Morgunblaðið - 07.01.1968, Síða 28
AUGLYSINGAR
5ÍMI 22-4-8D
Enginn ís sjáanlegur
frá Hornbjargsvita
Svipað veður í dag
SAMKVÆMT upplýsingum frá
veðurstofunni var enginn ís sjáan
legnr frá Hornbjargsvita í gær,
utan það, sem lipgur í landi, —
auður sjór úti fyrir og ekkert á
siglingaleið.
Hér er um breytingu að ræða
frá því á föstudag, því að þá til-
kynnti Hornbjargsviti: Mikið ís-
rek á siglingaleið, spangir og
stakir jakar. ísbreiða allt að kíló-
metra með allri strandlengjunni,
sem sést.
Búizt var við svipuðu veðri í
dag og var í gær, vindi miili aust-
urs og norð-austurs og éljum á
annesjum fyrir norðan og á víð
og dreif austanlands og heldur
kólnandi en hitt.
í gærmorgun var mesta frost í
nágrenni Blönduóss. 10 stig á
Hjaltabakka. Meðan þessi átt
helzt, má frekar búast við, að
ísinn minnki heldur en hitt.
ÓM
Fimm bátar munu
róa frá Cyrarbakka
Eyrarbakka, 6. janúar. slátrun fram hér á Eyrarbakka
EINS og sakir standa er nú ekki og einnig nokkur sauðfjárslátr-
róið frá Eyrarbakka, en líkur eru un.
á, að héðan muni ganga fimm
bátar á vertíð og verða trúlega
með troll fram að netatímanum.
Veður er ágætt núna, hæg norð
austan átt og snjólítið, og vægt
frost. Margir hafa farið héðan
bæðí í Straumsvík og í Búrfell
svo að karlmenn hafa ekki verið
atvinnulausir, en hins vegar hef-
ur verið almenn atvinnuleysi hjá
þeim konum, sem unnið hafa
frysti'húsinu, lengst af frá því i
haust.
Þó skapa'ði það nokkra vinnu
hér, að Kaupfélag Árnesinga hóf
hér í fyrsta skipti stórgripaslátr-
un á eigin vegum og fór öll sú
Nýússólin sést
í fyrstn sinn
Hólmavík, 6. jan.:
HÉR ER gott veður í dag og
við sjáum nýjárssólina skína
fyrsta sinn á þessu ári og það er
létt yfir fólki. Jólin hafa verið
indæl hjá okkur. Hér kom nátt
úrlega kuldakast eins og alls
staðar á landinu og komst frost
ið niður í 16 eða 17 stig.
Skólafólk og vertíðarfólk, sem
kom hingað yfir hátiðarnar er
nú aftur farið og allt að færast
í sitt venjulega horf.
— Andrés.
Bntnrnir
bíðo byrjnr
Neskaupstað 5. janúar.
Hér bíða margir bátar byrjar
en ekki hefur gefið á sjó að heita
má frá þvi fyrir hótíðir. Hér er
um sffidarbáta að ræða og hafa
þeir allir næturnar um borð.
Hér er nú snjókoma. Ockdskarð
var fært í gær en búast má við
að það sé þegar teppt eða tepp-
ist í dag.
Ásgeir.
Róið á
Ólafsfirði
Ólafsfirði, 6. janúar.
GUÐBJÖRG og Þorleifur eru í
fyrsta róðri í dag. Frá því fyrir
áramót hefur verið hér norðan-
átt og oft hvass með mikilli snjó-
komu og er þetta fynsti dagur-
inn, sem hægt hefur verið að
fara á sjó.
Það íshröngl, sem hér var með
fjörum, er að hverfa.
— Jakob.
<$>-
Verzlunarbcskur konungsverzlunar-
innar einangrun í Ingólfs apóteki?
GRUNUR liggur á að í húsi
því er Ingólfs apótek er nú, sé
mikill fjársjóður bóka milli
þils og veggja. Bækur þessar
eru gamlar verzlunarbækur,
sem jafnvel eru frá tímum
kóngsverzlunarinnar, og not-
aðar voru sem einangrun í
útveggi hússins, er það
Bökræðuforsend
ur stjórnurskiptu
ÞEIR dr. Bjarni Benediktsson,
forsætisráðherra og Eysteinn
Jónsson, formaður Framsóknar-
flokksins ræða um forsendur
stjórnarskipta í útvarpsþætti
Björgvins Guðmundssonar, Á rök
stólum. Þættinum verður útvarp-
að annað kvöld, mánudagskvöld
og hefst hann kí. 20,45.
var reist skömmu eftir alda-
mótin. Upplýsingar þessar
koma fram í grein, er Árni
Óla, fyrrum ritstjóri ritar í
Lesbók Mogunblaðsins og
fylgir blaðinu í dag. Mbl.
hefur leitazt við að fá frekari
vitneskju um þetta atriði og
stendur fullyrðing Árna enn
óhögguð.
