Morgunblaðið - 26.06.1968, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.06.1968, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 13M - KENNARAÞING Framh. af bls. 21 stakri grein eða tveimur eða fleiri skyldum greinum. Hún verði skipuð kennurum, tilnefnd um af kennarasamtökunum, og sérfræðingum tilnefndum af fræðsluyfirvöldum. Slík nefnd leggi fyrstu drög að gerð kennslubókar, fái menn til sam- starfs um samningu hennar og sjái um að hún sé reynd nægj- anlega 1 kennsluhandriti áður en hún er gefin út. Tólfta þing LSFK ályktar að leita eftir samstarfi FHK og SÍB um þessi mál og samþykkir að æskja eftir því við þessi sam- bönd, að þau skipi fjóra menn hvort til setu í námsbókanefnd allra kennarasambandanna, og verði þá námsbókanefnd LSFK hluti hennar. (Fréttatilkynning frá Landssam- bandi framhaldsskólakennara). Sigurður Sigurðsson frá Hælavík — Kveðja Kaliið er komið, kæri látni vinur. Göfugu lífi lokið er. . Særa ei sálu sorgarinnar hrynur, jafnan sem geysa’ á jörðu hér. Vonin þér valdi vegleg andleg gæ'ði, líkams þótt væri lúið hold. Sást þú í anda ódauðleikans svæði. Drottinn þar býr oss fegri fold. Vagga þín stóð í veldi fjalla víðra. Fríð voru öldungs föðurtún. Bros þitt var arfur blævindanna blíðra. Góðvild og mildi hátt við hún. Alvaran þáttur Alvalds sterku afla, mannleg er skynjan skilja’ ei má. Skildir, menn verða’ að skunda lífsins skafla. Trúin oss veitir traustið þá. Trúmennska’ og vilji var þitt veganesti. Búið var erfitt, börnin smá. Hýstir í hjarta himins góðu gesti. Drottinn einn inn í sálu sá. Bú þitt og börnin blessaði Guðs armur. Konan þín var þitt vænsta hnoss. Hjúkráði’ hún þér, er heltók sjúkdóms harmur. Bar með þér þungan kvala kross. Stefanía, þú reyndist rík í raunum. Þoldir með bónda súrt og sætt. Sigurður þinn, er sleginn sjúkdóms kaunum, kvalanna þrautaveg fékk þrætt. Ung hézt þú honum helgum kærleiks tryggðum. Drottinn þér veitti dug og þrótt. Ást þín var letruð skýrt á skildi skyggðum. Verðmeiri hún en gullsins gnótt. Sá ég þig síðast Suðurnesja’ á grundum. Glaðan I anda, góðan mann. Við hjónin fögnuð fagran hjá þér fundum. Traust þitt var fest á Frelsarann. Sást þú að jarðneskt skeið vaT senn á enda. Fagnandi horfðir himni mót. Bros þitt á himna birtu virtist benda. Hræddist ei dapurt dauðans fljót. Þökkum nú margt, er miðla okkur máttir. Sönn gleði þig að sækja heim. Avallt þú sanna auðlegð hjartans áttir. Mæltir þú aldrei tungum tveim. Skarð fyrir skildi, sköpum ei má renna. Horfinn er góður húsbóndinn. Jarðnesk í fet vor fljótt þó vilji fenna. Gleymast ei göfug störf um sinn. Hugga nú þá, sem hrelldir eru hörmum, Drottinn. Þú telur tárin vor. Ástvini vef þú elsku þinnar örmum, ófarin þeirra’ um æfispor. Unaðsleg minning missinn sára mildi. Geymist í hjörtum göfug mynd. Guðstrú og traustið gefur lífi gildi. Gott er að eiga líknar lind. B. Þ. Mélningarhreinsun ♦ með háþrvstivél VERIÐ er að hreinsa málning- una ntan af Sundhöllinni með allnýstárlegum hætti, með há- þrýstivél, sem kölluð er „Power blaster". Er þrýstingurinn