Morgunblaðið - 08.12.1967, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.12.1967, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DES. 1907 MARY ROBERTS RINEHART: SKYSSAN MIKLA Tony. Hann getur þotið upp. Jæja, Audrey sagði frá 'þessu. í>ú veizt nú hvernig hún er. Hún talar fyrst ag hugsar svo. En það sem eftir er, er mér að kenna. — Hvað er eftir? spurði ég og var orðin óþolinmóð. — Þetta með hann hr. Morgan og hana Besssie Wainwriglht. — Hvað í dauðanum áttu við mieð þau Larry? — Ég sá þau saman eitt kvöld sagði hann þrjózkulega. — >að var orðið áliðið, en ég sá hann og þetta var áreiðanlega bíllinn hennar Bessie. - Ég var steinhissa. — Hef urðu sagt þetta nokkrum? — Það er nú allur verkurinn, játaði hann. — Ég var talsvert gramur — hann lézt vera veikur og Audrey var að stjana við hann. Og svo fer hann í bíitúr að kvöldi með kvenmanni Ég sagði þetta nokkrum strákum í. klúbbnum og nú er það auðvitað komið út um allt. Og það vekur mikið umtal. — Þú skilur .... hann þagnaði sem Spöggvast en óð síðan áfram: Tony var ails ekki í klúbbnum þetta kvöld þegar Morgan var myrtur. Og Bessie heldur ekki. Hún sást koma hérna eftir Drautinni um klukkan ellefu og Tony elti hana Að minnsta kosti er sagt svo. Þetta var óvenjulöng ræða af honum að vera. Hann tók upp vasaklút og þurnkaði á sér hend urnar eins og hann hefði svitnað á þeim, — Já en þetta er ekki annað en vitleysa Larry. Þú verður að stöðva bennan söguburð. Hann setti upp skakit bros. — Það væri nú reynandi eða hitt þó heldur! sagði hann, um leið og hann greip hattinn sinn og strok aði út sömu leið og hann hafði komið inn. Ég skildi nú hvað Hopper hafði átt við þegar hann tlaði um, að Tony hefði kannski verið að vernda sinn eigin heiður Tony hafði ef tid vill komizt að því að Ressie hafði stefnumót við Don í leikhúsinu, hefði svo elt hana, þegar hún fór úr klúbbn um og svo myrt hana í reiði kasti. Það fór hrollur um mig alla. Tony var í versta skapi þegar hann 'kom heim um kvöldið. Sýni lega hafði hann heyrt eitthvað af sögunni. — Sjáðu til sagði hann við mig. — Hefur þú frétt, að ég hafi lent í rifrildi við Don Morg an? — Já eitthvað í þá átt. Hann hló gremjulega. — Svo að vinir rnínir og nágrannar eru þá komnir á hæla mér! sagði hann. — Önnur eins bannsett vitleysa .... hlustaðu nú á góða mín ég á heimtingu á að vita þetta. Það varð alls ekkert rifr ildi okkar í milli. Sannast að segja kom náunginn prúðmann lega fram. Ég 'hafði rekist þarna inn, með ávexti sem ég var bú inn að lofa Lydiu, og hann sendi eftir mér. Hann var hálf vand ræðalegur, en alveg með sjálfum sér. Audrey væri ung. Hann vildi ekki að hún færi að draga sig eftir manni, sem ætti þegar konu fyrir, Þegar ég siagði hon um, að ég væri ðkkert í siíkum hugleiðingum, heiðarlegum eða hinsegin, þá glötti hann. Þetta var allt og sumt, En líklega hefur Audrey legið á hleri hinumegin við hurðina. Ég sagði honum ekki fram- haldið af sögu Larrys. Hann virt ist alveg uppgefinn og eftir kvöldverð fór hann að hitta Jim Conway. En ég tók upp málið við Bessie um kvöldið. Það var of alvarlegt til þess að skeyta ekkert um það. Hún lá á legub;kknum með kvi'kmyndatímarit í hendinni. Hún stóð upp til þess að opna og hleypa mér inr., en lagðis’ svo aftur. En þegar ég tók til máls, stökk hún upp. — Þetta er haugalygi! sagði hún. — Ég hef .aldrei gert neitt þvílíkt. Heldurðu kannski, að ég sé gengin af vitinu? Hún var bæði reið og hrædd, en ég hélt samt ekki, að hún væri að ljúga. Ég fór út skömmu seinna og heyrði hana læsa dyr- unum á eftir mér. Það sem hún var.hrædd við, virtist helzt vera þarna innanhúss. 