Morgunblaðið - 26.06.1968, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1998
"v/VAA^?
- U' W\/
/WAA.
VV/VA/’.
Fasistar, Fasistar, hrópuðu göngumenn, þegar lögreglan vildi vita, hvert förinni væri heitið.
Ungkommar í göngu í gær
menn, þó var þar nokkuð
barna, sem auðsýnilega hélt
að hér væri um einskonar
skrúðgöngu að ræða.
Kommúnistar boðuðu til
„Grikklandsfundar“ í gær í
HSjómskálagarðinum við
Gamla Garð kl. hálf sex. Um
eitt til tvö hundruð manns
voru á fundinum, margir for-
vitnir áhorfendur.
Fluttar voru tvær ræður,
önnur af íslenzkum kommún-
ista og hin af Grikkja. Mátti
marka af ræðum, að höfuð-
andstæðingar þeirra væru
Morgunblaðið, Nato og ís-
lenzka „fasistalögreglan“.
Að fundinum loknum var
ákveðið að ganga í áttina að
Háskólanum. Voru göngumenn
stöðvaðir af lögreglunni, og
var þá haldið upp á Laufásveg
og var ætlunin að ganga að
bandaríska sendiráðinu. Lög-
reglan stöðvaði hópinn við
brezka sendiráðið ,og hélt hóp
urinn þá suður Laufásveg en
síðan norður Fríkirkjuveg og
Lækjargötu, unz komið var
að Skólabrú. Þar ætluðu
göngumenn í átt til Alþingis-
hússins, en voru enn stöðvaðir
af lögreglumönnum, sem
spurðu, hvert förinni væri
heitið. Göngumenn vildu fátt
segja, en æptu: „Fasistar, fas-
istar“ að lögreglunni. Stóð í
stappi smásund en þá var
haldið upp að Menntaskólan-
um og lauk gönguferðinni þar.
Kommúnistar höfðu fengið
leyfi fyrir fundinum, en ekkixöluvert af krökkum slóst í hópinn og hélt að hér væri einhvers
fyrir göngunni, og sem var fá-k0nar skrúðganga.
Forsetakosningamar:
Kosningafundir
og blaðaútgáfa
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við skrifstofur forseta-
efna og spurðist fyrir um hvað
helzt væri á döfinni. Fundahöld
eru enn í fullum gangi og í gær-
kvöldi héldu stuðningsmenn
Gunnars Thoroddsens fund á Sel-
fossi og stuðningsmenn Kristjáns
Eldjárns efndu til fundar í Stapa.
Þá spurðum við einnig hvað for-
setaefni hefðust að auk fundar-
halda og fengum við þau svör að
Gunnar Thoroddsen hefði m.a.
heimsótt fiskvinnslustöðvar hér
í Reykjavík á mánudag og þriðju
dag. Fór hann í heimsókn í fisk-
vinnslustöðvar bæjarútgerðar-
innar og einnig í ísbjöminn og
inn á Kirkjusand. Skoðaði þessi
fyrirtæki og spjaliaði við starfs-
menn. Kristján Eldjárn var hér
í Reykjavík í gær, en hans stuðn-
ingsmenn höfðu ekkert sérstakt
að segja um hans starf.
í kvöld efna stuðningsmenn
Kristjáns Eldjárns til fundar á
Selfossi, en stuðningsmenn Gunn-
ars efna til fundar í Stapa.
Annaðkvöld, fimmtudags-
kvöld, efna svo stuðningsmenn
Gunnars Thoroddsens til fimdar
í Laugardalshöllinni.
Stuðningsmenn Gunnars Thor-
oddsens efndu til íundar á Sel-
fossi í gærkvöldi. Lúðrasveit lék
frá kl. 21, en >kl. 21,30 hófst fund
urinn.
Fundarstjóri var Þorsteinn Sig
urðsson, bóndi á Yatnsleysu og
fundarritari Gunnar Sigurðsson,
en ávörp og ræður fluttu þessir
menn: Matthías Ingibergsspn, lyf
sali, Ingólfur Jónsson, ráðherra,
Vigfús Jónsson, oddviti, Jóhann-
es Sigmundsson, bóndi Syðra-
Langholti, séra Hannes Guð-
mundsson, Fellsmúla, Stefanía
Gissurardóttir, vígslubiskupsfrú
og sr. Sigurður Haukdal, Berg-
þórshvoli. Að lokum flutti Gunn-
ar Thoroddsen ávarp og svaraði
fyrirspurnum.
Fjölmenni var á fundinum og
Gunnari Thoroddsen og konu
!hans fagnað í fundarlok.
Stuðningsmenn Kristjáns Eld-
jráns efndu til fundar í Stapa í
igærkvöldi, er hófst kl. 21.00. —
Fundarstjóri á fundinum var Jón
Ármann Héðinssan, alþm., en
ávörp og ræður fluttu: Páll Jóns
Framhald á bls. 27.
Borgarstjórinn í Kan-
ton flúinn úr landi?
Hong Kong, 25. júni NTB
Talið er að borgarstjórinn í
Kanton, Tsang Sun, hafi flúið
frá Suður-Kína og úr iandi um
Hong Kong. Skýrði blaðið ,China
Mail“ frá þessu í dag.
Blað þetta sem gefið er út á
ensku, skýrði ekki frá heimild-
unum fyrir þessari frétt sinni,
heldur hinu að því hefðu
borizt fréttir um, að Tsang borg-
arstjóra hafði verið laumað um
borð í sovézkt farþegaskip í
Hong Kong. Tsang hefur að
undanförnu sætt hörðum árásum
á veggspjöldum Rauðu varðlið-
anna.
