Morgunblaðið - 23.12.1967, Side 3
3
H I , : { í .Ií>A -■ • Jfi i I tJíiJiOí/
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. DES. 1967
Brynjólfur Jóhannesi-jan í einu Ieikatrðanna.
Jólaleikrit Leikfélagsins er:
,,Koppalogn"
— eftir Jónas Arnasori
KOPPALOGN nefnist jólaleikrit
Leikfélags Reykjavikur og er
eftir Jónas Árnason. Verður
leikritið frumsýnt hinn 29. des-!
ember nJr. í Iðnó. Leikstjóri er
Helgi Skúlason, en leikmyndir
eru eftir Steinþór Sigurðsson.
Leikendur * eru 12 talsins,
Steindór Hjörl-ei'fsson, sem fer nú !
með nýtt hlutverk í fyrsta sinn !
frá því að hann réðst til sjón-
varpsins fyrir tveimur árum,
BrynjóMuir Jóhannesison,' Jón
Aðils, Jón Sigurtojörnsson, Guð-
mundur Pálsson, Borgar Garð-
arsson, Pétur Einarsson, Margrét1
Ólaifsdóittir, Sigriðiur Hagalín,
Sigmundiur Örn Arngrímsson, 1
Guðmunduir Erlendsson og Hrafn
hildur Guðmunidsdóttir ,sem er
nýliði hjá LR., en hún er nýkom-
in heim eftir leiklistarnám í
Englandi.
Koppalogn er þriðja leikrk
Jónasar, sem sýnt er hér á sviði. j
Leikfélagið sýndi Delerium i
Bubonis við fádæma vmsældir
fyrir fáeinum árum, og Þjóðleik-
húsið sýndi Járnhausinn á 15 éra !
afmæli sínu, einnig við ágætar
undrtektir. Æfingar á Koppa-
logni hafa staðið yfir frá því í
október—nóvember.
Leikritið er í tveimur þáttum,
og gerist annar þátturinn við
sjávarsíðuna skömmu eftir heim-
styrjöldina fyrri, en hinn gerist
upp til sveita nú á dögum. Að
sögn Sveins Einarssonar, leik-
hússtjóna, er hér um að ræða
gamansamar þjóðlífslýsingar,
rammíslenzkar í gerð, en verða
eins og heimurinn í hnotskurn.
Jónas hefur verið viðstaddur
margar æfingar á leikriti sínu,
og gert talsverðar breytingar á.
því þar í samráði við leikstjór-
ann.
Koppalögn er eitt af þremur
íslenzkuim leikritum, sem tekið
er til sýningar á þessu leikáiri,
auk Fjalla-Eyvindar, en það var
einnig sýnt í fyrravetur. Tvö
leikrirt eru nú í æfingu hjá Leik-
félaginu, — Sumarið 37 eftir
Jökul Jakobsson, en leikstjÓTÍ
þar er Helgi Skúlaison og leik-
myndir gerir Steinþór Sigurðs-
son, og ennfremur Hedda Gabler
eftir Iixsen í nýrri þýðingu Árna
Guðnasonar. Leikstjóri eir Sveinn
LAX er var merktur sem göngu
seiði í Laxaeldisstöð rikisins vor
ið 1966, veiddist nýlega við
Vestur-Grænland og er þetta í
fyrsta sinni, sem slíkt gerist,svo
vita ð sé. Mbl. barst i gær frétta-
tilkynning frá Veiðimálastofnun-
inni, en þar segir:
„Veiðimálastofnuninni hefur
nýlega borizt merki af laxi, sem
veiddist við Grænland í haust,
og er það fyrsti íslenzki laxinn,
sem veiðst hefur við Grænland
svo öruggt sé. Laxinn var merkt
ur sem gönguseiði í Laxeldisstöð
ríkisins í Kollafirði 11. maí 1966
og var þá 15 sm. að lengd. Lax-
inn veiddist í september við
kaupstaðiinn Sukkertoppen á
Vestur-Grænlandi (65°25’N og
52°50’V), en hann liggur á svip-
aðri breidd og Patreksfjörður
og er um 900 km norður af suð-
urodda Grænlands eftir strand-
línu. Laxinn var 65 til 69 sm.
að lengd og vóg 2,5 kg. slægður
en með haus. Er hann af stærð
laxa, sem algengust er í Græn-
landsveiðunum og hafði hann
dvalizt tvö sumur í sjó eins og
flestir laxanna, sem veiðast við
Grænland. Laxar, sem eru eitt
ár í sjó eins og rúmlega helm-
ingur íslenzka laxastofnsins,
hafa ekki veiðst við Grænland.
Vorið 1966 voru merkt um 8500
gönguseiði á vegum Veiðimála-
stofnunarinnar.
