Morgunblaðið - 20.03.1968, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.03.1968, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1908 7 /' ------BrGtfutíJJ- FRÉTTIR Kvenréttindafélag íslands heldur fund á Hallveigarstöð- um í kvöld kl. 8,30. Guðjón Han sen tryggingafræðingur flytur erindi uim tryggingamál. Menntaskólinn í Reykjavík í kvöld flytur Sigfús Elías- son skáld fyrirlestur í Hátíðar- sal Menntaskólans í Reykjavík um jarð'fræði og eðlisfræði. Fyr irlesturinn hefst kl. 8,30. Aðgöngumiðar fás-t í bóka- verzlun Sigfúsar Eymundssonar og skrifstofunni á Hótel Borg á morgun og fiimmtudag. Kristniboðssambandið Fórnarsamkoma í ksvöld kl. 8,30 í Betaníu. Benedikt Arnkeis son taiar, Allir v>elko.mnir. Spilakvöld Templara Hafnar- firði Féiagsvistin verður í kvöld — miðlvikudag í Góðtemplarahús- inu. Fjölmennið. Fíladelfía, Reykjavík Trúboðinn, John Anderson frá Glasgow talar í Filadelfíu í kvöld og hvert kvöld fram á föstudag. Samkomurnar byrja fevert kvöld kl. 8:30. Mæðrafélagið Fundur verður fimmtudaginn 21. marz að Hverfisgötu 21 kl. 8:30. Á dagskrá eru mjög áríð- andi félagsmál. Sndar skugga- myndir. Kaffidrykkja. Reykvikingafélagið heldur spilakvöld og happ- drætti í Tjarnarbúð niðri, fimmtudaginn 21. marz kl. 8:30. Góðir vinningar og verðlaun. Fé- lagsm-enn taki gesti með. Vestfirðingafélagið í Reykja- vík. Vestfirðingamót verður laug- ardaginn 23. marz að Hótel Borg og hefst það með sameiginlegu borðhaldi kl. 7. Allar upplýs- ingar í þessum símum: 40429, 15413 og 15528. Sunudaginn 28. janúar voru gefin saman af séra Þorsteini Björnssyni ungfrú Guðfojörg Fríða Ólafsdóttir og Kristján Ingi Daðason. Heimili þeirra verður að Hverfisgötu 100. Rvik. (Ljósmyndastofa Þóris, Lauga- veg 20 B. Sími 15-6-0-2). Laugardaginn 27. jan. vcwu gefin saman í Dómk. af séra Óskari J. Þorlákssyni ungfrú Sigrún Briem hjúkrunarkona Sigtúni 39 og Jón Viðar Arnórs- son stud. odont Nýja Garði. Heimili þeirra verður að Lauga teig 60, Rvík. (Ljósmyndastofa Þóris, Lauga- veg 20 B. Sími 15-6-0-2). 2. marz voru gefin saiman í hjónaband í Kópavogskirkju af séra Gunnari Árnasyni, ungfrú Edda G. J. Sigurðardóttir og Jón Þ. Valgarðsson, matreiðslu maður. Heimili þeirra er að Hó- vegi 3 A, Kópavogi. LÆKNAR FJARVERANDI Erlingur Þorsteinsson fjv. til 1. apríl. Vísukorn Vietnamstyrjöldin Blóðelfan flæðir um akrana ört, aiþýðan myrt af böðlahöndum. Borgir í rústum, sólin svört, samvizkan frosin á Vietnam- ströndum. Jakob Jónasson. Munið eftir að gefa smáfugl- unum, strax og bjart er orðið. Fuglafóður Sólskríkjusjóðsins fæst vonandi í næstu búð. GENGISSKRANINO Nr. 22 - 28. febnj.r 1888. Skráö fráElnlng Kaun Sala 27/11 '67 lBandar. dollar 86,93 57,07 27/2 '68 18 torlingspund 136,96 137,30 2/2 - lKanadadollar 62,36 52,50 27/2 - lOODanskar'krónur 764,16 768,02 27/11 '67 lOONorskar krónur 796,92 798,88 20/2 '68 lOOSænskar krónur 1.101,451.104,15 2/2 - lOOFinnsk nörk 1.358,711 .362,03 29/1 - lOOFranskir fr. 1.157,001 .159,84 8/2 - loOBolg. frankar 114,72 115,00 22/1 - looSvissn. fr. 1.309,701.312,94 16/1 - lOOCylllni 1.578,651 .582,53 27/11 '67 lOOTókkn. kr. 790,70 792,64 28/2 '68 100V.