Morgunblaðið - 23.12.1967, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. DES. 19«7
Jólaboðskapurinn höfðar
til fórnar og friðar
Rœtt við Theunissen erkibiskup, sem ter með œðstu völd
kaþólsku kirkjunnar hér
í LÍTILLI, en vistlegri
setustofu á fimmtu hæð
Landakotsspítala, þar sem
biskupsíbúðin er nú um
stundarsakir, hittum við
erkibiskup Theunissen,
sem kominn er hingað til
lands og fer með æðstu
völd kaþólsku kirkjunnar
á Islandi um sinn.
Bak við breiðar herðar
þessa virðulega og elskulega
kirkjuhöfðingja glitra jólaljós
Reykjavíkurborgar, en sér-
lega fagurt útsýni er yfir
höfnina og austur yfir borg-
ina.
Theuniissen erkibiskup leit
ísland fyrsta sinni í égúst
1966, er hann dva Ldist hér
nokkra daga. Hann hreifst
mjög af landinu og því fólki,
er hann fékk tækifaeri til að
kynnast. Hann hafði um
nokkurt árabil verið góðkunn-
ingi herra Jóhannesar Gunn-
arssonar Hólabiskups og á
kirkjuþínginu í Róm voru
þeir mikið saman.
— Mér fannst ég af homum,
þegar þekkja talsvert til lands
inis ykkar, en auðvitað fann
ég á því vandkvæði fyrir mig
að koma hingað ókunnugur
máli ykkar, memningu og
sögu. Hitt er einlæg ósk mín,
úr því ég er hingað koiminn,
að ég megi stuðla að velfarn-
aði á öllum sviðuun mannlegr-
ar saimhjálpar, ekki síður en
trúanlegum velfamaði. Ég er
mjög þakklætur fyrir hlýjar
og vingjamlegar móttökur,
sem ég hef fengið hér. Ykkar
lútherski biskup, sem ég hef
áður hiftt í Róm, ritaði mér
bréf eftir úfnefningu mina
hingað, og baiuð mig velkom-
inn til starfa hér.
Nú brosir herra erkibiskup-
inn til séra Hákonar Lofts-
somar en hann hefir kynnt
okkur, þessu breiða, einlæga
brosi, sem honum er svo tamt
og fer að tala um bréf, frá
sytur sinni, þar sem hún seg-
ir, að sennilega hafi hann átt
að hverfa upp til íslands, því
hann hefði verið svo hrifinn
af landinu og rætt svo mikið
um það, er hann kom heim
þaðan í fyrta.
Thetmissen erkib.skup hefir
um langt árabil divalizt i
Afríku og dvölin þar tekur
oft mjög á hvíta menn, eink-
um reynir hún á hjartað.
Erkibiskupinn hefir ekki farið
varhluta af þessu. En læri-
feðrunum í Róm fannst hann
enn of ungur til að iáta af
störfum og því fundu þeir
Theunissen erkibiskup
handa honum verkefni hér
norður við heimskautsbaug,
þar sem Joftið er ferskt og
létt.
— En hér hjá ykkur er
hlýrra um miðjan veturinin en
í Hollandi, segir erkibiskup-
inn.
Ég tjái erkibiskupnuim að
erindi mrtt við hann hafi fyrst
og fremst verð að kynna hann
í fáum orðum fyrir lesendum
Morgunblaðsins. Erindið hafi
ekki verið að spyrja hann um
trúanstefnur í hekninuim eða
stjórnarfarsleg átök. Þess
vegna byrjum við á byrjun-
inni eftir þetta góðlátlega
rabb, eins og okkur íslending-
um er svo tamt, að spyrja
hvaðan hann sé og hvað hafi
helzt á daga hans drifi.
Og erkibiskupinn svarar á
sinn látlausa hátt, eiins og
hann væri að kynna sig fyrir
íslenzkum bónda t. d. vestan
af fjörðum. Það er rétt hjá
séra Hákoni, að Theunissen
erkibiskup gæti vel verið kom
inn af vesitfirzkum sægörpum,
hár og herðabreiðtcr, með sinn
sterka svip og köntuðu andlits
drætti. Andlitið er brunnið og
dökkleiltt af margra ára
Afríkusól, en það myndi bera
svipaðan blæ ef það væri veð-
unbarið af Halamiðum eða úr
hákarlalegu undan Hom-
strönidum.
