Morgunblaðið - 23.12.1967, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
54. árg. 293. tbl. LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1967.______________________________Prentsmiðja MorgunblaSsins
Helen Vlachos:
Flýöi Grikkland
í dulargerfi
— en stjómin segist hafa leyst
hana úr stofufangelsinu
London, 22. des. —- AP-NTB
GRÍSKI blaðaútgefandinn Helen
Vlachos, sem flýði frá Aþenu til
London í gær, hélt fund með
fréttamönnum í dag, þar sem
hún skýrði frá flóttamim.
Skömmu eftir að upplýsit varð
um l«Ann gaf herforingjastjórn-
in út þá tilkynningu, að Helen
Vlachos hefði verið leysá úr
stofufangelsi því, se*n hún hefur
setið í að undanförnu og heinni
væri nú frjálst að fara hvert á
land sem er.
Er Helen Vlachos var sagt frá
tilkynningu stjórnarinnar, sagði
hún, að sér kæmi þetta á óvart,
en það benti til þess að 'hún
þyrfti ekki að bera kvdðíboga fyr
ir örlögum eiginmanns og sona,
sem eftir urðu í Grikfklandi.
Blaðaútgefandinn sagði, að
hún 'hefði dulbúið sig, litað hár
sitt og þannig komizt út úr húsi
sínu og síðan náð í toifreið. Hún
sagði, að allir hefðu vitað að
eitthvað 'hl'yti að gerast og hún
sagði, að byltingartilraun Kon-
stantíns konun'gs hefði verið frá-
munalega illa skipulögð og
dæmd tíl að mishep-pnast.
Frúin var að því spurð, h'verja
hún teldi framtíð Grikklands og
hún svaraði ,að hún hefði enga
trú á þvi, að lýðræði yrði iþar
endurreist. Við þeirri spurningu,
hvort tilraun konungs. bæri vott
um hugdirfisku eða kjánaskap,
sagði ’hún að hugid'jarfar aðgerð-
ir væru í flestum tilfellum kjlána
legar.
Hún sagði, að stjórnin gríska
vildi fá kóng aftur heim og
hann ætti þá hægar um vik að
semja við stjórnina.
Helen Vlachos hefur beðizt
hælis í Bret’andi sem pó'liitis'kur
fló'ttamiað'Uir.
FRÁ miningarathöfninni um [
Harold Holt, foraætisráð-
herra Ástralíu. Á myndinni
siem tekin var inni í St. Páls-
kirkjunni, eru frá vinstri:
Charles prins, landsstjóri
Ástralíu, Cas’ey lávarður og
kona hans og Lyndon B.
Johnson, forseti Bandaríkj-
anma.
Minningarathöfn um Holt
forsætisráðherra Astralíu
Átök innan tékkneska
kommúnistaf lokksins ?
Prag, 22. des. NTB.
í dag var uppi orðrómur
um það í Prag, að Antonin
Novotny, íorseti Tekkósló-
vakíu, stæði nú andspænis
uppreisn innan kommúnista-
flokksins og mundu ýmsir
háttsettir menn í flokknum
hverfa frá störfum áður en
langt um liði. Það fylgir
fregninni, að aðalritari sov-
ézka kommúnistaflokksins,
Leonid Bresjnev, hafi reynt
að koma í veg fyrir að átök
yrðu innan flokksins, en til-
raunir hans hafi aðeins orðið
til þess að fresta því að drægi
til úrslita.
H-aft er eftir áreiðanlegum
beimi'ldum í Prag, að þegar eft-
ir áraimótin muni hefjast harðar
viðræður um forystuna í flokkn
um og þar með í landinu. >á
herma áreiðaniegar heimildir í
Austur-Þýzkalandi, að Novotny
og stjórn hans muni sennilega
'VÍkja innan skamms fyrir yngri
mönnum.
f fréttum tékknesku fréttastof
unnar GETEKA var í dag skýrt
frá ýmsu varðandi stefnuna í
efnahaksmálum. Engin nöfn voru
nefnd, en sagt, að nauðsynlegt
sé að reka skapandi framfara-
stefnu í efnahagsmálum þjóðar-
innar, þar sem í forystu standi
menn, sem hafi nýjar hugmynd
ir og geti tekið nýtt frumkvæði.
Meibiourne, 22. des. NTB—AP
ÞAÐ var lítil jólastemning í
lofti í Melbourne í dag, þrátt
fyrir líflegar jólaskreytingar og
annir. Þúsundir Ástralíubúa
tóku þátt í að minnast Harolds
Holts, forsætisráðherra landsins.
Minningarathöfnin var haldin í
St. Pálskirkjunni í Melbourne,
að viðstöddum tuttugu þjóðhöfð-
ingjum og forsætisráðherrum.
Meðal viðstaddra voru þeir Lyn
don B. Johnson, forseti Banda-
ríkjanna og Charles prins, sem
fulltrúi móður sinnar Elizabet-
ar II.
Athöfnin í kirkjunni, sem tók
um 1800 manns' hófst á hádegi.
Þegar hljómar kirkjuklukknanna
bárust um borgina, námu menn
staðar til þess að votta hinum
horfna virðingu. Uti fyrir kiirlkj
unni hafði margmenni safnazt
saman. Um tvö þúsund manna
lögreglulið var viðbúið úti fyr
ir kirkjunni en tovarvetna var
kyrrð og virtist almenningiur
mjög snortinn. Fyrir guðsþjón-
ustuna hafði hinsvegar banda-
rískur leyniiþjónustumaður fund
ið vopnaðan mann uppi á hiús-
þaki, en hann reyndist þá sjálf-
ur tilheyra leynilögreglunni
bandarísku. í annað sinn tók lög
reglan ungan mann með rilfil,
— en hann reyndist ónýtur, og
maðurinn gat gefið viðuna-ndi
skýringu.
