Morgunblaðið - 11.11.1967, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11, NÓV. 1967
3
Eiríkur skipherra
viðtalsbók eftir Gunnar M. Magnúss
BÓKAÚTGÁFAN Skuggsjá
hefur seflt frá sér nýja vi3-
talsbók við Eirík Kristófers-
son, fyrrum skipherra, sem
Gunnar M. Magnúss rith.
hefur skráð, og Eiríkur skip-
herra, Draumar og dulskynj-
anir. Kemur þar m. a. fram
hörð gagnrýni á yfirstjóm
Landhelgisgæzlunnar. Höf-
undur segir m.a. um hana:
Bók þessi er upphaflega
hugsuð sem kynning á dul-
rænni reynslu Eiríks Kristó-
ferssonar, fyrrum skipherra.
Margt hefur fyrir Eirík borið,
sem ekki verður skýrt, eða
skilgreint á venjulegan og al-
mennan hátt. Hann hefur
séð, heyrt og skynjað margt
sem forvitnilegt má teljast.
Og margt af því, sem hann
hefur fengið vitneskju um
eftir dulrænum leiðum, hef-
ur beinlínis komið honum að
hagnýtu gagni í starfi hans,
— einkum á sjónum.“
Eiríkur kemur víða við í
þessari bók, og meðal annars
er nætt um biblíustríðið, sem
hann háði við Anderson,
brezka skipherrann sem
stjómaði herskipavernd tog-
aranna um tíma. í kafla sem
heitir: „Meira um biblíu-
stríðið" segir:
— Já, það varð hljóðfoært
um ýmsar orðsendingan, sem
fram foru milli ykkar Ander-
sons, eftir að þorskastríðið
var komið í algleyming.
— Þau voru nokkuð mörg
skeytin sem fóru milli okk-
ar, svarar Eiríkur, -—við vor-
um oft í návígi, sem kalla má.
Herskip Breta lónuðu kring-
um togarana, þar sem þeir
toguðu í landhelgi. Við vor-
um þar einnig á næstu báru
Eiríkur Kristófersson>
skipherra
og reyndum sífellt að hefta
þá, en það var enginn leikur.
StundUm opnuðu herskipin
ákveðin svæði fyrir togarana.
Þá færðu sig þangað mörg
skip samtímis.
— Og hvaða orðsendingar
fóru helzt á milli ykkar?
— Frá þeirra hendi voru
það helzt ögranir, áminning-
ar og hótanir, en við svöruð-
um venjulega einarðlega eins
og réttur okkar leyfðd.
— Að lokum höfðuð þið
bibliutilvitnanir á hraðbergi?
— Já, báðir höfðum við
Biblíuna um borð og þar var
margt tiltækt fyrir báða aðila.
Við skiptumst þannig á
nokkrum skeytum með meim-
ingarfullum tilvitnunum.
Þegar komið var fram á sum-
arið 1959, baðst Anderson
friðar í þessum orðahnippdng-
um. En svo hittist' á, að
skömmu áður hafði hann
verið að vernda togara út af
Patreksfirði. Lokaði hann
svæðinu þar, og opnaði jafn-
framt annað nýtt út af
Önundartfirði og ísafirði.
Þá sendi ég honum svo-
hljóðandi skeyti:
Proverb 23. 10.—11.
Það eru Oi-ðskviðirnir 23.
kapituli, 10.—11. vers, er
hljóðar þannig: — Fær þú
eigi úr stað landamæri ekkj-
unnar og gakk þú eigi iim á
akra munaðarleysingjanna.
Því að lausnari peirra er
sterkur — hann mun flytja
' mál þeirra gegn þér.
Þessu skeyti reiddist And-
erson, sendi mér þá þessa orð
sendingu:
— Haf nákvæmar gætur á út-
liti sauða þinna og veit hjörð-
unum athygli þína.
Litlu síðar óskaði hann
friðar á þessum vettvangi.
Samþykkti ég það. Þar með
var þessu lokið.
í mokkrum öðrum kötflum
bókarinnar er deilt nokkuð
á yfirstjórn Landhelgisgæzl-
unnar og í.einum þeirra: Að
þrauka í . ónáð, segir m.a.:
Ég hef álitið, að gæzlan
ætti að forðast allt prjál og
leiksýningar Það kom fyrir
atvik sem minnti mig á ráð-
gjafa Katrínar miklu, Rússa-
drottningar, þegar hann lét
mála tjöldin miklu á bökk-
um Volgu, sigldi síðan um
fljótið með Katrínu og sýndi
henni borgirnar sem hann
hafði látið byggja, en aðeins
\"oru leiktjöld.
— Og hvað var það?
