Morgunblaðið - 26.06.1968, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.06.1968, Blaðsíða 1
28 SIÐIIR Lokaályktun ráðherrafundar Atlantshafsbandalagsins: AUSTUR - ÞÝZK STJÓRNVÖLD BRJÚTA ALÞJÚDASAMÞYKKTIR OG VENJUR — Draga ætti úr vígbúnaðarkapphlaupi í austri og vestri Charles de Gaulle Frakklandsforseti sést hér greiða atkvæði í ráðhúsinu í heimaborg sinni Colombey-les Deux-Eglises, í grennd við París sl. sunnudag en þá fóru fram almennar þing- kosningar í Frakklandi. 1 kosningunum unnu gaullistar mjög á. Á sunnudaginn kemur fer fram síðari hluti þessarar þing- kosninga og ná þeir frambjóð endur kjöri, sem fá flest atkvæði, og verður þá kosið í þeim kjördæmum, þar sem enginn fram- bjóðandi náði hreinum meirihluta á sunnudaginn var. Gaullistar mælast til samvinnu and-komm- únistiskra flokka - til þess að vinna stórfelldan sigur á vinstri mönnum á sunnudag BÁðHERRAFUNDI Atlants- hafsbandalagsins í Reykjavík lauk klukkan 15.40 i gærdag, en þá hafði fundur staðið sam- fellt frá þvi klukkan 10.30. Mun þetta hafa verið einhver lengsti samfelldi fundur, sem ráðherrar hafa haldið hjá bandalaginu, en í gær gerðu þeir ekki einu sinni matarhlé á fundi sínum. Ráðherramir ræddu um loka- ályktun fundarins, en í henni er fjallað um afstöðu þeirra til Berlínardeilunnar og kemur þar fram, að ráðherrarnir telja sov- ézku stjórnina ábyrga fyrir gerð um Austur-Þjóðverja varðandi samgöngur við Berlín, og lögð áherzla á það, að bandalags- þjóðirnar viðurkenni ekki Aust- ur-Þýzkaland. Ráðherrarnir lýsa yfir því, að enn sé haldið áfram könnun á framtíðarverkefnum bandalags- ins í samræmi við „Harmel- skýrsluna“, og staðfesta fyrri yf- irlýsingu sína um, að fastaráð bandalagsins leggi megináherzlu á afvopnun og tilraunir til sam- hliða aðgerða í þá átt milli aust- urs og vesturs. Framkvæmdarstjóra bandalags ins var falið að samræma að- gerðir bandalagsþjóðanna og veita þeim upplýsingar um á- standið á Miðjarðarhafinu, en um þetta mál munu umræður hafa orðið lengstar á fundi ráð- herranna í gær. Þá er lýst yfir ánægju með bætt samskipti Tyrkja og Grikkja undanfarið og látin í ljós ósk um frekari þróun í sömu átt. Að loknum ráðherrafundinum, í gær, eða klukkan 17 hélt Man- lio Brosio, framkvæmdarstjóri bandalagsins, fund með frétta- mönnum, þar sem hann skýrði einstaka þætti lokaályktunarinn ar. Á fundinum gat hann þess, að Frakkar væru ekki aðilar að öllum greinum lokaályktunarinn ar, þar sem þeir hefðu dregið herafla sinn undan sameiginlegrl yfirherstjórn bandalagsins og þvi væru þeir ekki aðilar að álykt- unum þess um mál hernaðarlegs eðlis. Hér fer á eftir lokaályktun ráðstefnunnar í heild: „1. Ráð Atlantshafsbandalags- ins hélt ráðherrafund sinn í Reykjavík daganna 24. og 25. júní 1968. 2. í umræðum sínum um al- þjóðamál fjölluðu ráðherrarnir um það ástand, sem skapazt hef ur vegna þeirra ráðstafana sem nýlega hefur verið gripið til á samgönguleiðum til Berlínar. (a) Ráðherrarnir ítrekuðu að Sovétríkin bæru ábyrgð á hvers konar aðgerðum, sem hefðu þau áhrif að hamla eða stofna í hættu frjálsum samgöngum til Berlín- ar og hvöttu til þess að slíkum aðgerðum yrði hætt. (b) Austur-þýzk yfirvöldhafa skapað alvarlegt ástand með því að brjóta í bága við alþjóðleg- ar samþykktir og venjur, sem unnið hafa sér hefð að því er snertir Berlín. Ráðherrarnir töldu þessar ráðstafanir skipulagða til- raun til að stofna í hættu þeirri þróun, sem leitt hefur til þess að dregið hefur úr viðsjám og Berlín og íbúar hennar mega ekki standa utan við. (c) Ráðherrarnir minntu á yf- irlýsingu Atlantshafsráðsins um Berlín frá 16. desember 1958 og þá ábyrgð, sem aðildarlöndin hvert um sig tókust á herðar með tilíiti til öryggis og velferð- ar Berlínar. (d) Aðildarríkin viðurkenna ekki „Alþýðulýðveldið Þýzka- land“. Þau líta svo á, að þar sem það skorti allan lagalegan grundvöll geti það ekki með að- gerðum sínum skapað alþjóðleg réttindi eða löghelgað skiptingu Þýzkalands gegn vilja þjóðar- innar. Þríveldin og Sovétríkin bera enn ábyrgð á Berlín og á Þýzkalandi sem heild þangað til friðarsamningur hefur verið gerð ur. (e) Ráðherrarnir samþykktu, og tóku undir þann yfirlýsta á- setning þríveldanna að varðveita frjálsar samgöngur til borgar- innar. Þeir tóteu tiMit till þeirnair áikvörðunar ríkisstjórna þríveM- anna, sem ábyrgð bera á öryggi Montreal, Kanada, 25. jnní AP—NTB — • ÞINGKOSNINGAR fóru fram í Kanada í dag. Kjósa átti 264 þingmenn og voru á kjörskrá nálægt ellefu milljónir manna. Frjálslynda flokknum, sem for- sætisráðherrann, Pierre Elliott Trudeau, hefur nú forystu fyrir, er spáð sigri, er jafnvel talið, að flokkurinn, sem hafði 128 sæti á síðasta þingi muni nú fá allt að því 160 þingsæti. 