Morgunblaðið - 26.06.1968, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1968
M. Fagias:
FIMMTA
hOXÍJV
hvernveginn tjaslað saman, en
hún svaf aldrei hjá honum oftar
og heldur ekki var bónorðið
nefnt á nafn framar.
Á fertugsaldri var hún orðin
auðug. Hún átti fjögur sambýlis-
hús, prjónaverksmiðjú og bú-
garð vestur í landi. Þessi auð-
sefi hennar gerðu hana næstum
virðingaverða, en það lét hún
sér fátt um finnast. Hún óskaði
sér einskis af lífinu nema pen-
inga - ekki börn, ekki trú, ekki
blíðuatlot eða karlmenn, velvild
eða virðingu. Peningarnir gátu
komið í staðinn fyrir allt þetta,
og vel það. Hún átti sér enn
nokkra elskhuga, en aðeins
vegna þess, að nú var hún tal-
in einskonar hámark listarinn-
ar og gat því sjálf ákveðið verð-
ið sem var heldur betur uppi í
hæðunum.
Svo komu árin eftir fertugt og
þar með styrjöldin, er hún missti
þetta öryggi, sem hún hafði haft
svo mikið fyrir að ávinna sér.
Leiguhúsin hennar urðu að, reyk
og ösku, verksmiðjan var þjóð-
nýtt, af kommúnistunum og bú-
garðurinn var gerður að sam-
yrkjubúi. Eftir að hafa lifað í
ábatasamri synd, nálgaðist hún
nú sextugt, næstum orðin fátæk.
Það lá því í augum uppi, að hún
varð að snúa sér aftur að hinni
gömlu atvinnu sinni - að minnsta
kosti sem milligöngumaður.
Hún varð að sigrast á ótelj-
andi erfiðleikum áður en hún
gat komið sér á réttan kjöl aftur.
Gömlu viðskiptavinirnir voru al-
gjörlega úr sögunni - þeir vin-
ir hennar, sem enn áttu eftir ein-
hverja karlmennsku, voru svo
fátækir, að þeir neyddust til að
elska konurnar sínar. Ennfrem-
ur hafði kommúnistastjórnin af-
numið allt vændi. Kaldranarnir
héldu því fram, að slíkt væri
orðið óþarft, þar eð kvenfólk
væri svo illa launað, að fram-
boðið yrði meira en eftirspurnin.
- Góði minn: sagði Hanna í
rellutón við Nemetz. - Við lifum
á öld fávitringanna. Dyraverðir
verða bankastjórar, múrarar ráð
herrar og hver einasta smá-hús-
móðir heldur, að ástin sé í því
einu fólgin að leggjast á bakið
og glenna út lærin. Ekki veit ég
hvernig fer fyrir svona veröld!
Hún tíndi saman það litla, sem
hún átti og opnaði svo „Hjá
Lólu“. Hvenær sem var dagsins,
hafði hún alltaf leggjalangar og
snyrtilegar stúlkur, með snjó-
hvítar hendur og lakkaðar negl-
ur, rétt einsog þær snertu
aldrei á uppþvotti, til þess að
bera fram kaffi og geisla frá
sér töfrum og greiðvikni. Hanna
lagði mikla áherzlu á, að stúlkur
hennar skyldu hafa það til að
bera, sem svo sjaldgæft var orð-
ið hjá núverandi ráðandi stétt-
um, sem sé „klassa". Hún fékk
þær úr hinum fyrrverandi ráð-
andi stéttum og góðum fjölskyld
um, þær töluðu erlend mál og
höfðu óaðfinnanlega framkomu.
f annað sinn á ævinni hafði
Hanna Zagon komið sér upp við
skiptamannahópi, sem hún var
öfunduð af. Hún kom á fót sam-
vinnu við dyraverðina í öllum
stóru hótelunum og greiddi fast
kaup bílstjórunum í utanríkis-
ráðuneytinu, sem höfðu það
starf á hendi að sýna tignum
gestum borgina. Meðal stöðugra
gesta hennar voru stjórnar-
embættiímenn, en ekki nema fáir
Rússar og aðeins þeir, sem litu
út eins og Evrópumenn, til þess
að þeir fældu ekki burt gesti
þá, sem ekki voru Rússar, en
væru hinsvegar nógu voldugir
til þess að geta forðað henni
hvernkyns vandræðum.