í síldveiðihrotunni seint í nó-
vember véiddist lax með síld-
inni fyrir Austurlandi frá um
Einarsson, en leikmyndir hef-
ur norskur leikmyndateiknari,
Snorrie Tindberg að nafni, gert.
Sýningair standa nú yfi r é
Indíánalei'k, og hefur hann verið
sýndur 18 sinnum við vaxandi
vinsældir, að sögn Sveins Einars-
sonar. Þá er einniig veri að sýna
barnaleikritið Snjókarlinn okkar
eftir Odd Bj-ör nsson, og verða
sýningar á því á annan í jólum
og nýársdag.
80 til 120 sjómíiur austur af
landinu. Er vitað um nokkra
báta, sem fengu frá fáeinum og
allt upp í 30 laxa í kasti. Þessi
lax hefur dvalizt í sjó frá því
síðastliðið vor og er 44—50 sm.
að lengd og 1 kg að þyngd. Skoð
að hefur verið hreistur af nokkr
um löxum og hafa þeir dvalizt
þrjú ár í Sjó. Ekki er vitað um
frá hvaða landi laxar þessir
eru ættaðir. Er þetta í fyrsta
skiptið, sem Veiðimálastofnun-
inni hefur borizt vdtneskja um
lax af nefndri stærð, sem veidd-
ur hefur verið í sjó hér við
land.“
Jólnsvipur
ú Stykkishólmi
Slykkishólmi, 20. desember.
JÓLASVIPUR er nú að færast
á Stykkishólm. Verzlanir og ein-
staklingar sitja nú mislitt og ým
islegt fallegt jólaskraut við hý-
býli sin, og setur þetta mikinn
svip á bæinn. Þá hefur hreppur-
inn komið fyrir fallegu jólatré
í miðbænum og var kveikt á því
í kvöld.
Stykkisihólmshreppur hefur nú
flutt skrifstofur sínar á efri hæð
í hinu nýja húsi Búnaðarbank-
ans og fær þarna stór og vi,st-
leg salarkynni fyrir starfsemi
sína. — FréttaritarL
„StjiirmE-
fræði gerð
auðskilin44
„STJÖRNUFRÆÐI gerð auð-
skilin" nefnist ný bók, eftir
Jónás S. Þorsteinsson kennara.
Undirtitill er „Siglt og flogið
eftir vitum loftsins". Bókin er
aðallega ætluð verðandi skip-
stjórnarmönnum og flugmönn-
um.
Höfundur segir m.a. í formála:
„Vegna fjölda askorana frá sigl-
ingafræðingum, flugmönnum,
skipstjórnarmönnum og nem-
endum mínum, var þessi bók
skrifuð. Ýmis tækniorð, sem not
uð eru af sigliiígafræðingum í
flestum löndum, hafa ekki ver-
ið þýdd. Bókin er þannig unnin
að allt, sem að gagni má koma
í sambandi við himinhnattaat-
huganir á siglingunni eða á flug
leiðinni er tekið á fljótasta, létt-
asta og öruggasta hátt. Aðeins
þarf að kunna barnaskólareikn-
ing til að geta gert þær athug-
anir, sem lýst er í bókinni."
Bókin er 100 bls. að stærð. í
henni er fjöldi mynda og teikn-
inga efninu til skýringa, Útgef-
andi er ísafold.
r
Oknyttnhverii
í Reykjnvík
LÖGREGLUNNI hafa að undan-
förnu borizt ítrekaðar kvartanir
vegna þjófnaða og skemmdar-
starfsemi unglinga á Skólavörðu-
holtinu. Er þarna um að ræða
nokkurn hóp unglinga á aldrin-
um 12 til 15 ára og venja ungl-
ingarnir komur sínar í nýbygg-
ingu Iðnskólans, þar sem þeir
virðast hafa nokkurs konar
bækistöð.
Það eru aðallega kaupmenn á
svæðinu, sem hafa orðið fyrir
barðinu á óknyttum þessara
unglinga, sem valda oft miklum
skemmdum í innbrotum sínum.
Eru jafnvel dærni þess, að ungl-
ingarnir leggist út um nætur og
eru þeir þá iðnir mjög við
óknyttastarfsemi sína.
Fyrir nokkru kom lögreglan
svo að þremur unglingum í ný-
byggingu Iðnskólans, sem voru
undir áhrifum áfengis. Höfðu
þeir stolið Carlsberg-bjór í tog-
araafgreiðslunni og bergt á hon-
um i fylgsininu með fyrrgreind-
um afleiðiingum.
Motmæla
margföldun
fasteignomots
MBL barst í gær svohljóðandi
tilkynning frá Húseigendafélagi
Reykjavikur:
Stjórn Húseigendafél. Reykja
víkur ítrekar fyrri ályktun um
mótmæli gegn margföldun gild-
andi fasteignamats við virðingu
á fasteignum til eignaskatts, og
skorar á Alþingi að fella fram-
komna tillögu um níföldun fast-
eignamatsins í þessu skyni.