Þá hefur verið skýrt frá því,
að hafnarlögreglan í Hong Kong
hafi nú síðustu daga fundið 17
lík, sem talið er, að flotið hafi
til sjávar innan frá Kína. Að-
eins í dag fundust 8 lík með
bundnar hendur, sem hafa, að
því er virðist, legið í vatni að
minnsta kosti í þrjár vikur. Tel-
ur lögreglan, að þetta séu lík
fólks, sem annað hvort hefur ver
ið tekið af lífi af yfirvöldum
í Kína, er það reyndi að flýja
land, eða hafi orðið fórnarlömb
í átökum miili stuðningsmanna
og andstæðinga Mao Tse-tungs
í Kwantunghéraði.
Útvarpið í Kanton skýrði frá
því í dag, að meira en 200.000
manns hefðu verið fengnir til
þess að vinna gegn flóðunum í
Kwantung og að ástandið þar
færi stöðugt versnandi.
Árongutsiaus súltufundur
— LÍÚ heldur fund í dag
STUTTUR og árangurslaus
sáttafundur í deilu síldveiðisjó-
manna og útgerðarmanna var
haldinn sl. mánudag. Þokaði þar
ekkert í samkomulagsátt. Ann-
ar fundur hefur verið boðaður
næstkomandi fimmtudag. Stjórn
Landssambands íslenzkra Útvegs
manna boðaði til fundar um mál-
ið að Hótel Sögu í dag (mið-
vikudag), en í gær hélt stjóm-
in undirbúningsfund, þar sem ef
til vill hefur verið unnið að til-
lögum sem lagðar verða fram.
Mikil síld er um
ur norður í hafi
Hin skuggalega
aðferð SFR
MIKIÐ síldarmagn er út af
MIKIÐ síldarmagn er út af norð
austurlandi, en það er 7—800 míl
ur undan ströndum tslands og
þvi erfitt að sækja. Morgunblað-
ið hafði í gær samband við
Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræð-
ing, sem er á miðunum á síldar-
leitarskipinu Árna Friðrikssyni.
Hjálmar sagði að þeir hefðu
▼erið þama á miðunum í um
fjóra sólarhringa og farið yfir
mjög stórt svæði.
Það má segja að við höfum
lóðað á síld á mestöllu því
svæði sem við höfum farið yfir.
Hún liggur misjafnlega djúpt,
á nóttunni kemur hún sums stað
ar upp á 10—15 faðma dýpi. Yf-
irleitt er hún þó á 50—70 föðm-
um, og á daginn er hún frá 150
föðmum allt niður á 300. Við
höfum ekki getað tekið nein sýn
ishorn. Það eru engin íslenzk
skip á svæðinu, og þótt rússarn-
ir séu annars elskulegir, er mála
kunnáttan takmörkuð og okkur
hefur ekki tekizt að leysa þann
vanda.
— Heldur þú að hægt væri
að veiða þessa síld frá Islandi?
— Ég er ekki kunnugur fjár-
hagslegum hliðum útgerðarinnar
en þetta er ekki mikið lengra
700 míl-
en þeir sóttu síldina í fyrra svo
að ef síldarflutninga og birgða-
skip væri fyrir hendi mætti það
ekki vera ómögulegt.
— Er einhver hreyfing á síld-
inni, er hún áð koma nær landi?
— Ég þori nú ekki að segja
til um hvort hún kemur nær,
en það hefur verið mjög lítil
hreyfing á henni síðustu daga,
ég myndi telja að hún hefði stað
næmzt þarna í bili. Við erum
nú að fara til hafrannsókna fyrir
notðan og norðaustan land, og
tökum viðbótarmannskap fyrir
austan, en Snæfugl á að leysa
okkur af hólmi, fer á miðin við
Bjarnarey þaTmig að við mun-
um fylgjast vel með göngu síld-
arinnar.
Maður, sem fær óforvarandis
og óumbeðið senda heim vöru
ásamt reikningi, telur gengið á
rétt sinn, jafnvel þótt honum sé
bent á að hann megi mótmæla
viðtöku vörunnar, þó innan á-
kveðins tíma. Slíkar söluaðferðir
teljast almennt það forhertar að
þær eru bannaðar í löggjöf margr
þjóða.
Hin umdeilda aðferð Starfs-
mannafélags ríkisstofnana, sem
háskólamenn hafa gagnrýnt, var
fólgin í því að innheimta félags-
gjöld hjá öllum starfsmönnum
ríkisstofnana, þótt þeir hefðu
ekki gerzt félagsmenn eða skrif-
að undir inntökubeiðni. Að áliti
stjórnar Starfsmannafélags ríkis
stofnana er það talsvert göfug-
lyndi, að mönnum skyldi gefinn
kostur á að afturkalla að eigin
frumkvæði slíka þvingaða inn-
jgöngu, en þó fyrir ákveðinn
tíma. Á öðru máli eru háskóla-
menn, sem talið höfðu á undan-
förnum árum sérstaka ástæðu til
að ganga úr þessu félagi. Fyrir
þá stendur óhaggað, að slíkar
aðferðir — að troða skuldbind-
ingum upp á menn í von um
að þeim verði ekki mótmælt —
séu í fyllsta máta skuggalegar
og lævíslegar og bein ögrun við
hlutaðeigandi.
Þórir Einarsson,
formaður Bandalags háskóla-
manna.