Dauðadómar
í Sovét
— tyrir stríðsglœpi
Moskva, 22. des. NTB.
SJÖ menn hafa verið dæmdir
til dauða eftir löng réttarhöld,
og ákærðir fyrir að hafa tekið
af lifi án dóm-s og laga 4 þús-
und sovézka borgara í Kákasus
í Úkrainu, meðan á þýzku her-
námi stóð þar. Nokkrir aðrir
fengu 15'ára fangelsi. Fieiri slík
mál munu nú í gangi í Sovét-
ríkjunum.
f Leningrad hafa fjóri-r -æenn
Frairnh. á bls. 31
Rúmenar skrifuðu undir
Varsjá, 22. des. — NTB
RÚMENAR hafa nú ^egizt í lið
með öðrum Austur-Evrópuríkj-
um í kröfu þeirra um, að ísrael
flytji herlið sitt frá avæðunum,
sam tekn voru af Aröbum í júní-
styrjöldinni. Jafnframt hefur
krafa kommúnistarikjanna
breytzt að orðalagi og yfirlýs-
ing þeirra felur í sér hvöt til
Arabarikjanna um að viður-
kenna íraeJ.
í opiníberr yfirlýsingu, sem
toirt v-ar í Vars.já í dag segir, að
Rúm'enía og sjö önnur rífei Aust-
ur-Evrópu séu á einu máli um,
að þetta sé algert meginskilyrði
þess, að varanlegur friður geti
náðzt í Austurlöndum nær.
Yfirlýsingin er birt að lok-
inni þriggja da.ga ráðstefnu ut-
anirikiráðherra Sovétrákjanna,
Búlgaríu, Austur-Þýzkalands,
UngVerjalands, Póllands og Júgó
slavíu og að-stoðar-u'tanríkisráð-
herra Rúmemu.
Stjórn Rúmieníu hefur ein og
út af fyrir sig krafizt þess, að
ísrael kallaði herlið sitt frá her-
numdu sviæðunum, en á átta
þj-óða leiðtogafundi kommúnista- I
Fra-mh. á bls. 31
leronymos
ríkisstjóri
erkibiskup,
Grikklonds?
SAGT er, að gríska sltjórnin
íhugi nú möguleika á því, að
skipa hinn aldurhnigna erki-
bislkup Ieronymos, ríkisstjóra
Grikkiands í sfað Zoitakis.
Bisikupinn hefur tekið þátt í
samningaviðræðum við Kon-
stantín fyrir hönd sitjórnar-
Framh. á bls. 31
Hugsanlegt að Johnson forseti
ræði við Pál páfa VI. á sunnudag
— Páfi ítrekar tilboð um málamiðlun
Rómaíborg, 22. des. — AP-NTB
PÁLL páfi VI he-fur emn ítrekað
boð sitt um að reyna að miðla
málum í Vietnam de-ilunni og
U Thant, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna hefur lát-
ið í ljós von um, að Bandaríkja-
stjórn taki því tilboði vel. Hugs-
anlegt er talið, að Lyn-don B.
Johnsion, Bandarikjaforseti,
komi til Rómaborgar á sunnu-
dag og ræði við páfa. Einnig er
talið mögulegt, að hann ræði
við Konstantín Grikkjakonung.
Ekkert hefur þó verið sagt -um
þetta af opinberri hálfu og eng-
inn viðkomandi aðila hefur feng
izt til þess að láta í ljós álit
sitt til eða frá.
Johnson, f-orseti, er á leið heim
frá Ástralí-u, þar sem hann var
viðstaddur minningaratihöfn um
Haroid Holt, forsætisráðherra.
Stjórnmálaifréttaritarar gieta sér
þess ta, að komi J-oíhnson til
Rómar, muni hann ekki aðeins’
ræða um Vietnam við páfa, held
ur og hver verði skipaður erki-
biskup í New York í stað Francis
Spelimann.s, kardinála, sem lézt
snemma í þessum ménuð-i. Er
talið, a.ð Jdhnson sé því mót-
fallinn, að við emlbættinu taki
m-aður, sem er algerlega á önd-
verðum meiði við Bandaríkja-
stjórn í Vietna.m-málinu. Spell-
m.ann, kardináli, sem tíðuim var
talinn í hópi „haukanna" svo
kölluðu, þ.e.a.s. þeirra, sem
vildu fremur herða en lina sókn
ina í Vietnam, vakti mikinn
ágreinin.g og umtal, þega-r hann
um siðustu jól lét s'vo um-mœlt,
að önnur lausn á Vietnam-mál-
inu en alger sigur Bandaríkja-
manna væri óhugsandi.
Páfi setti fram tiliboð sitt um
að reyna mélam-iðlun á sam-
komu kardinála Páfagarðs.
Hann kvaðst hafa a-f því álhyggj-
ur og harma, að ölluim tilboð-
um u-m málamiðlun h-efði verið
vísað á bu.g. Sjálfur kvaðst hann
þeirrar skoðunar, að hægt væri
að finna lausn á þessu ógnar-
lega vandaméli, sem allir gætu
Framh. á bls. 31
»