Morgunblaðið - 08.12.1967, Side 18
18
MOBGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DES. 1967
var stofnuð í þeim tilgangi, að gefa Þorsteini Thor-
arensen kleift að helga sig sagnaritun. FjÖldi
fólks um allt land hefur kynnzt hæfileikum Þor-
steins til að gera Ijós rök að tilveru nútímans. Bæk-
ur hans þykja afburða skemmtilegar og þær ein-
kennasf fyrst og fremst af vandvirku og heiðar-
legu mati á mikilvægustu atburðum nútímasögu.
í fyrra var það bókin „í fótspor feðranna“.
í ár er það bókin:
„Að Hetjuhöll“
sem ér hreinskilnasta tilraun, sem gerð hefur verið
til að reyna að skilja eitt stærsta vandamál nú-
tímans, fyrirbærið Adolf Hitler. Bókin er sagn-
fræðirit, þrungin spennu og örlagaþunga. Hún er
glæsileg og mikið myndskreytt og afburða skemmti-
leg aflestrar.
JÓLAGJAMR!
speglar
Nytsamasta og kær-
komnasta jólagjöfin er án
efa SPEGILL frá oss.
Lítið á úrvalið sem er
mjög fjölbreytt. Komið
meðan úr nægu er að
velja á gamla verðinu.
r
LUDVIG STORR
L J
Speglabúðin,
Sími 1-9635.
Dularfullu flugslysin
Mörg dularfull slys hafa fylgt sögu flugs-
ins frá upphafi.
Hér er úrval frásagna um furðulegustu
flugslys sögunnar. —
Spennandi frásagnir um ævintýri hi^-
dirfsku, mannraunir og hetjudáðir, skrif-
aðar af frábærri þekkingu og frásagnar-
hæfileika.
Útgefandi: Prentsmiðja Jóns Helgasonar.
Sími 38740.
Spyrjum ad leikslokum
ÆSISPENNANDI SAGA eftir metsöluhöfundinn ALISTAIR MAC-
LEAN. — Leynilögreglumanninum Philip Calvert er falið að leysa
gátuna um skip hlaðin gulli, er hurfu með dularfullum hæfeíi af
yfirborði sjávar. Leynilegar athuganir brezku lögreglunnar og
eðlisávísun beindu athygii hans að afskekktum stað á vesturströnd
Skotlands. Þar gerast margir undarlegir atburðir, en lausn gátunn-
ar virðist þó ekki á næsta leiti. Eftir hraða og viðburðaríka at-
burðarás koma svo hin óvæntu sögulok. —• Alistair MacLean er í
essinu sínu í þessari sögu. Ib. kr. 325,00.
Læknir kvenna
ENDURMINNINGAR MIKILHÆFS og gáfaðs læknis, FREDERIC
LOOMIS. — Hið mikilsvirta bandaríska tímarit, Saturday Review
of Literature, segir um bókina m. a. á þessa leið: „Konur, ungar
sem eldri, munu finna í þessari bók ótalmargt, sem þær þurfa að
vita og vilja gjarnan vita um sjálfar sig, og flest hugsandi fólk
mun finna óblandna ánægju í leiftrandi kímni hennar og glöggum
skilningi á mannlífinu." Ib. kr. 278,00.
Svörtu hestarnir
RISMIKIL OG SPENNANDI ÁSTAR- OG ÖRLAGASAGA eftir
TARJEI VESAAS einn nafnkunnasta núlifandi höfund á Norður-
löndum. Með útkomu þessarar sögu hófst frægðarferill höfundar-
ins og náði hámarki, er honum voru veitt bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 1963. Óhætt má fullyrða, að persónur þessarar
sögu og örlög þeirra muni verða lesandanum eftirminnileg, svo og
þáttur hestanna, gæðinganna góðu, sem áttu ríkan þátt í að skapa
eiganda sínum örlög. Ib. kr. 275,00.
Beverly Gruy
ÞETTA ER FYRSTA BÓKIN UM BEVERLY GRAY eftir CLARIE
BLANK sem nú kemur út öðru sinni eftir að hafa verið ófáanleg og
mjög eftirspurð árum saman. Bækurnar um Beverly Gray eru
óskabækur allra ungra stúlkna, enda bæði skemmtilegar og góðar
bækur. Ib. kr. 220,00.
Verð bókanna er tilfært án söluskatts. Sendum burðargjaldsfrítt
gegn póstkröfu um land allt.
I Ð U N N Skeggjagötu 1 - Símar 12923 og 19156 - Pósthólf 561