Morgunblaðið - 28.02.1968, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 28.02.1968, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1 í>08 15 „Æran og vernd hennar hefur r um þessi efni hér á landi. Ritið hefði fyrst og fremst gilid; fyrir nútímalögfræði, því að þar væri rakin meginefni meiðyrðalög- gjafarinnar og myndi öðru frem ur til ritsins le tað, er núv. lög- gjöf yrði endurskoðuð. En einn- verið aöail Islendinga" frá doktorsvöm Gunnars Thoroddsens GUNNAR Thoroddsen varði doktorsritgerð sína Fjölmæli s.l. laugardag og hlaut doktorsnafn- bót fyrir. Er hann þriðji maður- inn, er ver doktorsritgerð við lagadeild Háskóla íslands. Mikið fiölmenni var við doktorsvörn- ina og var hátíðasalur Háskól- ans þétt skipaður, svo og 1. kennslustofa Háskólans. Meðal viðstaddra var forseti íslands og rikisstjórn, auk fjölda dóm- ara og annarra áhugamanna um lögfræðileg efni. Verður hér stuttlega greint frá doktorsvörn- inni. Forseti lagadeildar Háskóla fslands, prófessor Ólafur Jó- hannesson stýrði doktorsvörn- inni. Lýsti hann því, að rit Gunnars Thorodidsens Fjölmæli hefði verið tekið gilt tli doktors- varnar 20. des. s.l. og að feng- inni umsókn dómnefndar. Af háltfu lagadeildar væru and- mæienduir Prófessor Ármann töku Járnsíðu 1271—3 og fram undir miðja 19. öld hétu æru- meiðingar fjölmœli á íslenzku. Orðið er rökrétt og fallegt, — þótt innihald fjölmæla sé ekki ávalt fagurt.“ Ra'kti doktorsefni síðan efni bókarinnar, en hún er í þremur meginþáttum, Hinn fyrsti fjal'l- ar um ærumeiðingar frá Grágás til gildandi laga. Reifuð eru til skýringar dæmi úr fslendinga- sögum. Allþingis.bókum, forn- bréfasafni, dómasafni landsyfir- réttarins. Annar þáttur fjallar um æruna og vernd hennar. Er þar rætt hugtakið æra, árósir á æruna og hverjir njóti æru- verndar. Rætt er um ,hvenær árásir æru geti verið lögmætar vegna skyldu til umsagnar, vegna gæslu hagsmuna, vegna samþykkis, eða vegna mál- frelsis alþingismanna. f»á er rætt um útibreiðslu Að lokum mælti Gunnar Thor oddsen; „Mér er það ljóst, að margt má að riti þessu finna eins og koma mun í Ijós, þegar hinir háttvirtu lærðu andmæl- endur kryfja það ti'l mergjar. En samt vona ég, að þeir, sem hafa á'huga og aðstöðu til að kynna sér ritið, finni þar fræðslu og Skýringar, sem að gagni mega koma um þetta víð- tæka og viðkvæma málefni: sæmd manna ,sjálfsvirðingu, mannorð, meiðyrði, málfrelsi.“ AÐ LOKINNI ræðu doktorsefn- is tók fyrri andmælandi rektor Ármann Snævarr til máls. Rakti hann í upphafi efni ritsins, sem hann ssgði að væri ákaflega greinargott og vandvirknislega unnið. Frágangur væri með af- brigðum góður og lestur próf- arka vel af hendi leystur. Sagði andmælandi, að doktorsefni hefði unnið gott og mikið braut- ryðjendastarf með samning rits Snævar, rektor Háskóla í» lands og doktor juris Þórðu: Eyjólfsson fyrrv. hæstaréttar- dómari. Gaf hann síðan Gunnari Thoroddsen orðið. Doktorsefni rakti í upphafi hversu forfeðrum íslendinga var yæmdin mikils virði og hversu þeim var annt að vernda hana. Sæmd n, sjálfsvirðingin hafi síðan verið rík í huga íslend- inga og aðal þeirra. „Um þær mundir, er ég lauk lagaprófi og hugði á framihalds- nám, sóttu þessi viðfangsesfni fast á hug minn. Æran og vernd hennar, málfrelsi og meiðyrði, samband og samhengi þessara hugtaka, lög, dómar, hugmyndir fræðimanna, allt þetta varð einn þáttur í námi mínu erlendis. Árið 1943 tók ég saman rit- gerð um æruna og vernd hennar og sendi þá ritsmíð með umsókn um lagakennarastartf við Há- skóla íslands. En frá því nokkru síðar og um næstu tvo tugi ára gegndi ég störfum sem voru þannig vaxin, að eigi var tóm til fræðiiðkana og ritstartfa á þeim vettvangi. Árið 1965 varð sú breyting á högum mínum, að tómstundir fengust til þess að taka upp þráðinn. Sú bók, er hér liggur fyrir til dóms, er samin á tveim árum, frá sumri ’65 til jafnlengdar ’67. „Bók þessi er 471 blaðsíður að stærð og nefnist „Fjölmæli“. Orðið fjölmæli er gamalt ís- lenzkt orð og merkir að mœla mjög eða mikið, svo að meið- andi sé, þ. e. meiðyrði. í nærfellt sex aldir, frá lög- ærumeiðinga og um refsingu fyrir þær, raktar eru sérreglur ýmsar og að lökum er rætt um siðareglur blaðamanna. Þriðji þáttur er yfirlit um er- lendan rétt. Þar er sérkatfli um meiðyrðalöggjöf sex landa: Dan