967 manns eru í framboði í þessum kosningum, sem eru hinar fjórðu, sem haldn ar eru í landinu á sex árum. Bú izt er við úrslitum með morgnin- um. Að sögn fréttamanna er ekki litið alvarlegum augum á óeirð- irnar, sem urðu í Montreal í Quebec í gærkveldi. Þær urðu þó svo harðar, að 135 manns voru lagðir í s'júkrahús til meðhöndl- unar þar af 44 lögregiumenn, og 290 handteknir. Oeirðirnar hóf- ust, er hópur frönskumælandi Quebec-búa, um 1000 manns vildi mótmæla því, að Trudeau forsætisráðherra, sem sjálfur er frtönskum'ælandi en andivígur að- skilnaði, skyldi taka þátt í ár- legri hópgöngu u.þ.b. 10.000 borg arbúa til heiðurs verndardýrl- ingi borgarinnar, Jóhannesi skír ara. Trudeau tók sér stöðu á heið- urspalli ásamt borgarstjóranum Berlínar, og ríkisstjórnar Sam-fí’ bandslýðveldisins Þýzkaland, að hafa stöðugt samráð sín á milli um Berlín og að vera við því búnar að mæta hverju því hættu ástandi, sem skapast kunni. Ráð- inu verður stöðugt skýrt frá gangi mála og mun ráðfærast eftir því sem henta þykir um ástandið. 3. Ráðherrarnir ræddu fram- hald á skýrslu („Harmel-skýrsl- unni“), sem samþykkt var á ráð- herrafundinum í desember 1967, um framtíðarverkefni bandaiags- ins. f þessu skyni lagði fasta- ráðið fyrir ráðherrana ítarlega skýrslu um starf það sem þegar hefur verið unnið í því skyni að framfylgja þeim meginverk- efnum, sem bandalaginu er ætl- að að leysa á komandi árum. 4. í fyrri hluta skýrslunnar er gerð grein fyrir samskiptum austurs og vesturs síðan 1966. Þar er greint frá niðurstöðum samræmdrar könnunar, sem rík- isstjórnir aðildarlandanna hafa gert um stefnu sína í þeim til- gangi að stuðla að framförum í átt til traustari samskipta, sem í Montreal og vísaði á bug öll- um áskorunum um að fara það- an niður. Rigndi þá yfir hann tómum flöskum og öðru laus- legu og gerð voru að honum hróp, „Trudau í gálgann" og „Quebec fyrir frönskumælandi Kanadabúa eina“, og þar fram eftir götunum. Hann sagði síðar við fréttamenn, að hann hefði staðið kyrr af forvitni einni, hann hefði viljað sjá hvað gerð- ist. Aðrir fyrirmenn á pallinum forðuðu sér hið bráðasta og stóð hann þá einn. Eftir klukkustundartöf hafði lögreglan bægt óeirðaseggjum burt og gangan gat haldið áfram, en ekki varð fyllilega kyrrt í borginni fyrr en undir morgun. Helzti keppinautur Frjálslynda flokksins í þessum kosningum er Ihaldsflokkurinn, sem einnig hefur fengið nýjan leiðtoga, 54 ára málafærslumann frá Nova Scotia, Robert Stanfield að nafni. Einnig er búizt við nokk- urri andstöðu frá ný-demókrat- iska flokknum, sem er sósíalist- ískur flokkur. Á síðasta þingi hafði íhaldsflokkurinn 94 þing- sæti en Ný-demókratar 22. Ýms- ir smáflokkar höfðu samtais 15 þingsæti en sex sæti voru laus. Þingsæti verða nú, eftir þessar kosningar, einu færra en áður, vegna breytinga á kjördæmaskip an. París, 25. júní NTB. • GAUL.LJSTAR hafa boðið Mið- flokkasambandinu og öllum öðr- um andstöðuflokkum kommún- ista samvinnu, með það fyrir augum að vinna meiri háttar sig- ur á kommúnistum og hinum vinstri flokkunum í síðari hluta þingkosninganna, sem fram fer á sunnudaginn kemur. Þykir ekki ósennilegt, að Miðflokka- sambandið taki þessu tilboði, þó væntanlega með einhverjum skil yrðum. En hvað sem þeim líður, virðist einsýnt, að kosningar þess ar slái mjög á vonir vinstri manna um að hnekkja valdi Charles de Gaulles, forseta eg stjórnar hans. Hefur leiðtogi Mið flokkasambandsins, Jacques Du- hamel, m. a. lýst því yfir, að flokkur hans muni ekkert gera, hvorki beint né óbeint til þess að auðvelda kommúnistum róð- urinn í þessum kosningum. Stjórnmálaforingjar í Frakk- landi ræðast nú við af kappi og undirbúa kosningarnar á sunnu- daginn. Gaullistar hafa þegar unnið ljósan sigur, þar sem þeir fengu 43.65% atkvæða á sunnu- daginn var, samanborið við 37,- 79% í síðustu kosningum. 142 Fram'hald á bls. 27. Fram'hald á bls. 27. Frjálslynda flokknum í Kanada spáð sigri - í þingkosningunum sem fram fóru í gœr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.