38 Roger fann sokkabandið dag- inn eftiir. Þetta var venjulegt sokkaband qg virtist vera nýtt, en þó nokkuð veðurbarið. Ég hafði farið út að ganga með hann og hann hljóp inn í runn og kom aftur með það í kjaftin- urn. Hann lék sér að því stundar- korn, fleygði þvi upp í loft með því að hnykkja til hausnum og greip það svo aftur. Þegar ég bjargaði því, var það farið nokkuð að láta á sjá, og það var af ösköp al'vanalegri gerð og gat litlar beiidingar gef- Herratizkan i dag fyrir herra á öllum aldri, er frá árinu 1890. Síður að- skorinn jakki, háar klaufir, fallegt snið. Þér getið valið um 3 gerðir: Einhnepptur jakki, 3 tölur, tvíhnepptur, 4 tölur eða tvíhnepptur 8 tölur. Háar klaufir í baki, ein éða tvær, opnar eða með lokuðum fellingum. Vasalokur beinar eða hall- andi. Alullarefni eða tery- lene og ullarefni, margar stærðir, munstur og litir. Lágt verð. Einnig úrval af klassiskum herrafatnaði á hagstæðu verði. Fatamiðstöðin er miðstöð herratízkunnar og lága verðsins. Fatamiðstöðin Bankastræti 9. * Andrés Laugavegi 3. ið. En þegar Jim Conway hafði abhuigað það, setti hann upp áhyggjusvip. — Við verðum víst að draga eitthvað frá þessum tíma hans Bill Sterling, sagði hann. — Það virðist svo sem marðinginn, hver sem hann kann að vera, hafi e'kki ge'fið sér tíma til að klæða sig. Húsið var þögult, alla þessa viku og Maud var alltaf ein í- stvira herberginu sínu, en Tony stundaði verk sitt en leitaði að Evans þegar hann bafða tóm til, og jafnvel Pierre, sem hafði lítið að gera annað en búa til mat, sem enginn snerti við, var ólund- arlegur í eldhúsinu sínu. Á ánni var enn verið að slæða eftir Ev- ans, árangurslaust, en leitinni í skóginum hafði verið hætt. Einn daginn spurði James, hesiasveinn, mig, hvort mig lang aði ekki að koma á hest'bak, og ég spurði Tony um þetta um kvöldið. En mér til mestu furðu a:ftók hann það algjöiriega. — Þeir hafa ekki verið hreifðir vik- um saman, sagði hann, — og ég þyrði ekki að láta þig koma þeim á bak. Eg vil ekki, að neitt komi fyrir þig. — Ég er nú vön hestum frá barnæsku. — Ég veit. Þægum, tömdum hestum. Þessir eru öðiruvísd. Ég varð móðguð. Eg hafði sýnt veiðihesta árum saman á hesta- mannamótum, og næsta dag fór ég út á Prins. James brosti kulda lega, þegar ég fór á bak. — Farið þér 'hægt til að byrja með, ungfrú. Þetta verður allt í lagi. Ég hef séð yður á hest- baki. Og þetta gekk vei, enda þótt Prinsi hætti til að fælast við íkorna, sem þaut upp, eða vildi helzt !osa sig við mélið. Þetta var erfið'ux reiðtúr, en gaman hafði ég af því að koma enn einu sinni í reiðföt. Ég var næstum kát í bragði, þegar ég kom frá hesthúsunum og hitti Bessie í fiorstofunni. Mjög athyglisverð nýjung, sem sparar tíma og erfiði. Höie Krepp er úr 100% bómull, litekta, þolir suðu og er mjög endingargott. Fæst sem tilbúinn sængurfatnaður eða sem metravara. Viðurkenndar gæðavörur, sem fást f helztu vefnaðarvöruverzlunum landsins. EINKAUMBOÐ: MATS WIBE LUND jr. HRAUNBÆ 34, REYKJAVlK, SÍMI 81177

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.