Morgunblaðið - 08.12.1967, Side 21

Morgunblaðið - 08.12.1967, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DES. 1967 21 Daggjöld sukrahúsa greidd samkv. ákvörðun 5 manna nefndar í GÆR lagði heilbrigðis- og fé- lagsmálanefnd efri deildar fram breytingartillögur við frumvarp um almannatryggingar, sem er búið að afgreiða til 3. umr. í efri deild. I breytingartillögu nefndarinnar er gert ráð fyrir, að stofnuð verði nefnd er ákveði upphæð daggjalda opinberra sjúkrahúsa, hæla og annara stofnana, sem kveðið er á í lög- um. Áður var upphæð dag- gjalda ákveðin með samningum við Tryggingastofnun ríkisins, og ef þeir samningar náðust ekki kom til úrskurður heil- brigðismálaráðuneytisins. Tilgangur breytinga þessara mun vera sá, að leiðrétta hlut þeirra sveitarfélaga, sem taka á sig aukaútgjöld vegna sjúkra húsdvalar utansveitarmanna. í breytingartillögunum er einnig gert ráð fyrir því, að rekstrarhalli Tryggingarstofnun- arinnnar á sl. ári, vegna verð- stöðvunarinnar, verði tekinn úr varasjóði lífeyristrygginga, en iðgjöid verði ekki hækkuð til að jafna hallann. Aðalbreytingartillaga nefndar innar hljóðar svo: Frá og með 1. janúar 1969 skulu daggjöld opinberra sjúkra húsa, hæla og annara stofnana, sem 1.—3. málsgrein 49. grein- ar laga tekur til, svo og gjald- skrár sömu stofnana vegna þjónustu við sjúklinga, sem ekki eru lagðir inn, greidd sam kvæmt ákvörðun 5 manna nefndar, sem þannig er skipuð: Fj ármálaráðherr a skipar einn, Tryggingastofnun ríkisins skip- ar einn, Landssamband sjúkra- húsa skipar einn, Samband ís lenzkra sveitarfélaga skipar einn og heilbrigðismálaaráð- herra skipar einn, sem jafn framt er formaður nefndarinn- ar. Verði atkvæði jöfn í nefnd- inni, ræður atkvæði formanns. Nefndin ákveður daggjöld og gjaldskrár á þann hátt, að heild artekjur stofnananna miðist við að standa straum af eðlilegum rekstrarkostnaði, enda séu gjöld in í samræmi við hagkvæman rekstur og þá þjónustu sem stofnunin veitir. Heilbrigðis- málaráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um starfssvið nefndarinnar og framkvæmd. Sé um sjálfseignarstofnun eða einkaaðila að ræða jafngildir það samningi, ef hlítt er ákvörð un nefndarinnnar um daggjöld, er vera skuli í einu lagi fyrir vist og þjónustu, en að öðrum kosti getur Tryggingastofnunin ákveðið, að sjúkliingum skuli endurgreidd tiltekin upphæð fyrir hvern legudag upp í kostn aðinn. Þriðja atriði bréytingarttillög unnar er að við ákvæði til bráðabirgða í ffrumvarpinu komi þrjár nýjar málsgreinar: Á árinu 1968 skal framlag rík- issjóðs vera 170% greiddra sjúkrasamlagsiðgjalda samlags- manna og framlag sveitarsjóðs skal vera 65% greiddra iðgjalda. Daggjöld skulu á árinu 1968 ákveðin á sama hátt og verið hefur. Sú leiðrétting, sem ákveðin er í 4. málsgrein 24. gr. laganna á framlögum hinnna tryggðu og atvinnnurekenda, fyrir árið 1967, skal falla niður. Halli sem af þessu leiðir, skal tekinn úr varasjóði lífeeyristrygginga pr. 31. des. 1967. IMý mál Þingmdl í gœr STUTTIR fundir voru í báðum deildum Alþingis í gær. Frá efri deild voru tvö frumvörp af- greidd til ríkisstjórnarinnair, «em lög frá Aliþingi. Voru það frum- vörpin um lögfræði og stofnun og slit hjúskapar, bæði í tengsl- um við fyrirftmgaða breytingu á kasningaaldrinum. f neðri-deild kom einnig til fyrstu umræðu þriðja málið, sem er í tengslum við breyting una. Var það frumvarpið um 20 ára kosningaaldur til sverta- stjórna. Mælti Eggert G. Þor- s tein ss on f él a gsmála ráðiher r a fyrir frumvarpinu. sem siðan var afgreitt til 2. umræðu og heilbrigðis- og félagsmálanefnd ar deildarinnar. Eggert G. Þorsteinsson mælti einnig fyrir frumvarpi urn ráð- stafanir vegna sjávarútvegsins, sem er til staðfestingar bráða- birgðalögum og hefur verið af- greitt frá efri-deild. Var frum- varpinu vísað til 2. umræðu og sjávarútvegsnefndar. Friðjón Þórðarson mælti fyr- ir frumvarpi er hann flytur um breytingu á sveitarstjórnarlög- um. Gat hann þess, að frumvarp þetta hefði verið flutt í fyrra