Morgunblaðið - 23.06.1968, Side 6

Morgunblaðið - 23.06.1968, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1968 Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. HEMLASTILLING H.F. Súðavogj 14 - Sími 30135. Verksmiðjuútsala M Seljum í dag og næstu daga morgunkjóla, blússur og fleira. Klæðagerðin Elísa, Skipholti 5. Sendibíll til sölu 16 sæta Mercedes Benz sendibíll til sölu með stöðv arleyfL Uppl. í síma 17673. Keflavík — Suðurnes Bílar, verð og greiðsluskil- málar við allra hæfi. Bílasala Suðurnesja, Vatnsnesvegi 16, Keflavík. Sími 2674. Framrúða í Fíat 1100 R. ’67 óskast til kaups strax. Uppl. í síma 99—1492. Rýmingarsala Margs konar undirfatnað- ur, ungbarnaföt, telpna- og drengj a-pey s ur, náttföt, handklæði og prjónagam. Verzl. Guðný, Freyjug. 15. Geysilegt úrval af gami og hannyrðavör- um. Alltaf eitthvað nýtt. Verzl. HOF, Hafnarstræti 7. Tökum að okkur vélritun, launa- og verðút- reikninga, tollskýrslugerð- ir, léttari þýðingar á ensku og dönsku. Tilboð merkt: „ABC — 8142“. Land-Rover ’67 sem nýr benzínbíll til sölu og sýnis að Ingólfsstræti 19. Sírni 19442. Verzlunarpláss óskast Verzlunarpláss fyrir sér- verzlun óskast sem næst Miðbænum um 1. sept. — Uppl. í síma 23859. Meiraprófsbílstjóri óskar eftir atvinn.u við ' akstur. Hef ekið leigubíl- um í mörg ár. Upplýsingar í síma 81349. Tvö herb. og eldhús til leigu í tvo mánuðL Ný leðurkápa til sölu á sama stað. Nesveg 48, kjallara (á kvöldin). DAF ’67 til sölu, lítið keyrður. — Upplýsingar í sima 52564. Húsmóðir vill taka að sér að gæta barna, hefur stóra lóð, ról- ur og sandkassa. Upplýs- ingar í srma 33353. Fordeigendur ath. Til sölu svo til ný sjálf- skipting og vél og margt annað úr Ford ’55. n. Tignmikil skartar hin tápríka björk. Hún teygir hátt yfir skrúðklædda mörk. Hún veit ekki sjálf um sitt vald eða ríki, né vaxtar-sprotana í hennar líki, er vilja sig einnig í hæðir hefja, og himinsins geislum um sig vefja. Án vitundar styður hún vöxt þess smáa. Er vindamir gnauða, hún skýlir því lága. HL Skógurinn angar í árdags-sól, andar blærinn í laufguðum greinum. Vorið er komið í veldis-stól, vermandi líf, sem í frostinu kól. Hvelfingin ymur af tónunum töfrandi, hreinum. Gróandi krónan á gildum meið' gnæfir við hæðanna ljóma. Hærra og lengra um loftin breið, limið hún sveigir, tígin og heið, þegar drepið er lífið úr dróma. Að leita í hæðir er lífsins þrá, a'ð laugast í sólanna bjarma. Laufkrónan sýnir, hve ljósið má lyfta moldinni jörðinni frá, í guðanna geislandi arma. Stgr. Davíðsson. X. Skógur er samfélag margskonar meiða, frá moldinn rísa í bjarmann heiða. Þeir styðja hver annan, þá stormarnir æða, í stillunum njóta þeir fri'ðarins gæða. Úr moldar skauti er mergurinn róta. Við móður-brjóst jarðar sælunnar njóta. í blámóðu teiga þeir sólanna safann, án sagna þeir lofa þann, sem gaf hann. Grösin og blómin með valdi þeir verja, er vágestir dauðans með stormunum herja. Þeir lifa sem bræður, að ljósgjafans vilja, eru leiðarstjörnur, sem fáir skiija. Bústað sér velja í bylgjandi krónum boðertdur vorsins, sem leika að tónum. Þjóð, sem að lifir í skjólunum skóga á sköpunan þrá, og hugarsjón frjóa. FRÉTTIR Fíladelfía Reykjavík. Almenn samkoma sunnudaginn 23. þ.m. kl. 8. Þessir vitna Garðar Loftsson, Ólafur Sveinbjömsson og frú, Safnaðarsamkoma