Morgunblaðið - 26.06.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1968
5
Happdrætti
Bústaðarsóknar
Kirkjudagur Bústaðarsóknar
var nýlega haldinn. Var þá efnt
til skyndihappdrættis til ágóða
fyrir kirkjuhyggingu safnaðar-
ins. Vinningurinn var Mallorca
og Lundúnarferð, sem Guðni
Þórðarson, forstjóri ferðaskrifst.
Sunnu gaf. Er þetta önnur slík
gjöf, sem Guðni liefur gefið Bú-
staðarkirkju og kunna forráða-
menn safnaðarins honum mikl-
ar þakkir fyrir.
Myndin sýnir er Guðni Þórð-
arson afhendir vinningshafa frú
Ásgerði Hafstein, Garðsenda 17
farseðilinn. Með þeim á mynd-
inni eru sóknarpresturinn, séra
.Ólafur Skúlason, safnaðarfull-
trúi, Ottó A. Michaelsen og for-
maður sóknarnefndar Axel L.
Sveins. I bakgrunni má sjá smiði
vinna við að reisa safnaðarheim-
ili kirkjunnar.
Neyðarástandlögin
undirrituð í V-Þýskal
Bonn, 25. júní NTB
Forseti Vestur-Þýzkalands,
Heinrich Lúbke, undirritaði í
dag neyðarástandslög þau, sem
miklum deilum hafa valdið að
undanförnu og taka þau gildi,
undir eins og þau liafa verið
birt í lögbirtingarblaði landsins.
Venjulega líða nokkrar vikur
frá því að forsetinn staðfestir
lög, þar til að lögin eru birt
í lögbirtingarblaðinu.
I þessum nýju lögum er -kveð-
ið á um vald ríkisstjórnarinnar,
er hætta er talin á styrjöld eða
styrjöld skellur á eða ef alvar-
legt hættu- eða neyðarástand
skapast innanlands. Voru lögin
- KR - ÍBK
Framhald af bls. 26
Þórólfur skoraði upp úr mikilli
skotpressu eftir hornspyrnu, þar
sem vörn ÍBK hafði varið einu
sinni, Magnús Haraldsson á mark
línu í annað skiptið, en knettin-
um aldrei komið í burt.
Á 22. mín skorar Gunnar Felix
son eftir að Keflavíkurvörnin
hafði verið sigruð með storm-
sókn á miðjunni og skot í stöng.
Á 36. mín skoraði Gunnar Fel.
aftur. Nú með skoti af vítateig
sem hann fékk vel að undirbúa.
Þetta var fallegasta mark leiks-
ins.
Á 9. mín síð. hálfleiks leikur
Hörður Markan upp kantinn, gef
ur fyrir til Eyleifs. Hann sér sér
góðan tíma og sendi milli þriggja
varnarmanna ÍBK í markteig
aftur til Harðar sem skallaði inn
— aftur milli varnarmannanna.
Á 20. mín. framkv. Þórólfur
aukaspyrnu á vítateig. Hann
lyfti að markinu og Eyleifur
skallaði í markið. Fallega að unn
ið.
Tveim mín síðar náði Ólafur
Lárusson knettinum af Sigurði
Albertssyni, sem hélt að um rang
stöðu væri að ræða. Ólafur lék
að marki og skoraði auðveldlega.
Það var ekki fyrr en undir
lok leiksins, að Keflvíkingar
náðu tækifærum til marka, en
tókst þá illa. Næst komust þeir
marki á síðustu mínútu leiks, er
þeir áttu skot í stöng.
Keflavíkurliðið var eins og
vængbrotinn fugl, fálmandi í öll
um tilraunum, varnar- og sókn-
arlínur stóðu illa saman og allt
varð að litlu sem engu í með-
ferð.
KR-ingar með baráttuglaða
leikmenn, eldsnögga framherja
og grimma varnarmenn, góða
tengiliði og hina hættulegu send
ingar Þórólfs náði því yfirburð-
um sem vörðu lengst af.
