og Sovétríkin. Nú má ekki skilja þetta svo, að ekki sé selt til annarra landa, því í fyrra voru 15 lönd á skrá, sem kaupendur. Að við ekki lát- um fjarlægðir vaxa okkur í aug um má ráða af því, að selt hef- ur verið til Ástralíu. Þá hefur maður heyrt fleygt. meira eða minna óraunhæfum hugmyndum miðað við núver- andi aðstæður, í sambandi við nýjar pakkningar og verksmiðju rekstur hér á landi í stað er- lendis, en einhversstaðar verð- ur að skera á milli og læt ég hér staðar numið. Ég vil aðeins að lokum segja, að svo virðist sem í góðæri grípi bjartsýni mjög um sig, jafnvel svo að keyrir um þverbak í ýms- um fjárfestingum, en gefi á bát- inn fyllast menn svartsýni, svo jafnvel á að varpa fyrir borð úr hófi. Væri ekki ráð að gæta meira jafnvægis og tryggja kjölfestuna betur. Guðmundur Jörundsson ræddi í upphafi máls síns um mark- aðsmálin og sagði m. a., að stór- kostlegra verðbreytinga væri naumast að vænta á mjöli og lýsi á heimsmarkaðnum á næstu mánuðum, þótt bjartsýnustu menn væru að vonast eftir að hin djúpa lægð, sem lýsismark- aðurinn hefur veri'ð í að undan- förnu tæki að grynnast, þegar fram á veturinn kæmi. Guðmundur sagði, að mjöl- framleiðslan í heiminum mundi á þessu ári nema um 3,2 milljón- um tonna. Neyzluaukningin mundi nema um 550 þúsund tonn, en framleiðsluaukning um 400 þúsund tonn. Stafaði neyzlu- aukning eflaust mest af hinu lága verði. Um skreiðarmálin væri það að segja, að í landinu lægju nú um 7000 tonn af skreið, sem óvíst væri hvort hægt yrði að selja. Utlit væri á áð saltfisk- framleiðsla mundi aukazt veru- lega hérlendis á næsta ári. Staf- aði það fyrst og fremst af skreið arerfiðleikum og jafnframt af stöðugu verðlagi á saltfiski. Salt síldarmarkaðurinn hefði reynzt allstöðugur að undanförnu í við- skiptalöndum okkar, en hins- vegar stæðum við frammi fyrir þeim vanda, að geta sennilega ekki uppfyllt þá samninga, sem gerðir hefðu verið. Nauðsynlegt væri því fyrir íslendinga, að leggja sig alla fram fyrir næstu -, s ííi|;

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.