kl. 2 Úti- samkoma í laugardal kL 4, ef veð- ur leyfir. Dregið var 26. maí í skyndihapp drætti Selfoss og upp komu þessi númer: 1207,, sex manna tjald, 702 reiðhjól, 1081 4ra manna tjaid, 717 ferð á landsmót UMFÍ, 711 svefn- poki, 1144 veiðistöng 13 mynda- 889 knattspyrnuskór. Uppl. gefur á Selfossi. BamaheimHið Vorboðinn Börnin, sem eiga að vera í Rauð hólum í sumar, mæti þriðjudaginn 2. þ.m. kL 11 í porti Austurbæjar- bamaskólans. Farangur bamanna komi á mánudag kL 2, og starfs- fólk mæti á sama stað og sama tíma. Kvenfélagið Hvítabandtð Efnir tU skemmtiferðar í Þórs- mörk miðvikudaginn 2. júni Farið verður frá Búnaðarfélagshúsinu við Lækjargötu kL 7.30 UppL í síma 2009 og 23179 Kristniboðsféiag karla Fundur fellur niður á mánudag- inn vegna mótsins í VatnaskógL Grensásprestakall Vegna fjarveru minnar um nokk urra mánaða skeið, munu vottorð verða afgreidd í skrifstofu séra Franks M. Halldórssonar, og er sóknarfólki bent á að snúa sér til hans. Guðsþjónustur hefjast aftur f Breiðagerðisskóla eftir sumarhlé, eins og undanfarin ár. Felix Ólafs- son. Kvenfélag I.ágafellssóknar Hin árlega skemmtiferð félags ins verður farin fimmtudaginn 4. júlí. Nánari upplýsingar f símum 66184, 66130, 66143. Pantanir óskast fyrir 1.7. Nefndin. Frá biskupsritara í sambandi við Prestastefnuna Og lærisveinarnir tveir spurðu: Hvar býr þú? Jesú svaraði: Kom ið þá og sjáið það. Þeir komu og sáu, hvað hann bjó, og voru hjá honum þann dag. (Jóh, 1.40).) I dag er sunnudagur 23. júni 2. s.e. trin. Hin mikla kvöldmáltíð Lúk, 14. Hin mikla kvöldmáltíð Lúk, Árdegisháfiæði klukkan 3.46. Eftir Iifa 191 dagur. Opplýslngar um Iæknaþjðnustu ■ uorginnl eru gefnar i sima 18888, simsvara Læknafélags Reykjavik- ar. Læknavaktin í Heilsuverndar- stöðinni hefur sima 21230. Slysavarðstofan í Borgarspítal- anum er opin allan sólahringinn. Aðeins móttaka siasaðra. Simi 81212 Nætur- og helgidagaiæknir er i síma 21230. Neyðarvaktin Mkarar aðeins á frrkum dögum frá ki. 8 til kl. 5, »ími 1-15-10 og laugard. kl. 8—1. Ráðleggingastöð Þjóðkirkjunnar rfxc hjúskaparmál er að Lindar- götu 9, 2. hæð. Viðtalstími læknis miðvd. 4—5, viðtalstími prests, þriðjud. og föstud. 5—6. Kvöld, sunnudaga og helgidaga- varzla er 22.6-29.6 í Laugavegs Apótéki og Holtsapóteki. Nætur og helgidagavarzla lækna í Keflavík 25.6 Arnbjörn Ólafsson 26.6-27.7 Guð Jón Klemenzson 28.6 Kjartan Ól- afsson 29.6-30.6 Arnbjörn Ólafsson Nætur og helgidagavarzla lækna i Hafnafirði Laugadag til mánudagsmorguns Jósef Ólafsson aðfaranótt 25. Krist ján T. Ragnarsson. Keflavíkurapótek er opið virka daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—2 og sunnudaga frá kl. 1—3. Framvegis verður tekið á mótl þeim, sem gefa vilja blóð í Blóð- bankann, sem hér segir: mánud., þrtðjud., fimmtud. og föstud. frá kl. 9—11 f.h. og 2—4 e.h. Miðviku- daga frá kl. 2—8 e.h. og laugardaga frá kl. 9—11 f-h. Sérstök athygli skal vakin á miðvikudögum vegna kvöldtímans. Bilanasími Rafmagnsveitu Rvík- ír á skrifstofutíma er 18-222. Næt- ur- og helgidagavarzla, 18-230. A. A.