Morgunblaðið - 28.02.1968, Side 16

Morgunblaðið - 28.02.1968, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1966 Þetta er grein mannfræðinn- ar og fjallar um fornar venjur, siði og háttu, sem geymzt hafa í munnmælum. Þeir sem fást við rannsóknir á slíku, kosta kapps um að afla sér upplýsinga hjá alþýðu manna, sem jafnan hefir reynzt fróðust um slíkt. Annars getur hver maður haft þar eitt- hvað til brunns að bera, enda þótt hann hafi ekki gert sér grein fyrir því sjálfur, því að hér er um fjölskrúðugan garð að gresja. Undir þessa fræði- grein falla þjóðsögur allskonar, svo sem um drauga, galdra álfa, tröll, forynjur, skrímsl, umskift- inga og annað þess háttar, sem Skrifstofustúlka óskast Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Umsóknir sendist 1 pósthólf 150 með upplýsingum um fyrri störf og menntun. Krabbameinsfélag íslands. Til sölu Saab 96 árg. ’63 Vel útlítandi. SAAB-umboðið, Skeifan 11. — Sími 81530. Staifsfólk Nokkrar stúlkur og karlmenn vantar til frystihúsa- vinnu á Vestfjörðum. Upplýsingar hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, eftirlitsdeild. Óskuni eftir að kaupa notaða rafmagns-ritvél, samlagningarvél og calculator. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Skrif- stofuvélar 2979“. Uppboð annað og síðasta, til slita á sameign á lóðinni nr. 13 við Ránargötu, hér í borg, þingl. eign Ewalds Bemd- sen o.fl. fer fram á eigninni sjálfri, laugardaginn 2. marz n.k. kl. 10 árdegis. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. Skrifstofustúlka óskast Þarf að vera vön vélritun og almennum skrif- stofustörfum. Málakunnátta æskileg. Sími 20000. TÍZKUSKÓLI ANDREU FJÖLBREYTT NAMSKEIÐ • 6 VIKNA NÁMSKEIÐ • SNYRTINÁMSKEIÐ • NÁMSKEIÐ FYRIR SÝNINGARSTÚLKUR OG FYRIRSÆTUR • MEGRUN • KENHSLA HEFST HtOtX tí margir telja til hjátrúar: enn- fremur allskonar orðtök, forn ljóð, gátur, allskonar kreddur o. m. m. fl. Þegar fræðimenn hafa viðað að sér frásögnum um eitthvað af þessu, bera þeir þær frásagnir saman við slíkar frásagnir hjá öðrum þjóðum og reyna að rekja feril þeirra aftur í aldir, til fornra venja og trúarsiða. Fer þá jafnaðarlega svo, að hin rammasta hjátrú og þær vent1 ur, er þykja lítilsigldastar og jafnvel heimskulegastar, reynast merkilegastar vegna þess að upp runi þeirra er æfaforn og merk- ing þeirra í trúarsiðum mjög þýðingarmikil, meðan hugsunar- háttur manna var ólíkur því sém nú er. Og þá verða þessar fornu minjar í geymd munnmælanna að sannsögulegum fróðleik um háttu og hugarfarmanna í fornöld. Margt í orðtökum og siðum er nú torskilið eða óskiljanlegt, vegna þess að menn þekkja ekki upprunann, en þegar þetta hefir verið rakið lahgt aftur í aldir með samanburði við önn- ur munnmæli og sagnir, þá opn- ast mönnum oft nýr skilningur, BAHCO HITABLÁSARAR í vinnusall, vöru- geymslur o.fl. Margar gerðirog stærðir. Leiðbeiningar og verkfræði- þjónusta. FYRSTA FLOKKS FRÁ .... SÍMl 24420 - SUÐURG. 10 - RVÍK og þess vegna eru þessar rann- sóknir eigi aðeins til fróðleiks, heldur bráðskemmtilegar. Hér skal aðeins drepið á fátt eitt til skýringar. Það er venja hér, að karlmenn staðnæmist og taki ofan þegar þeir mæta líkfylgd, og er það gert til virðingar við hinn fram- liðna. Þessi siður á upptök sín í elztu venjum kristninnar. Þá var jafnan borinn kross fyrir hverju líki, sem fært var til greftrunar, og þá töldu vegfar- endur sér skylt að hneigja höf- uð eða krjúpa á kné til virð- ingar við krossinn. Allir kannast við hrossabrest- inn, sem notaður hefir verið hér á landi til að styggja hesta frá túnum og engjum. f frlandi er svipaður gripur leikfang barna en sumir segja þó að það sé ólánsmerki að fara með hann. Meðal frumbyggja Ástralíu var slíkur