— Það var um orið 1963,
að Landhelgisgæzlan hafði
mikið blaðamannaboð til þess
að sýna þeim ratsjónstöð uppi
á Þorfojörnsfelli við Grinda-
vík. Fengán var stór þyrla hjá
vamarliðinu, til þess að flytja
stöð þessa upp á Þorbjörns-
fell. Af þessu var mikið gum-
að í biögum og útvarpi. Sagt
var að stöð þessi yrði sjálf-
virk og fjanstýrð frá Reykja-
vík, hægt myndi vera að
fyigjast með öllum skipum
sem þar fænu fyrir landi,
sunnan fró Eynanbakkafougt
oig norður á Faxatflóa. Til
sannindamerkis um atburð-
inn, var birt mynd af ratsjór-
skífunni á ÞorbjörnsfellL En
það gleymdist að hafa blaða-
mannafund daginn eftir þeg-
ar a-llt þetta á Þorbjörnsfell)
var tekið niður í kyrrþei og
ratsjáin flutt um borð í varð-
skipið Ægi og sett þar niður,
enda var hún keypt til þess.
Og þar hetfur hún verið síð-
. an.
Bókin Draumar og draum-
skynjanir er 183 blaðsíður að
stærð og skiptist í fj ölmarga
kafla.
Merkiasöludagur
Blindrafélagsins
Á MORGUN, sunnudag, þann
12. nóvember, er hinn árlegi
merkasöludagúr Blindrafélagsins
og verða merki félagsins þá seld
um land allt, til ágóða fyrir
starfsemi þess.
Þetta er í 28. sinn, sem fé-
lagið efnir til merkasölu, en
hún hefur ávallt verið megin
tekjuöflun félagsins.
Allt frá stofnun Blindrafélags-
ins árið 1939, hefur höfuðmark-
mið þess verið, að endurvekja
sjálfstraust þeirra, sem misst
hafa sjónina, útvega blindum
húsnæði, og skapa þeim aðstöðu
til menntunar og starfs. Margt
hefur áunnizt en mikið er ógert.
Blindraheimilið að Hamrahlíð
17, sem tekið var í notkun árið
1962, er nú fullsetið og hefur
orðið að vísa blindu fólki frá,
sem óskað hefur eftir búsetu
þar.
Höfuðverkefni félagsins nú er
því að ráða bót á húsnæðismál-
unum, og er ákveðið að hefja
framkvæmd á viðbyggingu við
núverandi heimili á næsta ári.
Húsameistari ríkisins annast
teikningar og er ætlunin að þetta
nýja hús verði sérstaklega inn-
réttað með tilliti til notkunar
fyrir blinda.
f því verða íbúðir, einstakl-
ingsherbergi, vinnustofur og
fleira.
Blindrafélagið starfrækir
Blindravinnustofuna, og þar
starfa að jafnaði tíu manns við
bursta- og plastpokagerð.
Hér hefur verið mótuð ný
stefna í blindravinnu með því
að taka í notkun fullkomnar
vélar, í stað handavinnu við
þessa framleiðslu, og reynslan
hefur þegar sýnt að unnt er að
kenna blindu fólki meðferð
véla. Með þessu móti er hægt að
margfalda verðmæti þeirrar
vinnu og framleiðslu, sem blind-
ir öryrkjar leggja til þjóðarbús-
ins, og jafnframt treysta afkomu
öryggi þeirra.
Velvilji og góður skilningur
þjóðarinnar á vandamálum
blindra er Blindrafélaginu mik-
il hvatning til aukinna starfa
og stærri átaka.
500 þús. kr.
á hálfmiða
FOSTUDAGINN 10. nóvemfoer
var dregið í 11. flokki Happ-
drættis Háskóla íslands. Dregnir
voru 2.500 vinningar að fjár-
hæð 7.500.000 krónur.
Hæsti vinningurmn, 500.000
þús. krónur, kom upp á hálfmiða
númer 6804. Voru allir 4 hálf-
miðárnir seldir í umfooði Helga
'Sivertsen í Vesturveri.
100.000 þús. kr. komu upp á
heilmiða númer 33915. Annar
heilmiðinn var seldur í umboði
Heiga Sivertsen í Vesturveri en
Mjög kostnaðarsöm verkefni
bíða úrlausnar og þvi bindur fé-
lagið miklar vonir við að vel
gangi með fjáröflun þess nú.
Sérhver maður, sem kaupir
merki Blindrafélagsins eða styrk
ir það á annan hátt veitir því
dýrmætan stuðning og stuðlar
jafnframt að framgangi góðs
málefnis; sjálfsbjargarviðleitni
blindra í landi voru. KJ.
hinn í umboðinu i Borgarnesi.
10.000 krónur:
2119 2482 2992 3854 3920
5348 5411 6033 6803 6805
6836 7324 7477 8238 8535
10834 11474 11882 12777 15799
16472 17157 17183 17561 17765
171820 18094 18298 19287 19609
19671 20230 20862 21813 23329
20726 24220 24626 24703 24758
241916 26831 25853 29332 31577
33180 33455 34145 34766 36221
36861 30925 38047 38137 40600
41372 41576 41760 42402 44896
45920 46771 47008 47169 47438
48165 48828 50247 50259 50938
51869 53164 53461 55001 55909
50132 56132 '50504 56856 56894
57383 59271 59880.
Birt án ábyrgðar.
