Morgunblaðið - 20.03.1968, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 1968
kinnina þvera. Konur voru í
hans huga sama sem gjaldkera-
konur í næturkrám, eða í bezta
lagi stelpurnar í ódýrum nsetur-
klúbbum. Meðan hann var ung-
ur og fannst hann vera ljótur
og skágenginn, hafði frjálslegt
og óheflað andrúmsloft hóruhús
anna haft aðdráttarafl á hann,
og enn hafði hann sama smekk-
inn. Og jafnvel þótt þörf hans
fyrir kvenfólk væri ekki mikil,
nú orðið, er hann nálgaðist sex-
tugt, var hann til með að heim-
sækja einstöku sinnum æsku-
vinkonur sínar — þær sem enn
voru uppistandandi. Hann hafði
aldrei gert sér neinar gyllihug-
myndir um mellurnar. Þrátt fyr-
ir hjartagæzku þeirra, þekkti
hann þær eins og þær voru —
siðlausar, ágjarnar og oft spillt-
ar kvensur — en hann kunni
vel við sig hjá þeim og skemmti
sér oft við fyndni þeirra, fjöl-
breytni þeirra og stöku sinnum
fylltist hann lotningu fyrir dýrs
legu hugrekki þeirra. Ætti hann
að fara út í manntal yfir vini
sína, varð honum fyrst og fremst
hugsað til Otto Koller og þar
næst til Hönnu Zagon, fyrrver-
andi götudrósar, en nú eiganda
hóruhúss, sem var dulbúið sem
Espresso—kaffistofa, en þekkt
af öllum höfðingjum, ungversk-
um jafnt sem rússneskum og
verndað af þegjandi samtökum
allrar lögreglu.
Um áfengið gegndi nokkuð
öðru máli. Eftir því, sem stundir
liðu fram, varð það æ mikilvæg-
ara í tilveru hans. Langtímunum
saman smakkaði hann ekki dropa
— snerti það ekki meðan hann
vann að heilu máli. En jafn-
skjótt sem málinu var lokið, fékk
hann sér duglega neðan í því —
í heiðurs skyni, hefði málið unn
izt, en sér til huggunar, hefði
hann tapað því.
Það var lítið annað, sem bætti
úr tilbreytingarleysi tilveru
hans. Samt sem áður fannst hon-
um líf sitt hvorki misheppnað
né til einskis farið. Fyrst og
fremst þótti honum vænt um
starf sitt, enda þótt hann hefði
aldrei komizt hærra en í stöðu
aðstoðarmanns í morðdeildinni.
Menn, sem höfðu byrjað sem und
irmenn hans, voru nú orðnir hon
um æðri, en honum var alveg
sama um það, því að þeir höfðu
hlotið frama sinn vegna síðustu
pólitísku byltingarinnar í land-
inu — alveg á sama hátt og
hinir, sem áður höfðu komizt í
embætti fyrir vernd einhverra
höfðingja, voru hraktir úr þeim
embættum þegar verndarar
þeirra ultu úr völdum.
Sem betur fór, hafði hann ald
rei haft neinn áhuga á stjórn-
málum. Allt frá Franz Jósef
keisara til kommúnista, einræðis
herrans Bela Kun, frá Horthy
til annars kommúnista, Matyas
Rakosi, hafði landinu verið
stjórnað af mönnum með meira
eða minna ruglaðar stjórnmála-
skoðanir, en hans skoðun hafði
aldrei haggazt nokkra vitund.
Hann hafði alltaf verið hlynnt-
ur lögum og reglu og skyldu-
verkum sínum, og gaf fjandann
í alla metorðagirnd.