Dómari var Steinn Guðmunds
son og fórst vel. — A. St.
samþykkt á sambandsþinginu fyr
ir 11 dögum, en þá höfðu þau
orðið fyrir mikilli gagnrýni og
mótmælaaðgerðir verið hafðar í
frammi gegn þeim af ýmsum að-
ilum.
Andstæðingar neyðarástands-
laganna, einkum stúdentar, frjáls
lyndir aðilar og sambönd verka-
lýðsfélaga eru þeirrar skoðun-
ar, að þessi lög geti rutt veg-
inn fyrir þýzkan einræðisherra
í framtíðinni.
Samkvæmt þessum lögum eru
síðustu takmarkanir hernáms-
veldanna á fullveldi Vestur-
Þýzkalands úr sögunni, því að
með þeim eru felld niður viss
áhrif, sem Bandaríkin, Bretland
og Frakkland gátu haft á nokkr
um sviðum öryggismála.
- AKUREYRI — ÍBV
Framhald af bls. 26
'þrátt fyrir sókn Eyjamanna. Það
vantaði beittasta broddinn í sókn
‘Eyjamanna. En lið þeirra er
skipað röskum og þolnum mönn-
um. Liðið hafði úthald til leiks-
loka og yfirleitt átti liðið ekki
'minna í siðari hálfleik þó hann
'yrði aldrei tíðindamikill.
Magnús Pétursson dæmdi al-
■veg óaðfinnanlega.
Kalt var í veðri og völlur
blautur og þungur. Ekki var mik
il úrkoma meðan á leik stóð, en
■norðankul og hráslagalegt.
Saigon, 25. júní. NTB-AP.
• Tólf bandarískir og átján
thailenzkir hermenn biðu bana
í dag, cr þrjár þyrlur fórust um
25 km norðaustur af Saigon.
Slys þetta bar að með þeim
hætti, að því er AP segir, að
tvær þyrlurnar rákust saman og
varð við það sprenging, er náði
til hinnar þriðju. Steyptust allar
þyrlurnar logandi til jarðar.
Veður var slæmt, er slysið varð.
Nákvæm rannsókn hefur verið
fyrirskipuð á þessu slysi og öðr-
um þyrluslysum, sem hafa verið
tíð að undanförnu.
Meiri háttar átök hafa ekki
verið í Suður-Vietnam síðasta
sólarhringinn, að því er fregnir
frá Saigon herma. Bandarískar
sprengjuflugvélar af gerðinni
B-52 hafa, ásamt bandarískum
fótgönguliðum og þyrlusveitum
gert nokkrar árásir á stöðvar
Vietcong umhverfis Saigon og
fellt 61 mann, og minni háttar
átök hafa orðið víða annars stað-
- VÁLEGT ÁSTAND
Framhald af bls. 1
sína í sumar. Flestir bændur eru
nú heylausir og verða að láta
gripina ganga úti. Búnaðarfé-
lagið heldur fund í kvöld til að
ræða ástandið.
Aðalbjörn Benediktsson, Grund
arási, Miðfirði:
— Það hefur verið anzi kalt
að undanförnu og jafnvel snjó-
koma um miðjan dag upp á síð-
kastið. Þetta hefur þegar haft
sín áhrif, hamlað gróðri, sem þeg
ar var veikur fyrir. Útlitið er
ekki gott, kal er með mesta móti
og fá eða engin tún hafa sloppið
alveg. Ástandjð er samt verst í
Hrútarfirði. Úthaginn er betri
ent únin og lambadauði hefur
verið með minnsta móti, enda
kom þurrviðriskafli rétt þegar
við þurftum á honum að halda
í því tilliti. Hinsvegar er enginn
farinn að hugsa um slátt ennþá
og veðráttan þarf mikið að batna
og gróðri að fleygja fram áð-
ur en að því kemur.