Hanna hafði óbeit á kommún-
ismanum, en hinsvegar alls ekki
á kommúnistum, sem höfðu til að
bera girndir og rausnarmennsku
auðvaldssinna. Þegar nokkrar
stúlkur hennar gengu í lið méð
byltingunni og þoldu hetjudauð-
ann, eða annað verra - urðu
særðar, svo að vaxtarlag þeirra
spilltist, varð hún mjög slegin.
Þegar ein þeirra, hláturmild og
liðleg, dökkhærð stúlka, að
nafni Erica, var drepin er hún
var að verja stað, skammt frá
Kastalanum, varð Hanna ekkert
hrygg, aðeins móðguð.
100
Þegar allt landið gerði lokun-
arverkfall, 5. nóvember, var
Hanna sú eina, sem hafði opið
hjá sér. Þegar verkfallsmenn
komu til hennar og bentu henni
á, að hún væri verkfallsbrjótur,
var það rétt svo að hún yppti
öxlum. Þurftu þeir kannski ekki
einhvern stað til að drekkja
sorg sinni? Eina vandamálið var,
að hún varð að bjargast sem
næst hjálparlaus, þar eð flestar
stúlkurnar neituðu að vinna, af
samúð með Ericu.
Það var enn bjart, er Nemetz
gekk inn í kaffihúsið. Eins og
endranær, sat Hanna bak við
peningakassann - postulínsgyðja
ósnert af styrjöldum, elli og
dauða.
- Æ, Lajos, hvað það var
gaman að sjá þig! Hún brosti og
slétta hörundið undir augunum
dróst í ofurlitlar, næstum ósýni-
legar hrukkur. - Ég var að
frétta af honum Otto Koller.
Er það ekki hræðilegt? Hvers-
vegna í ósköpunum þurfti hann
nú að fara að flækjast inn í
þessa byltingu? Ég er svo fegin,
að ekkert skuli hafa komið fyrir
þig. Allt í einu datt henni annað
í hug. - Ég er líka búin að
frétta af henni frænku þinni.
Hvað það gat verið sorglegt!
Mér þykir svo fyrir því. Hún
klappaði á höndina á honum í
samúðarskyni. Hún þekkti börn
in. Þegar hann var úti að ganga
með þau, hafði hann stundum
komið þarna inn og Hanna hafði
gætt þeim á sódavatni og kökum
- Veslings litla stúlkan. En
PSMGI2Z-24
»30280-32262
LITAVER
Þýzk teppi, verð frá kr. 255.
Ensk teppi, verð pr. ferm. 360,
breiddir 137 — 228 — 366.
Korkgólfflísar, verð pr. ferm.
214 og 324.
Ainerískar gólíflísar, verð pr. ferm.
278. Mjög inikið úrval.
Postulíns-veggflísar enskar og
þýzkar, verð frá 190 kr. ferm.
Fjölbreytt litaúrval.
í BOLLA HVERJUM... Jlfltfl
— Nei, nei, hann er ekkert líkur henni mömmu, — hún er
ekki með rana!
kannski var þetta henni bezt.
Hún hefði aldrei getað orðið
falleg með aldrinum
í meira en hálfan mánuð hafði
Hanna aldrei komið út úr íbúð-
inni sinni, uppi yfir kaffihúsinu,
en samt sem áður hafði hún reið-
ur á öllu, sem gerðist í borginni.
- Hefurðu frétt, að Erica var
drepin? sagði hún. Þú hlýtur að
muna eftir henni. Það var hún,
sem var blest í máli. Hún var að
hugsa um að fara til talkennara
til þess að fá það lagað, en ég
spurði hana, hvort hún væri
alveg vitlaus. Karlmönnum fynd
ist þetta töfrandi. Það gerði
hana eitthvað svo barnslega.
Hún var drepin á sunnudaginn.
Rétt við Kastalann. Hún and-
varpaði og yppti öxlum. Ég skil
ekki þessa ungu kynslóð. Svona
falleg stúlka eins og hún var,
að láta drepa sig! Og fyrir hvað?
