Morgunblaðið - 26.06.1968, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1968
13
- MALLORCA
FramhaM af bls. 19
en einu sinni. Er þarna jafnan
glatt á hjalla og þétt setið.
Sérstæðasti skemmtistaðurinn
er samt Son Amar, sem stendur
í nokkurra kílómetra fjarlægð
frá Palma. Eigendur eru tveir
ungir bræður, og hafa þeir sýnt
aðdáunarverða hugvitssemi í
rekstri skemmtistaða á þjóðlega
vísu. Ferill þeirra hefur þó síð-
ur en svo verið dans einn á rós-
um, enda þótt gæfan blasi nú við
þeim.
Son Amar er upphaflega ætt-
aróðal þeirra, og var þar um
langt skeið rekið mikið bú, sem
snerist einkum um olívurækt. En
þegar fram liðu stundir komu
fram á sjónarsviðið ýmiss konar
gervimatarolíur, sem gerðu það
að verkum að eftirspurn eftir
olívum minnkaði til muna. Fór
því að harðna í ári hjá ættinni,
unz svo fór að búi var brugðið
og fjölskyldan flutti til Alsír.
Þar reisti hún brátt voldugt bú
og vegnaði vel, en brátt knúði
ógæfan dyra í annað sinn. Alsír
þlaut sjálfstæði, og ríkið þjóð-
nýtti allar eignir erlendra
manna.
En bræðrunum tveimjur virtist
flest betur lagið en leggja árar
í bát. Þeir sneru aftur heim til
óðalsins á Mallorca, og hófust
þegar handa um að breyta
í skemmtistað, þar sem allt,
sem þjóðlegt er situr í fyr-
irrúmi. Haldnar eru á kvöldi
hverju miklar grísaveizlur í hin
um öldnu og sérkennilegu söl-
um búgarðsins, en smágrísir eru
glóðarsteiktir undir berum himni
svo tugum skiptir. Gífurleg-
an hóp ferðamanna drífur jafn-
an að Son Amar til að njóta
matar, lendra vína og sérstæðs
umhverfis, og á meðan setið er
undir borðum ganga söngflokk-
ar um sali, leika og syngjaþjóð-
lög og fleira, sem gestina fýsir
að heyra. Er þarna hin mesta
stemning að jafnaði, og hækkar
nú jafnt og þétt í pyngju þeirra
bræðra.
Þeir hafa þó ekki látið þar
við sitja, heldur fært úr kvíarn-
ar á frumlegan hátt. Nýlega
festu þeir kaup á gömlum bú-
garði, sem stendur nokkurn spöl
frá Palma og nefnist La Granja.
Hafa þeir breytt honum í lif-
andi minjasafn, ef svo má að
orði komast, sem þeir opnuðu
fyrir nokkrum vikum. Hefur
hann vakið feikna hrifningu
ferðamanna, enda eru vafalaust
óvíða til staðir, sem veita jafn
glögga yfirsýn um líf og hætti
bændafólks. Bræðurnir hafa ráð
ið til sín hóp fólks, sem kann
vel til þjóðlegra verka, ogþarna
á einum og sama stað getur ferða
maðurinn séð trésmiðinn við
frumstæðan rennibekk, járnsmið
inn og físibelginn, leirkerasmið-
inn móta kerin, karla pressa ol-
ívurnar, vefkonur við stólana,
saumakonur að störfum, og
margt fleira mætti nefna. Og ef
það skyldi gleðja einhvern, þá
eru þarna stórar ámur með mis-
mundandi tegundum af vínum,
þar sem hver getur drukkið sem
hann lystir — ókeypis með öllu.
Er ekkert útlit fyrir að þessi
staður ætli á neinn hátt að verða
eftirbátur Son Amar hvað að-
sókn snertir.
Ekki er þess neinn kostur að
nefna alla þá staði á Mallorca,
sem verðir eru athygli, enda átt-
um við þess ekki kost nema að
heimsækja örfáa staði á hraðri
ferð um eyjuna. En þó skal stikl-
að á því helzta. Enginn, sem
til MaRorca kemur, skyldi láta
undir höfuð leggjast að heim-
sækja Alfabia-arabíska garð-
inn, sem stendur nokkurn spöl
frá Palma. íslenzkir ferðamenn
eiga þar vísar góðar móttökur,
því að garðvörðurinn er mikill
íslandsvinur. Kemur það til af
því, að hann á dóttur, sem er
hjúkrunarnunna í Stykkishólmi,
og hún hefur skrifað honum, að
ísland sé gott land og hér búi
gott fólk. Og það má heyra það
á gamla manninum, að ekki efar
hann orð dóttur sinnar. Þarna
skyldu líka allir fá sér nýpress-
aðan appelsínusafa, því að fersk
ari drykk hef ég ekki bragð-
að.
