Morgunblaðið - 23.06.1968, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 196«
21
85% símnotenda hafa
nú sjálfvirkan síma
SJÁLFVIRKAR símastöðvar
hafa nú verið reistar á 38 stöð-
um á landinu og þar af 6 á
þessu ári. Eru nú um það bil
85% símanotenda í sambandi við
sjálfvirka símakerfið. Ef allt
gengur að óskum mun sjálfvirki
síminn sennilega ná til allra, eða
svo til allra kaupstaða og kaup
túna á landinu á næstu 3 árum,
að því er Jón Skúlason forstjóri
símatæknideildar og Þorvarður
Jónsson yfirverkfræðingur tjáðu
Mbl.
Næstu áfangar á þessu ári
verða sjálfvirkar símastöðvar á
Hofsósi, Hrísey, Grenivík, Kópa
skeri og Bíldudal svo og á Ól-
afsvík ef tími vinnst til.
Á næstunni er svo fyrirhugað
að hefja vinnu við uppsetningu
sjálfvirkra símstöðva á ísafirði,
Flateyri og Suðureyri og síðar í
Bolungarvík, á Hólmavík,
Blönduósi og Skagaströnd og
mun þessu verki ljúka á næsta
ári.
Til þess að ná þessu marki
hefur þurft að byggja ný síma-
hús eða vélahús og er nú veri8
að ljúka smíði húsa á Suðureyri
Bíldudal, Hofsósi, Hrísey, Greni
vík og í Borgarfirði eystra, en
í smíðum eru hús á Ólafsvík,fsa
firði og fyrirhugað er að hefja
byggingu nýrra húsa á Hellis-
sandi, Búðardal, Bolungarvík,
Hólmavík, Blönduósi, Egilsstöð-
um, Neskaupstað og Höfn í
Hornafirði og viðbyggingu á
Sauðárkróki, en mörg þeirra eru
þó einungis Velahús.
Á næsta ári er fyrirhugað að
hefja uppsetningu sjálfvirkra
símastöðva á Egilsstöðum, sem
verður svæðisstöðin fyrir Aust-
Blómaúrval
Blómaskreytingai
GRÓÐRARSTÖÐIN
Símar 22822 og 19775.
GRÖÐURHÚSIÐ
við Sigtún,
sími 36770.
■ŒinQXI
Framarar — Handknattleiks-
stúlkur.
Æfingar verða sem hér seg-
ir:
Þriðjudaga kl. 7, 2. fl. b og
byrjendur, kl. 7,30 2. fl. a.
Fimmtudaga kl. 6,30, 2. fl. b
og byxjendur kl. 7 2. fl. a.
Æfingar fara fram við
Laugalækjarskólann.
Nýir félagar velkomnir.
Þjálfarinn.
50 KRÓNA
VELTAN
vinsamlega gerið
sk.il í dag
Skrifstofa stuðningsmanna
G. Th„ Pósthússtræti 13.
firði, og greinistöð á Höfn í
Hornafirði. Þá verða framan-
greindar símastöðvar á Vestfjörð
um opnaðar til almennra afnota.
Eins og kunnugt er af fréttum
hefur nýlega verið opnuð ný
sjálfvirk símastöð á Patreksfirði
sem er svæðisstöðin fyrir Vest-
firði, en stöðin á ísafirði verður
greinistöð fyrir nágrannastöðv-
arnar og er því mest vinna við
uppsetningu þeirrar stöðvar og
verða nágrannastöðvarnar að
bíða eftir henni. Þó mun verða
einhver seiníkun á fyrirhugaðri
sjálvirkri símastöð á Þingeyri,
þar eð ekki hefur ennþá feng-
izt byggingarleyfi fyrir nauð-
synlegri viðbyggingu við gamla
stöðvarhúsið þar.
Notendasímar í sveitum lands
ins verða tengdir við sjálfvirka
símakerfið þegar nægjanlegt fé
verður fyrir hendi til umbóta og
fjölgunar á línum, þar sem nú
eru margir notendur tengdir
sömu línu.