Engin trygging hefur verið
gefin fyrir því, að fyrningarfrá-
dráttur til skatts vegna fast-
eigna verði miðaður við nífalt
fasteignamat, en það ætti að
vera í rökréttu samhengi við
álagningarhækkunina, verði hún
lögfest.
UNDANFARIÐ hefur færð á
þjóðvegum landsins verið með
afbrigðum góð, en í gær tók að
snjóa á Norðurlandi og færð um
leið að byngjast. Nokkuð mikið
er um bleytur í vegum fyrir
norðan og Múlavegur til Ólafs-
fjarðar var í gær orðinn ófær.
Einnig var vegurinn yfir Holta-
vörðuheiði orðin ill yfirferðar
og var búizt við að hann teppt-
ist algjörlega. ,
STAKSTEII\I/VR
Þung spor
Á miðvikudag fóru fram kosn
ingar í nckkrar nefndir á Al-
þingi. Venjulega vekja slíkar
kosningar enga sérstaka efiir-
tekt en að þessu sinni beindist
athygli manna sérstaklega að
kcsninu í stjórn Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs. Þar hefur full-
trúi Alþýðubandalagsins verið
Björn Jónsson. En Björn hefur
ekki sótt þingflokksfundi Al-
þýðubandalagsins það sem af er
þessum mánuði, eftir atburðina
á miðstjórnarfundi Alþýðu-
bandalagsins. Og siðustu dagana
áður en þessi kosning fór fram
gætti töluverðrar taugaspennu í
hópi þeirra þingmanna Alþýðu-
bandalagsins, sem enn teljast til
þingflokka hans. Áttu þeir að
kjósa Björn eða áttu þeir að
kjósa einhvern annan. Þessi
spurnin þvældist fyrir þessum
heiðursmönnum fram á síðustu
stund. Þeir höfðu uppi ýmsa til-
burði til þess að fresta vandan-
um, en stóðu þó frammi fyrir
honum að lokum. Hugarstríð
þingflokksformannsins var mik-
ið. Hann vissi að það mundi
mælast mjög illa fyrir í herbúð-
um stuðningsmanna sinna, ef
Björn yrði kosinn. en hann gerði
sér líka grein fyrir þvi, að ef
Björn yrði ekki kosinn og þar
með brotið samkomulag, sem
gert var í þingflokki Alþ.bl. fyrr
i haust, mundi að líkindum sjóða
endanlega upp úr. Þingflokks-
formaðurinn og fylgdarmenn
hans stóðu því frammi fyrir
tveimur kostum og báðum ill-
um. Þeir völdu þann, sem þeir
töldu að mundi skapa þeim
minni vandræði. Þeir kusu
Björn. F.n ekki er ólíklégt, að
hendur sumra í þeim hópi hafi
skolfið dálítið þegar þeir merktu
seðil sinn þeim bókstaf, sem
veitti Birni atkvæði. Það voru
þung sþor fyrir suma Alþýðu-
bandalagsmenn á miðvikudaginn.
Blikur á lofti
Sagt er, að ýmsar blikur séu
á lofti innan Framsóknarflokks
íns um þessar mundir og að til
tíðinda kunni að draga á flokks
þingi hans snemma á næsta ári.
f kosningabaráttunni sl. vor
sagði einn þingmaður Framsókn
arflokksins, að stjórnartimabil
núverandi ríkisstjórnar hefðu
verið ár „hinna glötuðu tæki-
færa“. Margir Framsóknarmenn
telja nú, að haustmánuðirnir
hafi verið tímar „hinna glötuðu
tækifæra" Framsóknarflokksins
og þeir kenna Eysteini Jónssyni
um. Framsóknarmenn hafa
aldrei þolað til lengdar menn,
sem þeir hafa valið til forustu
Á sínum tíma viku þeir Jónasi
frá Hriflu frá án nokkurra orða
lenginga 'og vitað er, að Her-
manni Jónassyni var það á móti
skapi að láta af flokksfor-
mennsku Framsóknarflokksins,
þegar Eysteinn tók við. Þegar
þing kom saman í haust voru
Framsóknarmenn vonglaðir
mjög. Eysteinn var búinn að
gera bandalag við Lúðvík og
þeir voru þess fullvissir, að þeir
mundu komnir í ráðherrastóla
áður en árið væri liðið. En það
fór á annan veg eins ©g allir
vita. Samsæri Eysteins og Lúð-
víks gegn hagsmunum þjóðarinn
ar fór út um þúfur og Fram-
sóknarmenn telja það tækifæri,
sem þeir héldu sig hafa í haust
endanlega runnið út í sand-
inn. Þess vegna er nú röðin kom
in að Eysteini að ganga þá braut,
sem þeir Jónas og Hermann hafa
troðið á undan lionum.
íslenzkur lax veiðist
við Grænland