Morgunblaðið - 08.12.1967, Side 4

Morgunblaðið - 08.12.1967, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DES. 1967 IVIAGIM ÚSAR SKIPHOLTt 21 SÍMAR 21190 eftir lokun simi Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leig;ugjald Sím/14970 Eftir lokun 14970 eða 81748 Sigurður Jónsson BÍLALEIGAINi - VAKUR - Sundlaugavegi 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. SMRn TlMA 06 FYRfflROFN c~. ’tmjk irts/km WMLMP RAUOARARSTÍG 31 SÍMI 22022 Hreinsum rúskinnskápur, jakka og vesti. Sérstök meðhöndlun. Efnalaugin Björg, Háaleitisbr. 58—65, sími 31380, útibú Barmahlíð 6, sími 23337. AU-ÐVITA9 ALLTAF Eftir Jón á Bægisá Jón Sigtryggsson skrifar: í greinum Velvakanda hinn 26. nóv. s.l. eignar Halldóra Hjartardóttir, Steingrími þessa vísu: Margur rakkj. að mána gó mest þegar skein í heiði, en ég sá hann aldrei þó aiftra sínu skeiði. hessi vel þekkta vísa er eft- ir þjóðskáldið á Bægisá, séra Jón Þorláksson. I>ar sem ég hef ekki séð leiðréttingu á þessu, sendi ég þessar línur í von um, að þessi leiðrétting verði birt hjá Velvakanda. Rvík 4. des. 1967. Vinsamlegast. Jón Sigtryggsson, Kleppsvegi 20. ★ Ekki dropi vatns í krananum „Ein óþvegin" sk'iíar sunn- an úr Kópavogi: Kópavogur 1. des., 1967. Heiðraði Velvakandi. Leyfist mér í örvæntingu minni að snúa mé til þín? Þannig er nefnilega mál með vexti, að ég hef ekki enn getað þvegið stírurnar úr augunum I dag, ég bý nefnilega í Kópa- vogi, og þér að segja, þá virð- ast þeir taka vatnið af á ólík- legustu tímum, án þess að til- kynna það fyrirfram, sem mér finndist nú algjört lágmark. Ég hef spurtzt fyrir um þetta fyrirbæri, en ýmizt er sprung- in æð hér eða þar, í dag fyrsta desember fær maður nú hvergi svar, allstaðar er lokað, og hvort ég fæ þvegið már eða ei, virðizt ekki skipta neinu máli. Hér með skora ég á vatnsveitu- stjóra Kópavogs ef hann er þá til, að gera grein fyrir hinum viðkvæmu vatnsæðum Kópa- vogs, og hvort þetta muni standa til bóta, eða hefur hátt- virtur vatnsveitustjóri upplifað það að standa í því að laga kæfu, og þegar allt eldhúsið ið ar í feitu kjöti, ásamt áhöldum, handleggjum o.s.frv. þá er ekki til dropi af vatni í krananum, Þetta skyldi hann reyna. Þá hygg ég að ég sé búin að greina frá áskorun minni, að sinni, og ef þú heiðraði Velvakandi gæt- ir birt þetta fljótlega, því ég þarf bráðum að fara að laga kæfu aftur. Virðingarfyllst, ein óþvegin. Pjs. Hvað líður mjólkurhym- unum, hvenær skyldi maður losna við þær? Gæðavara Max harðplast Glæsilegir litir. Verð mjög hagstætt. LITAVER, Grensásvegi 22—24. Sími 30280, 32262. Sendisveinn óskast á ritstjórnarskrifstofur Morgunblaðsins. Vinnutími kl. 6—11 e.h. 3Honr$utt(laÍrifr Útgerðarmenn Hef til sölu báta af flestum stærðum, með góðum kjörum. Einnig hef ég góða kaupendur að bátum frá 30—100 rúmlestir. Þorfinnur Egilsson héraðsdómslögmaður. Málflutningur — skipasala. Austurstræti 14 — Sími 21920. Ástandið óþolandi Blaðamaður gkrifar skjálfandi á beinunum og er mikið niðri fyrir: Hr. Velvakandi: í þessum síðustu og