Þess má og geta að á þessu
ári er þegar hafin uppsetning
á nýrri sjálfvirkri telexstöð í
viöbyggingu stofnunarinnar við
Kirkjustræti í Reykjavík, og
verður hún tekin í notkun á
næsta árL
Sennilega verður einníg á
þessu ári hafizt handa umstækk
un Miðbæj arstöðvarinnar í
Reykjavík, sem áætlað er að
ljúka á næsta ári.
Kuffi í Stapa á kosningadaginn
SYSTRAFÉLAG Ytri-Njarðvik-
ursóknar hefur kaffisölu á kosn
ingadaginn 30. júní til ágóða fyr
ir væntanlega kirkjubyggingu
í Ytri-Njarðvíkursókn. Verður
kaffisalan í félagsheimilinu
Stapa, en þar verður kjördeild
fyrir Ytri-Njarðvíkinga.
Ytri-Njarðvíkursókn var stofn-
uð á sl. vetri, en þar á'ður hluti
af Innri-Njarðvíkursókn. Er mik
ill áhugi meðal Ytri-Njarðvík-
inga að koma sér upp eigin
kirkju. Hefur henni þegar verið
ætlaður staður og arkitekt hef-
ur verið fenginn að gera teikn-
ingu af kirkjunni.
Systrafélag Ytri-Njarðvíkur-
sóknar var stofnað á sl. vori.
Voru stofnendur 48 og er mark-
mið félagsins að vinna að menn
ingar- og mannúðarmálum á
Súðurnesjum og eflingar kirkju-
legri starfsemi. Formaður Systra
félagsins er frú Sjöfn Sigur-
björnsdóttir, kennari. Hún sagði
í samtali við Mbl., að Systrafé-
lagið vænti þess, að margir
myndu koma við í kaffinu í
Fjarlægjum stífiur úr
babkerum, vöskum,
WC., niðuri'óllum o. fl,
Höfum gób tæki.
símar 81999-33248
SÚLNASALUR
Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar
skemmtir.
Borðpantanir í síma 20221 eftir kl. 4.
Dansað til kl. 1.
Stapa á kosningadaginn. Margir
greiða atkvæði, en auk þess ligg
ur staðurinn mjög vel við allri
umferð um Suðurnes og veiður
trúlega margt manna á ferð þar
munu eiga þangað leið til að þennan sunnudag sem endranær.
„Vér morðingjar“ út
um landsbyggðina
Sýning á Akranesi á sunnudag
A MORGUN fer leikflokkur frá
Þjóðleikhúsinu af stað í leikför
um landið með leikritið „Vér
morðingjar“ eftir Guðmund
Kamban, en það leikrit hefur
hlotið mjög góðar undirtektir og
verið vel sótt frá því sýningar
hófust. Hafa alls verið 12 sýn-
ingar á því í vor. Þjóðleikhús-
stjóri sagði á blaðamannafundi
í gær, að aðsókn væri óvenju
góð miðað við árstíma.
Sýningar hefjast á sunnudag
á Akranesi kl. 21.00. Verður síð-
an farið vestur um land og norð-
ur og mun sýningum ljúka 3.
ágúst. Alls verður leikritið sýnt
á 36 stöðum í förinni.
Aðalleikarar eru, eins og
kunnugt er, Kristbjörg Kjeld og
Gunnar Eyjólfsson og hafa þau
hlotið einróma lof fyrir leik
sinn.
Þetta verður önnur leikför frá
Þjóðleikhúsinu í sumar, en eins
og kunnugt er hóf leikflokkur
Litla sviðsins för um landið í
gær og sýnir „Billy lygara", sem
hlaut mjög mikið lof í vetur.
TJARNARBÚÐ
HLJOMAR
SKEMMTA I KVOLD TIL KL. 1.
TJARNARBÚÐ
OPIÐ I KVOLD
BÚÐIIM
I D A G
kl. 3 — 6.
Verð kr. 50.
POPS
I K V O L D
kl. 8.30 — 11.30.
Verð kr. 60.
HEIÐURSMENN
j Söngvari: Þórir Baldursson.
Kvöldverður framreiddur frá kl. 6. '
SsMa,i
OfllffT 4AOOO
Aldrei betri en nú.