af Jóni ísberg, sýslumainni, en hefði þá ekki orðið útrætt. Væri það því endurflutt í samráði við hann. Friðjón sagði, að næstum því einu tekjur sýslusjóða væru sýslusjóðsgjöldin. Væru þau lögð á hreppana eftir reglum sveitarstjórnarlaga, eða eftir fast eignamati að einuim þriðja, sam anlögðum nettótekjum og nettó eign að einum þriðja og eftir tölu verkfærra manna að eír- um þriðja. Væri breyting sú á gildandi lögum, sem frumvarpið gerði ráð fyrir, einungis sú, að framvegis verði miðað við íbúa tölu hreppanna í stað verkfærra karlmanna. LöGÐ var fram á Alþingi í gær svdhljóðandi þingsályktunarLl- laga um lækkun tolla á efnum og vélum til iðnaðarins: Alþingi ályfktar að skora á ríkisstjórn- ina, að láta nú þegar endurskoða tollalögin með það fyrir augum, að innflutningstollar á efnum og vélum til iðnaðarins verði hinir sömu og i*ú eru á efnum og vél um til fiskveiða. Ríkisstjórnin skal, strax og þessari endurskoð un er lokið, leggja fyrir Alþingi frumvarp um breytingar á tolla lögunum í samræmi við hana. Þá var lagt fram nefndarálit frá heiibrigðis- og félagsmála- nefnd etfri-deildar um frumvarp ið um Bjargráðasjóð íslandf. Mælir nefndin samhljóða með samþykfct frumvarpsins, en ein stakir þingmenn áskilja sér rétt til að flytja við það breytingar- tillögur. Ennfremur var lagt fram nefndarálit frá meiri- og minni hluta menntamálanefndar neðri deildar um frumvarpið um sölu á prestssetursjörðinni Setbergi í Eyrarsveit og 2 embættisbústöð- í Reykjavík. Mælir meiri hluti nefndarinnar með samþykkt frumvarpsins, en flytur jafn- framt breytingartillögu, sem ger ir ráð fyrir, að Melrakkaey verði undansfkilin við sölu Setbergs. Að minni hluta álitinu stendur Magnús Kjartansson og kemur fram í greinargerð hans, að það sé steína hans, að ekki skuli selja einstaklingum ríkisjarðir. Fiskirækt sem búgrein FJÓRIR alþingismenn hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um fiskeldis- stöðvar. Eru það þeir Björn Jónsson, Jónas G. Rafnar, Jón- as Pétursson og Jón Ármann Héðinsson. Er þingsályktunar- tillagan svohljóðandi: Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina, að láta hið fyrsta fram fara athugun sér- fróðra manna á því hverjar gerðir fiskeldisstöðva, er rekn ar yrðu sem aukabúgrein, hentuðu íslenzkum bændum, og jafnframt að láta gera at- huganir á kostnaði við bygg- ingar og rekstur slíkra eldis- stöðva. Þá verði og rannsak- að, hver opinber stuðningur sé nauðsynlegur, til þess að þessi búgrein geti eflzt með æskilegum hætti. Niðurstöður framangreindra athugana verði kynntar bænd um rækilega, í samráði við Búnaðarfélag íslands. í greinargerð tillöguninar er m.a. bent á, að víða um heim sé fiskirækt í ýmsum mynd- um rekin sem mikilvæg at- vinnugrein. Skilyrði til fiski- ræktar ættu að vera góð hér- lendis, en hún sé enn á al- geru byrjunarskeiði sem at- vinnugrein. Nauðsynlegt sé því að gera þá rannsókn er þingsályktunartillagan gerir ráð fyrir og að hið opinbera rétti áhugamönnum hjálpar. hönd með skynsamlegri for- sjá til þess að komast yfir fyrsta hjallann. var J Saga NorSmannsins Oscar Magnusson, sem ^ svfkinn í hendur Gestapó og þoldi ofurmannlegar raunir án þess að ljóstra upp hinni mikilvægu vitn- eskju sinni, var sendur til Þýzkalands til tortíming- ar og kastað lifandi á líkahaug, eftir að hafa gengið um hálfa Evrópu, með brotinn hrygg og slitna vöðva. Ótrúleg saga, því hvert orð er sannleikur. Þetta er hiklaust ein skemmtilegasta bók, sem skrifuð hefur verið á seinni árum. Það staðfesta þ>eir, sem hafa lesið hana. ^ Hvert var hið ógn- þrungna leyndarmál Ieikarans vinsæla, er þúsundir kvenna elskuðu? — Ein skemmtilegasta saga þessa vinsæla skáld- sagnahöfundar. k „Hl'SSAIíHIR KCMA Hl SSAUIIIR KCM V SAGA UM HEST Um leið og Martin sá nýfætt folaldið, fann hann, W aðþ arna var reiðhestsefnið, sem hann hafði dreymt “ um að eignast. — Heimsfræg unglingasaga, sem skrifuð er af 16 ára gatnalli stúlku. GRÁGÁS - iH

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.