merkur, Englands, Fraikklands, Noregs, Svíþjóðar og Þýzka- lands. þessa. Ritið fjallaði um merki- legt fræðilegt rannsóknaref ni. sem lít ð hefði verið sinnt hér- lendis atf öðrum mönnum, ef frá væri skilin ritgerð Einars Arn- órssonar um ærumeiðingar frá 1952. Þá lagði andmælandi fram margar viðbótarathujganir til fylhngar á riti doktorsefnis, sér Gunnar Thoroddsen flytur ræðu sína. Hátíðasalur Háskólans var þétt setinn og urðu margir að standa. Auk þess var I. kennslustofa set- in, en þar var komið fyrir hátölurum. staklega um tíðni ærumeiðing- armála frá 1800 og til nútíðar, og sagnfræðilega könnun um, hverjir ættust helzt við í meið- yrðamálum. Kom fram að flest- ir þeirra, er stefnt var vegna meiðandi ummæla, voru ritstjór ar og ábyrgðarmenn blaða, en opinberir embættismenn voru flestir í hópi þeirra, er stefndu sakir meiðandi ummæla. Sér- staklega var þetta algengt frá ofanverðri 19 öld og fram und- ir 1920. Andmælandi gagnrýndi rit doktorsefnis helzt fyrir þá sök, að ek-ki væri í ritinu stefnt að fræðilegum samanburði á þeim erlenda rétti er hann lýsti né heldur væri hann borinn saman við íslenzkan. Þá setti doktors- efni ekki fram fræðilegt mat á íslenzkri ærumeiðingalöggjöf eða setti eftir atvi'kum fram til- lögur til úrbóta. Ræða andmælanda var mjög yfirgripsmiki'l. Gerði hann ýms- ar fleiri athugasemdir við ri't doktorsefnis, en gerði öðru hvoru hlé á máli sínu í því skyni, að doktorsefni giæfist tími til að svara andmælum sínum. Svaraði Gunnar ýtarlega athugasemdum andmælanda. Er þessum þættx doktorsvarn ar var lokið tók síðari andmæl- andi dr. juris Þórður Eyjólfs- son til máls . Hann gat þess í uipphatfi, að lestur bókarinnar hefði orðið sér ánægjuefni, því að með henni hefði lagatoókmenntum íslend- inga bætzt við gott og vel unn ið verk, er lengi yrði höfuðrit Prófessor Ólafur Jóhannesson setur doktorsvörn ina. ig hefði ritið mi'kið gildi fyrir ísl. réttarsögu; þar væri rakin saga meiðyrðalöggjafar í ísl. rétti frá fyrstu tíð til vorra daga. Höfundur hefði kannað vand- lega heimildir um löggjöf þjóð- veldisins, m.a. vitnaði hann oft til íslendingasagna, en andmæl- andi kvaðst vera vantrúaður á gagnsemi þess, því að sögunum, væri ekki treystandi, er þær vikju frá þekktum lögum. Væri einnig ljóst, að því er fjölmæli varðar, að sögurnar væru oft í ósamræmi við lögin. Aftur væru frásagnir Sturlungu miklu ör- uggari í þessu efni. Ræddi andmælandi um þau viðurlög, er við meiðyrðum lágu, bæði samkv. Grágásarliög- um og Jónsbók ,þar á meðal um sérstakar bætur, er nefndar voru fullrétti og rann til þess, er misgert var við. Var and- mælandi sammála höfundi, að fé bætur þessar bæri að telja til refsinga en ekki skaðabóta. gagnrýndi hann þann 'hátt höf. að ræða um fullrétti sem skaða- bætur á einum stað í ritinu. Færði andmælandi fram ýmsar ástæður fyrir því, að fullrétti bæri að telja til refsiviðurlaga. Næst ræddi andmælandi um þann þátt ritsins, er ber heitið „Æran og vernd hennar." Taldi andmælandi hann vera mikil- vægasta og yfirgripsmesta þátt ritsins, og hefði hann ekki séð efninu gerð fullkomnari skil í erl. ritum. Kvaðst andmælandi að loikum ætla að minnast á tvö at.riði, er telja mætti víst, að tekin yrðu til nýrrar yfirvegun- ar, þegar næst færi fram endur- skoðun meiðyrðalöggjaifarinnar. Væri annað atriðið afstaðan til þess, ef sönnur væru færðar á réttmæti ummæla, er í eðli sínu gætu verið ærumeiðingar. Skv. gildandi lögurn væri aðalreglan sú, að aðdróttanir ættu að vera refsilausar, ef sönnur væru á þær færðar. En undantekning frá þessu sé gerð í 237. gr. hegn- ingarlaganna, þar sem sönn brigslyrði varða sektum, ef sett eru fram án tilefnis. Kvað andmælandi grein þessa vera í samræmi við eldri og yngri fræðikenningar, en þrátt fyrir það taldi hann greinina ó- heppilega. Yrði ekki talið, að nein uppreisn væri í því fólgin að fá andstæðing dæmdar í sekt, er jafnframt væri staðfest með dómi ,að ummælin væru sönn. Þess mundu heldur ekki finn- ast dæmi í réttarframkvæmd- inni, að nokkurn tíma væru dæmdar sektir fyrir sönnuð um- mæli . Hitt atriðið væri spurningin um, hvort blöð ættu að njóta sérstöðu um meiðyrðaábyrgð. Hefðu bæri hérlendis sem er- lendis komið fram ákveðin til- mæli um ,að slakað væri á kröf- Framthald á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.