Byltingin, sem svo óvænt hafði
gosið upp síðastliðinn þriðjudag,
var fyrsti stjórnmálaviðburður-
inn, sem hafði getað haggað hon
um neitt í þessu meðfædda hlut-
leysi hans — hvort sem hann
vildi nú viðurkenna það eða
ekki. f fyrstunni hafði hann ver
ið órólegur og gramur, en þó
fyrst og fremst sannfærður um,
að ókyrrðin væri að kenna starf
semi æsingamanna, en svo hafði
honum dottið í hug, að þetta
væri eitthvað ótrúlega ósvikið
17
— atburðir, sem ef til vill gerð-
ust ekki nema einu sinni á öld
— stríð, sem væri háð að vilja
almennings en ekki uppvaxið í
heila einhverra ríkishöfðingja og
ráðherra, innan lokaðra dyra,
heldur í hjarta reiðrar þjóðar.
f nokkrar klukkustundir hafði
hann fundið með sér eitthvert
uppnám, sem hann kannaðist
ekki við frá fyrri tíð. En svo
hvarf þetta jafn snögglega og
það hafði komið. Möguleikarnir
á því, að uppreisnarmennirnir
slyppu vel frá þessu tiltæki
sínu, voru svo óendanlega litlir.
Og lytu þeir í lægra haldi —
þá mættu þeir aldeilis biðja fyr-
ir sér.
Mánudagur ,29. október.
Nemetz átti í erfiðleikum að
ryðjast gegn um mannþröngina,
sem fyllti allar götur, er hann
gekk til lögreglustöðvarinnar
klukkan á.tta um morguninn. Það
var gott veður og þurrt og það
var rétt eins og hver lifandi
sála hefði ákveðið að éta út
fyrirfram eitthvað af vopnahlé-
inu, og fá sér hreint loft í lung-
un. Það var skrítið, hvað fólk
gat verið fljótt að aðlaga sig
Lögmannafélag íslands.
Aðalfundur
félagsins verður haldinn í Tjarnarbúð föstudaginn
22. þ.m. kl. 15.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Að loknum fundi verður haldin árshátíð félagsins
og hefst hún með borðhaldi kl. 19.30.
Þess er vænzt að félagsmenn fjölmenni með dömur
og gesti. Samkvæmisklæðnaður.
Þátttaka óskast tilkynnt til stiórnar hið fyrsta.
STJÓRNIN.
BRALÐBORG
er flutt frá Frakkastíg 14 að Njálsgötu 112
Seljum eins og áður: Einnig:
Smurt brauð Kaffi
heilar sneiðar Te
hálfar sneiðar
Wk Kaffi-snittur Mjólk
tm-A ■ ~ ájtA” Canapi • • Ol
"yfe, Cocktailpinna Gosdrykki
4 Srauðtertur
REYNIÐ SÍLDIINIA OKKAR
lm 4-6 tegundir að velja daglega
BRALÐBORG - IMJALSGÖTU 112
SÍMAR 18680 - 16513
afbrigðilegum kringumstæðum.
Eins og nú Budapest, sem í tíu
ár hafði verið friðsæl og reglu-
bundin borg, sem útvegaði íbú-
um sínum þak yfir höfuðið, um-
ferð að taka þátt í og líkamlegt
öryggi. Og svo breyttist hún fyr
irvaralaust í vígvöll, með bloss-
andi byssum og götuvirkjum,
sem spruttu upp á hverju götu-
horni.
Þennan morgun voru allir önn
um kafnir, þar eð enginn vissi,
hve lengi þessi kyrrð myndi
standa eða matarbirgðirnar end-
ast. Margir luku erindum sín-
um, leituðu að týndu fólki og
voru að reyna að þekkja þá,
sem drepnir höfðu verið. Og
svo var líka ýmislegt til að horfa
á. Brenndir bílar, sprengdir
skriðdrekar — og svo vitanlega
líkin, bæði ungversk og rúss-
nesk.
En þau rússnesku höfðu feng-
ið að liggja, þar sem dauða
þeirra hafði að borið, en þeim
ungversku hafði verið bjargað
af umhyggjusömum höndum, inn
undir þakskegg, inn í húsadyr
eða undir glugga-skjóltjöld..
Á brjósti sumra þeirra lágu
haustblóm, og stundum kross úr
tveimur spýtum, bundnum sam-
an með bandi. Næstum hvert
hús í hverfinu hafði orðið fyr-
ir einhverjum áföllum. Verzlan-
ir í kjöllurum höfðu verið tæmd
ar, og gluggarnir mölbrotnir.
