Morgunblaðið - 28.02.1968, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2fi. FEBRÚAR 190«
Þórður Jónsson
bifreiðarstj.—Minning
ÍÞEGAR við vinir og gamlir
skólafélagar Þórðar Jónsisonar
fréttum hið skyndilega fr'áfall
hans mitt í önnum hins daglega
lifs setti okkar hljóða, svo við
máttum vart trúa, en þeirri stað-
reynd verður ekki haggað að
Þórður lézt langt fyrir aldur
fram.
Nú þegar Þór.ður er allur þá
rifjast upp fyrir okkur félögum
hans og vinum margar hugijúfar
minningar frá dögum skólaár-
anna þegar framtíð okkar var
s-em óskrifað blað og saman við
leik og nám líðandi stundar
hlönduðust draumar um bjarta
framtóð fyrir þjóð Okkar.
Þórður var frá upþhafi traust-
ur og góður félagi og sannaðist
það síðar í lífinu að hvaða verk,
sem hann tók gér fyrir hendur,
var vel og trúverðuglega af
.hendi leyst.
Nokkru eftir að Þórður lauk
riámi úr Samvinnuskóla varð
hann fyrir alvarlegu og þung-
bæru heilsutjóni, sem læknar
töldu honum yrði erfitt að vinna
bug á, en með þrautseigju og
miklu manndómslþreki tókst hon-
um það að mestu.
Árið 1940 kvæntist Þórður Sig
Útför konunnar minnar,
Guðbjargar
Þorsteinsdóttur
frá Reykjum,
Barónstíg 53, Rvík,
verður gerð frá Fossvogs-
kirkju fimmfudaginn 29. febr.
kl. 13.30.
Bjöm Jóhannesson.
Eiginkona mín, móðir okk-
ar, tengdamóðir og amma,
Elínborg Jónsdóttir,
Gunnarssundi 7, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Hafn-
arfjarðarkirkju fimmtudaginn
29. febr. kl. 2 e. h.
Guðjón Benediktsson
böra, tengdaböra
og bamabörn.
Móðursystir mín,
Sigurbjörg Jónsdóttir,
Skólastíg 13, Akureyri,
andaðist 26. febrúar.
Jarðarförin ver’ður föstu-
daginn 1. marz kl. 13:30 frá
Akureyrarkirkju.
Fyrir hönd systur hennar
og annarra ættingja,
Brynjólfur Sveinsson.
Móðir okkar, amma, lang-
amma, systir og tengdamóðir,
Guðrún Árnadóttir,
Skúlagötu 78,
andaðist þann 24. þ. m. að
Borgars j úkrahúsinu.
Fyrir hönd ættingja og
fjarstaddra systra,
Sigurður J. Gunnarsson,
Alda Gunnarsdóttir,
Kristín Gunnarsdóttir,
Orwelle Utley.
Innilegt þakklæti fyrir auð-
sýnda samúð við andlát og
jarðarför
Sigurðar Guðnasonar,
Hofsvallagötu 21.
Fyrir hönd okkar barna
hans, tengdabarna, barna-
barna og systur,
Guðbjörg Sigurðardóttir.
Þökkum hjartanlega öllum
þeim, sem með blómum,
skeytum og minningargjöfum
eða á annan hátt, auðsýndu
okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför
Guðríðar Árnadóttur
frá Grund í Vopnafirði.
Sérstakar þakkir færum við
læknishjónunum á Vopnafirði
og öllum þeim, sem hjúkruðu
henni síðustu sólarhringana.
Guð launi ykkur öllum.
Fyrir mína hönd og ann-
arra vandamanna,
Kristján Höskuldsson.
Þökkum innilega au'ðsýnda
samúð og vinarhug við and-
lát og jarðarför eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður
og ömmu,
Ólafar Magnúsdóttur,
Hnífsdai.
Sérstakar þakkir færum við
lækni, hjúkrunarkonum og
öllu starfsfólki í Sjúkrahúsi
ísafjarðar fyrir frábæra
hjúkrun og umönnun alla.
F. h. vandamanna,
Einar Steindórssou.
Þórður Jómson var fæddur 7.
október 1915 og þegar litið er yf-
ir farinn veg nú að leiðanlokum,
finnst okkur þrátt fyrir mikinn
heilsu'brest á tímabili ævinnar,
hafi Þórður verið gæfumaður í
Iffi sínu. Hann eignaðist ágæta
eiginkonu og mannvænleg börn.
Um leið og við kveðjutm Þórð
hinztu kveðju og þökkum 'honum
hin gömlu og góðu kynni, send-
um við eiginkonu hans, börnum,
háalidraðri móður og öðrum
vandamönnum samúðarkveðju
ok'kar.
Gamlir skólafélagar.
ríði Þorvarðsdóttur og varð
hjónaband þeirra mijög farsælt.
Þau eignuðust fjögur börn, Evu
Dagíbjörtu gifta Kristjáni Bjarna
syni, rafvirkja, Valdísi gifta
Antoni Þórjónissyni trésmið,
Þórð garðyrkjufræðing og Þor-
varð, sam báðir eru í 'heimahús-
um.
Fyrstu búskaparár sín bjuggu
þau Sigríður og Þórður í samibýli
við foreldra Þórðar, Jón Jónsson
frá Skipholti og Valdísi Jónsdótt-
ut, sem um áratuga skeið
bjuggu á Grettisgötu 55 í Reykja
vík, síðan byggðu þau sér hús
að Akurgerði 26 í Rvík. Þaa
hjónin voru samhent um að gera
heimili sitt vistlegt og aðlaðandi
og áttu vinir þeirra þar margar
ánægjulegar samverustundir.