Husgagna
kynning
. -i- -j* Húsgag.naverksmiðja Kristjáns Siggeirsson- ar h.f. hefur nýlega hafið fnamleiðslu á nýrri tegund húsga.gna — gvonetfndum Var- ia húsgögnum fyrdr heimili, skritfstofur, skóla o.fl. í dag og alla næstu viku verða sýnd ýmis afbrigði af þessum athyglisverð- húsgögnum í sýningarsa.1 á neðri hæð verzl- unarinnar Daugavegi 13. Kynningin er opin í dag til kl. 4 og alla næstu viku á venjulegum verzlunartíma.
varia HTJSGÖCN
HÚSGAGNAVERZLUN KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR 1 IF. LAUGAVEGi 13. SÍM113879
STAKSTEIEVAR
Óbilgirni?
Það er býsna fróðlegt, að sjá
þær móttökur, sem tilboð ríkis-
stjórnarinnar til verkalýðssam-
takanna fær í blöðum stjórnar-
andstæðinga í gær. Framsóknar-
blaðið ber þó af í þvættingsleg-
um skrifum. Blaðið segir í fimm
dálka fyrirsögn á forsíðu að
„lokasvar" ríkisstjórnarinnar
„við tillögum launþega“ sé
„kaupbinding til júní 1968“.
Hver hefur talað um „kaupbind-
ingu“ um þessar mundir. Ekki
hafa málsvarar ríkisstjórnarinn-
ar gert það, ekki hafa stuðnings
blöð stjórnarinnar gert það. Á
„kaupbindingu" hefur ekki ver-
ið minnst og enginn boðað slik-
ar ráðstafanir. Hvers konar hug-
arórar eru þetta? Ekki er síður
undrunarefni að Framsóknar-
blaðið talar í forustugrein sinni
um „óbilgirni“ ríkisstjórnarinnar
í viðræðunum við forustumenn
verkalýðssamtakanna. Blaðið
segir ennfremur að „ríkisstjórn-
in vill -- í engu vikja af
þeirri kjaraskerðingarbraut, sem
hún hefur markað.“ Vegna þess-
ara ummæla er ástæða til að
ryfja upp hver afstaða aðila var
áður en samningaviðræður hóf-
ust og að hve miklu leyti hún
hefur breytzt síðan. Auðvitað
væntu menn þess að báðir aðil-
ar mundu í einhverju hvika frá
fyrri afstöðu úr því að til samn-
inga var gengið, slíkt er eðli
samninga.
Afstaða verka-
lýðssamtakanna
Höfuðgagnrýni forustumanna
verkalýðsins á tillögur og að-
gerðir ríkisstjórnarinnar í efna-
liagsmálum, þegar þær komu
fram, var annars vegar, að vísi-
töluhækkun á laun væri skert
og kváðust þeir ekki geta sætt
sig við það og hins vegar að
þessar aðgerðir Ientu með mest-
um þunga á barnmörgum fjöl-
skyldum. Þetta hefur og verið
kjarninn í mótmælaályktunum
þeim, sem borizt hafa frá verka-
lýðsfélögum víðs vegar af land-
inu.
Að hve miklu leyti hafa kröf-
ur verkalýðssamtakanna breytzt
frá því að samningaviðræður
hófust? Það er ljóst af tillögum
þeim, sem viðræðunefnd ASÍ og
BSRB lagði fyrir*ríkisstjórnina,
að í grundvallaratriðum hefur
verkalýðshreyfingin ekki hnikað
til í einu eða öðru að því und-
anskyldu, að hún vill fallast á
að nýja vísitalan verði tekin upp
í stað hinnar gömlu. Að öðru
leyti hefur viðræðunefndin kom-
ið fram með ýmsar nytsamlegar
ábendingar, sem ríkisstjórnin
hefur tjáð sig fúsa til þess að
kanna nánar.
Afstaða
ríkisstjómarinnai
Ríkisstjórnin leggur til að visi
töluhækkanir á laun verði greidd
í þremur áföngum samtals 3% og
er það meginhluti þeirrar rúm-
Iega 4% kjaraskerðingar, sem
fyrirhuguð var með því að rjúfa
vísitöluna úr sambandi að þessu
sinni. Jafnframt hefur stjórnin
boðið fram 5% hækkun á fjöl-
skyldubótum með tveimur börn-
um og fleiri og samsvarandi
hækkun elli- og örorkulífeyris.
Getur nokkur sanngjarn maður
sakað ríkisstjórnina um „óbil-
girni“ eftir slík boð? Það er
vissulega slæmt að viðræður
ríkisstjórnarinnar og forustu-
manna launþegasamtakanna
hafa ekki borið enn meiri
árangur þótt hann sé nokk-
ur. En ef til vill eru
enn möguleikar á einlivers kon-
ar samvinnu. Báðir aðilar hafa
lýst því yfir að þeir muni ræða
áfram um þau atriði, sem til
umræðu hafa verið, eða önnur
ef tiiefni gefst til og er það mik-
ilvæg yfirlýsing.