Októbervindurinn hafði blásið
ryki laufi og sorpi inn um göt-
in og þakið allar hillur. Nær-
föt, bækur, fatnaður og skór,
sokkar og járnvörur lágu nú
þarna, handa hverjum, sem
nennti að hirða það. Allir, sem
framhjá fóru hefðu getað tekið
sér af réttunum — en enginn
gerði það.
Á fjölförnustu götuhornum
stóðu körfur með spjaldi yfir:
Til munaðarleysingja og ekkna
byltingarinnar.
Síðustu dagana höfðu þær þot
ið upp eins og gorkúlur, og jafn
skjótt, sem ein kom í ljós, fyllt-
ist hún af seðlum af öllum stærð
um.
Þegar Nemetz fór fram hjá
einni svona körfu, sá hann ung
2«. MARZ.
Hrúturinn 21. marz — 19. apríli.
Reyndu að gefa þér tíma til lesturs og ritstarfa í dag, þó að
ýmislegt annað kalli að og krefjist krafta þinna. Heppilegur
dagur til að hefja nýjar rannsóknir og líta á málin frá nýju
sjónarhorni.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Búreikinnga þyrfti að endurskoða í dag og gera nákvæma skrá
yfir útgjöld og tekjur. Kvöldið hagstætt til rómantiskra hug-
leiðinga — og jafnvel aðgerða.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní.
Hætt við að þér lendi saman við ástfólgin vin eða ættingja
í dag, vegna misskilninngs eða mistúlkunar á ákveðnum atrið-
um. Reyndu að vera sáttfús og erfa ekki við hann.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
Allt virðist ganga þér í haginn í dag, en þó ættirðu að gæta
þín í umferðinni. Forðastu rökræður eða þras. í kvöld skalt þú
sinna iestri eða ritstörfum.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Athyglin beinist í dag að komandi sumri og sæfilegt að byrja
að gera áætlanir nokkuð fram i tímann. í kvöld skaltu skemmta
þér hóflega með vinum þínum.
Jómfrúin 23. ágúst — 22. september.
Einkamálin taka mestan tíma þinn f dag og þú skalt sýna
fjölskyldu þinni að þú metir umhyggju hennar og skilning við
þig síðustu vikurnar. Skipulegðu fjármálin af gætni.
Vogin 23. september — 22. október.
í dag ættirðu að ræða málin við maka þinn eða vin og kom-
ast að niðurstöðu I ákveðnu máli. Gættu þín á öllum rafmagns-
tækjum í dag og láttu lagfæra það sem bilað er af slikum tækj-
um.
Drekinn 23. október — 21. nóvember.
Hagsýni þfn er söm við sig og getur komið þér mjög til góða.
Hikaðu ekki við að krefjast þess sem þú átt af útistandandi fé.
Bjóddu vinum heim til þín í kvöld.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
Allt virðist nú rólegra en undanfarið og skyldurðu notfæra þér
það og hvílast vel. Þú ættir að sýna þínum nánustu meiri þolin-
mæði og ástúð. Þú munt sjá að það borgar sig.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
Haltu fjölskylduráðstefnu í dag og leyfðu öUum að bera fram
sinar skoðanir. Þér hættir til að vilja vera einráður, en ættir
að horíast I augu við það, að þú veizt ekki alltaf bezt.
Vatnsberinn 20. janúar — 19. febrúar.
Vinir þinir vilja þér vel, en eru stundum seinheppnir, þegar
þeir ætla að gleðja þig. Taktu viðleitni þeirra með jákvæðu hug-
arfari og fyrirgefðu annað, sem miður tekst.
Fiskarnir 20. febrúar — 20. marz.
öll verzlunarviðskipti og samningagerðir ákjósanlegar í dag
og skaltu hvergi hika. Þó skaltu setja fram kröfur þinar og
hvika ekki frá þeim enda munu undirtéktir verða góðar.