gripur til og var ekki leikfang, heldur svo heilagur að konur máttu ekki á hann líta. Hánn var notaður við særinga- athafnir, þegar átti að seiða fram regn, og því var trúað að brest- irnir í honum væri rödd þrumu- guðsins. Sami siður hefir og ver ið á Nýju Gíneu og í Vestur- Afríku. Slíkur brestur var og notaður við helgiathafnir í Grikk landi að fornu. Margir ættflokk ar Indíána í Ameríku nota og slíkan brest til þess að seiða fram rigningu, og hjá sumum var sú trú, að hann dygði ekki nema hann væri smíðaður úr tré, sem eldingu hafði lostið nið- ur í. Hjá öllum þessum þjóð- flokkum mun það hafa ráðið, að brestirnir minntu á Þórdunur, og þess vegna mundi regnfylgja þeim. Kunnur mannfræðingur hefir sagt, að líklega eigi þessi - I.O.G.T. - St. Eining nr. 14 og St. Mín- erva nr. 172, halda sameigin- legan opinn fund í GT-húsinu í kvöld kl. 20.30. DAGSKRÁ: 1. Ávarp: ólafur Þ. Kristjáns son, stórtemplar. 2. Frásögn: séra Magnús Guð mundsson. 3. Öskupokauppboð. 4. Kaffidrykkja. 5. Dans. Félagar fjölmennið, og takið með ykkur gesti. Æ. T. FÖNIX Aðalfundur Glímufélagsins Ármann verður haldinn í kvöld 28. febrúar í Tjarnarbúð kl. 21 síðdegis. Stjúrn Glímufélagsins Ármann. Vandaður vinnuskúr til sölu. Má nota sem sumarbústað. Til sýnis að Háaleitisbraut 13. Talið við Rögnvald Þórðarson sama stað. Cagnfræðaskóli Akureyrar Gagnfræðingar 1948. Hittumst öll í Nausfi (uppi) í kvöld 28. febr. kl. 20.30. Skólasystkin. Nýtt einbýlishús 110 ferm. og bílskúr á góðum stað í Kópavogi til leigu frá 1. marz n.k. Tilboð óskast sent Mbl. merkt: „5118“. gripur sér eldri uppruna en nokk ur annar helgigripur, sém nú er kunnur. Kínverjar drekka ekki kúa- mjólk, vegna þess að húri vár eitt sinn „tabo“ hjá þeim, afþví að kýrin var þá talin heilagt dýr, og hún er enn heilagt dýr í Indlandi. Þetta minnir á sköp- unarsöguna í Gylfaginningu, um kúna Auðumlu, sem varð bjarg- vættur fyrsta mannlífs á jörð- inni. Margir hafa ótrú á tölunni 13 og stafar það frá því, að Júdas var hinn 13. sem sat við kvöldmáltíðarborðið. Þess vegna er það forðast að hafa þrettán manns við borð, og margir neitá að setjast að borði þar sem 12 eru fyrir. f mörgum hinna stóru gistihúsa á meginlandinu er ekk ert herbergi með tölunni 13, því að fáir mundu vilia dveljastþar, ög í þessum gistihúsum er held- ur engin 13. hæð, það er hlaúþ- ið yfir hana þótt fleiri hæðir séu í húsinu. Og í sumum borg- um er ekkert hús með tölunni 13. — Nú vita menn, að 13 var óhappatala löngu áður en Krist- ur fæddist. Frumstæðar þjóðir gátu ekki talið hærra en að 12 (tíu fingur og tvær hendur), svo þegar þeim talbyrðing lauk, þá tók við óskiljanleg tala, sem menn héldu að óhöpp myndu fylgja, eða jafnvel slys. Tylftin hefir al'ltaf þótt merki- leg tala, og hún er enn mjög áberandi í viðskiptalífi Breta. Það er heldur ekki ýkjalangt síðan, að þetta var hæsta talan í margföldunartöflunni, sem börn um var ætlað að læra. Og enn eru tólf mánuðir í ári og tólf stjörnumerkin. í orðtök- um er talað um tólfkóngavit og að nú kasti tólfunum. Sú venja að gera hreint i húsr um sínum á vorin (vorhreingern ingar), er frá Júðum komin. Það var siður hjá þeim að gera allt hreint í húsum sínum uppi og nifSri, fyrir páskahátíðina, og sá siður barst frá þeim út um alla Norðurálfuna. Fjölda margar venjur og kredd ur hér á landi eru frá öðrum þjóðum komnar, að ekki sé minnst á þjóðsögurnar og ævin- týrin. ARMSTRONG Vatns- dælur Armstrong grunnvatnsdælan er góð vörn gegn flóða- hættu. Armstrong vatnsdælan dælir allt að 9000 1. á klst. Armstrong vatnsdælan er sjálf virk, vönduð, endingargóð og ódýr. Verð kr. 4.853.00. dynja::di Skeifan 3 - Sími 82670.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.