Morgunblaðið - 28.02.1968, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 196«
Bifreiðastjórar
Gerum við allar tegundir
bifreiða. — Sérgrein hemla
viðgerðir, hemlavaraíhlutir.
HEMLASTILLING H.F.
Súðavogi 14 - Sími 30135.
Útsala
Lambsullar-rúllukraga-
peysur 295 kr. Stretchbux-
ur 195 kr. Hrannarbúðirnar
Hafnarstr. 3, s. 11260, Skip-
h. 70, s. 83277, Grensásv. 48
s. 36999.
Loftpressur
Tökum að okkur allt múr-
brot, einnig sprengingar.
Vélaleiga Símonar, sími
33544.
Píanó til sölu
Gott, ódýrt píanó til sölu.
Uppl. í síma 15601.
Til sölu
Ævisaga Árna Þórarms-
sonar eftir Þórberg Þórð-
arson.
Uppl. í síma 34222 eftir kL
6.
Ytri-Njarðvík
2ja herbergja íbúð til
leigu.
Uppl. í síma 1493.
Takið eftir
Saumum skerma og svunt-
ur á barnavagna. Höfum
ákiæði.
Öldugötu 11, HafnarfirðL
Sími 50481.
Bílskúr óskast til leigu
Uppl. í síma 30560.
Til sölu
er ’66 BSA mótorhjól 650
cc.
Uppl. í síma 35541.
Bens ’55
til sölu til niðurrifs.
Uppl. í síma 34784 á
kvöldin.
3ja herb. íbúð
óskast til leigu fyrir 1.
júní fyrir 5 manna fjöl-
skyldu. Reglusemi og
góðri umgengni heitið. Til
boð sendist Mbl. merkt:
„2939“.
Bílkerra til sölu
Uppl. í síma 41232.
Tapað
Loðskinnsslá (kape) tap-
aðist frá Hótel Loftleiðum
að Goðheimum, aðifaranótt
sunudags sl. Sími 23326.
Fundarlaun.
Röskur maður
óskar eftir vinnu, hálfan
daginn, við skrifstofu-
starf, lagerstörf, útíkeyrslu,
innheimtu o.fl. Svar send-
ist bl. merkt: „2940“.
Mótorrafsuða
Óska eftir að kaupa mót-
orrafsuðuvél 200—300
amp. Sími 30935.
í DAG hefjast föstumessur víðast hvar í kirkjum landsins. Þá
syngja menn Passíusálma séra Hallgríms Péturssonar, og er i
því sambandi ekki úr vegi að birta hina gamalkunnu mynd
sálmaskáldsins, ásamt upphafsversi Passiusálma, sean er svo-
hljóðandi:
„Upp, upp mín sál og allt mitt geð,
upp mitt hjarta og rómur með,
hugur og tunga hjálpi tiL
Herrans pínu ég minnaSt vil“.
Hallgrímskirkja
Föstumessa í kvöld kl. 8:30.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson.
Dómkirkjan
Föstumessa í krvöld
Jón Auðuns.
Háteigskirkja
Föstuguðs'þjónusta í kvöld
kl. 8:30. Séra Jón Þorvarðs-
son.
Laugameskirkja
Föstumessa í kvöld kl. 8:30.
Séra Garðar Svavarsson.
Neskirkja
Föstumessa í krvöld kl. 8:30,
Séra Jón Thorarensen.
Langholtskirkja
FöSt’umessa í kvöld kl. 8:30.
Séra Sigurður Haukur Guð-
jónsson.
Fríkirkjan í ReykjavíK
Föstumessa í kvöld kl. 8:30.
Séra Þorsteinn Björnsson.
FRETTIR
Kristniboðssambandið
Almenn samkomia í kvöld kl.
8.30 í kTÍstniboðshúsinu Bet-
aniu. Föstuhugleiðing: Jóíhannes
Sigurðsson. Allir velkomnir.
Kvennadeild Borgfirðingafé-
lagsins
heldiur fund þriðjudaginn 5.
marz ’kl. 8:30 í Hagaskóla. Frök-
en Vigidís Jónsdóttir, skólastjóri
Húsmaeðraskólans mætir á fund
inum.
Sjáifstaeðiskvennafélagið Eygló,
Vestmannaeyjum heldur fund í
saunkomúhúsi Vestmannaeyja
miðvikudaginn 28. febrúar kl. 9.