Föðurlandið? Nei, þá vorum við
öðruvísi, var það ekki?
- Jú, það vorum við sannar-
lega svaraði Nemetz og kinkaði
kolli. - En hvort okkur verður
talið það til gildis, er annað mál.
- Æ, fari það alltsaman til
fjandans, andvarpaði hún, en
brosti svo aftur. - Aðalatriðið
er, að enn einu sinni höfum við
lifað af jarðskjálfta. Og við
erum búin að hafa þá marga,
ekki satt, Lajos? Það væri gaman
að vita, hvenær sá næsti kemur.
Nemetz fannst tími til kom-
inn að snúa sér að erindinu,
sem hann átti þarna í kaffihúsið.
- Ég þarf að biðja þig að gera
mér greiða, sagði hann.
- Nú, og hvað er það? Rómur-
inn varð eins og ofurlítið kald-
ari. - Hvenær sástu seinast hann
vin okkar, hann Stambulov?
Hún dokaði ofurlítið með svar
ið. Nemetz var í hópi vina henn-
ar, en hún vissi, að leyndar-
dómurinn við að sleppa lifandi
var að reiða sig aldrei á neinn.
- Hversvegna spyrðu?
Hann sagði henni í sem fæst-
um orðum um Halmy lækni.
- Heldurðu, að þú gætir náð
í hann Stambulov hingað, svo
að ég gæti fengið að tala við
hann, eins og rétt fyrir tilviljun?
- Hversvegna hringirðu ekki
í skrifstofuna og færð viðtal?
- Vegna þess, að hann vill
ekki veita mér viðtal. Hann vill
ekki einusinni eyða fimm mínút-
um í málið.
- Já, en ef þú getur sannað,
að læknirinn sé saklaus?
- Honum er alveg sama um
það. Stefna þeirra byggist, eins
og er á ógnunum og þvingunum.
Reyna að æra vitið úr fólki.
Þeir bæði taka fólk fast og
flytja það úr landi, þó það hafi
ekki tekið neinn þátt í bylt-
ingunni. I gær umgirtu þeir heilt
hús í Bajnokgötu og tóku hverja
einustu unga manneskju, sem
þar bjó. Og í flutningabílum fór
allur hópurinn til Austur-braut-
arstöðvarinnar - En hversvegna
ætti Stambulov að hlusta betur
á rök hér en í skrifstofunni
sinni?
"------- r*i:........
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
Góður d' gur til samninga. Hvíldu þig vel.
Nautið 20. apríl — 20. maí
Tilfinningarnar eru ofarlega á baugi. Njóttu lífsins.
Tvíburarnir 21 mí — 20. júní
Þú skalt. verzla eitthvað í dag, og gleðja einhvern, sem það
á skil’ð
Krabbinn ?1. júní — 22. júlí
Nú skaltu gera hreint bæði eiginlega og í öðrum skilningi.
Ljónið 22. júlí — 22. ágúst.
Stolt fcitt æltar að reynast þér erfitt. Reyndu að finna einhverja
útleið
Meyjan 2S. ágúst — 22. september.
Einhver þarfnast hjálpaar þinnar, en ofgerðu þér ekki á góð-
mennskunni
Vogin 23. september — 22. október
Þú ert ofurlítið latur í dag, en það er aðkallandi að þú rífir
þig upp úr letikastinu.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember
Gerðu skyldu þína strax, þá verður fc>ér afstaða þín ljósari
og hvað framundan er. Reyndu að fá þig lausan seinni hluta
dagsins
Bogmaðurir.n 22. nóvember — 21. desember.
Þú getur lagt eitthvað fyrir í dag. Og ef þú vinnur að kappi
kann það að auka möguleika þina á því að hækka tekjurnar.
Finndu þér tónrstundavinnu í dag.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
Þér er óhætt að segja meiningu þína í dag, það er eins gott
fyrir bá sem í kringum þig eru.
Vatnsberinn 20 janúar — 18. febrúar.
Revndu að leita einfaldari lausnar. Berta er að beygja en
brjóta
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz.
Njó+tu þess að vera með yngra fólki í dag. Skemmtu þér,
þegar þú hefur lokið daglegum störfum. Farðu kynnisferðir um
nágrenn' þitt.