Morgunblaðið - 08.12.1967, Page 30

Morgunblaðið - 08.12.1967, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DES. 1967 Fá frí eða hætta störfum í 3 mán. í von um OL-ferð Skíðamenn leggja hart að sér til undirbúnings OL í febrúar AÐ VERA þátttakandi af íslands hálfu í Vetrar Olympíuleikunum í Grenoble í febrúar n. k. er ekkert sældarbrauð eða dans á rósum. Skíðamennirnir hafa þjálfað siðan í vor ýmist einir eða komið saman á Siglufirði eða Akureyri nokkra daga í senn, stunda nú æfingarnar um mánaðarskeið í Val D’esére í Frakklandi, og fara síðan að loknu jóialeyfi i stanzlausa þjálfun í Hlíðarfjalli við Akureyri fram að ieikunum. Öll þessi ferðalög — nema förina á OL og farmiða Reykjavík-Luxemborg-Reykjavík vegna Frakk- landsdvalarinnar nú, greiða þeir úr eigin vasa og hafa allir orðið að fá 3 mánaða frí úr vinnu eða segja upp störfum til að geta verið með. IMunu fáir — eða engir — í hópi íþróttamanna leggja meira að sér en þeir. Stefán Kristjánsson form. Skíðasambandsiní og aðrir stjórn armenn ræddu við fréttamenn í gær um Olympíuþjálfunina, mót- in í vetur og hina nýju skiptingu í flokka meðal Alpagreinar- manna, sem vikið verður að síðar hér á síðunni. Varðandi þjálfun Olympíu- faranna sagði Stefán m.a.: Ungiingamót i badminton UNGLINGAMÓT TBR í badm- inton verður haldið laugardaginn 16. des. nk. í Valsheimiiinu. — Keppt verður í flokki sveina und ir 16 ára og flokki unglinga undir 18 ára. Keppt verður einnig í sömu aldursflokkum stúlkna. Öllum er heimil þátttaka í mót inu og skal senda tilkynningar þar um til Garðars Alfonssonar, simi 41595 fyrir þriðjudag. Að loknu Skíðamóti íslands 1967, valdi stjóm S.K.Í. 8 skíða- menn til sérþjálfunar fyrir Olym píuleikana í Grenoble í Frakk- landi 1968. Jafnframt var þá sam þykkt að miða þátttöku íslands eingöngu við alpagreinar karla. Skfðasambandið réði Magnús Guðmundsson, skíðakennara, þjálfara liðsins. Fyrsta sameiginlega æfing þessa liðs fór fram á Siglufirði í maí í vor. Síðan hafa piltarnir æft undir stjórn Magnúsar og komið saman öðru hverju til sameiginlegra æfinga eða eins og hér segir: Siglufirði 14. og 15. maí, Siglufirði 1.—3. júlí Akureyri 2.—5. sept. Geta má þess, að snjór var á öll þessi tímabil svo árangur varð mjög góður. I haust ákvað stjórn S.K.Í. að fækka um tvo menn í Olympíu- þjálfuninni, en úr þeim 6 sem eftir eru, verða sfðar valdir 4 til þátttöku í Olympíuleikunum, Helztu skíðamót 1968 Ákveðin hefur verið niðurröð- un helztu skíðamóta vetrarins: 27.—28. jan. Þorrmót, ísaf. 17.—18. febr. Skíðamót, Rvík. 9.—10. marz. Hermannsmót, Akureyri. 30.—31. marz. Unglingameis- taramót íslands, Ólafsfirði. Um páska. Skíðamót íslands, Akureyri. Um hvitasunnu. Skarðsmót Siglufirði. Framanskráð mót, að undan- teknu Unglingameistrarmóti hafa verið nefnd „punktamót" vegna þess að eftir frammistöðu kepp- enda á þessum mótum eru kepp- endum gefin stig eða punktar og eftir þeim er mörmum síðan rað- að í ráshópa í alpagreinum á Skíðamóti íslands o. fl. stórum skíðamótum. Unglingameistaramótið sem fram fer á Ólafsfirði er 1. meist aramótið, sem þar fer fram, en skíðaáhugi er þar