Morgunblaðið - 23.06.1968, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JUNT I9OT
'BtlAiSiGAM
K/
Rauðarárst'ig 31
Slmi 22-0-22
iviaoimOsar
[skiphoiti21 sImar 21190
eftir lokun simi 40381
siM' 1-44-44
mmm
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 11—13.
Hagstætt leigugjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748.
Sigurður Jónsson.
BÍLALEIGAINi
- VAKUR -
Sundlaugavegí 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
BÍLALEIGAN
AKBRAIJT
NÝIR VW 1300
SENDUM
SÍMI 82347
HLJÓDFÆRI
TIL SÖLII
Notuð píanó, orgel, harmoni-
um. Hohner-rafmagnspían-
etta. Besson-básúna, lítið raf-
magmsorgel og notaðar har-
monikur. Tökum hljóðfæri í
skiptum.
F. Björnsson, sími 83386
kl. 14—18.
FÉLAGSLÍF
Litli ferðaklúbburinn
er tekinn til starfa á ný. —
Komið og kynnizt starfsemi
klúbbsins í skrifstofunni að
Fríkirkjuvegi 11 á fimmtudög
um milli kl. 8 og 10. Munið
eftir að næsta ferð verður
helgina 29.—30. þ. m.
Stjórnin
Það sem tónskáldið
hafði skrifað
Frá stjórnanda Kammerkórs-
ins hefur Velvakanda borizt
eftirfarandi:
Svar til Útvarpshlustanda í
Velvakanda, Morgunblaðið 21.
júní.
Ég vil benda „Útvarpshlust-
anda“ á að þegar Emil Thor-
oddsen samdi lagið við ljóð Afa
síns, breytti hann orðunum,
„ljóshærð og litfríð" í „litfríð
og ljóshærð“. Þannig er þetta
ritað þegar lagið er gefið út
sem einsöngslag, í Pilti og
Stúlku, og einnig er þetta svo
í útsetningu hans fyrir bland-
aðan kór, í Ljóðum og Lögum
2. hefti bls. 41.
Kórinn og stjórnandinn
vissu þetta vel áður en upp-
takan fór fram, og ákváðu að
rétt væri að syngja það sem
tónskáldið hafði skrifað, frem-
ur en breyta nokkru þar um.
Það er ástæða til að ætla að
Emil Thoroddsen vissi hvað
hann var að gera.
^ „Hef kannað hug
minn vegna morðs-
ins á Robert F.
Kennedy“
D.E.Askey, bandarískur stú-
dent á íslandi, skrifar Velvak-
anda bréf, sem fer hér á eftir,
lauslega þýtt:
„Ég skrifa þetta bréf landi
mínu til varnar og sem svar
við öllum þeim spurningum,
sem fyrir mig hafa verið lagð-
ar hér á íslandi, ekki aðeins
spurningum, sem munnlega hef
ur verið beint til mín, heldur
einnig spurningum, sem ég hef
lesið í augum manna og í dag-
blöðunum. Ég reyni að hafa
bréf mitt óháð stjórnmálum en
borið uppi af ættjarðarást. Per
sónulega er mér þetta bréf upp
gjör við eigin samvizku, sem
ég fann mig knúinn til vegna
djúprar sorgar, reiði ög skamm
ar, sem fréttirnar um morðið á
Robert F. Kennedy hafa vald-
ið mér.
Næniur fyrir er-
lendri gagnrýni
Sem ungur amerískur borg-
ari erlendis læt ég mig mjög
varða þá stefnu, sem land mitt
tekur í heiminum nú. Ég er
mjög næmur fyrir erlendri
gagnrýni og andspænis henni
reyni ég að gera mér fullkomna
grein fyrir göllum amerísks
þjóðfélags. Bandaríki Norður-
Ameríku eiga í vissum skiln-
ingi í harðri baráttu, berjast
fyrir því nafni sem þau hafa
aflað sér á liðnum öldum sem
brjóstvörn persónulegs sjálf
stæðis. Fyrir þessa hug-
sjón hafa þúsundir Ameríku-
manna látið lífið í styrjöldum
allt frá 1775. Þeir hafa fallið
og falla enn þann dag í dag í
þeirri von að endir verði bund
inn á ofbeldi og óréttlæti, í
hverri mynd, verði kveðið nið-
ur, hvort sem það snertir
stjórnmál, trú eða kyn-
þætti. Við reynum að vinna
saman að heill einstaklingsins
hjá einhuga þjóð. Hitt er öm-
urleg kaldhæðni, að við til-
raunir okkar friði til trygging-
ar notum við eyðingartæki til
að sigrast á því, sem frelsinu
handan hafsins stendur mest
ógn af, en það leiðir af sér
dauða saklausra í þúsundatali.