Soller heitir hafnarborg, sem
stendur á norður hluta eyjunn-
ar og þar skyldu menn rétta úr
sér eftir allar beygjurnar, sem
bíllinn þurfti að taka til að kom-
ast yfir fjallgarðinn, sem skilur
höfuðborgina og hafnarborgina.
Og fyrst að þangað er komið
skyldu menn halda áfram til aust
urs og fara Þingvallahring
þeirra Mallorcabúa. Gefst þeim
þá kostur að hafa viðkomu í
klausturbænum Valdemósa, þar
sem fyrrnefndur söngflokkur er
upprunninn. Sennilega er stað-
urinn samt frægari fyrir það, að
þarna sigraði skáldkonan Ge-
orge Sand hjarta Chopins á
því herrans ári 1838. Þegar þessi
leið er farin er ekið um þorpið
Deya, en þar býr íslenzk kona,
gift brezkum rithöfundi, og enn-
fremur að La Granja, sem fyrr
er getið.
Sunna sér um skoðunarferðir
til fleiri staða, en hér eru nefnd-
ir, og segir Guðni Þórðarson,
að íslendingar fjölmenni jafnan
í þessar ferðir og láti vel af.
— B. V.
- BOKMENNTIR
Framhald af bls. 17
formuð og ekki soramörkuð orð
færi, sem er öllum þorra sæmi-
lega mannaðs fóíks með öllu ó-
skiljanlegt. Margt er sagt spak-
lega og eftirminnilega, og í fá-
um orðum bregður höfundur
upp minnisstæðum myndum.
Það er hreint engin tilviljun
og ekki heldur að neinu leyti
vegna persónulegra tengsla við
höfundinn — að- ég skrifa all-
rækilega um þessa nýju
bók. Hún er verk manns, sem
finnur sig ábyrgan gagnvart
þjóð sinni og gagnrýnir —
kannski helztu grundvallarveilu
samtíðarinnar í persónulegu og
sérstæðu formi, sem vitnar um
kunnáttusemi og listrænt jafn-
vægi, — verk manns, sem veit
sér ekki samboðið og telur sig
heldur ekki þurfa að vekja at-
hygli á sér eða sínu meðhunda-
kúnstum og eftiröpun, hvað þá
með því að dvelja lengstum við
þá starfsemi mannlegs líkama,
sem fer fram neðan við þind.
Loks þetta:
Hvort mun portúgalska orðan
— medalja commemoratíva das
campanhas do Exercíta Portú-
gese — lenda í ruslakistunni
hjá Bubba litla, þegar hann
kemst til vits og ára — eða
verða hafin á henni fjöldafram-
leiðsla sem verðugu tákni lífs-
viðhorfa komandi kynslóða?
Guðmundur Gíslason Hagalín
lingur erlendur tæknimaður
óskar eftir herbergi í Vesturbænum.
Fæði æskilegt á sama stað:
Upplýsingar í síma 11141.
SÓLÓHÚSGÖGN
Seljum frá verkstæði okkar hin vinsælu SÓLÓHÚSGÖGN sterk
og stílhrein, í borðkrókinn, kaffistofuna og samkomuhúsið.
m
Hringbraut 121 sími 21832.
Mjög hagstætt verð.
iLMENNUE FUNUUL
í LAUGARDALSHÖLUNNI fimmtudaginn 27. júní kl. 21:00.
Dagskrá: Fundurinn settur, Gunnar
Friðriksson, formaður
samtaka stuðningsmanna
Gunnars Thoroddsens
Ávörp flytja: Eggert G. Þorsteinsson
Oddur Ólafsson
Jóhanna Sigurðardóttir
örlygur Hálfdánarson
Ólafur B. Thors
Hermann Guðmundsson
Sr. Ólafur Skúlason
Ásgeir Magnússon
Kristinn Ágúst Eiríksson
Dr. Bjarni Benediktsson
Að lokum ávarpar
dr. Gunnar Thoroddsen fundinn.
14 Fóstbræður syngja með
hljómsveit Ragnars Bjarnasonar.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
frá kl. 20:15 við höllina.
Oddur
Jóhanna
örlygur
ólafur B.
Hermann
Eggert G.
Gunnar