allt að því 10.000 pund, og er ýníist notað vatn eða vatn og sandur saman. Eigendur vélarinnar eru Gunn ar Guðmundsson, Steinþór og Jón Geir Asgeirssynir. Sögðust þeir hafa hreinsað hús Sláturfé- lags Suðurlands og Reykholts- skólann og sömuleiðis ryð- og sandblásið skip og tanka, svo sem síldarflutningaskipin, og væri mikil eftirspurn eftir vél- iimi til slíkra starfa. Þeir segja hana geta hreinsað um 30—40 fermetra á klukku- stund af venjulegum veggjum, þ. e. sléttum veggjum, sem ekki hefði verið látið þéttiefni á. Og væri þá unnið aðeins með vatni og þrýstingi. Ef mörg lög væru á veggjunum af málningu, væri einnig notaður sandur. Sögðu þeir vélina nota 50 lítra af vatni á mínútu, en 125 kg. af sandi á klukkustund. Kváðu eigendur hana kosta 500 kr. á klukkustund, mannlausa. KVEÐJA: Þorbjörg Stefánsdóttir Húsey, Hróarstungu Á FÖGRUM sumardegi 8. júlí 1891 fæddist að Klúku í Út- mannasveit, stúlka, er hlaut nafn ið Þorbjörg, en foreldrar henn- ar voru hjónin, Guðný Ólafs- dóttir og Stefán Bjarnason, er lengi bjuggu á þeim bæ við góð- an orðstír. Voru þau þess um- komin að veita þessari dóttur ágætt uppeldi, sem hún bjó að til æviloka. Á yngri árum mun hún hafa búið sig sem bezt undir lífsstarf sitt, en dvaldist sem mest í föð- urgarði. 29. júlí 1922 giftist Þorbjörg Níelsi Stefánssyni. Ári síðar fengu þau ábúð á hálfri Húsey I Hróarstungu, sem er mikil kostajörð, og þar var heimili hennar frá þeim tíma. Það mun hafa verið áform þessara ungu hjóna, er þau stofnuðu heimili, að gera það myndarheimili, og sú var líka raunin, og var hlutur Þorbjargar í þeim efnum ágæt- ur. Það er nú svo, að hann er oft langur og annasamur starfs- dagur húsfreyju á stóru sveita- heimili. Svo var einnig í henn- ar starfi. Á vorin er önn dags- ins mikil í Húsey. Þar er selveiði góð, og það starf krefst mikillar NORRÆNA samvmnnsambandið (Nordisk Andelsforbund, NAF) á hálfrar aldar afmæli hinn 26. jún* nk. Afmælisins verður m.a. minnzt þannig, að efnt verður til söiu- og kynningarherferðar á öllum Norðurlöndunum, þar sem aðaláherzla verður lögð á að kynna helztu innkaupavöruteg- und sambandsins, sem er kaffi. Meginverkefni Norræna sam- vinnusambandsins er að sjá um sameiginleg innikaup á nauð- synjavörum frá flestum hlutum heims fyrir samvmnusamböndin á Norðurlöndum. Það rekur inn- kaupaskrifstofur í London, San- tos í Brasilíu, Valencia á Spáni, Bologna á Ítalíu, San Francisco í Bandaríkjunum og Buenos Air- es á Argentínu. Helztu vöruteg- undir, sem það kaupir, eru ávext ir, nýir og niðursoðnir, og kaffi sem að mestum hluta er keypt í- Santos. Afmælisins verður minnzt sér- staklega á aðalfundi sambands- ins og systurfyrirtækja þess, Nordisk Andels-Eksport (NAE), sem að þessu sinni verður hald- inn í Kaupmannahöfn dagana 25. til 27. júní. Aðalhátíðahöldin fara fram í ráðhúsi Kaupmanna- hafnar nk. miðvikudag, og flytur Einar Gerhardsen, fyrrv. for- sætisráðherra, Noregs, aðalræð- una þar. Á tímabilinu 24. júní til 6. júlí fer svo fram sérstök sölu- og kynningarherferð í hinum 18.000 verzlunum