Morgunblaðið - 26.06.1968, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.06.1968, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1968 19 BALEARESEYJAR og Vest- mannaeyjar eru ólíkar um flest, en eiga það þó sameiginlegt, að á báðum stöðum hafa Tyrkir gert strandhögg fyrr á öldum. Báðir staðir hafa margt til síns ágætis, og galla einnig, en sé farið út í frekari eyjajöfnuð verða Vestmannaeyingar að bíta í það súra epli, að eitt hafa þessar Miðjarðarhafseyjar fram yfir þá. Er þar átt við samgöng ur við ísland, enda hefur undir- ritaður fengið að kenna ræki- lega á því. Um hvítasunnuhelgina dvaldi ég ásamt fleirum í góðu yfir- læti í Vestmannaeyjum og naut gestrisni eyjaskeggja. Þegar við fórum að hyggja á heimferð ann an í hvítasunnu kom í ljós að ófært var til Eyja loftleiðis, eins og svo oft áður, og þar sem flestir þurftu að vera mættir til vinnu að morgni þriðjudagsins Magabilbaðströndin. Myndin er tekin frá hinu nýja hóteli Hotel Coral Playa. að vísu ákaflega mismunandi, stór og ítil, góð og léleg, og þau standa mismunandi fjarri baðströndunum. Sunna hefur gert samning við hótel á Mall- orca um að hýsa ferðamenn sína, og eru þau öll í hópi hinna betri. Sum þeirra standa inn í hjarta Palma, en önnur lengra í burtu, enda er Palma gamla löngu hætt að geta fullnægt hó- telsprettunni. Því hafa risið nidkkiuir ný hótelhverfi skammt frá Palma, og er Palma Nova þeirra at- hyglisverðast. Er þar að finna margar nýtízkulegar og tíguleg- ar hótelbyggingar, að langmestu leyti fyrsta flokks hótel. Hafa mörg þeirra risið á örfáum mán- uðum. Hotel Coral Playa, sem stend- ur við Magalufströndina, eina fegurstu baðströnd Mallorca, er í þessum hópi, og án efa eitt hið reisulegasta á þessu svæði. Hótelstjórinn er Juan M. Cald- entey, bráðungur maður, sem er fremur óvenjulegt um menn í þessari stöðu á Mallorca. Eg fékk að ræða lítillega við hann, og auðheyrt var á honum, að hann er ákveðinn að vinna hó- teli sínu skjótan frama. Hann kvað hótelið hafa verið reist á u.þ.b. átta mánuðum og verið Ti! Maltorca á 4 tímum með Sunnu Sagt frá fyrsta þotufluginu héðan tll MaSloyca og því markverðasta, sem þar er að sjá var ekki um annað að ræða en fara með Lóðsinum til Þorláks- hafnar. Gekk sú ferð, vel, og til Þorlákshafnar komum við fjór- um klukkustundum og fimmtán mínútum eftir að landfestar voru leystar í Eyjum. Þessi ferð hefði alls ekki ver- ið í frásögur færandi, ef ekki hefði það atvikazt alveg óvænt, að sólarhring síðar sat ég í þotu Flugfélags íslands á leið til Mallorca, hinnar stærstu af Bal eares-eyjum. Var þetta fyrsta þotuflugið til Mallorca á vegum ferðaskrifstofunnar Sunnu, en hún hefur tekið þotuna á leigu lega litlar með tilkomu þotunn- ar. Tilvalinn ferðamannastaður Fólk, sem til Mallorca kemur, furðar sig vart á því, að eng- an einn stað skuli fleiri ferða- menn sækja á ári hverju, — svo hefur náttúran gengið hag- anlega frá flestu. Loftslagið er heitt en þó ekki ónotalegt og sólríkar baðstrendur eru fjöl- margar — víðáttumiklar og skjól góðar. Og veðrið telst því að- eins til tíðinda á Mallorca, þeg- ar 2-3 dumbungsdagar hafa kom ið, enda rignir aðeins 2-3 daga að meðaltali í Júnímánuði. Og orðnir heilmiklir heimsborgarar af kynnum sínum við útlending- ana, sem streyma til eyjunnar úr öllum hornum heims. Gest- gjafar eru þeir með ágætum og hjálpfúsir, enda þótt mann furði stundum á því, hve margir þeirra, er að þjónustustörfum vinna, eru lítt mælskir á enska tungu. Úir og grúir af hótelum Leiðsögumaður minn í þessari ferð var