Morgunblaðið - 20.03.1968, Síða 27

Morgunblaðið - 20.03.1968, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. MARZ 196« 27 MARGIR Suffurnesja- og og Eyjabátar reru í verkfall- inu og ýmist ísuðu aflann eða söituðu um borð. Aflaðist saemilega þegar gaf á sjó og mest af ufsa, en einnig tölu- vert af þorski. Loðnubátar lönduðu einnig þar til þrær voru orffnar fullar. I>að má segja að venjulega sé róðri lokið þegar búið er að draga og landa á venjuleg- um dagróðrar'bátum og þyk- ir það oft ærin vinna. I verk- föllunum bættu sjómenn, sem reru á sig mikilli vinnu til þess að þurfa ekki að hætta róðrum. Sjómenn ýmist sölt- uðu aflann eða ísuðu um borð þótt allt væri með takmörk- unum, því að mun færri net en venjulega voru lögð í sjó. Sjómennirnir önnuðust alla verkun aflans, gerðu að, fiöttu fiskinn og söltuðu. Sltk verkun ©r þó frekar óað- gengileg á smærri bátum flot ans. Á myndinni hér að ofan eru sjómenn í fi&kaðgerð. Afli var mjög góður hjá sumum netabátum í fyrradag og komst upp í rúmlega 60 tonn á bát af boldungs ufsa. A neðri myndinni er bátur með lúgufulla lest og slatta í stíum á dekki. (Ljósmyndir Sigurgeir Jónasson). Vill viðurkenna Oder-Neisse línuna - skoðun Vlilly Brandt utanríkis- ráðherra V-Þýskalands Núrnbeirg, 19. marz — AP — UTANRÍKISRÁÐHERRA Vest- ur-Þýzkalands, Willy Brandt, formaður vestur-þýzka jafnaffar mannaflokksins, lagffi tii í gær, aff v-þýzka stjórnin viffurkenndi hina umdeildu Oder-Neisse línu, sem nú markar landamæri Aust- ur-Þýzkalands og Póllands, i von um aff þá verði unnt að koma á friffarsamningum viff Þýzkaland i heild. Þýzkir flóttamenn mótmæltu í dag harfflega skoffunum utanrík- isrfáffherrans og kölluðu þær svik viff Þjóffverja. Brandt sagðt þet.ta í ræðu, er hann hé!t á landsfundi flokksins í Núrnberg og gekk þar með lengra en nokkur v-þýzkur ráð- herra hefur gengið til tilslökun- ar í þessum eínum. Hann sagði, að ef horfst væri í augu við hið raunverulega ástand, eins og bað er nú, yrði ekki hjá því komizt að viðurkenra þessi landamæri. Opinber afstaða v-þýzkra stjómarvalda hefur veirið að bíða með að ákveða endanlega landamæraskipunina, þar til gerðir verði allsherjar friðar- samningar miili stjórnar, sem sé fulltrúi Þýzkalands alls og þeirra iíkja, sem börðust gegn Þjóð- verjum í heimstyrjöldinni sið- ari. Hins vegar hafa V-Þjóðverj- ar he tið að b-ita ekki valdi tii þess að breyta iandamærum. Brandt sagði, að V-Þjóðverjar vildu sættast við Pólverja, hvort sem friðarsamningar yrðu undirritaðir eða ekki. Hann minntist hinsvegar ekki á kröf- ur þeirra Þjóðverja, sem áður bjuggu austan Oder-Neisse lín- unnar, um að fá að flytjast aftur til fyrri heimkynna. Fréttamenn frá austantjalds- löndunum, sem fylgdust með landsfunidinum segja, að Brandt hafi tekið skref fram á við. Þeir benda þó á, að Kurt Kies- inger, kanzlari, hafi áður talað um að virða núgildandi landa- MEÐAN á verkfallinu stóð sigldu togararnir með allan sinn afla, sem að öðrum kosti hefði verið landað heima, þar sem er- lendur markaður var lélegur. Nú að verkfalli loknu, munu togarar strax fara að landa í verstöðvum hér, þeir sem ekki eru þegar á siglingu út. Svalbakur seldi sl. þriðjudag í Grimsby 99 lestir fyrir 6851 sterlingspund, Hallveig Fróða- dóttir seldir í Cuxhaven á mið- vikudag 111 lestir fyrir 67700 mörk og Karlsefni