Við skulum hugsa okkur að
vínveitingastofa sé full af
drukknum mönnum, þrekvöxn-
um, vöðvamiklum svolum. Joe
hefur ráðizt að bróður sínum
Paul, sem er vinur okkar, Sum-
ir okkar halda að Joe gæti
drepið Paul. Öðrum finnst hér
aðeins vera um fjölskylduerj-
ur að ræða, sem okkur komi
ekki við. Hvað á að gera? Eða
erum við í raun og veru að-
eins drukkin? Ég verð hrein-
skilnislega að játa að ég á
ekki svar við þessum spurn-
ingum, en það eru slíkar spurn
ingar, sem ég legg stöðugt fyr-
ir sjálfan mig þegar ég bý mig
undir að neyta í fýrsta skipti
kosningaréttar míns í væntan-
legum forsetakosningum. En er
þetta frelsi, sem ég nýt nú,
raunverulega svo mikils virði?
Er ekki þetta valfrelsi sama
frelsi og það sem tryggir NRA
(National Rifle Association,
Landssamband skotmanna) og
öðrum álíka rétt til að beita
atkvæðum sínum til að hindra
löggjöf um eftirlit með skot-
vopnum nái fram að ganga?
^ Margar þolraunir
Hefði ég fórnað atkvæðis-
rétti mínum til að þyrma lífi
amerísks hermanns, sem féll á
orrustuvelli, er hann var að
berjast fyrir þeim rétti mér til
handa? Nei, því að þá myndi
þessi trú og því trausti, sem
hann bar til Ameríku, og fórn-
aði sér fyrir, á glæ kastað.
Þessi trú verður að undirgang-
ast margar þolraunir í Amer-
íku, ekki sízt meðal yngstu
kynslóðarinnar - sem Kennedy-
bræður og milljónir annarra til
heyra, að sjálfum mér ekki
undanskildum. Enda þótt þetta
fræga frelsi í Bandaríkjunum
virðist vera að verða alræmt,
þá hef ég persónulega ekki
misst þá trú, að þetta frelsi sé
dýrmætt og þess virði að fyrir
því sé barizt. Ég er sann-
færður um, að innanlandsþreng
ingar eru aðeins vaxtarverkir,
sem ekki verður komizt hjá, en
leiða til þroska og heilbrigði
svo framarlega sem þjóðarlí-
kaminn er ekki brytjaður sund
ur að innan eða utan. Komm-
únistar hafa vissulega rétt fyr
ir sér, þegar þeir segja, að of-
beldi, eins og beitt var í Los
Angeles, muni ekki hugsanlegt
í þeirra löndum. Á hinn bóg-
inn er maður eins og Róbert
F. Kennedy, einstaklega opin-
skár í stjórnmálaumræðum og
harðskeyttur í gagnrýni sinni
á stjórnmálastefnu ríkisstjórn-
arinnar, óhugsandi fyrir aust-
an járntjald. Með hörmulegan
aldurtila bróður síns fyrir aug-
um, tók hann upp hugdjarfa
baráttu í anda hans. Sem ung-
ur Ameríkumaður hef ég til-
einkað mér hugsjónir þessara
manna, sem létu lífið í bar-
áttu fyrir því frelsi, sem varð
þeim að bana. Ég hef nú kann-
að hug minn.“
Blómaunnendur
BETLEHEMSTJARNA OG POTTARÓSIR:
í dag viljum við benda yður á þessar potta-
plöntur, sem nú eru upp á sitt bezta.
GLADIÓLUR OG TÚLÍPANAR:
Okkur langar sérstaklega að benda yður á túlí-
pana, þeir eru sterklegir og falegir enda rækt-
aðir utanhúss og kosta aðeins tíu krónur af-
skornir.
TRJÁPLÖNTUR OG SKRAUTMUNIR:
Enn er nokkuð til af okkar fjölbreytta úrvali.
Plönturnar eru með nestispoka við ræturnar
og þola því flutmng. Tilvaldar fyrir sumar-
bústaðafólk.
SV'ALA-KASSAR OG BLÓMAKER:
Norsku Eternit blómakerin, sem eru núkomin,
eru tilvalin fyrir þá sem ætla að dvelja heima
yfir helgina.
Gjörið svo vel og lítið inn.
Gróðrarstöðin við Miklatorg
Símar 22822 og 19775.
GROÐURHUSIÐ
við Sigtún, sími 36770.
Okkar mikla sala
tryggir yður vandaðri vöru, meira úrval
og lægra verð en aðrir geta boðið.
Munið einkunnarorð vor:
Úrval, gæði, þjónusta
qpgno
Cj Cj Siml-22900 Laugaveg 26