Björn Guðmundsson talar um
lestur.
Húnvetningafélagið
Þritugasta árs'hátíð félagsins
verður haldin að Hótel Sögu
(Súlnasal) föstudaginn 1. marz,
og hefst með borðhaldi kl. 19:30.
Fjölbreytt skemtmtiskrá. Að-
göngumiðar fást í skrifstofu fé-
lfgsins Laufásveg 25 (ingholts-
strætismegin) miðvikudaginn 28
þ.m. kl. 20—22. Eftir miðviku-
dag veitar upplýsingar í síma
33268.
Boðun Fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma að Hörgs-
hlíð 12, miðvikudag kl. 8.
Frá Kvenstúdentafélagi Is-
Iands.
Fundur verður haldinn í Þjóð-
leiklhúskjallaranum fimimfudag-
inn 29. febrúar kl. 8:30. Fundar-
efni: Þættir um heilsuvernd.
Hulda Sveinsson læknir.
Frá Kristniboðsfélagi kvenna
Aðalfundurinn verður fimmtu
daginn 29. febrúar á venjuleg-
um stað og tím:a. Stjórnin-
AÐALFUNDTJR
Áfengisvarnarnefndar Kvemia
í Reykjavík og Hafnarfirði
verður haldinn fimmtudaginn
29. febrúar kl. 8:30 í Aðalstræti
12 (uppi).
Alþjóðlegur bænadagur kvenna
er föstudaginn 1. marz. Sam-
koma verður í Fríkirkjunni í
Reykjavík kL 8:30 og víða úti
um land.
Árshátíð Sjálfsbjargar, Reykja-
vík
verður í Tjarnarbúð 9. marz.
Rauði Kross íslands vill góð-
fúslega minna fólk á söfnun þá
er nú fc’- fram til handa bág-
stöddum í Viet Nam. RKÍ.
Kvenfélag Hailgrímskirkju
heldur fyrsta fund sinn í hinu
nýja félagsheimili í norðurálmu
kirkjunnar fimmbudagmn 29.
febrúar kl. 8,30. öldruðu fólkL
körluim og konum er sérstak-
lega boðið. Strengjasveit úr Tón
listarskólanum leikur. Svava
Jakobsdóttir rithöfundur flytur
frásöguþátt. Kaffi. (Gengið inn
um norðurdyr). .
Austfirðingar
í Reykjavík og nágrenni, Aust-
firðingamótið verður í Sigtúni
laugardaginn 9. marz. Nánar aug-
lýst síðar.
Gamalt og gott
Orðskviðaklasi
Orðskviða-Klasi.
29. Upp á vöxtinn, afl og hreysti
ökki er vert að nokkur treysti,
þiví heitir það heiimskan ein.
Spakmælanna ég las í letri,
lýðir sögðu: víst er betri,
Lukkan, en þau löngu bein.
(ort á 17. öld).
í dag er miSvikudagur 28. fekrúar
og er þaS 59. dagur ársins 1968.
Eftir lifa 308 dagar. Öskudagur.
Nýtt tungl. Góutungi. Árdegisiiá-
fiæSi kl. 5:47.
Fyrir því látum vér ekki hugfall-
ast, en Jafnvel þótt vor ytri maSur
hrörni, þá endurnýjast dag frá degi
vor innri maður. (n. Kor., 416).
Upplýslngar um læknaþjðnustu í
bnrginni eru gefnar í sima 18888,
símsvara Læknafélags Reykjavík-
ur.
Slysavarðstofan í Heilsuverndar-
stöðinni. Opin allan sólarhringinn
— aðeins móttaka slasaðra —
sími: 2-18-30.
Læknavarðstofan. Opln frá kl. 5
síðdegis til 8 að morgni. Auk þessa
nlla helgidaga. — Síml 2-12-30.
Neyðarvaktin rsvarar aðeins á
virkum dögum frá kl. 8 til kl. 5,
eími 1-15-10 og laugard. kl. 8—1.
Ráðleggingastöð Þjóðkirkjunnar
um hjúskaparmál er að Lindar-
götu 9, 2. hæð. Viðtalstími læknis
miðvd. 4—5, viðtalstími prests,
þriðjud. og föstud. 5—6.