SVAR JI/IITT
EFTIR BILLY GRAHAM
ÉG veit, að ég ætti að hlakka til endurkomu Krists til
jarðarinnar. En ég fyllist alltaf skelfingu, þegar mér verð-
ur hugsað til þess, að hann kemur óvænt. Er eitthvað
athugavert við mig?
MÁ ég svara spumingu yðar með annarri spurn-
ingu? Hvað hélduð þér um konu, sem lifði í sífelld-
um ótta við, að eiginmaður hennar væri að koma?
Þér hélduð annað tveggja, að hún hefði verið ótrú
manni sínum og óttaðist afleiðingarnar — eða að hún
elskaði mann sinn ekki í raun og veru. Nú ætla ég
ekki að bera neitt slíkt á yður. En einhver ástæða
hlýtur að vera til þess, að þér skelfizt endurkomu
Drottins. Þetta gæti verið eðlilegur ótti gagnvart
hinu óþekkta. Við vitum, að við komu Drottins
munu illgjörðamenn verða dæmdir, en réttlátir
hljóta laun. Einnig vitum við, að á degi Drottins
munu miklar náttúruhamfarir eiga sér stað í alheim-
inum. „Þá munu himnamir með miklum gný líða
undir lok, frumefnin sundurleysast í brennandi hita
og jörðin og þau verk, sem á henni eru, upp brenna“
(2. Pét. 3,10). Það er ef til vill ekki endurkoma
Drottins, sem óróar yður, heldur óttinn við hið ó-
komna, óttinn við þessar einstæðu hamfarir. Biblían
segir: „Verið þér og viðbúnir, því að mannssonurinn
kemur á þeirri stundu, sem þér eigi ætlið“. Bið okk-
ar ætti því að mótast af því, að við erum sífellt við-
búin og hlökkum til komu hans.
Laufey Guð-
jónsdóttir
Fædd. 22. okt 1910,
dáin 11. febrúar 1968.
Sorg er hljóS
h-ugur fetar harmaslóð
þegar vinir kveðja kærir
kuldi napur, hjörtun særir
þá fær stundum lítið ljóS
lífgvað glóð.
Systir mín
senn á leiðið sólin skín,
minningarnar ljúfar lifa
læt ég nægja að segja og skrifa
eitt er það sem aildrei dvín
ást tii þín.
Þig ég fcveð
því skal taka sem er skeð.
Andinn mikli, öllu ræður
aft hann skilur systur, bræður.
Býr þér sínum nrundum með
mjúkan beð.
Innilegustu þakkir til vina
okkar, fjær og nær, sem vott-
uðu okkur samúð við andlát
og jírðarför eiginkonu minn-
ar, móður, tengdamóður og
ömmu,
Laufeyjar Guðjónsdóttur.
Guð blessi ykkur öll.
Magnús H. Jónsson, börn,
tengdabörn og barnaböra.
Magnúsína Eyjólfs-
dóttir — Kveðja
Innilegar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð við andlát og
jarðarför
Georgs Sigurðssonar
frá Skjálg.
Fyrir hönd vandamanna,
Böra hins Iátna.
Þreyttum er þörf á að hvílast,
þrjóta vill gle'ðin
þungar er þjáningar mæta,
þróbturinn dvínar.
Man ég þig margri á stundu
minnist þess tíðum
Þökkum auðsýnda samúð
vfð andlát og jarðarför eigin-
manns míns og föður okkar,
Jóns Eldon.
Lilja Jónsdóttir og böra.
að baðstu Guð, börnunum þínum
blessun að veita.
Fólstu þau föður í arma
í Frelsarans nafni,
þau voru allur þinn auður
yndi þíns hjarta.
Dýrmætust auðlegð þíns anda
oft sem þau nutu
trú þín, sem byggð var á bjargi
á blessuðum Drottni.
Hlýleik þinn horfnum frá tíma
hlýt ég að þakka.
Bið, svo er báðum við forðum
blessun a'ð veitist
þeim öllúm þér voru kærir.
— Þökk segjum Drottni,
gæzka hans gleyma mun eigi
grátbeiðni þinni.
Hvíl í GuðsfriðL
G. G. frá MelgerSi.
Alúðarþakkir færum við
öilum þeim, sem sýndu okkur
samúð við andlát og útför
eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
Guðmundar
J óhannessonar,
Arnarhóli
Gaulverjabæjarhreppi.
Ingibjörg Arnadóttir,
Bjarni Þórir Guðmundsson,
Jóhannes Guðmundsson,
Borghildur Þorgrímsdóttir,
Árni Guðmundsson,
Guðrún Bárðardóttir
og barnabörn.
Þakka innilega auðsýnda
samúð við fráfall og jarðar-
för sonar míns,
Ragnars Ó. Sigurðssonar.
Herdís Bjarnadóttir.
Öllum, nær og fjær, sem
minntust mín á sextugsaf-
mælinu 1. febrúar me'ð heim-
sóknum, skeytum, blómum og
gjöfum, sendi ég hugheilar
þakkir.
Lifið heil og hamingjusöm.
Kristinn Jónsson,
Hrísateig 11.
Flugb j ör gunarsveitin
Minningarspjöld Flugbjörgunarsveitarinnar eru af-
greidd ó eftirtöldum stöðum:
Bókabúð Braga Brynjólfssonar, Sigurði M. Þor-
steinssyni, Goðheimum 22, sími 32060, Sigurði
Waage, Laugarásvegi 73, sími 34527, Stefáni Bjarna
syni, Hæðargarði 54, sími 37392, Magnúsi Þórar-
inssyni, Alfheimum 48, simi 37407.