einnlg þar 127,6 lestir fyrir 76285 mörk. Þá mæri, án þess þó að fást til að falla frá kröfum Þjóðverja um landssvæðin austan þeirra. Landsfundurinn í Núrnberg er hinn fyrsti, sem jafnaðar- menn halda eftir að þeir hófu stjórnarstarf í desember 1966. Innan flokksins er sterk and- staða gegn stjórnarsamvinnunni við kristilega demókrata, eink- um meðal yngri flokksmanna og gerðu þeir aðsúg að Willy Brandt í gær, sunnudag, er hann kom til fudnarins. Flokksstjórnin lagði í dag fram tillögu, þar sem mælt er með því, að bundinn sé endi á loftárásirnar í N-Vietnam til þess að auka líkurnar fyrir frið- arviðræðum. Kiesinger kanzlari hefur þegar fordæmt þá tillögu og sagt, að Vestur-Þjóðverjum farist ekki að prédika fyrir Bandaríkjunuim, hvað þeir eigi að gera í Vietnam. seldi Röðull í Cuxhaven 103,6 lestir fyrir 69837 mörk. Fimm togarar selja í þessari viku í Bretlandi við mjög erfiðar að- stæður, en engin sala er í Þýzka landi. Þjóðverjar vilja ekki fá fisk, þó fastan sé komin. Þeir togarar sem munu landa fiski sínum heima nú, að afloknu verkfalli, eru Maí, sem landar i Hafnarfirði, Þormóður goði og Marz í Reykjavík, Egill Skallagrímsson landar líklega á Akranesi, Sléttbakur á Akur- eyri og Hafliði á Siglufirði. Togararnir byrja nú að landa heima — seldu erlendis fyrir lélegt verð Ríkissjóður eigi bisk- upsbústað í Reykjavik — tillaga um að svo yrði ekki felld FRUMVARP um íbúffarhúsnæði í eigu ríkisins var afgreitt frá efri deild í gær. Við þriðju umræ’ðu komu fram breytingartillögur frá þremur þingmönnum Reykjanes- kjördæmis, þeim Pétri Bene- diktssyni, Gils Guðmundssyni og Jóni Á. Héðinssyni, þess efnis, að embættisbústaður biskups í Reykjavík yrði ekki undanskil- inn ákvæðum frumvarpsins, sem gerir ráð fyrir að ríkið hætti að eiga embættisbústaði í þéttbýli. Þeir sem tóku þátt í umræðum um málið voru Jón Á. Héðins- son, sem mælti fyrir breytingar- tillögunni, Ólafur Björnsson, Páll Þorsteinsson, Pétur Bene- diktsson og Magnús Jónsson, fjármálaráðherra. Við atkvæðagreiðslu var við- j haft nafnakali og var þá tillag- an felld með 11 atkvæðum gegn 4. Þeir sem samþykkja vildu til- löguna voru Elnar Ágústsson, Jón Á. Héðinsson, Pétur Bene- diktsson og Gils Guðmundsson. Þeir sem atkvæði greiddu á móti henni voru: Auður Auðuns, Eggert G. Þorsteinsson, Jón Árnason, Jón Þorsteinsson, Jón- as G. Rafnar, Magnús Jónsson, Ólafur Jóhannesson, Páll Þor- steinsson, Steinþór Gestsson og Sveinn Guðmundsson. Þrír þing- menn, þeir Bjarni Guðbjörnsson, Jónas Magnússon og Ólafur Björnsson greiddu ekki atkvæði, og tveir þingmenn voru fjar- staddir. - JOHNSON Fraimihald af bls. 1 urinn, sem setiff hefur allan tím ann í stjórn Johnsons Shriver dvelst á Spáni í leyfi með kionu sinni og hann sagði fréttamönnum, að hann hefði ekki verið beðinn um að taka þátt í kiosningabaráttu Kenne- dys Hann kvaðst ekki vita, hvað hann myndi gera, ef þess yrði farið á leit við bann. Síhrilver sagði, að sér kæmi ákvörðun Roiberts Kennedys ekki á óvarf og Kennedy væri án efa þeirr- ar skoðunar að með því móti gæti hann bezt og mest þjónað landi sínu og þjóð. Hdns vegar tók Shriver fram, að honum hefði ekki verið kunnugt um á- kvörðun Kennedys fyrirfram. Blaðamenn beindu þeirri spurn- ingu til hans, hvort sá orðrómur væri á rökum reistur, að hann tæki við sendiherraembætti í Paris