Árni Óla hefur tjáð MM., að
hann haldi að bækur þessar séu
frá kóngsverzluninni í Örfirisey,
eða frá kóngsverzluninni síðari,
eT konuingur hafði tekið við Al-
menna verzlunarfélaginu. Upp-
lýsingarnar um þetta hefur hann
frá verzlunarmanni hjá Duus-
verzlun, sem nú er látinn, Hans
Hoffman, að nafni. Duusverzlun
notaði húsið, sem þurrkhús og
munu bækurnar hafa verið til
trafala við byggingu hússins og
því notaðar tíll einangrunar.
Bækur þessar gætu verið mikill
fróðleiksbrunnur um verzlunar-
sögu íslands, ef heilar og ó-
skemmdar reynast.
Við höfðum tal af Guðna Ól-
afssyni, apótekara, en er hann
flutti í húsið með verzlun sína
árið 1955, lét hann gera gagn-
gerar breytingar á því, en sam-
kvæmt upplýsingum hans var
ekki hreyft við útveggjum, held
ur aðeins húsið klætt að ínnan.
Ennfremur hefur húsasmíða-
meistarinn Júlíus Jónsson, sem
framkvæmdi verkið staðfest, að
hvorki hann né menn hans hefðu
orðið varir við skræður eða blöð.
Ennfremur hefur Tryggvi Ófeigs
son, einn hluthafa í Aðalstræti 4
h.f., staðfesti að eftix að húsið
komist í eigu hlutafélagsins hafði
það ekki gert breytingar á því
á neinn hátt.
Áður en Ingólfs apótek flutti
í húsið, var þar til húsa Kaffi-
bætisverksmiðja O. Johnson &
Kaaber. Hjalti Jónsson verk-
smiðjustjóri tjáði Mbl., að 8U
þau ár, sem fyrirtækið hefði ver
Framhald á bls. 27.
Kviknaöi í kjallara-
íbúð á Patreksfiröi
Talsverbar skemmdir af sjó og reyk
Patreksfirði, 6. jan.:
I MORGUN kl. 4,30 var slökkvi
liðið kallað að Aðalstræti 23. —
Hafði kviknað þar í íbúð í kjall
ara. Slökkviliðinu tókst að ráða
niðurlögum eldsins á klukkutíma
o? urðu skemmdir talsverðar af
sjó sem dælt var á eldinn, og
reyk. Um eldsupptök er ókunn-
ugt, en talið er, að kviknað hafi
í miðstöðvarklefa.
Á efri hæð urðu einnig tals-
verðar skemmdir af reyk, því að
gat brann á loft meðfram skor-
steini og komst reykur á efri
hæðina. Húsið er steinhús með
timburloftum.
í kjallara bjó Sverrir Ólafsson
ásamt ungum hjónum, sem höfðu
nýreist bú. Mun innbú hafa ver-
ið vátryggt nema hjá ungu hjón
unum, og hafa þau því orðið fyr
ir verulegu tjóni.
Hér er indælisveður. Fyrir
jólin var mikið skreytt hérna og
stendur sú skreyting enn.
— Trausti.
Stöðugir fundir
um fiskverðið
YFIRNEFND Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins er á stöðugum fund
um, en ekki var að vænta verð
ákvörðunar fyrr en nú í vik-
unni, eftir þeim upplýsingum,
sem Mbl. fékk í gær.
Þá komu samninganefndir sjó
manna og útvegsmanna sam-
an í gær kl. 14 að ræða báta-
k j arasamningana.
Danskir lögreglu-
menn væntanlegir
Rannsaka ný atriði í Efmo Nielsen málinu
DANSKIR lögreglusérfræðingar
eru væntanlegir hingað til lands
á næstunni, til framhaldsrann-
sóknar á máli Elmo Nielsens,
danska forstjórans sem dæmdur
var fyrir að kveikja í verksmiðju
sinni til að fela misferli í bók-
haldi. Viðskipti hans við Pál Jón
asson, frá Lambastöðum hafa ver
ið rannsökuð úti í Danmörku að
undanförnu, og Þórður Björns-
Hagiaustá Noröurlandi
Sauðárkróki, 5. janúar.
TÍÐ hefir verið einkar óstöðug
í vetur og að undanförnu hefir
verið hér barðneskjuveður. Víð-
ast hvað í héraðinu er allmikill
snjór og víða harðfenni. Skiptist
þetta nokkuð niður á ákveðin
svæði í sveitum Skagafjarðar, en
víða er þó afar jarðlítið fyrir
hross og víðast hvar er alveg
jarðlaust fyrir sauðfé.
Bændur hafa sums staðar orð-
ið að taka hross á gjöf, sem er
óvenju snemmt. — Jón.
son, yfirsakadómari, sagði Morg
unblaðinu, að einhver ný atriði
hefðu komið fram, sem bezt væri
komist fyrir hér á Iandi.
Viðskipti Páls við Nielsen, eru
enn í endurskoðun hjá Ragnari
Ólafssyni og hjá tollyfirvöldum,
og málið hefur enn ekki verið
sent saksóknara.
Einn bntur rerí
frö Ólofsvík
Ólafisvík, 6. jan.
EINN bátur reri héðan með línu
í gær og fékk 8 tonn. Aðrir bát-
ar hafa ekki róið ennfþá, en héð-
an verðúr væntanlega gerður út
svipaður fj'öldi báta og undan-
farin ár, en þó munu fleiri fara
á troll en áður. — Hinrik.