mikill og al- mennur. Þetta er 3. unglinga- mótið, en hin fyrri tvö þóttu gefa mjög góða raun og takast vel. en það er sú tala keppenda, sem Olympíunefnd íslands hefur ákveðið að senda á Vetrar-Olym- píuleikana. Þann 21. nóvember hélt liðið til Val D’esére íFrakklandi og mun æfa þar í mánuð og taka þátt í mótinu. Þeir sem fóru eru: Magnús Guðmundsson, þjálfari, Björn Olsen, Rvík, Hafsteinn Sigurðs- son, ísaf., ívar Sigmundsson, Ak- ureyri, Magnús Ingólfsson, Ak- ureyri og Reynir Brynjólfsson, Akureyri. Kristinn Benediktsson, sem er einnig í liðinu, gat ekki farið þessa ferð vegna mikilla anna. Strax upp úr áramótum hefj- ast æfingar að nýju, fyrst hér heima, en síðan í Frakklandi og verður æft af kappi fram að leik unum, sem hefjast þann 7. febr- úar n.k. ívar Sigmundsson Islandsmeistari í svigi er meðal þeirra sem æfa. Víkingur og FH jöfn 21 -21 Fram vann Hauka 25-17 Á FYRSTA kvöldi Islandsmóts 1. deildar 1968 urðu hin óvæntu úrslit. Víkingar náðu jöfnu við F.H. 21 mark gegn 21. Var leik- urinn jafn og hörkuspennandi frá upphafi til loka, og Víkingar lengst af yfir í mörkum. FH tókst 4 sinnum að jafna í fyrri hálf- leik, en í hléi stóð 12—11 fyrir Víking. I upphafi siðari hálf- leiks skoruðu Vikingar 3 fyrstu mörkin — og misstu þar að auki vítakast. En gömlu meistararnir tóku sig á jöfnuðu 16:16 og kom- ust yfir 19:17, en allt kom fyrir ekki og Víkingum tókst að jafna FH - Hnuknr ó sunnudaginn Á RÖNGUM upplýsingum voru leikir þeir, sem verða í 1. deiJd- armótinu í handknattleik á sunnu daginn ranglega tilfærðir í blað- inu í gær. Á sunnudaginn kl. 3 leika Valur og KR og síðan Hauk ar og FH (en ekki Haukar-Fram) eins og stóð. Sá leikur var í gærkvöldi. Ekki ráðizt á garðinn þar sem hann er lægstur „Dagskrá" handknattleiks- manna okkar í vetur er afar erfið og ekki er nú ráðizt á garðinn þar sem hann er lægstur. Það er vandfundin erfiðari leikjaskrá en íslenzka landsliðið í karlaflokki hefur við að glíma í vetur. Nýlokið er tveim leikjum við Tékka, sjálfa heimsmeist- arana. í febrúarlok heldur lands- liðið utan og leikur tvo leiki við Rúmena, hinn fyrri 26. febr. í Búkarest en hinn síð- ari 28. febr. í annari borg þar í landi. Rúmenar eru fyrrv. heimsmeistarar og urðu síðast í 3. sæti á HM. A'ð því loknu heldur liðið til V-Þýzkalands og leikur við V-Þýzkalandsliðið tvo leiki, hinn fyrra 1. marz í Múnchen og hinn jsíðari 3. marz í Bremen. V-Þjóðverjar voru í 5. sæti á síðustu HM- keppni. Að þessu erfiða ferðalagi loknu fær landsliðið ekki frí frá keppni nema í mánuð. Þá kemur hingað landslið Dana og leikur tvo landsleiki. Sá fyrri verður 6. apríl og sá síðari 7. apríl. Danir urðu í 2. sæti á sfðustu HM-keppni Liðið fær svo frí frá keppni yfir páskana en heldur utan seint í apríl til Spánar og leikur tvo landsleiki við Spán verja Til gamans má geta þess að landsliðið verður komið heim fyrir H-daginn. á síðustu sekúndum. Morik Jóns Hj. Magnússonar gerðu útslagið á þesisi óvæntu úrslit — og hann skoraði jöfn- unarmarkið rétt í leikslok. Leikurinn var talsvert harðu.r, einkum varnarleilkurinn. Fram- an af t.d. voru öll mörk F.H. skoruð eftir að brotið hafði ver- ið á viðkomandi leitomanni og önniur brot voru ótalin. En liðs- menn FH voru heldur ekki en.glar, þá er Víkingar sóttu. Víkingsliðið kom óvenju hressi legt til leiksins og nú var ekki eins fastlega og áður spilað á Jón og Einar og ungu mennirnir sýndu að í þeim er töggur, eink- um Guðmundur og Páll. Mörk Víkings skoruðu Jón 7, Einar 6, Páll 3, Guðim. 