samvinnumanna á öll Umferðnrslys UMFERÐARSLYS var í Svína- hrauni í fyrrakvöld. Jeppabif- reið var ekið eftir Hellisheiðar- vegi, en þegar kom í Svínahraun mun eitt af hjólum jeppans hafa farið i úrrennslisvik með þeim afleiðingum, að stúlka, sem ók jeppanum, missti stjórn á honum og fór hann út af veginum. — Vallt hann þar og mölbrotnaði hús jeppans, en hins vegar sluppu farþegar í honum lítt meiddir. Má það teljast mesta mildi, eins og jeppinn var út- leikinn á eftir. fyrirhyggju og vinnu. Þá var fljótlega tekið til við að byggja stór fjárhús og hlöður og íbúðarhús, en hlunnindi voru að vísu trjáreki á Héraðssönd- um. En tíminn líður fljótt. Haust- ið 1943 svífur dökkur skuggi yfir þetta friðsæla heimili og hafði á brott með sér húsbóndann á miðjum aldri. Þá var hljótt á því heimili og víðar. Það undr- aði mig, yfir hvað miklum krafti þessi kona átti að ráða, hún missti svo mikið og börn þeirra, og öll sveitin okkar. Það fóru erf iðir tímar í hönd, en það fannst lítt t heijm, enda bar hún ekki tilfinningarnar utan á sér. Hún var áreiðanlega mikil tápkona, og skildi það mörgum betur, að starfið göfgar. Þeim hjónum varð 5 barna auðið, en eitt dó skömmu eftir fæðingu, en hin eru: Stefanný, húsfreyja í Húsey, Sesselja, húsfreyja á Skjöldólfs- stöðum á Jökuldal, Soffía, hús- freyja á Selfossi og Jón, læknir í Svíþjóð. Þorbjörg sál. var ekki áber- andi kona út á víð. Hún var í Kvenfélagi sveitarinnar og vildi um Norðurlöndunum fimm. — Verður lögð megináherzla á að kynna þær kaffitegundir, sem samvinnuverzlanir í þessum löndum selja, en einnig verða ýmsar aðrar vörur kynntar. Á Islandi verður lögð megináherzla á að kynna neytendum Braga- kaffið, en það er allt keypt hing- að til lands fyrir milligöngu Nor- ræna samvinnusambandsins. veg þess sem mestan, og gæfu- kona var hún. Ævifélagi henn- ar var mesti öndvegismaður og börnin öll velgerð, og hafa hlot- ið góðan þroska. Þá var hún einnig þess umkomin að geta annast aldurhnigna foreldra, er húmaði að fyrir þeim. Þá verður því sízt gleymt, hve oft var gest kvæmt í Húsey, og þær frábæru viðtökur sem gestir urðu þar að- njótandi. Það er fallegt í Húsey á vor- in, þetta iðandi líf, og mikill fuglakliður. Við blasir hixm fagri og víðfemi fjallahringur Fljótsdalshéraðs, og í hafi hin prúða Bjarnaey, í túni stór sef- tjörn er nær heim að hlaðvarpa. Allt þetta myndar eina órjúf- andi heild, blandaða nið tveggja stórjökulvatna, Lagarfljóts og Jökulsár á Brú. í þessu um- hverfi, sem augað á svo gott með að una við, og hugur og hönd að starfa fyrir, helgaði Þorbjörg sál. alla starfsorku sína og var starfi og stöðu trú til hinztu stundar. Fyrir langt og annasamt húsmóðurstarf í Húsey ávann hún sér virðingu og vináttu allra þeirra, sem höfðu kynni af henni Fyrir nokkrum árum hætti Þorbjörg búskapnum og við tóku dóttir hennar og tengdasonur, og hafa þau haldið öllu í góðu horfi, en hún var sem fyrr óþreytandi að búa sem bezt að hag heimilisins, þá einnig reiðubúin að rétta öll- um börnum sínum hjálparhönd, svo sem hún megnaði og í