og vildi hann ekki stað- festa hann, en sagði að ef hann yrði sendilherra myndi hann lita á það sem tækifæri til þess að vinna í þágu friðar. Lesíer Maddiox, ríkisstjóri í Georgíu ti'lkynnti í dag, að hon- um hefði borizt Skeyti frá Kennedy, þar sem hann fer fram á stuðning ríkisstjórans til að ná útnefningu. Rífcisstjórinn sagði við fréttamenn, að hann mundi leggja fram alla krafta sína til að Kennedy yrði sigr- aður í kosningunum. Maddlox er þekktur fyrir einstrengislega afstöðu sína í kyriþáttamálum. í ræðu þeirri sem Kennedy bélt með stúdentunum í Kans- as lýsti hann enn yfir andúð sinni á þróun Vietnamstyrjald- rinar og sagði að væri S-Viet- nam stjórn svo mikið í mun að ná herstöðinni við Khie Sanh ættu stjórnarhermenn að koma þangað og hermenn Bandaríkj- anna að hverfa á braut tafar- laust. Kennedy endurtók fyrn ummæli sín frá laugardeginum, og sagtti að hann færi ekki í framboð af persónulegri óvild til forsetans, heldur til að marka nýja stefnu í málefnum Banda- rikjanna bæði heima og erlend- is. Kennedy sagði, að þróunin hefði orðið óheillavænleg að flestu leyti og það væri nú til dæmis óhugsandi að forseti Bandaríkjanna gæti ferðast óT hultur um nær öll rfki S-Amer- íku og hvarvetna verið hyll'tur eins og fyrirrennari Jónnsons fyrir nofckrum árum. f lok ræðu sinnar sagði Kennedy, að aldrei mundi hvarfla að bonum að taka við embætti varaforseta i stjórn Johnsons. í ræðu Johnsons með banda- rískum bændum í Minneapolis lagði Johnson forseti mest kapp á að verja stefnu sína í Viet- nam og hvatti þjóðina til sam- einingar í því máli. Hann gagn- rýndi þau öfl innan Bandaríkj- anna, sem róa að því öllum ár- um að fá almenningsálitið upp Johnson. á móti stuðningi Bandaríkja- mana við S-Vietnam. Porsetinn kvaðst á hinn bóginn mundi taka fegins bendi hverri tillögu eða uppástungu frá h'verjum sem hún kæmi — sem leitt gæti til lausnar á Vietnamdeilunni. Ekki vék forsetinn einu orði að hugsanlegu framboði Rotoerts Ken.nedys né heldur hetfur flor- setinn enn staðtfest að hann getfi kost á sér ti'l endurkjörs, þótt flestir telji það sjálfsagt mál. Humprey varaflorseti sagði á sunnudag, að hann mundi berj- ast fyrir því með oddi og egg að Johnson yrði endUrkjörinn og hann væri raunar ekki í minsta vafa um ð svo færi. - SKATTAR Framihald atf bls. 1 inn að því að koma á varanleg- um greiðsluafgangi í viðskipta- jöfnuði Breta, og það er verk- efni, sem við verðum að leysa einÍT, sagð: Jenkins. Bretar ættu í erfiðlerkum, sem hefði aukizt enn í síðustu viku með ásókn- inni í gulli á gullmarkaðinum og af ógnun við peningakertfið alls h ns lýðfrjálss heims. Allir núverandi söluskattar, munu verða hækkaðir og skattar á áfengi, stfgarettum og hagnaði af veðreiðum munu hækka. Þá munu vega- og benzínskattar verða hækkaðir. Tekjuskattur mun hins vegar verða hinn sami og áður, en rík- issstjórnin hyggst gera ráðstafan- ir til þsss að koma í veg fyrir skattsvik í sam.bandi við trygg- ingar. Erfðafárskattur verður ekki hækkaður ,en gjafir sem gefnar eru fjórum áum eða siðar áður en gefandinn lézt, verða ekki undanþegnar erfðafjár- skatti. Eiginmenn munu ekki heldur fá framar frádrátt vegna konu snnar fyrir allt það almanaks- ár, er þeir ganga í hjónaband, heldur aðeins frá þeim tíma, er þeir kvænast.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.