— Ég er fæddur í Scfhimm-
ert í Hollandi 'hinn 3. októ-
ber 1905. Stundaði nám fram
an af theima en nam guð-
fræði í Róm og varð þaðan
dr. í guðfræði. Síðan varð ég
prófessor í heimspeki við há-
skóla heima I Hollandi, en
var síðan sendur þaðan til
að gegna prófessorssitöðu í
Portúgal og þar nam ég
portúgölsku, en hélt árið
1>936 til Afríku, fyrst til
Mósamibic. Síðan var ég kall-
aður heim og var yfirmaður
Montfort-reglunnar bæði í
Frakklandi og Hollandi um
skeið. Árið 1950 var ég út-
nefndur biskup í hinum nýju
ríkjum Afríku og 1950 erki-
biskup og hafði ég aðsetur í
Malawi og 'þar hef ég langst
af divalizt þar til í september
sl.
Þar með höfum við stikl-
að á því stærsta í sögu þessa
kirkju/höfðingja, sem nú sit-
ur hér að Landakoti og stýrir
biskupsdæmi kaþólskra hér.
Ég hefi séð í messutilkynn-
ingu til blaðsins, að Theu-
nissen erkibiskuip muni flytja
messu kl. 12 á miðnætti að-
fangadag jóla. Séra Hákon
Loftsson kvaðs't einmitt iiafa
verið að þýða ræðu erkibisk-
ups, sem hann flytur á ensku,
en séra Hákon mun síðan
flytja hana í þýðingu.
— Ræða erkibiskups á að-
fangadag fjaliar um frið og
samlyndi allra knstinna
manna og hún höfðar beint
til hjartans, sagði sé’-a Há-
kon. — Páfinn hefir farið
þess á leit, að nýársboskapur
kirkjunnar verði heigaður
friði í heiminum. Jólamess-
urnar í Landakotskirkju eiga
að mótast af þeim boðskap.
Sjálfur sagði erkibiskupinn
um ræðu sína:
— Hún er einföld og blátt
áfrarn, en höfðar tid fórnar
og friðar og samíhugar alJra
kristinna manna,
í von um, að þessi boðskap-
ur erkibiskupsims megi ræt-
ast, kveðjum við þennan al-
úðlega kirkjuihöfðingja.
— vig.
Seldi rangt útfylltar
ávísanir í pundum
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
hefur handtekið mann, sem stal
ávísanahefti á Barkleys Bank í
Englandi og hefur hann viður-
kennt að hafa selt úr því fimm
ávisanir, samtals að upphæð
70 £. Avísanirnar seldi hann í
verzlunum í Reykjavík, en þær
voru allar að einhverju leyti
rangt útfylltar.
Athugasemd
frá F.í.
VEGNA fréttar í Morgunbláðinu
í gær um það, að bókasending
til Almenna bókafélagsins, sem
flytja átti til landsins með Flug-
félagi íslands, hefði ekki komizt
í tæka tíð, hefur Sveinn Sæ-
mundsson, blaðafulltrúi FÍ óskað
eftir að taka fram, að AB hefði
átt pantað rými fyrir á þriðju
lest af bókum þann 18. desem-
ber en það var síðasta ferð fyrir
jól, sem þota félagsins var að
hálíu búin til vöruflutninga.
Beði'ð hefði verið eftir þessari
vörusendingu í Kaupmannahöfn
fram að brottfarartíma þotunn-
ar, en hún hefði aldrei komið og
þotan hefði því farið í áætlunar-
flug sitt til Islands án bókanna.
Miklir farþegaflutningar hefðu
verið síðan hjá félaginu og þegar
þessi sending hefði komið daginn
eftir hefði F.í. gert sitt ítrasta
til að koma bókunum heim með
sínum eigin flugvélum og Pan
American.
Kvað Sveinn FÍ harma, hvern-
ig til hefði tekizt, en þar sem
efnt hefði verið til blaðaskrifa
um málið þyki Flugfélaginu rétt
að fyrrgreind atriði komi fram.
Á sunnudag kærði maður til
rannsóknarlögreglunnar vegna
þjófnaðar. Hafði hann verið að
skemmta sér á Hótel Borg og
saknaði þá skyndilega ávísana-
heftist, sem gefið var út á Bar-
cleys Bank í Englandi.