Sigurbjörg Jónsdóttir, Ófeigs-
stöðum í Köldukinn:
— Hér hefur verið slydda að
næturlagi og hiti rétt um frost-
mark. Ég held samt að ekki hafi
frosið svo djúpt að kartöflugrös
hafi skemmst. Það var ekki mikið
um lambadauða hjá okkur, enda
voru ærnar hýstar yfir burðinn
en nú er búið að sleppa þeim
öllum. Hér er mjög kuldalegt um
að litast, íshrafl alveg upp í
fjörur og mikið um kal í tún-
um. Þau eru öll hvítflekkótt, en
ef gerir góða tíð er von til að
þetta bjargist sæmilega.
Landvarnaráðherra S-Vietnam
upplýsir, að fyrir næstu áramót
muni her stjórnarinnar í S-Viet-
nam telja samtals um 800.000
manns. Hann telur nú 655.000
manns en bandaríska liðið
533.000. Að sögn NTB er talið, að
Vietcong skæruliðar og Norður-
Vietnamar hafi nú samtals rúm-
lega 300.000 manns undir vopn-
um fyrir sunnan 17. breiddar-
baug.
Frá stjórnarbúðum S-Vietnam
berast þær fregnir, að 90 þing-
menn hafi krafizt þess, að stefna
Bandaríkjanna í Vietnam verði
tekin til umræðu á þingi lands-
ins. Standa kaþólskir þingmenn
fremst í fylkingu kröfumanna en
að því er talsmaður þeirra segir,
stendur mörgum stuggur af þeim
orðrómi, er nú er uppi í S-Viet-
nam, að áhrifamiklir aðilar í
Washington leggi fast að Banda-
ríkjastjórn að fallast á, að mynd-
uð verði samsteypustjórn í S-
Vietnam, er þjóðfrelsinshreyfing
in fái aðild að.,
30 fórust í þyrluslysi
— skammt frá Saigon
Albernathy dæmdur
í 20 daga fangelsi
Washington, 25. júní NTB-AP.
'SÉRA Ralph Albernathy, sem
‘hefur forystu fyrir baráttu
blökkumanna fyrir auknum rétt-
indum, að séra Martin Luther
King föllnum og stjórnar jafn-
framt baráttu hinna fátæku, sem
staðið hefur yfir síðustu vikur,
var í dag dæmdur til tuttugu
daga fangavistar fyrir að standa
fyrir ólöglegri mótmælasam-
‘komu. Alberhathy var handtek-
inn á mánudagskvöld úti fyrir
'bandaríska þinghúsinu, þar sem
hann stjórnaði mótmælagöngu
nokkur hundruð manna er farin
var í trássi við bann yfirvalda.
Var hann einn af um það bil 350
manns, sem lögreglan tók í sína
vörzlu.
Albernathy sagði við frétta-
menn, áður en hann fór með
hópgönguna að þinghúsinu, að
hann og margir aðrir forystu-
fflenn baráttunnar gerðu ráð fyr
ir handtöku. Hann veitti enga
mótspyrnu, þegar lögreglan tók
hann og leiddi á burt. Segir
NTB, að sú hafi verið skoðun
margra, að hann tæki handtök-
unni fegins 'hendi, því þar með
hafi hann komizt hjá því að
beygja sig fyrir ákvörðunum
stjórnarvaldanna.
Albernathy sagðí fyrir réttin-
um, að hann teldi það skyldu
sína að reyna að vekja athygli
iþings landsins á því hversu bág
kjör hinna fátækustu í þjóðfé-
laginu væru. Svaraði dómarinn
því til, að hann efaði ekki, að
honum gengi gott eitt til, en
sagði, að hann yrði að reyna að
halda sig og aðgerðir sinar inn-
an ramma laganna.
í dag var hafizt handa um að
rífa niður tjald og kofabúðirnar,
sem baráttumenn höfðu sett upp
í garði einum i Washington, um
3 km. frá Hvíta húsinu. Búðimar
voru ruddar á sunnudagskvöld-
ið og kom þá til talsverðra átaka.
Úrskurðað hafði verið, að fólk
þetta mætti hafast við í búðun-
um til miðnættis á laugardags-
kvöldið, en það neitaði, með Al-
barnathy í forystu, að hlíta þeim
úrskurði. Á sunnudag voru íbú-
arnir varaðir við því hvað eftir
annað, að yrðu þeir ekki á brott,
mundi lögreglan ryðja búðimar.
