Morgunblaðið - 23.06.1968, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 198«
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjóifur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 120.00 á mánuði innanlands.
GUNNAR
THORODDSEN
17'afalaust var það hyggilegÚ
’ aí stjórnmálaflokkunum
að taka ákvörðun um að hafa
sem slíkir ekki afskipti af for-
setakosningunum, því að
fólkið vill fá að velja forseta
án fyrirmæla flokkstjórna.
Morgunblaðið er gefið út af
sjálfstæðu fyrirtæki, og þótt
það styðji Sjálfstæðisflokkinn
eindregið, er því í sjálfsvald
sett að taka afstöðu til fram-
bjóðendanna. Blaðið hefur
ákveðið að lýsa yfir fyllsta
stuðningi við Gunnar Thor-
oddsen í kosningunum, og
telur sér það bæði rétt og
skylt, vegna þekkingar hans
og mannkosta.
í mörg ár hafa menn rætt
um það, hver verða mundi
næsti forseti og hefur oftast
verið staðnæmzt við nafn
Gunnars Thoroddsens. Þann-
ig verður ekki um það deilt,
að almenningur í landinu
valdi Gunnar Thoroddsen
forsetaefni; þar komu engir
stjórnmálamenn nærri.
Ástæðulaust er hér að lýsa
störfum Gunnars Thorodd-
sens. Þau gjörþekkja menn,
og afburðahæfileikum hans
kynnist almenningur nú á
fundum hans, í sjónvarpi og
útvarpi.
Morgunblaðið hefur gefið
lesendum sínum tækifæri til
að fylgjast með kosningabar-
áttu beggja frambjóðendanna
og mun halda því áfram til
kjördags, þótt það hafi með
ritstjórnargrein þessari lýst
sinni skoðun.
NATO
rrelsi, öryggi og sjálfstæði
*■ þessarar litlu þjóðar
byggist í ríkum mæli á því,
að hún eigi samleið með þeim
þjóðum, sem henni eru skyld-
astar að uppruna, menningu
og þjóðfélagsháttum. Við
megum ekkert gera, sem
veikir trú þessara þjóða og
annarra lýðræðisþjóða á holl-
ustu okkar við málstað lýð-
ræðisins, friðar og mann-
helgi.
Þetta er ríkt í hugum ís-
lendinga um þessar mundir,
vegna ráðherrafundar Atlants
hafsbandalagsins, sem við
höfum þann heiður að sjá um
að þessu sinni, og í tilefni
fundarins gefur Morgunblað-
ið út fjölbreytt aukablað um
Atlantshafsbandalagið, þar
sem m.a. rita greinar að ósk
blaðsins helztu forvígsmenn
NATO og leiðtogar allra ís-
lenzku lýðræðisflokkanna.
Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins,
segir m.a.: „Við íslendingar
viljum eiga vingott við allar
þjóðir. En við komumst ekki
hjá því fremur en önnur
sjálfstæð ríki að sjá landi
okkar fyrir viðhlítandi vörn-
um. Sú skylda er þeim mun
brýnni, sem landið hefur við
núverandi aðstæður mikla
hernaðarþýðingu. Svo sannað
ist í seinni heimsstyrjöldinni
og atburðarásin síðan hefur
því miður ekki dregið úr
þeirri þýðingu".
Ólafur Jóhannesson, for-
maður Framsóknarflokksins,
segir: „Ég held, að þegar alls
er gætt, hafi það verið rétt
ráðið, að ísland gerðist aðili
að NATO. ísland hlýtur að
skipa sér í sveit með vest-
rænum lýðræðisþjóðum. Því
veldur fyrst og fremst lega
landsins. Lífshagsmunir þjóð-
arinnar eru bundnir við
Norður Atlantshaf — við það,
að þar ríki friður og frjálsar
siglingar.
