Morgunblaðið - 23.06.1968, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 23.06.1968, Qupperneq 1
56 SÍÐUR (TVÖ BLÖÐ) Ráðherrafundur Atlantshafs- bandalagsins hefst á morgun Stórveldafundur Reykjavík í dag vegna Þýzkalandsmdlanna Brosio og nokkrir ráðherranna komu í gœr — aðrir koma í dag RÁÐHERRAFUNDUR At- og þær athuganir á starfsemi lantshafsbandalagsins hefst í Þess> sem fyigt hafa í kjölfar Reykjavík á morgun, mánu- dag, og lýkur á þriðjudag. Fundinn sitja utanríkisráð- herrar 11 aðildarríkja handa- lagsins, en þeir fjórir ráð- herrar sem ekki geta sótt fundinn sjálfir, senda fulltrúa í sinn stað. í dag munu utan- ríkisráðherrar Bandaríkj- anna, Bretlands, Vestur- Þýzkalands og fastafulltrúi Frakka hjá bandalaginu hitt- ast til að ræða ástandið, sem skapazt hefur vegna þróunar Þýzkalandsmálanna síðustu daga. Ráðherrafundurinn verður sett ur með viðhöfn í Háskólabíó kl. 10 árdegis á mánudag. Þar munu flytja ávörp þeir Bjarni Bene- diktsson, forsætisráðherra, Willy Brandt, forseti Atlantshafsráðs- in.s, og Manlio Brosio, fram- kvæmdastjóri bandalagsins. Fundur ráðherranna munu síð an hefjast í hátíðasal Háskóla íslands. I háskólanum er einnig aðsetur sendinefnda hinna ein- stöku aðildarríkja bandalagsins. í Hagaskólanum er blaða og upp lýsingamiðstöð. Helztu viðfangsefni ráðherra- fundarins verða m.a. framtíðar- hlutverk Atlantshafsbandalagsins vafalaust einbeita sér að Þýzka- landsvandamálunum. Áætlað er, að á fjórða hundr- að manns komi til landsins vegna ráðherrafundarins, þar af um 100 blaðamenn og sjónvarps- Kl. 10 mínútur yfir tvö lenti Gullfaxi á Keflavíkurflugvelli með Brosio, framkvæmdastjóra Nato, frú hans og 102 aðra af fastafulltrúum meðlimaríkjanna og starfslið úr aðalstöðvunum, sem munu starfa hér á ráðherra fundinum. Fimm af fastafulltrú- um Natolandanna komu með flugvélinni, þeir Campell frá Kanada, Greve frá Þýzkalandi, Ferrariis frá Ítalíu, Sterche frá Belgíu, Boon frá Hollandi, Krist- iansen frá Noregi og auk þess frú Hjorth-Nielsen frá Dan- mörku og Lady Burrow frá Bret landi. Voru ræðismenn viðkom- andi landa mættir á flugvellin- um, ásamt móttökuliði frá utan- ríkisráðuneytinu. Niels P. Sig- urðsson, fastafulltrúi Islands hjá Nato og frú hans tóku á móti gestunum, ásamt Páli Ásgeiri Tryggvasyni deildarstjóra og Höllu Bergs fulltrúa frá utanrík isráðuneytinu og auk þeirra Stone aðmíráll o.fl. Mikið rok var á flugvellinum er flugvélin lenti. Fréttamaður Mbl. náði snöggvast tali af Man- lio Brosio er hann steig út úr flugvélinni. Spurður um hver yrðu aðalvið fangsefni ráðherrafundarins í Reykjavík, svaraði Brosio: — Að venju verður ástand heimsmál- anna rætt, og menn gera sér grein fyrir hvernig hin ýmsu mál standa. Þá býst ég við að ráð herrarnir fái yfirlit og skýrslur um störf stofnunarinnar og af- greiðslu mála síðan í desember. Þá verða rædd framtíðarverkefni NATO, með tilliti til ástandsins og samskipta Vesturs og Austurs, Framhald á bls. 26 Brosio ræðir við fréttamenn á Keflavíkurflugvelli ISTUTTU MALI 4Uinnar svonefndu Harmel-skýrslu Þá ræða ráðherrarnir ástandið i alþjóðamálum og munu þeir menn. Síðdegis í dag mun Man- lio Brosio eiga fund með blaða- mönnum. Þingkosningar i Frakklandi í dag Skobanakannanir benda til fylgis- aukningar fyrir gaullista París, 22. júní NTB. SÍÐUSTU skoðanakannanir í Frakklandi benda til þess, að gaullistar muni auka fylgi sitt en Vinstra bandalagið tapa fylgi í þingkosningum þeim, sem fram fara í Frakklandi á morgun, sunnudag. Samkvæmt síðustu skoðana- könnuninni, sem franska skoð- anakannanastofnunin lét fram fara, sögðu 41% aðspurðra, að þeir myndu greiða frambjó'ðend- um gaullista atkvæði sitt. Við síðustu þingkosningar í Frakk- landi fengu gaullistar 37.75% at- kvæða. Um 16% kváðust myndu kjósa frambjóðendur Vinstri banda- lagsins (18.79% 1967) og 21% söðust hlynntir kommúnista- flokknum, sem fékk 22,46% greidra atkvæða 1967. Samkvæmt skoðanakönnuninni mun Miðflókkurinn einnig tapa fylgi. Sögðust 11,5% myndu greiða þesum flokki atkvæ'ði, en hann fékk 12,79% atkvæða 1967. Kaupmannahöfn, 22. júní NTB. • GREIÐSLUJÖFNUÐUR Dana við útlönd var óhagstæður á fyrsta ársfjórðungi 1968, sem nam 325 milljónum danskra kr. Á sama tímabili síðasta árs var greiðsluj öf nuðurinn óhagstæður um 680 milljónir d. kr. Samkvæmt skýrslum á þessi munur rót að rekja til þess að innflutningur hefur minnkað frá síðasta ári, var á tímabilinu 180 milljón kr. minni en 1967 og jafnframt hafa tekjur af sigling- um, ferðamönnum og trygginga- starfsemi aukizt verulega. Berlín, 22. júní NTB. • 18. kvikmyndahátíðin í Vest- ur-Berlin hófst í gær, föstudag, með lokaðri sýningu fyrir gesti. Á hátíðinni, sem stendur vænt- anlega yfir í tvær vikur verða sýndar 42 kvikmyndir frá 27 löndum. Júgóslavía er hið eina A-Evrópuríkjanna, sem á myndir á hátíðinni. Niels P. Sigurðsson, fastafull trúi íslands, tekur á móti Brosio, framkvæmdastjóra NATO og frú hans. Ljósm.: Ol. K. M.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.