Síðar barst rannsóknarlögregl-
unni ein kæra frá verzlun í
Reykjavík út af ávísun að upp-
hæð 10 £. Rannsókn í málinu
leiddi til handtöku manns nokk-
urs og hefur hann nú viður-
kennt a'ð hafa notað fimm ávís-
anaeyðublöð og gefið út eina
ávísun upp á 30 £ og fjórar upp
á 10 £ hverja, en ávísanimar
seldi hann svo í verzlunum. Ávís
anirnar seldi maðurinn allar við
gamla genginu og voru þær all-
ar rangt útfylltar.
„Víkingornir"
oitur í bókn-
verzlunum í gær
ALMENNA bókafélagið fékk
seint í fyrrakvöld nokkur hundr
uð bækur til viðbótar af „Vík-
ingunum" með flugvél frá Pan
American.
Þegar í ljós kom hér að megin
hluti sendingarinnar varð eftir
ytra, gerði Flugfélagið strax all-
ar tiltækar ráðstafanir til þess
að ná bókunum til landsins og
tókst að fá hluta þeirra fluttan
með Pan American-vélinni.
„Víkingarnir" voru því aftur
á markaðinum í gær og áðeins
fá eintök eftir hjá forlaginu, er
líða tók á daginn.
Nýtt bnnknhús í Stykkishólmi
9. DES. sl .tók útilbú Búnaðar-
bankans í StykkiShólmi í notkun
nýtt búsnæði undir starfsemi
sína.
Útibú þetta var stofnað 1.
júíí 1964 eftir að samningar
höfðu tekizt við Sparisjóð Stykk
ishólims um að hann sameinaði
starfsemi sína Búnaðarbankan-
Um.
Bankaútibúið bjó síðan við
þröngan húsakost í húsnæði því,
sem sparisjóðurinn hafði haft á
leigu, en hafist var handa um
nýbyggingu fyrir útibúið haustið
1965 og lauik byggingafram-
bvæmduim í nóv. sl. '
Hið nýja húsnæði, sem er hið
glæsilegasta í alla staði, er tvær
hæðir og kjallari á 135 ferm.
gólffleti, en 1300 rúmmetra.
Á neðri hæð er afgreiðslusal-
ur bankans, peningageymsla.
viðtalsherbergi útibússtjóra og
snyrti'herbergi. í kjallara eru
skjala- og eyðublaðageymslur,
kaffistofa starfsfólks og hitaklef
ar. Á efri hæð eru skriistofur
sveitarstjórnar Stykkishólms-
hrepps.
Uppdrætti af húsinu gerði Sig
urður Geirsson, Teiknistofa land
búnaðarins en byggingarfram-
kvæmdir annaðist Trésmiðja
Stykkishólms ásamt ýmsum iðn
aðarmönnum í Stykkishólmi.
Útibússtjóri er Ólafur Guð-
mundsson, Stykkishólmi.
Hægviiri og norð-
austlæg átt á jólum
MORGUNBLAÐIÐ hafði tal af^
Veðurstofunni i gær og spurðist
fyrir um væntanlegt veður á jól-
unum. Ekki hafði þá verið spáð
lengra en fram á aðfangadag.
Veðurspáin fyrir aðfangadag
var á þá leið, að hægviðri yrði
vestanlands, en annars staðar á
landinu norðaustlæg átt. Líklegt
var talið, að bjartviðri yrði á
Suðurlandi og Vesturlandi, en
éli var spáð Norðanlands og
suður á Austfirði. Gert var ráð
fyrir að hiti yrði víðast hvar á
landinu rétt undr frostmarki.
Þá taldi veðurfræðingur sá,
sem Mbl. talaði við, að frekar
væri líklegt að hlýnaði á jóla-
dag og annan í jólum, en að
sjálfsögðu var spáin fyrir þá
daga með fyrirvara.
Margir
á biðlista
SJALDAN eða aldrei hefur ver-
ið jafn langur biðlisti hjá að-
göngumiðasölu Þjóðlei'khússi%s
fyrír miða á frumsýningu. Eins
og fyrr segir í blaðinu, verður
á annan í jólum frumisýníng í
Þjóðleikhúsinu á gamanleiknum
Þrettándakvöld eftir Shake-
speare. Fyrir löngu er uppselt
á þá sýningu, en um þrjú hundr-
uð hafa látið skrifa nafn sitt á
lista ef einhverjum miða væri
skilað aftur. En færri fá miða
en vílja og margir verða frá að
hverfa.
Nýja bankahúsið í Stykkishólmi