verstu kuldum þykir tilhlýðilegr að orna sér við að skamma hita- veituna. í morgun þegar ég vaknaði var þriggj^ stiga frost í íbúðinni og ég skemmti mér við að brjóta klakann af ilát- unum, sem legið höfðu i vatni yfir nóttina. Þennan sama morg un varð mér tíðhugsað til hita- veitu Reykvíkinga Þá korost ég að þessari niðurstöðu: Hitaveit- an er eins og guð; það spyrzt aldrei til hennar, en maður hefur fregnir af því að hún sé til. Hitt er annað mál að þar sem guð hefur talað máli sínu með fulltingi spámannanna, þá hefur Hitaveitan ekki hreyft fingri til að andmæla þeirri kvörtunaröldu sem á henni hef ur dunið. Greindur og gamansamur leigubílstjóri sagði mér efcir há degi, að hann hefði flúið Skóla vörðuibolt vegna kulda. Hann sagði, að hann hefði veigrað sér við því að fara úr hita bílsins inn í heimskautaveðurfar sinn- ar eigin ibúðar. Hann minntist þess, að eftir slæma kulda hefðu hitaveitureikningar verið hærri en venjulega. Skýringuna sagði hann þá, að loftið í of'Vinum hefði snúið mælunum. Ég hef tilihneigingu til að trúa þassum leiguibílstjóra. Hann sagði mér líka óspurt, að fólk hefði flúið heimili sín fyrir fáeinum dög- um og matazt á Hótel Holti vegna kuldans heima hjá sér. Ástandið í hitaveitumálum gamla bæjarins er óþoiandi. Menn beinlínis borga þ’'sundir króna fyrir kvef eða dauðdaga úr lungnabólgu. Nú á að hækka hitaveitugjald um 18%. Líkiega fær hitaveitustjóri launahækk- un um leið. Með 18% hækkun- um skal þatoka eymd, volæði og aðgerðarleysi. Ég krefst bess sem almennur borgandi óvirkr- ar hitaveitu, að fá að vita nafn hitaveitustjórans. Ég krefst þess að fá að vita hvernig störfum hans er háttað. Ég heimta að mér og öðrum tilvonandi lungnabólgusjú.kling um sé gerð grein fyrir starf- semi hitaveitunnsr. Blaðamaður. Stereó plata spiluð í móno G.G.S. skrifar: Heiðraði Velvakandi: Þegar ég var að hlusta á út- varpið 4. 12. 1967 milli 3:20 og 3:30 var verið að spila plötu þar sem að Herb Alberst lék ásamt hljómsveit sinni. Þar sem ég á þessa plötu sjálfur vissi ég að hún var aðeins t.il í Sterio. Nú heyrði ég það greinilega, að lögin voru spiluð í mónó á þess- ari stereo plötu, og eins og flestir vita þá heyrðist aðeins hluti þess þegar það er spilað þannig, mér þætti því garnan að vita hvort Ríkisútvarpið hef ur alitaf þennan hátt á þegar verið er að spila plötur í sterio, og hvers vegna. G. G. S. Veivakandi hlustaði ekki á útvarpið á áðurnefndum tíma og getur því ekki dæmt um hvort G.G.S. hefur havrt rétt. En að sjálfsögðu verður hér gefið rúm þeim, sem nanar kynnu að geta upplýst mál þetta og geíið á því skýringar. Gerið hagstæð kaup Seljum næstu daga raðsófagrindur óbólstrað á lágu verði. Einnig lítið gallaða borðstofustóla (grindur). NÝVIRKI H.F., Síðumúla 11. Símar 30909 og 33430. Elii og ekknastyrkir Þeir sem rétt eiga á styrk úr ellistyrktar og ekkna- sjóði Trésmíðafélags Reykjavíkur sendi umsóknir þar um til skrifstofu félagins á Laufásvegi 8, fyrir 13. þ.m. STJÓRNIN.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.