Síðasta aðvörunin var birt klukk
an átta á sunnudagskvöld og
klukkustund síðar kom þar upp
eldur. Slökkviliðsmönnum var
með ýmsum hætti torveldað að
vinna starf sitt og urðu þar tals-
verða óeirðir. Lögreglan beitti
þá táragasi og kylfum til þess að
rýma búðimar og hermenn úr
þjóðvarnarliðinu voru viðbúnir
að grípa í taumana, ef óeirðirnar
breiddust út. Upprunalega voru
um 3000 manns 1 búðunum, en
flestir, m. a.flestar konur og
börn, voru farnir þaðan.
Eftir að búðirnar höfðu verið
rýmdar kom til óeirða á ýmsum
stöðum í borginni, en lögreglu-
lið greip með aðstoð þjóðvarðliða
jafnharðan í taumanna og kom i
veg fyrir að til alvarlegra tíð-
inda drægi Vann lögreglu- og
þjóðvarðliðið undir beinni stjórn
borgarstjórans, Walters E. Was-
hingtons, sem sjálfur er blökku-
maður og þykir hafa haldið vel
á málum síðustu daga. í nótt var
i útgöngubann í borginni.
Tillaga Bandaríkjaforseta:
Úll skotvopn í einka-
eign veröi skrásett
Washington, 25. júní. AP.
JOHNSON Bandaríkjaforseti
hefur borið fram tillögu um, að
skrásett verði á vegum sambands
stjórnarinnar sérhver byssa í
einkaeign í Bandarikjunum. Hef-
ur þessi tillaga þegar vakið deil-
ur í þinginu.
f sérstökum boðskap, þar sem
komizt var skorinort að orði, og
sendur var báðum deildum
Bandaríkjaþings sl. mánudag, fór
forsetinn fram á strangari lög
um eftirlit með skotvopnum.
Sagði þar ennfremur, að forset-
inn myndi bera fram sérstakt
lagafrumvarp í þessa átt. „Heim-
ilum og götum víða um landið,
þar sem skothvellir kynnu að
glymja, verður forðað frá þeim
harmleik. sem tilgangslaus mann
dráp eru“, sagði forsetinn. Til-
laga forsetans var gagnrýnd af
Robert L. F. Sikes, demókrata
frá Florida, sem sagði, að helzta
ályktunin, sem draga mætti af
orðum forsetans væri dapurleg
vandkvæði á lagaframkvæmd í
Bandaríkjunum. Sikes er fyrrver
andi framkvæmdastjóri NRA
(National Rifle Association), en
það er félag eigenda skotvopna
og hefur það verið helzti and-
stæðingur strangara eftirlits með
byssum, einkum skrásetningu
þeirra.
Bandariska þingið hefur þegar
samþykkt lög, sem koma í veg
fyrir, að unnt verði að kaupa
skammbyssur með póstpöntun
og bar forsetinn nú fram áskor-
anir um, að gripið yrði til
snöggra ráðstafana í því skyni
að koma á löggjöf, sem hindraði
sölu rifla með þeim hætti.
Johnson sagði, að með þeirri
skráningu á vegum sambands-
stjórnarinnar, sem hann hefði
lagt til, væri unnt að koma í veg
fyrir að glæpamenn, eiturlyfja-
neytendur, áfengissjúklingar og
geðsjúklingar keyptu eða eign-
uðust skotvopn svo og allir aðrir,
sem hætta gæti stafað af fyrir
heilbrigði, öryggi eða velferð
borgaranna.
RITSTJÓRN • PREIMTSMIÐJA
AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA
SÍMI 10.100
Skrifstofuhúsnæði
Neðarlega við Laugaveg, rúmgóð þrjú herb. teppa-
lög til leigu. — Nánari upplýsingar gefur
NÝJA FASTEIGNASALAN,
Laugavegi 12, sími 24300.
ar.