Samstarf við aðrar þjóðir
hlýtur að mótast af þeirri stað
reynd. En auk þess á ísland
eðlilega samleið með flestum
bandalagsþjóðunum vegna
hugsjónalegrar samstöðu og
margvíslegra menningar-
tengsla.“
Emil Jónsson, formaður
Alþýðufloksins, segir: „Við
fslendingar höfum enga mögu
leika til að verja landið sjálf
ir, ef á það yrði ráðist, og
gæti jafnvel hvaða Jörundur
hundadagakóngur sem er
lagt það undir sig enn í dag,
ef landið væri varnarlaust.
Þátttaka okkar í Atlantshafs-
bandalaginu með 14 öðrum
vesturevrópskum ríkjum, þar
á meðal öllum hinum hern-
aðarlega sterkustu, veitir okk-
ur það öryggi, sem við þurf-
um á að halda. Framlag okk-
ar til þessarar starfsemi
NATO-ríkjanna er það eitt
að veita samtökunum að-
stöðu hér á landi, til þess að
halda uppi vörnum bæði fyrir
okkur og bandalagið sjálft.“
Allir lýðræðissinnar ættu
um þessar mundir að minnast
þýðingar Atlantshafsbanda-
lagsins fyrir öryggi íslands
og fagna því að ráðherra-
fundur þess er haldinn hér.
Lincoln Center Festival
haldið í annað skipti
Á SÍÐASTA sumri var haldin
mjög mikil listahátíð á vegum
Lincoln Center í New York.
Þótti hátíðin mjög vel heppn-
uð og var aðsókn mjög góð.
Á þessu sumri verður lista
hátíð að nýju og enn meiri að
vöxtum en í fyrra. Meðal
markverðustu þátttakenda er
Rómar-óperan, sem kémur
fram í fyrsta sinn í Bandaríkj
unum og flytur þrjár óperur
í Metropolitan-óperunni frá
21. júní til 6. júlí. Flytja þeir
Brúðkaup Figarós undir leik-
stjórn Luchino Visconti,
Otello eftir Rossinni og I Due
Foscari eftir Verdi.
Leikflokkur Roger Planc-
hon, Theatre de la cité frá Ly-
on í Frakklandi mun koma
fram í Vivian Beaumont leik-
húsinu frá 25. júní til 14. júlí.
Flytur leikflokkurinn þar
hina frægu sýningu á Skytt-
unum eftir Alexander Dumas
og einnig Tartuffe og Gerge
Dandin eftir Moliere.
19. júlí hefjast forsýningar
á Lover, eftir Brian Friel og
verður frumsýning 25. júlí.
Aðalhlutverk leikur Art
Carney, en sýningin er sett
upp af Edwards MacLiammoir
og Dublin Gate-leikhúsinu.
Júgóslavneski leikflokkur-
inn „Atelje (Atelier) 212“
sýnir nokkur avant garde“
leikrit eftir júgóslavneska höf
unda í Forum frá 26. júní til
14. júlí.
Margir athyglisverðir kon-
sertar verða haldnir í Phil-
harmonic Hall, en á hátíðinni
verður sérstaklega minnzt 25
ára afmælis Koussevitsky-
sjóðsins, sem hefur styrkt
tónskáld til starfa við tónsmíð
ar. Sjóðurinn er nefndur eftir
Serge Koussevitzky, sem
stjórnaði Sinfóníuhljómsveit-
inni í Boston í meira en 25
ár.
Sum þeirra verka, sem sam
in hafa verið að undirlagi
Koussevitzkys hafa þegar
tekið sæti meðal almenn not-
aðra tónverka, svo sem kon-
sert fyrir hljómsveit eftir
Bartog og Peter Grimes eftir
Britten, auk verka eftir Leon
ard Bernstein, Aaron Cop-
land, William Schumann og
fleiri.
Á tónleikum sem haldnir
verða í Philharmonic Hall 27.
og 28. júní munu Bernstein,
Copland og Gunther Schuller
stjórna verkum eftir sjálfa
sig, sem samin voru á styrk
frá Koussevitzky-sjóðnum.