2, Rós- mundur 2 og Rúnar 1. Mörk FH Geir 6 (2). Öi*n 5, Birgir 5, Árni 2, Einar, Þorvald- ur og Gils eitt hver Fram—Ilaukar 25:17 Leikur Fram og Hauka varð aldrei skemmtilegur eða vel leik- inn. Stympingar, ónákvæmni og kæruleysj settu allt of mikinn svip á leikinn. Mikið var um vítaköst í fyrri hálfleik og félkr Framliðinu í skaut 5 slík, en Haukum féll vörnin í mola og öllum sínum ,en Haukar úr öðru sinu. Sá munur skapaði forystu Fram í fyrri hálfleik, sem var 11-7. Um tíma leit svo út í byrjun siðari hálfleiks að Haukar ætl- uðu að velgja Framliðinu undir uggum og komst forskotið í 2 mörk. En það stóð stutt og eftir að óeining kom upp í samband- inu við „innáskiptingar hjá Hautoum féll vörnin í mola og Fram vann 25:17. Fjórum mönnum (2 frá hvor- um) var vísað af velli vegna brota, og fieiri gátu þeir alveg eins orðið. En Reynir dómari missti að nokkru tökin á leikn- um er á leið, enda mátti æra óstöðugan að eltast við öll brot sem framin voru. Skemmtilegust tilþrif voru hjá Gunniaugi sem lók nokkra spretti upp á gamia mátann og skoraði glæsilega. Hann var martóhæstur allra með 7 mörk, Ingólfur 5 (2), Sig. Ein. 5, Gylfi Hjalmars. og Guðjón 3 hvor, Arnar og Gyifi Jóh. 1 hvor. Mörk Hauka: Þórarinn 5, Stefán og Viðar 4 hvor, Þórður 2, Ól. Ól. og Gunnar 1 hvor. Nýir siðir í upphafi leiks FH og Vik- ings skeði hið óvænta. Það var mjmdataka sjónvai^sins. Þegar aUt var tilbúið og leikur n»st- um hafinn var allt stöðvað aft- ur og lið stilltu sér upp. Þetta tafði notokuð — og er vægast sagt furðuleg ráðstöfun, þar sem rúmgóðir gangar eru að baki þar sem vel má taka myndir lang- timum saman án þess að tefj leik ina sjálfa. Aidrei yrði beðið eftir einum og einum leikmanni, og því þá að bíða eftir myndatöku? Og nú virðist upphafin sú regla að ekki megi æða inn á salar- gólfið á götuskóm. Þessu fékk sjónvarpið „áorkað” — eða góðri reglu spillt. Stórir áfangar Á blaðamannafundi með stjórn SKÍ í gær vék Stefán Kristjáns- son að stólalyftunni nýju á Ak- ureyri og sagði að bráðlega yrði lokið við byggingu ca. 1200 m langrar lyftu af svokallaðri T- gerð, þ.e. dráttarlyfta. — Stefán sagði síðan: Stjórn Skíðasambandsins tel- ur að með tilkomu þessara glæsi legu skíðamannvirkja sé brotið blað í sögu skíðaíþróttarinnar í landinu. Hún muni nú verða enn meiri almenningsíþrótt, en áð- ur, jafnframt því sem bezta skiða fólki okkar í alpagreinum eru sköpuð bætt skilyrði til æfinga. Mjög mikið vantar þó enn á að æfingaskilyrði skiðamanna séu komin í viðunandi horf. Lyftur þurfa að koma víðar og ekki sízt eru norrænu greinarnar stökk og ganga illa á vegi stödd, sér- staklega stökkið, en engir góðir stökkpallar eru til á landinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.