-samtökin yundir eru sem hér segir: í fé- isgsheimilinu Tjarnargötu 3c: Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kL 21. Langholtsdeild, í Safnaðarheimili Langholtskirkju, laugardaga kl. 14. Orð lífsins svarar i síma 10-000. ■ Edda 59686246 H & V. sá NÆST bezti Heimspekiprófessor, sem var allra manna ofriðastur, heilsaði upp á nýjan stúdentahóp með þessum orðum: „Herrar mínir! g veit, að ég hef alveg sérstætt útUt. Nú gef ég yður fimm mmutur til að hlæja að mér, síðan hefjum vér námið“. Enginn hló. — E. Claparede. er sýning enskrar kirkjugripaverzl unar haldin í kjallara Neskirkju. Nr. Svæði, staðsetning F.Í.B.-l Hellisheiði- Ölfus F.f.B. -2 Rangárvallasýsla - Fljótshlíð F.f.B. -4 Þingvellir — Laugarvatn. F.Í.B. -6 Út frá Reykjavík F.Í.B. -7 Rangárvallasýsla F.Í.B.-8 Út frá Reykjavík F.Í.B. -9 Austurleið F.Í.B. 10 Skeið Flói — Holt F.f.B. -11 Borgarfjörður. Símsvari F.Í.B. 33614 veitir upp lýsingar um kranaþjónustubíla Gufunesradio simi 22384 veitir beiðnum um aðstoð vega og krana þjónustubifreiða viðtöku. Kvenfélagið Bylgjan Munið skemmtiferðina sunnudag inn 23. júní Farið frá Umferðamið- stöðinni kl. 8.30 f.h. Uppl. í síma 10581 Dansk Kvindesklubs sommerudflugt til Vestmannaö- erne er planlagt d. 25. ., og vi mödes í lufthavnen kL 8. I til- fælde af udsættelse pá grund af dárligt flyvevejr, bedes man tirs- dag morgen pr. telefon hafe for- bindelse með Flugfélag íslands. Bestyrelsen. Kvenfélagskonur Njarðvíkum Hin árlega skemmtiferð félags- ins verður farin sunnudaginn 23. júní. Upplýsingar í síma 1951 og 1759 Frá Kvenfélagi Grensássóknar Skemmtiferðin þriðjudaginn 25. júní. Farið verður í Galtalækjar- skóg og að Keldum. Þátttaka til- kynnist fyrir hádegi á sunnudag í síma 35715 (Borghildur) 36911 (Kristrún) og 38222 (Ragna) Kvenfélag Langholtssafnaðar efnir til skemmtiferðar að Vík í Mýrdal, fimmtudaginn 27. júní. Farið verður frá Safnaðarheimil- inu kl. 8 árdegis. Þátttaka tilkynn- ist í símum: 32646 (Ragnheiður), 34725 (Valborg, og 36175 (Hrefna) Nessókn. Frá 16. júní verð ég fjarveraridi um óákveðinn tíma. Safnaðarfólk, sem notar þjónustu mína tali við sr. Grím Grímsson, sóknarprest, sem þjónar fyrir mig á meðan. Við talstími hans er milli 6-7. Sími 32195, vottorð verða veitt í Nes- kirkju á miðvikudögum kl. 6-7. Séra Jón Thorarensen. Kvennadeiid Skagfirðingafélags- ins efnir til skemmtiferðar sunnu- daginn 23. júní. Farið verður aust ur undir Eyjafjöll. Fararstjóri Hall grimur Jónasson. Allir Skagfirð- ingar velkomnir. Uppl. í sima 41279 og 32853. Útsýnispailurinn er opinn á Iaug ardögum og sunnudögum kl. 14—16. Kvenfélagskonur, Keflavík Munið hið árlega ferðalag sunnu daginn 23. júni. Farið verður I Þjórsárdal. Þátttaka tilkynnist f.vr ir 21. júnl Uppl. í síma 1394, 1296 og 1439. Frá Orlofsnefnd Reykjavíkur Reykvískar húsmæður. er óska að komast í orlof að Laugum í Dalasýslu, komi á skrifstofu kven- réttindafélagsins á Hallveigarstöð- um, mánudaga, miðvikudaga, föstu daga og laugardaga kl. 4-6. Kvenféiagskonur Garðahreppi fara sína árlegu skemmtiferð sunnudaginn 23. júní. Farið verð- ur um Þjórsárdal. Lagt af stað kl. 8.00 frá biðskýlinu við Ásgarð. Tilkynnið þátttöku fyrir 17. júni í síma 50836, 51844, 51613 Leiðrétting. Frá Kvenfélaginu Hvítabandið Þau leiðu mistök áttu sér stað í fréttatilkynningu frá Kvenfélag- inu Hvítabandið, að dagsetningin misritaðist, var 2/6, en átti að vera 26/6, og sömuleiðis símanúm- er, sem átti að vera 42009. Biður Morgunblaðið velvirðingar á þessu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.