Þá heldur Boston sinfónían tón
leika í Philharmonic Hall 17.
júlí undir stjórn Erich Leins-
dorf og Pittsburg Sinfónían
30. júní og 1. júlí undir stjórn
Andre Previn.
Pittsburg-hljómsveitin held
ur þriðju tónleikana, auk
þeirra tveggja sem stjórnað
verður af Andre Previn, þann
2. júlí og stjórnar þá hljóm-
sveitinni sigurvegarinn í
Naumburg Foundation-sam-
keppninni fyrir unga hljóm-
sveitarstjóra.
Á meðal einleikara með
Pittsburg hljómsveitinni verð
ur fiðluleikarinn Itzhak
Perlman. Þá heldur Royal
Philharmonic frá London tón-
leika 13. og 14. júlí undir
stjórn Antal Dorati og Fern-
ando Previtali og the English
Chamber Orehestra heldur
fjóra tóníleika undir stjórn
Daniel Barenboim, þá fyrstu
5. júlí. Einleikarar með hljóm
sveitinni verða cellóleikarinn
Jacqueline du Pré og Baren-
boim.
The American Ballet Cornp
any kemur nú aftur til Lin-
coln Center og hefur aðsetur
í Metropolitan-óperunni um
þriggja vikna skeið frá 9. júlí
til 28. júlí. Meðal aðaldansara
verða Lupe Serrano, Royes
Fernandez og Toni Landér, en
alls eru 150 manns í flokkn-
um. Meðal gestadansara verða
Erik Bruhn og Carla Fracci.
Flytur dansflokkurinn meðal
annars nýja útgáfu af Giselle,
sem sviðsett er af David
Blair og Oliver Smith.
Music Theater í London
Center mun tilkynna sumar-
prógram sitt á næstu dögum.
Einnig verða sýindar kvik-
myndir í sambandi við hátíð-
ina og ljóð verða lesin upp.
Lincoln Center festival
verður með enn alþjóðlegri
blæ en í fyrra og taka þátt í
því listamenn frá Suður-Am-
eríku, Englandi, Júgóslavíu,
Frakklandi, Ítalíu og fsrael
og á fólk eftir að bætast við
frá fleiri löndum. Auk þeirra
taka margir af beztu lista-
mönnum Bandaríkjanna þátt
í hátíðinni.
Metropolitan óperan
Hafsbotninn verði
abeins notaður til
friðsamlegra þarfa
New York, 22. júní. NTB.
• Jakob A. Mali, sendimaður
Sovétríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum, hefur lagt til að á
afvopnunarráðstefnunni í Genf,
verði hið fyrsta rætt um mögu-
ieika á samkomulagi um, að hafs
botninn verði í framtíðinni ein-
göngu notaður í friðsamlegum
tilgangi.
Malik bar þessa tillögu fram
á nefndarfundi og sagði, að yrði
ekki gert eitthvert samkomulag
hið bráðasta gæti vel farið svo,
að menn vöknuðu upp við þann
vonda draum, að hafsbotninn
væri orðinn að vettvangi hern-
aðarkapphlaups í einhverri
mynd. Malik taldi afvopnunar-
ráðstefnuna í Genf bezta vett-
vanginn til að ræða málið.
Jerúsalem 21. júní NTB
Aðstoðarutanríkisráðherra
Rúmeníu, George Macovescu
ræddi í dag við Abba Eban í
Jerúsalem. Ekki var birt, hvaða
mál voru til umræðu.
Hong Kong 21. júní NTB
ÁSTANDIÐ í Kanton mun nú
vera hið alvarlegasta. Sam-
kvæmt fréttum hafa sveitir
Rauðvarðliða tekið sér stöðu á
þökum ýmissa stórra bygginga í
borginni, þar sem búizt er við
nýjum upphiaupum og óeirðum í
borginni.
Tókíó 21. júní NTB
TIL átaka kom á föstudag milli
stúdenta og lögreglu í Tókíó.
Stúdentar reistu sér götuvígi úr
skrifborðum og stólum og reyndu
í flestu að líkja eftir aðferðum
franskra stúdenta á dögunum.