fjar- lægð voru. Á öndverðum þessum vetri kom Þorbjörg sál. hingað suður til dóttur sem búsett er á Sel- fossi, og ætlaði að eiga dvöl hjá henni um skeið. En það fór á annan veg, heilsu hennar hnign- aði fljótlega eftir að hún kom. Hún lézt í sjúkrahúsinu á Sei- fossi 9. febrúar sl., sofnaði svefn- inum langa rólega, er strengur- inn brast. Kæra vinkona, ég þakka þér af heilum huga alla samfylgd- ina, mér finnst að það hafi syrt að í sveitinni okkar þegar þú ert horfin. „Vér komum og förum, sem fannir um vor, fár veit er líður, vor ævinnar spor“. Anna Ólafsdóttir. UTAN ÓR HEIMI Framh. af bls. 14. in flokks. — Sumir eru reið- ir af hugsjónalegum ástæð- um, en aðrir óttast í einlægni afleiðingar breytinga. Sumir leita einfaldlega eftir því að viðhalda þeim völdum, sem þeir hafa náð, hvað sem það kostar. Kosygin og stuðnings- menn hans stefna að endur- bótum í efnahagslífi, sem nær útilokað er að samræma þeim hugmyndafræðilegum kröf- um, sem þeirra eigið vald hvil ir á. Þeir gera þetta í þeirri von að geta komið upp ánægðu þjóðfélagi sællegra borgara, sem verði þakkað þjóðfélags- skipuninni og þeim sjálfum. En þeir hugsa sér einnig að geta notfært sér þessa borg- ara gegn þeim uppreisnar- gjörnu á meðal yngra fólks. Þar til þessu hefur verið náð og í því skyni að koma í veg fyrir að uppreisnarhugmynd- ir breiðist út frá þeim yngri til þjóðfélagsins í heild, verð- ur lögreglunni heimilað að beita ógnarvaldi að takmörk- uðu leyti og þar sem það hent ar. Anðstæðar skoðanir Spennan milli andstæðra skoðana í Kreml hlýtur oft að hafa verið mjög mikiL Allt sem þar er unnt að segja um nú, virðist vera, að það sem áður fyrri var nefnt skynsem- ishagsmunastefna virðist vera að vinna á, enda þótt fyrir einu eða tveimur árum hafi svo virzt vera, sem afturhalds stefna sæti í hásæti. í marz sL gat Leonid Brezhnev, sem er greinilega hin ákjósanlega ímynd um harðan flokks- mann, hótað og ógnað mennta mönnum á þann hátt, að minnti á fyrri tíma. En hon- um reyndist ekki unnt að bjarga Novotny fyrrverandi forseta I Prag. Jafnframt þessu gerizt það, að Rússum er leyft í vaxandi mæli að fara erlendis. Efna- hagsmálasérfræðingar í Sov- étríkjunum eiga í áköfum við ræðum við starfsbræður sína í Júgóslavíu og Tékkósló- vakíu. Ráðamennirnir í Moskvu standa í nánu sam- bandi við Titó forseta, enda þótt stefna hans sé forboðin, en hann getur vafalaust af sinni eigin reynslu látið í té jafnt gagnlegar aðvaranir sem gagnráðstafanir fyrir end urbótasinnana í Sovétríkjun- um. Þá hefur sovézka stjórn- in með sendiráði sínu í Aust- ur-Berlín rutt sér nýja braut með því að koma á beinu sam bandi framhjá Walter Ul- bricht við utanríkisráðherra Vestur-Þýzkalands, Willy Brandt. í stuttu máli sagt, þau gömlu leiðarmörk, sem gerðu stjórnmálamönnum beggja megin við bilið mikla, sem aðskilið hefur þá, kleift að starfa lengi án þess að beita ímyndunarafli sínu og greind, eru að hverfa. (Observer, — ÖU réttindi áskilin) 50 ára afmæli norræna samvinnusambandsins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.