Kvöldvarzla
í lyfjabúðum í Reykjavlk vik-
una 24. febrúar til 2. marz er í
Ingólfsapóteki og Laugarnesapó-
teki.
Nætuirlæknir í Hafnarfirði
aðfaranótt 29. febrúar er Eirík-
ur Björnsson sími 50235.
Næturlæknir í Keflavik.
26/2 og 27/2 Guðjón Klem-
enzson
28/2 og 29/2 Kjartan Ólafs-
son.
Keflavikurapótek er opið virka
daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—2
og sunnudaga frá kl. 1—3.
Framvegis verður tekið á mótl
þeim, sem gefa vilja blóð 1 Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.,
þriðjud., fimmtud. og föstud. frá
kl. 9—11 f.h. og 2—4 e.h. Miðviku-
daga frá kl. 2—8 e.h. og laugardaga
frá kl. 9—11 f.h. Sérstök athygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtímans.
Bilanasími Rafmagnsveitu Rvík-
ur á skrifstofutíma er 18-222. Næt-
ur- og helgidagavarzla, 18-230.
Skolphreinsun hjá borginni. —
Kvöld- og næturvakt, símar
8-16-17
A.A.-samtökin
Fundir eru sem hér segir: í fé-
lagsheimilinu Tjarnargötu 3c:
Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21.
Langholtsdeild, í SafnaðarheimiU
Langholtskirkju, laugardaga kl. 14.
Orð lífsins svarar í síma 10-000.
I.O.O.F. 9 = 1492288% = K.s.
I.O.O.F. 7 = 1492288% = Fl.
(><] HELGAFELL. 59682287 IV/V 2.
Fyrirlestur.
□ GIMLI 59682297 = I.
RMR-28-2-20-SAR-MT-HT.
H-dags frímerki
Steiun líður að H-degi hér á íslandi, og er margt gert til þess að
vekja athygli á þeirri staðireynd, sem sumum finnst uggvænleg,
en öðrum líkar vel. Sviar gáfu út af þessu tilefni, frímerki, og
fengum við það sent á dögunum, og birtum hér mynd að því. Það
væri ekki úr vegi fyrir íslenzku póststjórnina að gera slíkt hið
sama.
sá NÆST bezti
Kennarinn: „Þessi breyting til hægri handar aksturs er bæði
auðveld og hættulaus. Skal ég segja. ykkur til diæmis: Ég var aust-
ur í Kína nú fyrir nokikrum áratuguim, einmitt þegar Kínverjar
tóku upp hægri handa.r akstur. Og mér vitanlega urðu engin
meiriihiáttar slys í landinu af völdum bíla“.
Einn nemanidi: „Þessu trúi ég mætavel. Svona hefði breytingiu
einnig heppnast vel hjá oikkur árið 1915. Þá voru þrír bílar til
á landinu og gátiu ekki ekið hraðar en 20 kálómetra á klukkustund."
Vísnkorn
Happasæl er heimska enn,
heilinn úr sér genginn. —
Vaskir hægri handar menn
hlutu sigur-fenginn.
Þó að vanti fé í flest
er firrir þjóðar vanda,
böggum gulls á hraustan hest
er heut í þennan fjanda.
Vel ég bið að vizkan slyng
valda þroski haginn,
hana öðlist þjóðar-þing,
þegar lengir daginn.
St. D.
Minningar spj öld
Minningarspjöld Flughjörgun-
arsveitarinnar fást hjá bókabúð
Braga Brynjólfssonar, Sigurði M
Þorsteinssyni, Goðheimum 22,
sími 32060, Sigurði Waage, Laug
árásvegi 73, sími 34527, Stefáni
Bjamasyni, Hæðargarði 54, sími
37392 og Magnúsi Þórarinssyni,
Álfheimum 48, sími 37407.
Héraðavísur
Laufás.
(Eftiir séra Magnús ólafs-
sion í Laufási, d. 1636).
„Laufás minn er listabær, —
iukkumaður sá honum nær, —
einkanlega, þá aldin grær
og alit á móti manni lilær“.
Heimanitiundur
„Afsakið, — ég ætla aðeins að
fara með heimanmund dóttur
minnar upp á loft“
Spakmœli dagsins
Allir hneigja sig fyrir dyggð-
inni, svo halda þeir leiðar sinn-
ar. — J. de Finod.