~þý7.k mörk 1.423,451.4 26,95 29/1 - lOOLírur 9,11 9,13 8/1 - 100’Austurr. sch. 220,10 220,64 m/t2 '67 lOOPosotar 81,80 82,00 27/11 - lOORolkningskrónur- Vörusktptalönd 99,86 100,14 - - llRoikningspund- Vöniajilptnlönd 136 63 136,97 Broytlng frá sfðustu skráningu. Hugleiðing jENGINN ætti að trú öllu [ sem hann sér og heyrir um I aðra menn. En taka vel eft- j ir því sem þeir tala. Og um- | fram allt, að vita og vanda ; sín eigin orð. Það eru 75 ár síðan einn I góður prestur sagði: ,,Það er (tæplega unnt að segja verra l um nokkurn mann en það, að ekkert sé að marka orð I hans'*. Mörður Valgarðsson var ill ráður og slæglega hagsýnn til vondra verka. — En eng I inn mun hafa talið hann vitr | an mann. Njáli er svo lýst að hann ' hafi verið vitur maður, heil- I ráður og góðgjarn. Leysti I hvers manns vandræði með framsjá sinni og lögviti. Högni Gunnarsson (Hlíðar enda) sagði „Trúa mynda ég i ef Njáll segði — því að hann I er maður ólyginn". Og vitra góðmennið Ólafur 1 Þá sagði í sínum harmi — I Hlýða skuluð þið orðum mín I um á meðan ég stend á fót- unurn — og ekki er mér son ur minn bættur þó að Bolli I sé veginn". Treystu aldrei trúlausum , manni og sakna sízt við- sjálla vina. Kristín Sigfúsdóttir frá Syðri-Völlum. sá NÆSf bezti Nakkrir bæjarvinnukarlar unnu við að setja upp Reykj’aivík- ursýninguna fyrir nokkruim árum. f einum kaffitímanum fóru þeir að ræða um lögun víkingaskipsinis, sem yar þarna á sýningunni. Sagði þá verkstjórinn í gamni: „Já, harnn Davíð gamli ætti nú að að vita þetta, hann var nú með honum Ingólfi Arnarsyni, þegar hann kom til landsins“. Gall þá við í einum karlinum: „Jæja, jlá, var hann með foon- um, jafoá“. Mótatimbur Til sölu mótatimbur. Uppl. í síma 52398 eftir kl. 7 á kvöldin. Til leigu íbúð eða skrifstofuhúsnæði til leigu við Laugav. Uppl. í síma 13179 f. h. Húsmæður Aðstoða við heimaveizlur framreiðslustörf og ýmis- legt fleira. Uppl. frá kl. 11 til 2, sími 34286. Nýtt raðhús í Austurbænum til leigu, nú þegar. Uppl. í síma 21667. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Vinna Reglusamur maður óskar eftir að komast í iðnnám. Vanur ýmiss konar smíða- og vélavinnu. Uppl. í síma 33249 fyrir kl. 17. Bátaeigendur Höfum kaupendur að 3ja—25 lesta bátum. Hafið samband við okkur ef þér viljið selja eða leigja bíl. SKIP OG FASTEIGNIR Austurstræti 18 — Sími 21735 Eftir lokun 36329. íbúð óskast 3-—5 herbergja íbúð óskast til leigu. Lítið einbýlis- hús kæmi einnig til greina. Upplýsingar í síma 19331 og 11084 á vinnutíma. M. P. MIÐSTÖÐVAROFNAR Sænsku Panel-ofnarnir frá A/B Fellingsbro Verk- stáder, eru ekki aðeins tæknilegt afrek, heldur einnig sönn heimilisprýði. Verð hvergi lœgra. LEITIÐ TILBOÐA Einkaumboð: Hannes Þorsteinsson, heildverzlun, Hallveigarstíg 10, sími: 2-44-55. Auglýsing um framboðog kjörforseta Islands Kjör forseta íslands skal fram fara sunnudaginn 30. júní 1968. Framboðum til forsetakjörs skal skila í hendur dómsmálaráðuneytinu, ásamt samþykki forseta- efnis, nægiiegri tölu meðmælenda og vottorðum yfirkjörstjórna um að þeir séu á kjörskrá, eigi síðar en fimm vikum fyrir kjördag. Forsetaefni skal hafa meðmæli minnst 1500 kosn- ingabærra manna, en mest 3000, er skiptist þannig eftir landsfjórðungum: ír Sunnlendingafjórðungi (V-Skaftafellssýslu — Borgarfjarðarsýslu, að báðum meðtöldum) séu minnst 1040 meðmælendur, en mest 2085. Úr Vestfirðingafjórðungi (Mýrasýslu — Stranda- sýslu, að báðum meðtöldum), séu mmnst 130 með- mælendur ,en mest 265. Úr Norðlendingafjórðungi (V-Húnavatnssýslu — S-Þingeyjarsýslu, að báðum meðtöldum) séu minnst 230 meðmælendur, en mest 455. Úr Austfirðingaf.iórðungi (N-Þingeyjarsýslu — A-Skaftafellssýslu, að báðum meðtöidum séu minnst 100 meðmælendur, en mest 195. Þetta auglýsist hér með samkvæmt lögum nr. 36/1945, sbr. lög nr. 39/1963, um framboð og kjör forseta íslands. Forsætisráðuneytið, 29. febrúar 1968. Bjarni Benediktsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.