Guðni Þórðarson, for- stjóri ferðaskrifstofunnar Sunnu. Upplýsti hann, að á sl. ári hafi rúmlega 3 milljónir er- lendra ferðamanna sótt Mall- orca heim. Margur mundi því ætla að erfiðlega gengi að hýsa þennan fjölda, en þvert á móti — Spánverjarnir hafa séð vel fyrir gistirými. Þegar komið er til Palma er engu líkara en þar sé önnur hvor bygging eða meira gististaður. Hótelin eru opnað í aprílmánuði sl. „Við getum tekið á móti 450 manns, og sem stendur er hér hvert rúm skipað. Hefur aðsóknin ver ið mikil allt frá opnun og út- lit fyrir að svo verði áfram. Flestir þeirra, sem gista hjá okkur, eru Bretar en Norður- landabúar eru einnig fjölmenn- ir og alltaf að aukast." Hótel Coral Playa hefur upp á mjög fagra baðströnd að bjóða, og Caldentey ssgir, að fái hótel- gestir nóg af því að baða sig í sólinni, geti þeir fengið leigða báta hjá hótelinu og brugðið sér út á sjóinn eða gengið á sjó- skíðaskóla, sem hótelið rekur. „Við gerum allt til þess að, hó- telgestum líði hér sem bezt,“ segir Caldentey eins og góðum hótelstjóra sæmir. Sem fyrr segir þurfa ferða- menn, sem til Mallorca koma, ekki að kvíða því, að þar sé ekkert að sjá og enga skemmtun að fá. Ógrynni af skemmtistöð- um margvíslegum er í Palma og næsta nágrenni, og ferðamaður- inn getur valið um rólega vín- stofu, ærslafengið diskótek eða fjölbreyttan næturklúbb. Tago- mago nefnist einn næturklúbb- anna, og eru íslendingar þar sérlega velkomnir, því að þar ræður ríkjum ásamt fleirum söng flokkurinn Los Valdemosa, sem skemmt hefur hér heima oftar Framhald á bls. 13 Ferðahópur frá Sunnu á einum útsýnisstaðnum. Frá hafnarborginni Seller á norðurströnd eyjarinnar. til þessara ferða nú í sumar. Og hversu ótrúlegt sem það nú er, þá tók ferðin til Mallorca 5 mín- útum skemmri tíma en Þorláks- hafnarferðin frá Eyjum sólar- hring fyrr. Þurftum við þó að taka á okkur 300 mílna krók fyrir Frakkland, þar sem ekki mátti fljúga yfir það land vegna hins ótrygga ástands, er þar ríkti. Kostaði það okkur 25 mínútur, þannig að fara má þessa leið á 3 klukkustundum og 45 mínútum. Er þetta vafalaust saga til næsta bæjar, því að þessi ferð tók áður um níu tíma, þegar flog ið var með DC-6 leiguflugvél- unum. Þarna í þotunni voru ýms ir farþegar á leið til Mallorca í annað sinn, og trúðu þeir varla eigin augum, þegar þau beindust að vísum armbandsúr- anna eftir lendingu í Mallorca. Áttu farþegarnir vart nógu stór orð til að lofa þægindin um borð í þotunni og muninn frá fyrri ferðum. Þótti þeim Ijar- fjarlægðirnar vera orðnar hlægi það sem hefur á skort hjá móð- ur náttúru, er hún skóp eyna á sínum tíma, hafa íbúar hennar bætt úr síðar — enginn þarf að kvíða húsnæðisleysi og ríkulega er séð fyrir fróðleiks- og skemmtanafíkn þeirra, sem eyj- una heimsækja. Mallorca er ekki stór eyja, á- þekk að stærð og allt ræktað land hér heima, en það er 1/20 af fslandi. íbúar eru um hálf milljón talsins, þar af búa um 200 þúsund í höfuðborginni Palma. Það er útbreiddur mis skilningur hjá ferðamönnum, að íbúarnir lifi nær eingöngu á mót töku ferðamanna, en það er kannski eðlilegt, því að á eng- um atvinnuvegi ber meira. Mesti atvinnuvegur eyjaskeggja er samt akuryrkja, en því næst koma iðnaður og fiskveiðar. Mót taka erlendra ferðamanna er svo hinn fjórði í röðinni. Ferðamenn þurfa ekki að kvíða samskiptunum við eyja skeggja. Þeir eru frjálslegir í fasi og glaðlyndir, virðast vera Fyrsti ferðamannahópurinn, sem fór með þotu flugfélagsins til Mallorca á flugvellinum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.